Dagblaðið - 30.10.1980, Page 10
10
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30.OKTÓBER 1980.
DB á ne ytendamarkaði
Hillir undir úrslitin í ísuppskríftakeppninni
Búið að velja tuttugu upp-
skrtftir f undanúrslitin
Nú er loksins fariö að hilla undir
lokapsrettinn í samkeppninni um,
„bezta isrétt ísaidar” sem Emmessís
og Dagblaöið efndu til. Dómnefndin
er nú búin aö velja tuttugu ísrétti sem
ætlunin er aö búnir verði til í til-
raunaeldhúsi Mjólkursamsölunnar.
Verðlaunahafarnir verða valdir úr
hópi átján höfunda þessara upp-
skrifta. Höfundarnir eru bara átján,'
en ekki jafnmargir uppskriftunum,
því einn á hvorki meira né minna en
þrjár uppskriftir i undanúrslitum.
Þriggja manna
dómnefnd
Upphaflega var dómnefndin
skipuð fjórum aöilum, Sigrúnu
Davíðsdóttur matreiðslubókarhöf-
undi, Ingvari Helga Jakobssyni mat-
reiðslumanni, Sigrúnu Hjálmtýsdótt-
ur (Diddú) söngkonu og umsjónar-
manni Neytendasíðu, önnu Bjarna-
son blaðamanni. Einn af dóm-
nefndarmönnum hefur nú helzt úr
lestinni. Diddú er farin utan til
London til þess að stunda söngnám
sitt, þannig að dómnefndin er skipuð
ofangreindum þremur aðilum. —
Dómnefndin hittist í vik'unni og var
þá hver dómnefndaraöili búinn að
hafa allar uppskriftirnar sem bárust í
athugun i nokkra daga.
Hver um sig hafði valið úr þær
uppskriftir sem honum leizt bezt á.
Síðan voru gerðar athuganir á því
hverjar uppskriftirnar hefðu annað-
hvort fengið atkvæði tveggja eða
.þriggja dómnefndarmanna.
Útkoman varð sú, eins og áður
segir, að tuttugu ísrétdr urðu fyrir
vali nefndarinnar. Ekki svo að skilja
að margir fleiri hafi ekki verið góm-
sætir. Það vantar ekki. Hins vegar
gátu ekki allir réttirnir komizt í
úrslitakeppnina. Þaö var mikill vandi
ingur aörar en ódýrari ferðir á vegum
ferðaskrifstofunnar. Þar að aukí
verða veitt sex önnur verðlaun, úttekt
fyrir ákveöna fjárupphæð í ísverzlun
Mjólkursamsölunnar, Klakahöllinni.
Mjólkursamsalan efndi til þessarar'
samkeppni til þess m.a. að minnast
tuttugu ára afmælis issölu fyrirtækis-
ins, sem var í vor.
Ráðgert er að uppskriftirnar sem
bárust verði gefnar út í sérstökum
bæklingi, annaðhvort allar eða aö
hluta til. Alls bárust rúmlega 140
uppskriftir.
Dulnefni þeirra sem
lentu f undanúrsiitun-
um
Fjöldinn allur af fólki hefur hringt
til okkar á Dagblaðinu og spurt hvað
þessari keppni Iiði. Er ekki nema von
að þeir, sem sendu inn uppskriftir,
séu spenntir að vita eitthvað um
úrslitin. Hér á eftir fara dulnefni
þeirra sem komust í undanúrslitin.
Árbæjarkonan, Kappakstushetjan,
ísafold, Guttalingur, Pollý, X-9, ísa-
fold, K-229, Hrímþoka, Inrajb,
Græningi, írena, fsæta, Skuld,
H.A.P.J., Optima (með þrjár upp-
skriftir), Gunna og 3864.
Sú Pöð sem dulnefnin eru nefnd í
hér að ofan gefur ekki á nokkurn
hátt til kynna neina röðun á upp-
skriftum þeirra. Þeim er raðað þarna
af handahófi og eiga allir jafna
möguleika á því að hreppa verðlaun-
in. Segja máaðOpdma eigi kannski
meiri möguleika en hinir, því það
nafn á þrjár af uppskriftunum (sendi
reyndar inn fleiri fínar uppskriftir).
Nú geta þeir sem eiga þessi dul-
nefni byrjað að hlakka til lokaúrslit-
anna, sem farið er að hilla undir.
A.Bj.
Dómnefndin er þarna að velja I undanúrslidn. Frá vinstri Sigrún Daviðsdótdr, Anna Bjarnason og Ingvar Helgi Jakobsson.
DB-mynd Einar Ólason.
lagður á herðar dómnefndarinnar.
Vandanum er heldur ekki lokið með
öllu, því nú er eftir að smakka á öll-
um herlegheitunum.
Ráðgert er að „smakkið” fari
fram í næstu viku.
