Dagblaðið - 30.10.1980, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 30.10.1980, Blaðsíða 9
9 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980. Erlent Erlent Erlent Erlent Stormsveitin iaikur frá ki. 21. / Gaffínum v/Keflavíkurveg í kvöld kl.9 Lúðrasveit háskólans í Suður-Kali- forniu hefur sennilega aldrei verið skipuð jafnþekktu fólki og daginn sem þessi mynd var tekin. Fremst á myndinni er Stevie Nicks, söngkona hljómsveitarinnar Fleetwood Mac, og fyrir aftan hana er Mick Fleet- wood, trommuleikari sömu hljóm- sveitar. Stjórnandi hijómsveitarinnar við þetta tækifæri var félagi þeirra, gitarleikarinn Lindsey Buckingham. Fleetwood Mac-fólkið vildi með þátttöku sinni i spilamennsku lúðra- sveitarinnar þakka fyrir veittan 'greiða. Þaö var nefnilega þessi sama sveit sem sá um aiian lúðrablástur i titiliagi síðustu plötu Fleetwood Mac, Tusk. Einnig hefur hún komiö fram á nokkrum hljómieikum Fleetwood Mac. pleetwood W ilúðrasveit Eigendur Studio 54 látnir lausir til reynslu árið 1982 Steven Rubell og Ian Schrager, eig- endur hins þekkta diskóteks Studio 54 í New York, verða látnir lausir úr fang- elsi til reynslu í febrúar 1982. Svo sem kunnugt er voru þeir dæmdir til fang- eisisvistar fyrir aö falsa skattaskýrslur sínar og stinga álitlegum fúlgum af dollurum undan rekstri staðarins. Félagarnir voru báðir dæmdir til þriggja og hálfs árs fangelsis. Vistin var istytt niður i tvö ár. Stevie Nicks tekur sig þokkalega út með lúðrasveit á bak við sig. Bumbuslagarinn fyrir aftan hana er Mick Fleetwood, trommuleikari Fleetwood Mac. Nýjustii Kennedyamir Verkamannafélagið Dagsbrún Óvíst um bata hjá Steve McQueen Læknir sá, sem annast leikarann Steve McQueen, neitar að spá nokkru um hvort hann eigi eftir að ná sér af krabbameininu sem þjáir hann. Hann segir þó að hægt hafi verið að tefja « Steve McQueen ásamt konu sinni, Barbara Minty. Sérfræðingar i krabba- meinssjúkdómum segja að með- höndlunin, sem hann fær, leiði ekki til bata. fyrir bólgumyndun. McQueen, sem nú er fimmtugur að aldri, hefur að undan- förnu dvalið á sjúkrahúsi í Kaliforníu. Þar hefur hann fengið lyfjameðferð með hinu umdeilda Laetriie. „Eins og nú er ástatt getum við aðeins sagt að hann hefur það eftir atvikum. Vonandi tekst okkur að veita honum þá meðhöndlun sem leiðir til bata,” sagði læknirinn, Rodrigo Rodriguez, á blaðamannafundi sem efnt var til í San Francisco vegna leikar- ans. McQueen er haldinn sjaldgæfu krabbameini sem herjar á iungun. Notkun lyfsins Laetrile er yfirleitt ólög- leg í Bandaríkjunum. Sérfræðingar krabbameinsfélagsins vestra segja að meðhöndlunin sem Steve McQueen fær sé ekki til neinna bóta. VANTfl5m FRAMRUÐU? fTT Ath. hvort við getum aðstoðað. ísetningar á staðnum. DÍI DÍIAAII SKÚLAGÖTU 26 DILnUUHW SÍMAR25755 0G 25780 Hér höfum við tvo nýjustu meðlimi hinnar stóru Kennedyfjölskyldu. Dagblaðið skýrði frá því á dögunum að Joseph Patrick Kennedy II, elzti sonur Roberts heit- ins Kennedy, og kona hans, Sheila Rauch, hafi eignazt tvibura. Þeir heita Matthew Rauch og Joseph Patrick III (Joseph er eldri). Ekki vitum við hvort er hvor en áreiðan- lega eiga báðir eftir að verða I sviðsljós- inu þegar fram liða stundir. Félagsfundur verður haldinn í Austurbæjarbíói í dag, fimmtudaginn 30. október, kl. 5 síðdegis. Dagskrá: 1. Félagsmál 2. Nýir kjarasamningar Á fundinum verður dreift nýjum kjarasamningum og kauptöxtum. Dagsbrúnarmenn, mætið vel á fundinn. Stjórnin. Lausar stöður lœkna við heilsugœzlustöðvar Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður heilsugasslulækna: 1. önnur staða læknis við heilsugæslustöðina á Reykjalundi, Mosfells- sveit, frá og með 1. janúar 1981. 2. Staða læknis við heilsugæslustöð á Djúpavogi frá og með 1. febrúar 1981. 3. Staða læknis við heilsugæslustöðina á Flateyri frá og með 1. febrúar 1981. 4. Staða læknis við heilsugæslustöðina á Fáskrúðsfirði frá og með 1. mars 1981. Umsóknir ásamt upplýsingum um læknismenntun og læknisstörf sendist ráðuneytinu fyrir 25. nóvember nk. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 27. október 1980.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.