Dagblaðið - 30.10.1980, Side 6

Dagblaðið - 30.10.1980, Side 6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980. I Erlent Erlent Erlent Erlent I Bandaríkin: 550 MILUONIRI LANDHELGISSEKT —greidd af eigend- umfjögurra japanskra fiski- bátafyriraðfáþá aftur Eigendur fjögurra japanskra flski- báta hafa fallizt á að greiða banda- rískum stjórnvöldum rúmlega eina milljón Bandaríkjadala gegn þvi að þeir fái báta sína afhenta aftur. Var það saksóknarinn í Anchorage í Alaska sem tilkynnti þetta í gær. Upphæðin, ein milljón dollara, er jafnvirði um það bil 550 milljóna islenzkra króna. Bátarnir fjórir voru teknir af bandarísku strandgæzlunni fyrir nokkrum mánuðum. Voru þeir taldir brjóta alþjóðalög með því að gefa upp minni afla þar sem þeir voru að togveiðum innan 200 mílna efnahags- lögsögu Bandarikjanna. í Anchorage eru enn óafRreidd tiu önnur mál gegn erlendum skipum fyrir brot á lögum vegna fiskveiða. Þar eiga hlut að máli sovézk, pólsk og japönsk skip. Hafa þau verið kyrrsett og bíða sins dóms. Miklar deilur eru nú um veiðirétt- indi við vesturströnd Norður- Ameríku. Þar skipta hagsmundir bæði Kanadamanna og Bandaríkia- manna miklu máli. Báðar þjóðirnar hyggjast auka fiskveiðar sínar. Efna- hagslögsaga beggja landanna hefur verið færð út í 200sjómílur. Vandinn er sá að hefðbundin fiskimið þessara ríkja eru innan efnahagslögsögu ríkj- anna beggja. Eru þessi mál í miklum ólestri og óvisst hvenær eða hvernig hægt verður að leysa þau. Auk þess hafa bæði sovézk og japönsk fiski- skip veitt um langa hrið við vestur- ströndina á svæðum sem nú eru komin inn í efnahagslögsögu Kanada og Bandarikjanna. REUTER um vægari aflgerðir en það tókst ekki hópfundi i Torino nýlega þar sem fyrr en eftir að efnt hafði verið til verkalýösfélög mótmæltu fyrir- mótmælaverkfalla. Myndin er frá ætlunum stjórnenda Fiatsmiðjanna. Egyptaland: Vígir göng und- ir Súez Egyptar eru nú í óðaönn að hefja nýtingu á því svæði Sínaí- skagans sem ísraelsmenn hafa af- hent þeim aftur í samræmi við friðarsamninga landanna. Mynd- in er einmitt af því, þegar Sadat Egyptalandsforseti opnar form- lega jarðgöng undir Suezskurð- inn, sem á að tengja betur þá hluta Egyptalands sem liggja sinn hvorum megin skurðarins. Viðræður uni frelsi eða heima- stjórn Palestinumanna á vestur- bakka árinnar Jórdan og á Gaza- svæðinu halda áfram. í þeim taka þátt fulltrúar Egypta, ísraels- manna og fulltrúi Bandarikja- manna, sem er eins og nokkurs konar sáttasemjari. Ekki sér fyrir endann á viðræðunum og greinir deiluaðila mjög á. ísraelsmenn vilja aðeins veita Palestínumönn- um takmarkað frelsi en Egyptar nær algjört sjálfstæði. Einnig er það svo að þó Egyptar og ísraels- menn næðu samkomulagi um Palestínumálið er engin trygging fyrir þvi að Palestinumenn féllust á það. Vaxtahækkun í Bandaríkjunum Nokkrir helztu bankar í Bandaríkj- unum tilkynntu 0,5% hækkun á grunn- vöxtum sínum eða upp í 14,5%. Gerðist þelta þrátt fyrir mótmæli stjórnar Carters Bandaríkjaforseta sem telur að vextirnir hafi verið of háir fyrir. .. ., MúojmumyWgfllJjL kl.18.00 Frá Alþýðuleikhúsinu Þríhjólið, Lindarbæ i kvöld kl. 20.30. Miðasala frákl. 17. Hótel Borg laugardag kl. 20.30 Miöasala Hótel Borg frá kl. 17. Lindarbæ mánudag kl. 20.30. Miðasala frá kl. 17. Fáar sýningar eftir. Pæld'íðí Hótel Borg, sunnudag kl. 18. Miðasala Hótel Borg frá kl. 16. Kðngsdðttirin, sem kunni ekki að tala Frumsýning i Lindarbæ sunnud. kl. 15. Miðasala .föstud. og laugard. frá kl. 16, sunnudag frá kl. 13. CHEVROLETIMPALA árg. '75, •kinn 100 þús. km. Óskum eftir staðgreiðslutilboOi. THUNDERBIRD ÁRG. 73 Þessi einstaki bill er nú loksins til sölu eftir gagngerðar endur- bætur. Óskum eftir staðgreiðslutilboði. BÍLASALAN HÖFDA TÚN110 Símar 18870 - 18881 Opið 11-7 alla daga. Deilur á milli starfsmanna og stjórn- enda Fiatverksmiðjanna á ítaliu hafa verið mjög i fréttum að undanförnu. Var þetta vegna fyrirætlana um að segja upp 23 þúsund verkamönnum um hríð. Samkomulaghefur nú náðst REUTER

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.