Dagblaðið - 11.10.1980, Side 24

Dagblaðið - 11.10.1980, Side 24
Flokkssnatamir samir við sig: Óháðu landsmálablaði neitað um auglýsingu —f rá Seðlabankanum, þar sem það var ekki gefið út af stjórnmálaf lokki j— Þó þessir f lokkar stjómi landinu eiga þeir ekki draslið, segir ritstjóri Víkur-f rétta „Það var hringt í okkur hjá Víkur- fréttum frá Auglýsingastofu: Kristínar og okkur boðin auglýsing frá Seðlabankanum um ný-krónuna. Síðan var spurt hvort þetta væri ekki' pólitískt blað en því var neitað. Auglýsingastofan sagði þá að ein- göngu mætti auglýsa i pólitískum blöðum og væru það fyrirmæli frá Seðlabankanum.” Þannig mæltist Sigurjóni Vikarssyni útgefanda og ritstjóra Víkur-frétta í Keflavík í gær. Víkur-fréttir eru óháð lands- málablað, sem nýlega hóf göngu sína og miðar markað sinn við Keflavík og Suðurnes. Blaðið kemur í fram- haldi af öðru óháðu blaði, Suðurnesjatíðindum. ,,Ég spurði auglýsingastofuna,” sagði Sigurjón, „hver stefnan væri þá t.d. gagnvart Dagblaðinu og Vikunni, sem ekki væru gefin út af flokkspólitiskum öflum. Mér var sagt að það gilti annað, t.d. ef lesið væri úr leiðurum viðkomandi blaða í úrvarp. Hér er ekki við auglýsingastofuna að sakast, heldur kemur þetta beint frá Seðla- bankanum. Það er „prinsipmál” hjá mér að láta ekki bjóða mér þetta. Ég mun hafa samband við dómsmálaráðu- neytið og kanna réttmæti þess, að einn sé útilokaður í þágu annarra. Þetta er komið út í öfgar. Ef gefin væru út blöð af stjórnmála- flokkunum hér í Keflavík, þá fengju þau auglýsinguna strax. Það taka öll ráðuneytin þátt i þessu, en einstök ríkisfyrirtæki eru hissa á þessu og auglýsa sjálf. Menn verða að gera sér grein fyrir því, að það er fullt af fólki, sem ekki vill tjá sig i flokkspólitískum blöðum, senni- lega meirihluti þjóðarinnar. Þetta fólk er ekki verra en það, sem tekur þátt í flokkspólitísku starfi. Þau landsmálablöð, sem gefín eru út óháð stjórnmálaflokkum eiga rétt á að lifa og eru raunar vinsælli en flokksblöðin t.d. í Kópavogi, á ísafirði og hér. Það er aðeins Dagur á Akureyri, sem hefur náð verulegri fótfestu af flokkspólitískum lands- málablöðum. Þó þessir flokkar stjórni landinu, eiga þeir ekki draslið. Hvað myndi t.d. gerast, ef einn flokkur næði meirihluta á Alþingi. Myndi ríkið ekki auglýsa í öðrum blöðum en blöðum þess flokks?” -JH Þjófar með stór- hættulega nagla- byssu undir höndum — námskeið hjá Öryggiseftiriitinu þarf til að kunna að fara með hana Einhverjir fingralangir naunB2,r hafa nú undir höndum naglabyssu, af gerðinni Ramset, sem gæti reynzt stórhættuleg i höndum manna, sem kunna ekki með hana að fara. Byss- unni var stolið úr bil, sem stóð við Háagerði. Þjófnaðurinn var framinn aðfaranótt miðvikudagsins síðasta. „Þessi byssa eröðruvísj en flestar aðrar að þvi iéýíi 'áð er ekki kólfur, sem skýtur út nöglunum, heldur skot,” sagði Sigurður Böðvarsson, rafvirki, sá sem byssunni var stolið frá. Úr bíl hans hvarf einnig mikið magn af verk- færum, mælitækjum og fleiru, sem Sigurður áætlar að kosti um 5—800 þúsund krónur. „Þeim sem nota byssur sem þessa er skylt að læra á þær hjá öryggis- eftirliti ríkisins. Ef sett er fram- 7' , ., ' virkar lenging á hlaup neuuo, ..... eins og venjuleg skammbyssa,” sagði Sigurður. „Ef einhverjir unglingar eru með hana undir höndum má búast við hverju sem er. Sama má segja ef þjófurinn eða þjófarnir selja hana einhverjum, sem ekki kann með svona hluti að fara.” Fkki var einungis brotizt inn í bíl Sigurðar Böðvaf7IÍ?.rlar aðfæanótt miðvikudagsins. Hluta er sakiuL ur nokkrum bílum til viðbótar og einnig' sést að reynt hefur verið að komast inn í aðra. Þá var einnig brotizt inn i að minnsta kosti tvo bila við Brekkugerði. Mál þetta er í höndum rannsóknarlögreglunnar. -ÁT- frfálst, úháð dagblað LAUGARDAGUR 11. OKT 1980. Útgerð Sporðs RE-16 mótmælir harðjega ásökunum nokkurra skipverja og snýr vörn ísókn: „Kaupinu þeirra var stolið íFleetwood” — „buðum þeim uppgjör en þeir neituðu og hlupust á brott af skipinu” „Mönnunum stóð til boða greiðsla á inneignum sinum föstudaginn 3. október, inneignum 5 manna sem nema frá 55 þús. kr. til 787 þús. kr. á mann eða alls tæplega 2,3 milljónum. Þessu höfnuðu þeir af óþekktum ástæðum og hlupust á brott af skip- inu, einn með 3ja mánaða upp- sagnarfrest, hinir með 7 daga upp- sagnarfrest. Skipið hefur verið stopp