Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 30.10.1980, Qupperneq 2

Dagblaðið - 30.10.1980, Qupperneq 2
2 r DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980. Umönnun fyrsta flokks á Landspítalanum en... Of spítalaleg, ópersónu- leg og gjörgæzluleg ópersónuleg og gjörgæzluleg þegar allt gekk eölilega. Þess vegna frnnst mér sjálfsagt að samstarf sé á milli Fæðingarheimilis- ins og Landspítalans en alls ekki á þann óþægilega hátt sem áætlað er heldur verði það metið eftir meðgöngutímanum af læknum hvort konur þurfiágjörgæzlueftirliti Land- spítalans að halda við og eftir fæðingu. Ef útlit er fyrir að allt gangi eðlilega fyrir sig eiga konur að fá að fæða á Fæöingarheimilinu ef þær kjósa sjálfar. Fæðingarheimilið hefur lagt áherzlu á mjög jákvæða þróun í fæðingarhjálp siðustu árin, sem byggist á afslöppuðu og heimilislegu andrúmslofti sem margar konur þurfa á aö halda og hafa kunnað aö meta og fundizt fæðingin eins stór- kostleg upplifun og hún getur orðið. Því ættu þeir menn sem þessu ráða að hlusta á konur því ekki kynnast þeir þessum málum af eigin reynslu. Þeir ættu að hugsa sig um tvisvar áður en þeir hrifsa af okkur þessi sjálfsögðu réttindi okkar. Þeir neyða okkur sem viljum afslappaða fæð- ingu til að fæða börn okkar heima og það hlýturaövera spor aftur á bak. Ríkinu ætti að standa næraðstyðja þessa stofnun en sumar aðrar. Mig langar að þakka Elínu Albertsdóttur fyrir frábæra kjallara- grein í DB 27. október. Og við Davíð Oddsson segi ég. Áfram með barátt- una! Verðandi móðir hríngdi: Ég held að við konur ættum að standa upp og mótmæla breytingum á rekstri Fæðingarheimilisins því enginn vafi leikur á hversu óhag- kvæmt það er fyrir okkur þó karlarnir i stjórnunum skilji þaö ekki og ætii að halda áfram aö spara á okkar kostnað. Fyrst voru afnumdar tannlækna- bætur fyrir barnshafandi konur sem engin vanþörf var á en þetta er skrefi of langt. Ég hef fulla ástæðu til að ætla að Landspítalinn geti ekki bætt við sig mörgum fæðingum því ég hef átt þar barn og þá var yfirfullt og nokkuö þröngt. Umönnun var öll fyrsta flokks en of spítalaleg, Verðandi móðir segir að með þvi að breyta rekstri Fxðingarheimilisins sé verið að neyða þær konur sem vilji afslappaða fæðingu til að fæða heinta. Pill Helðar Jónsson. PÁLL HEIÐAR ENSKU- SJÚKUR Kona að norðan hríngdi: Alveg er hún að gera út af við mig þessi enskusýki hans Páls Heiðars í Morgunpóstinum. Alltaf þarf hann að taka viðtöl við einhverja ensku- mælandi menn, jafnvel þó hann fari á Súgandafjörð. Það er að sjálfsögðu I lagi að taka viðtöl við enskumælandi menn en það á ekki að láta enskuna heyrast eins og Páll Heiðar gerir. Hann lætur enskuna heyrast einhvers staðar á bak við en það hefur truflandi áhrif. Það á að nægja að hafa bara íslenzku þýðinguna. Tek undir orð Elínar — Fæðingarheimiliö er ómissandi Sigrún Gunnlaugsdóttir, Garðabæ, hringdi: Mig langar til þess að taka undir orð Elínar Albertsdóttur í kjallara- grein sem hún skrifaði um Fæðingar- heimilið. Ég hef legið