Dagblaðið - 30.10.1980, Side 8
8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980.
1
Erlent
Erlent
BÓKHALD
Er viðskiptafræðingur og tek að mér færslu bókhalds fyrir smærri fyrir-
tæki. Upplýsingar í sima 39909 eftir kl. 17.30.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 - Sími 15105
KVIKMYNDIR
8 mm og 16 mm kvikmyndafilmur til leigu í mjög miklu úr-j
vali í stuttum og löngum útgáfum, bæði þöglar og með]
hljóði, auk sýningarvéla (8 mm og 16 mm) og tökuvéla,)
m.a. Gög og Gokke, Chaplin, Walt Disney, Bleikií
Pardusinn, Star Wars o.fl. Fyrir fullorðna m.a. Jaws, Deep,j
Grease, Godfather, China Town o.fl. Filmur til sölu og!
skipta. Ókeypis kvikmyndaskrár fyrirliggjandi. Opið alla |
K vikmy ndamarkaðurinn daea kl 1 —■7
36521i
TOYOTA-SALURINN
Nýbý/avegi 8 (í portinu) OpiÖ laugardaga kl. 1—5.
1
AUGLÝS/R: Árg. Ekinn Verð
þús. km miiij.
Toyota Cressida hardtopp, sjálfsk. '79 6 7.7
Toyota Cressida 4 dyra 78 56 6
Toyota Cressida 78 100 5.5
Toyota Cressida 78 94 5,5
Toyota Cressida sjáHskiptur 77 60 6
Toyota Cressida station 78 84 5.7
Toyota Cressida 78 56 5.8
Toyota Corona Mark H 77 60 4.6
Toyota Carina 76 65 3.8
Toyota Crown 71 15 á vól 2,3
Toyota Land Cruiser (iengri gerði 77 25 8
Skipti mögulog á ódýrari.
Válsleði Rupp 1.5
TOYOTASALURINN
NÝBÝLAVEG!8, KÓP. S/MI44144.
Honda Civic árg. ’79. Nýr bill, aðcins Toyota Starlet DL árg. ’79. Ekinn 24
ekinn 3 þús. km. Rauður. Áklæði á þús. km. Rauður. Sparneytinn konu-
sætum. Sjálfskiptur konubill, nýr og bill. 3 dyra skutbill. Einnig höfum við
ónotaður. Starlet ’80, ekinn 5 þús. km, bláan.
I
ÍÍ!Í!!!!,í1í|;í
1
r
bilaka.MP
SKEIFAN 5 — SÍMAR 86010 og 86030
Möguleikar á
samkomulagi
i Namibíudeilu
—grundvöllurinn yrði friðartillögur vesturveldanna fimm
fráárínul978
Líklegt er að á næstu vikum fáist
úr því skorið hvort takast muni að ná
alþjóðlegu samkomulagi um hvernig
staðið skuli að sjálfstæðistöku Suð-
vestur-Afríku, sem líka hefur verið
kölluð Namibía. Svo virðist sem
viðræður sem staðið hafa yfir að
undanförnu í Pretóríu á milli hátt-
seitra embættismanna stjórnar
Suður-Afríku og fulltrúa Sam-
einuðu þjóðanna hafi farið út um
þúfur, i það minnsta að sinni. Þess
vegna er búizt við að enn frekari
kröfur komi fram á þingi Sameinuðu
þjóðanna um viðskiptatakmarkanir
gagnvart Suður-Afríku. — Suður-
Afríka hefur stjórnað Namibíu og
notið góðs að auðugum námum þar
alveg frá lokum fyrri heims-
styrjaldarinnar, eða í rúm sextíu ár.
Frá lokum síðari heimsstyrjaldar
hefur þessi stjórn verið í óþökk Sam-
einuðu þjóðanna sem tóku við af
Þjóðabandalaginu gamla sem
nokkurs konar tilsjáraðili með
velferð íbúa Suðvestur-Afríku.
Til ársins 1918 taldist Suðvestur-
Afríka þýzk nýlenda en hún var tekin
af Þjóðverjum við ósigur þeirra i
fyrri heimsstyrjöldinni.
Hinn 11. til 13. nóvember næst-
komandi verða haldnar héraðskosn-
ingar í átta af ellefu héruðum þeim
sem landinu hefur verið skipt i. Fer
sú skipting að mestu eftir ættflokk-
um. í desember 1978 fóru þar fram
kosningar til þings landsins að undir-
lagi Suður-Afríkumanna. Hvorugar
kosningarnar hafa verið viðurkennd-
ar af Sameinuðu þjóðunum og fæstar
þjóðir heims hafa tekið neitt mark á
þeim. Síðan í desemberkosningunum
árið 1978 hafa Suður-Afrikumenn
talið heimastjórn ríkja í Namibíu.