í heilan mánuð vegna aðgerða mann- anna og kostað útgerðina allt að einni milljón kr. á dag að frátöldu aflatapi. Við munum beita fullum rétti og hýrudraga þá.” Þetta höfðu talsmenn útgerðar- fyrirtækisins Fiskugga hf. að segja um forsíðufrétt DB á fimmtudaginn. Þar var sagt frá deilu nokkurra manna úr áhöfn á Sporði RE 16 við útgerðina um kaup sem þeir telja sig eiga inni. Kom Tram að sjómennirnir ættu inni 700—1800 þús. kr. hver, en þeir Hafþór Svavarsson útgerðar- maður Sporðs og Hreiðar Bjarnason skipstjóri og meðeigandi bátsins mót- mæla harðlega þeirri tölu sem allt of hárri og segja skuldina vera 2.3 milljónir eins og áður segir. „Þeir segjast eiga inni langt aftur i timann, en sannleikurinn er sá að ágúst er uppgerður að fullu og þeir fengu fulla kauptryggingu fyrir sept- émber og 100 þús. að auki upp í sigl- ingartúr til Fleetwood. Uppgjör fyrir siglinguna er hins vegar enn ekki komið frá Bretlandi.” Aðspurðir um ástæður inneignar sjómannanna svöruðu þeir Hafþór og Hreiðar að „þessir menn viti það fullvel”. Hafi einn úr áhöfninni .stolið 8—9 milljónum kr. í erlendum gjaldeyri úr skipinu í höfn í Fleet- wood í siglingarferðinni, peningum sem átti að nota til að borga mann-. 'skapnum kaup. Hafi lögregla þar í borg verið í eina viku að leita manns- ins, fundið að lokum og 6,1 milljón af stolnu peningunum. „Auk þess létu mennirnir greipar 'sópa um matvælageymslur skipsins og tæmdu þær áður en þeir fóru i iland. Tjónið er upp á nokkur hundruð þúsund. Nákvæmari tölu vitum við ekki fyrr en plögg berast frá Bretlandi um hvaða kostur var lekinn þar um borð,” sögðu Hafþór og Hreiðar. „Við mótmælum því að ekki hafi verið. gert upp mánaðarlega. Þessi útgerð hefur aldrei skuldað nema ,fyrir það að félagi mannanna stal þeningunum í Fleetwood,” sögðu þeir. - ARH Rán og líkamsárás á konu eftir dansleik: Kinnbeins- brotin, tennur brotnar og marin á hálsi — árásarmaðurinn enn ófundinn viku eftirárásina Ráðizt var á konu, hún rænd og slösuð verulega eftir dansleik í Glæsi- bæ sl. laugardag. Árásarmaðurinn er enn ófundinn. Konan var á heiinleið eftir dansleikinn og ætlaði að ná sér i leigubil. Hún var koiiiin inn i hliðar- götu er maður réðst að henni og sló í götuna og hrifsaði af henni veskið. Eftir árásina hraðaði maðurinn sér á brott. Konan lá eftir, en það vildi henni til happs að lögreglubíll kom fljótlega að. Lögreglan fór með konuna á slysa- deild, þar sem gert var að helztu meiðslum hennar. Hún var kinnbeins- brotin og tennur brotnar og mikið marin á hálsi. Þá voru föt rifin. Konan fór siðan í aðgerð á mánudaginn, en fékk að fara heim af sjúkrahúsi um miðja vikuna. Konan sá árásarmanninn aðeins óljóst er hann hljóp burt, en telur að hann sé frekar ungur. Hann virtist vera frakkalaus, í dökkum jakka og féll skyrtukraginn út yfir jakkaboðunga. Árásarmaðurinn hafði ekki kynferðis- lega tilburði í frammi, heldur virtist hann beita ofbeldinu í þeim tilgangi að ná veskinu. f því voru ekki miklir pen- ingar, eða um 11 þúsund, en skilríki konunnar. Árásin var kærð til Rannsóknarlög- reglu rikisins, sem hefur kannað málið, en árásarmaðurinn var ófundinn í gær. - JH Bfllónýtur eftir veltu íKópavogi — ogökumaður íslysadeild Skrítnirfeðgar Bill valt innarlega á Nýbýlavegi i Kópavogi um ellefuleytið í gær- morgun. Kona sem í bílnum var vankaðist og meiddist og var til rann- sóknar í slysadeild í gær. Kom þar í Ijós að hún var óbrotin þó hún hefði fengið slæma pústra. Talið er að bíllinn hafi farið hálfa aðra veltu er hann fór út af veginum. Orsökin er talin vera bæði möl á mal- bikinu og óvenjuleg viðbrögð er konan mætti bíl, sem hún áður mun ekki hafa séð. Billinn sem konan ók er talinn allt aðþvíónýtureftirveltuna. -A.St. íDagblaðsbíói Ekkiánú að mlssZ Z?neinu'Súlkurnarfeg8ja mikið á sig að komasf aö þeim leyndardómi, sem innZ tfrYsSS* hefur erfiðið^ borgað sig og sú neðri ekki fengið hryggskekkjú. Wlkunum verou, | aðfyrirgefa, enda forvitnin mikiláþessum aldri. ^ j DB-mynd Ragnar //«.,. Vtnningshafar hringi ísíma 33622. LUKKUDAGAR: : 11. OKTÓBER 26226 ! Vöruúttekt að eigin vali frá Liverpool. í Dagblaðsbíói klukkan þrjú á morgun verður sýnd gamanmyndin Skrítnir feðgar. Myndin er i litum og ' ' '-"■’t-mn texta. Sýningin verður í með isieii^„... Haf narbíói að vanda.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.