tvisvar á Fæðingar- heimilinu og einnig á öðrum sjúkra- húsum og finnst að sú starfsemi sem rekin er á Fæðingarheimilinu sé ómissandi. Það er mikill munur að vera þar en á sjúkrahúsum. Ég vil því eindregið mæla með því að starfsemi Fæðingarheimilisins verði haldið á- fram í sömu mynd og verið hefur. Ég vil sérstaklega færa Huldu Jensdóttur þakkir fyrir hennar starf en það hefur verið mjög gott. Ég vil hvetja konur til að láta frá sér heyra um þetta mál. Við megum ekki láta breyta rekstri Fæðingar- heimilisins. ÞIÐ ÞURFK) ENGAR ÁHYGGJUR AÐ HAFA — Vísismenn og Steingrímur ráöherra Regína á Eskifirði hringdi: Ég held að Steingrímur Hermanns- son sjávarútvegsráðherra þurfi engar áhyggjur að hafa af síldarsöltun hér á Austurlandi. Ogþaðan af síður þurfa blessaðir súkkulaðidrengirnir á dag- blaðinu Vísi að hafa áhyggjur af söltun á Eskifirði, því Eskfirðingar eru gamalreyndir síldarsaltendur og lærðu af Norðmönnum. Þessi þvæla í Visi 24. október um söltunina á Austurlandi er bara atvinnurógur og öfundsýki sem ég trúi ekki öðru en að Félags- mála- pakkinn Lesandi sendi okkur þessa visu I tilefni af opnun félagsmálapakkans: Málið er afgreitt, margt er hér að þakka. Mikill er Arnalds, höfðinglega veitt. Innan í frægum félagsmálapakka er fæðingarorlof karla númer eitt. sildarsaltendur láti Vísismenn standa við. Við þá Vísisdrengi vil ég segja að lokum: Þið eruö svo litlir að þið gætuð ekki vakað nótt eftir nótt og unnið á skrifstofu á daginn eins og kyn- bræður ykkar á Austurlandi gera. Hafið engar áhyggjur af söltun hér, heldur sinnið ykkar eigin störfum af samvizkusemi. Regina telur að súkkulaðidrengirnir á VIsi gætu ekki vakað nótt eftir nótt og unnið á skrifstofu á daginn eins og sildarsaltendur á Eskifirði. DB-mynd: E. Thorarensen. V Alþingismennirnir sjálfir. ruddu auglýstri dagskrá Rikisútvarpsins út og töluðu DB-mynd: Sigurður Þorri. OKURTEISIGAGN- VART ÞJÓDINNI Borgari hringdi: Ókurteisi gagnvart íslenzkri þjóð lýsir sér því miður allt of oft hjá leið- endum þjóðarinnar og má með eindæmum teljast og óboðlegt að hringla meö dagskrá eins og gert var fímmtudaginn 23. október í út- varpinu. Ekki var fyrirhyggjan mikil þar sem í flestum blöðum var prentuð dagskrá fyrir daginn. En sú dagskrá sá ekki dagsins Ijós þvi leiðendurnir tóku sér leyft og gerðu dagskrána í hljóðvarpinu ómerka. Væri ekki hægt fyrir þingmennina að ákveða með fyrirvara þáttinn sem var þetta kvöld, nefnilega útvarp frá alþingi? Spurningin er hvort einræði sé á íslandi. Fáum öðrum þjóðum er boðið upp á annað eins hringl. Kæru- leysi okkar íslendinga lýsir sér í of mörgu, því miður. Við þurfum að stokka upp á nýtt og hafa forsjónina að leiðarljósi öll sem eitt. Twilight Zone f sjónvarpið! 5984—1173 skrifar: voru ofboðslega spennandi myndiii Fyrir nokkrum árum var sýndur i og skemmtilegar og vil ég biðja sjón- Keflavíkursjónvarpinu mynda- varpið um að reyna að fá þær til flokkur sem hét Twilight Zone. Þetta sýningar.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.