Héraðskosningarnar á næstunni
munu þó hafa sitt gildi. Þær munu að
nokkru skera úr um hvert afl sá
flokkur sem stjórnað er af milljóna-
mæringnum Dirk Mudge og talinn
er stærsti flokkur landsins í dag
hefur. Þó svo að margir muni hafa
efasemdir um hve mikið mark sé tak-
andi á kosningunum munu þær þó
gefa einhverja hugmynd um styrk-
leika flokks Mudge og hver muni
verða styrkleiki Swapo samtakanna í
hugsanlegum kosningum í framtið-
inni þar sem Sameinuðu þjóðirnar
mundu hafa hönd í bagga. Swapo
samtökin hafa nú barizt gegn stjórn
Suður-Afríku í Nathibíu í fjórtán ár
og er nokkur hópur skæruliðaþeirra
ávallt sagður vera i landinu.
Hvorki Swapo né ýmsir hópar
vinstri flokka tóku þátt i undirbún-
ingi hinna fyrirhuguðu héraðskosn-
inga í Namibíu. Þær munu heldur
ekki fara fram í nyrzta héraði
landsins, Ovamboland, en þar búa
tæp fimmtíu af hundraði þeirrar
einnar milljónar íbúa Namibíu.
Ovamboar sem búa i nyrzta hérað-
inu eru líka sagðir vera helztu
stuðningsmenn skæruliða Swapo og
þar fá þeir mestu aðstoðina innan-
lands. Þar er einnig mest um
skærur á milli herliðs Suður-Afríku
og skæruliða.
Dirk Mudge, sem eins og áður
sagði er auðugur hvítur jarðeigandi
og gegnir þeirri stöðu í heimastjórn-
inni sem samsvarar forsætisráð-
herra, hefur lýst þvi yfir að fregnir af
því að heimastjórn hans sé aðeins
einn liður til samsvarandi stjórnar-
forms og þegar hvitir ménn lýstu yfir
sjálfstæði Ródesíu árið 1965 séu
rangar. í Ródesíu ríkir nú stjórn
meirihluta svartra.
í flokki Mudge eru bæði svartir og
hvitir menn í Namibíu. Hann segist
þó ekki heldur vera neinn Muzorewa
biskup sem um nokkurra mánaða
skeið í fyrra var forsætisráðherra í
rikisstjórn hvítra og svartra í Ródesíu
eða Zimbabwe/Ródesíu en hraktist
strax frá völdum þegar svartir í
landinu fengu meirihluta völd í sam-
ræmi við meirihluta sinn meðal
þjóðarinnar.
Mudge segist sannfærður um að
flokkur hans geti náð meirihluta í
frjálsum kosningum.
í fyrri viku ræddu háttsettir full-
trúar suður-afrísku stjórnarinnar i
samtals sex daga við fulltrúa Samein-
uðu þjóðanna um ýmis þau atriði er
enn standa í veginum fyrir því að
samþykkt sú sem Sameinuðu þjóð-
irnar gerðu um friðaráætlun fyrir
Namibíu samkvæmt tillögum fimm
vestrænna ríkja nái fram að ganga.
Voru það Bretland, Bandaríkin,
Frakkland, Vestur-Þýzkaland og
Kanada. Ekki náðist samkomulag í
viðræðunum. Fulltrúar Sameinuðu
þjóðanna ræddu einnig við nokkra
fulltrúa heimastjórnarinnar í Nami-
bíu, þar á meðal Dirk Mudge for-
sætisráðherra.
Áætlun sú sem vesturveldin lögðu
fram gerir ráð fyrir vopnahléi sem
síðan sé fylgt eftir með kosningum
eftir sjö mánuði. Hefur stjórn Suður-
Afríku fallizt á þessar hugmyndir,
þegar árið 1978. Ætlunin er að á
landamærum Namibíu í norðri, þar
sem þau ná að Angóla og Zambíu,
verði hlutlaust svæði undir eftirliti
Sameinuðu þjóðanna, sem þar eiga
að hafa 7500 manna lið. Á þessum
svæðum hefur Swapo einmitt helzt
búið um sig.
Það er einmitt helzti agnúinn á að
framkvæmdar verði vopnahlésað-
gerðir og kosningar að áliti Suður-
Afríkustjórnar, að Sameinuðu þjóð-
irnar hafa lýst yfir einhliða stuðningi
sínum við Swapo hreyfinguna. Telja
verði þá hina einu réttu stjórnendur
Namibíu. Auk þess hefur hreyfingin
notið beins og óbeins fjárstuðnings
Sameinuðu þjóðanna.
Viðræður fulltrúa Sameinuðu
þjóðanna og stjórnarinnar í Pretóríu
héldu áfram alveg þar til forustumað-
ur Sameinuðu þjóða mannanna
þurfti að fara til New Yo^k til að gefa
skýrslu um árangur viðræðnanna.
Þær gætu því haldið áfram og þó svo
engin opinber yfirlýsing hafi verið
gefin út um málið er Ijóst af orðum
viðmælenda að þeir telja að nokkuð
hafi þokað í samkomulagsátt.
Skæruliðar Swapo hafa aðallega látið á sér kræla á svæðum við
landamæri Angóla og Zambiu.