Dagblaðið - 11.10.1980, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 11.10.1980, Blaðsíða 1
6. ÁRG. — LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1980 — 230. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMl 27022. DB afhjúpar leyndardóma fjárlagafrumvarpsins: TOLF MILUARÐAR TIL EFNAHAGSRAÐST AFANA —reiknaðmeðyfir40% verðbólgu næsta ár —yfir 60% hækkun frá frumvarpi Tómasar fyrir 12mánuðum Dagblaðið afhjúpar í dag þá miklu leynd, sem hvílt hefur yfir fjárlaga- frumvarpi Ragnars Arnalds fjár- málaráðherra. DB hefur orðið sér úti um aðalatriði frumvarpsins. Nálaegt 12 milljörðum skal sam- kvæmt fjárlagafrumvarpinu verja til „efnahagsaðgerða ” á næsta ári. Stjórnarliðar eru ósammála um, hvaða aðgerðir þetta eigi að vera. Framsóknarmenn leggja áherzlu á, að sett verði „hámark” á verðbætur, sem þýðir skerðing verðbóta. Þetta verði gert jafnframt ýmsu öðru til að hægja á skrúfugangi verðbólgunnar. Því verði að gera í fjárlögum ráð fyrir fjármunum til að bæta hinum tekju- lægstu það tjón, sem skerðing verð- bóta valdi þeim. Slíkt mætti, að mati framsóknarmanna, gera með skatta- lækkunum. Einnig eru hugmyndir um að verja fjármunum til að auka niðurgreiðslur frá því, sem fjárlögin munu annars gera ráð fyrir. Framsóknarmenn hafa gengið á fund forsætisráðherra með uppkast að lagafrumvarpi um efnahagsað- Igerðir, en uppkastið hefur ekki hlotið frekari umfjöllun. -HH sjá nánar iun fjárlagafrum varpið á Us. 5 Stefniríkosninga- bandalag st jérnarliða um nefndarkjör á þingi: Gunnar teflir Albert fram gegn Geir Þingmenn Sjálfstæðisflokksins þrefa enn um nefndarkosningar á Alþingi og verða haldnir fundir um málið í dag. Gunnarsarmurinn krefst þess að sjálfstæðismenn bjóði fram einn iista en jafnframt verði tryggt að fylgismenn ríkisstjórnarinnar í flokknum fái einn mann af þremur í sjö manna nefndum. Með þvi er meirihluti stjórnarliða i nefndunum tryggður. Geirsmenn hafna þessu og er lalið cinsýnt aö niðurstaðan verði sú að Gunnarsarmurinn geri kosningabandalag við Alþýðubanda- lag og Framsóknarflokk um nefndar- kosningarnar. Athygli verkur krafa Gunnars Thoroddsens forsætisráðherra um að Albert Guðmundsson verði formaður utanrikismálanefndar. Sumir túlka það sem beina atlögu varaformanns Sjálfstæðisflokksins að Geir Hallgrímssyni formanni, sem hefur veriö formaður utanrikisnefndar til þessa. -ARH. Sjá nánar um þingsetninguna á bls. 6 Jnnanhússtillaga’ íkjaradeilunni? Sáttanefnd boðar samninganefndir Alþýðusambandsins og Vinnuveitenda- sambandsins til fundar kl. 16 í dag. Talið er að þá muni hún leggja fyrir deiluaðila „innanhússtillögu” ’ til að reyna að koma samningaviðræðum á skrið á ný. Viðmælendur DB sem í ’■ rsvndu að spá i efni gærkvoioi .v,.. , n - .. tillögunnar töldu líklegt ao ln vildi fækka ágreiningsefnum, með þvi að ýta undir samninga um sameiginleg- ar sérkröfur og sérkröfur sambanda sem óafgreiddar eru. Til dæmis varðandi réttindi farandverkafólks, innheimtu orlofs- og sjúkragreiðslna o. fl. ,,Það er ákaflega brýnt að,,hreinsa borðið” eins og hægt er,” sagði einn samningamannanna i samtali við DB. -ARH. Þingmenn hlýddu með andakt á boðskap forseta Islands, Vigdlsar Finnbogadóttur, þá er hún fyrst kvenna i heiminum setti iöggjafarsamkomu þjóðþings. Við þingsetn- ingu lgœr var Vigdis Finnbogadóttir hvítklœdd og bar engin embættistákn. DB-mynd: Einar Ól. Ákvörðunar menntamálaráðherrans beðið með eftirvæntingu í Háskólanum: Baldur eða Höskuldur í prófessorsembætti? —Vésteinn Ólason og Peter Söby Kristensen lektorar í heimspekideild - -or Oislason hefur enn ekki ingva. _, nft skipað í embætti prófessors i málfræði í heimspekideild Háskóla fslands samkvæmt upplýsingum sem DB aflaði sér í gær. Af alls 3 um- sækjendum um stöðuna koma 2 frek- ast til greina, þeir Baldur Jónsson dósent og dr. Höskuldur Þráinsson. Á deildarfundi þar sem kosið var um umsækjendur hlaut Höskuldur 17 at- kvæði eða hreinan meirihluta en Baldur 'iC a!.'ívæði- Stúdentar sækja fast að Höskuldur veröi prófessor. Hafa flestir stúdentar á kandídatsstigi deildarinnar i ísl. mál- fræði skrifað nöfn sín á stuðnings- lista við Höskuld og kynnt mennta- málaráðherra sjónarmið sín. Baldur nýtur hins vegar stuðnings nokkurra áhrifamikilla lærifeðra í deildinni. Menntamálaráðherra hefur fyrir skömmú' lPtl Peter Söby Kristensen lektor í dönsku í heimspcs,'íí.'tci lii tveggja ára. Hinn umsækjandinn, Peter Rasmussen, hafði áður dregið umsókn sína til baka. Dómnefnd dæmdi báða hæfa en Söby Kristen- sen fékk þó öllu hagstæðari dóm. Ennfrémur hefur ráðherra skipað Véstein Ólason lektor í íslenzkum bókmenntum í heimspekideild. Vé- steinn var áður lektor í almennum boí.'.T-.nntum °8 vefður sú staða aug- lýst laus til umsOKilíL' lnnan tíðar. -AS.H

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.