Endanleg úrslit keppninnar verða
síðan dlkynnt og verðlaunin afhent
á ferðakynningarkvöldi hjá Sam-
vinnuferðum/Landsýn. Þrenn fyrstu
verðlaunin eru einmitt ferðavinn-
ingar með leiguflugi á vegum Sam-
vinnuferða/Landsýnar. Fyrsd vinn-
ingur er ferð fyrir hálfa milljón tíl
Júgóslaviu og annar og þriöji vinn-
—Þeir sem sendu inn uppskriftir geta nú séð hvort þeir
eru meðal hinna útvöldu
HÆKKUN FRA ARAMÓTUM
EKKIMINNIEN
10 ÞÚS Á MANN
Kæra Neytendasíða! síðan um áramót og sé nú orðið
Þá er það septemberseðillinn. Ég mikinn mun á hvað það fer meira í
hef verið með í heimilisbókhaldinu niat núna á mann en þegar ég
byrjaði, segir m.a. í bréfi frá „bara
húsmóður”.
,,Ég gæd trúað það væri ekki
minna en 10 þúsund kr. á mann sem
þetta hefur hækkað. Samt er maður
alltaf að reyna að spara til þess að
endarnir nái saman.
Það er einnig ýmsilegt annað en
matur sem verður að borga þegar
maður er nýbúinn að byggja.
Með þakklæti fyrir mjög góða um-
fjöllun um neytendamál.
„ÖNNUR ÚTGJÖLD” YFIR
TVÆR OG HÁLFA MILUÓN
þesssari húsmóður okkar kom annars mann. Eftir því sem sýnist í fljótu
mjög vel út, meðaltalslega séð, því' bragði er það frekar i lægri kandnum
heimilisfólkið telur fimm og þannig á almennu meðaltali af innsendum
er meðaltalið rúml. 41 þúsund á seðlum. A.Bj.
NAFNLAUS SEÐILL
FRÁ HÚSAVÍK
Kæra Neytendasíða.
Ég sendi nú inn septemberseðilinn
með geysiháum tölum (matur og
hreinlætisvörur 207.218 og liðurinn
annað 2.745.031).
í liðnum annað ber nú hæst hús-
bygginguna, m.a. gler í húsið. Ég
sundurliða þetta ekkert frekar en í
september vorum við Ftmm
heimilinu.
Með beztu kveðjum, húsmóðir.
Betra að hafa
úr nægu að spila
Þaö er sannarlega betra að hafa úr
nægu að spila þegar greiða þarf upp-
hæðir sem fara hátt yfir tvær og
hálfa milljón fyrir utan matvörurnar
á einum mánuöi. Matardálkurinn hjá
Á dögunum fengum við sendan
upplýsingaseðil i bréfi frá Húsavík. Á
seðlinum stóð ekki annað en
kostnaðartölurnar. Gleymzt hafði að
skrifa nafn, heimilisfang og fjölda
heimilisfólks. Við sáum á póst-
stimplinum að bréfið var frá Húsa-
vík.
Upphæðin sem í matinn fór var
275.621 kr. Biðjum við þann sem
sendi okkur seðilinn að senda okkur
línu eða slá á þráðinn til okkar og
gefasig fram.
-A.Bj.
Sérstakrar varúðar er þörf þegar verið er að steikja mat I sjóðandi heitri feidnni,
gætíð þess að litil börn séu hvergi nálæg. Farið aldrei frá feitipottinum á meðan er
kveikt undir honum, þótt simi eða dyrabjallan hringi. Takið pottinn af hellunni
fyrst. DB-mynd Sigurður Þorri.
0RLY DEIG TIL
DJÚPSTEIKINGAR
Við vorum beðin um uppskrift að
Orly deigi, en það er deig sem ftski
og öðru er dyfið ofan í áður en það er
djúpsteikt í feid.
250 g hveiti
3 eggjarauður
2 msk. olia
1 ölglas (eða meira) pilsner
sykur (honum má sleppa ef vlll)
salt
Deigið er hrært saman og látið standa'
í um það bil 1/2 klukkustund. Þá er
eggjahvítunum, stífþeytum, blandað
varlega saman vlð.
Fiskstykkjum, grænmeti eða öðru
því sem á að steikja upp úr þessu
deigi, er dyftð ofan í, gott er að nota
t.d. tvo gaffla, ládð deigiö leka af að
nokkru leyd áður en maturinn er
látinn út í feidpottinn.
•Á dögunum sögðum við frá því hve
nauðsynlegt væri að fara að öllu með
gát þegar verið er að djúpsteikja mat
i feiti. Endurtökum við viðvörun
okkar hér með.
Þegar búið er að nota feitina og
hún orðin næstum köld er gott ráð að
sigta hana og geyma síðan á köldum
stað (helzt í kæliskáp) þangað til á að
nota hana næst.
-A.Bj.