Dagblaðið - 30.10.1980, Side 16

Dagblaðið - 30.10.1980, Side 16
16 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980. Tvœr japanskar sjónvarps- stöðvar kvikmynda hérlendis — og vilja hvorug af hinni vita Hér á landi eru nú staddir þrír karlmenn og ein kona frá japanska sjónvarpinu. Er aetlun þeirra að gera 10 fræðslumyndir um ísland og hafa þau farið víða vegna þess. Meðal þeirra staða sem Japanirnir hafa heimsótt er Hveragerði, þar sem þeir heimsóttu Heilsuhælið, Garðyrkju- skólann og litu á hverina , Austfirðir og að sjálfsögðu fóru þeir i heimsókn til forseta íslands, Vigdísar Finnbogadóttur. Fyrsti kvenforsetinn hefur sannar- leg'a vakið athygli á erlendri grundu og hingað flykkjast sjónvarps- tökumenn úr víðri veröld. Hitt mun hins vegar vera sjaldgæfara að komið sé frá tveimur sjónvarpsstöðvum i, sama landi, en það mun einmitt vera nú. Aðrir Japanir eru sagðir vera hér á landi í sama tilgangi og vilja hvorugur af hinum vita. Er sögð hörð samkeppni milli þessara tveggja japönsku sjónvarpsstöðva hér á landi og reyndist DB þess vegna erfitt um vik að fá upplýsingar um heimsókn Japananna á Heilsuhælið i Hvera- gerði þar sem Bjarnleifur ljósmynd- ari DB dvelst nú og tók meðfylgjandi mynd. -ELA. Ágúst Guðmundsson leitar eftir fólki í Gíslasögu: Kvikmyndataka hefst í marz — og áœtlað að frumsýna í janúar ’82 Ætlaaðgefaút mánaðarlegt kvikmyndablaö í 5000 eintökum: „Tvímœlalaust áhugifyrir slíku blaöi” — segir Friðrik Þór Friðriksson einn af stofhendunum „Fyrsta blaðið mun koma út i byrjun desember og við höfum nefnt það því einfalda nafni Kvikmynda- blaðið. Það er í A—4 broti og prentað á glanspappír. Ætli það verði ekki um 60 síður og offset- prentað,” sagði Friðrik Þór Friðriks- son kvikmyndagagnrýnandi DB, er hann var inntur eftir nýju blaði um kvikmyndir sem hann ásamt Jóni Karli Helgasyni og Sveini Blöndal hyggst gefa út mánaðarlega. „Ég hef gengið með þessa hug- mynd um stofnun sliks blaðs alveg frá því að ég var í stjórn Fjalakatt- arins. Það sem stöðvaði mig þá var hve lítil gróska var í íslenzkri kvik- myndagerð. Núna ér þetta hins vegar mögulegt og við munum vera með viðtöl og greinar um islenzku kvik- myndagerðina. Það verða um 40 manns sem skrifa í blaðið. Við höfum komið okkur í samband við menn sem eru erlendis og fengið þá til að skrifa. Ætlunin er að segja ítarlega frá ýmsum kvikmyndum og þeim sem að Jreim standa. í fyrsta blaðinu verður t.d. ítarlega sagt frá leikstjóranum Francis Coppola, sem leikstýrði m.a. myndinni Apocalypse Now! sem sýnd verður innan skamms í Tóna- bíói. Hrafn Gunnlaugsson ætlar að skrifa um Norrænu kvikmynda- vikuna í New York sem verður núna á næstunni. Einnig verðum við með ýmislegt þýtt efni. Blaðið verður gefið út í 5000 eintökum og ég held að það sé tvímælalaust áhugi fyrir slíku blaði hér á landi,” sagði Friðrik Þór. Þeir félagar hafa opnað skrif- stofu að Vesturgötu 3, þar sem þeir munu hafa sína aðstöðu við út- gáfuna. -ELA.; Matthías, símastúlk- umarog blaða- manna- félagið Vegna klausu í þætti vinar míns Braga Sigurðssonar, Fleira fólk, langar mig að taka fram, svo að óyggjandi sé, að ég sagði mig ekki úr Blaðamannafélagi íslands vegna þess að ég vildi ekki vera í félagi með þess- um eða hinum, heldur er þetta prinsippmál af minni hálfu og snýst um það, hvort allir geti gengið i Blaðamannafélag íslands sem koma við útgáfusögu dagblaðs eða annars fjölmiðils. Ég gekk í Blaðamanna- félagið fyrir nær þremur áratugum og hef litið svo á, að það eigi að vera félag starfandi blaðamanna. En það er það ekki lengur eins og ég bendi á í úrsögn minni. Þetta getur haft mjög nei- kvæð áhrif á alla aðstöðu blaða- manna, sem ég tel að eigi að vera til fyrirmyndar. Til blaðamanna á að gera miklar kröfur enda þykjast þeir hafa efni á því að gera miklar kröfur til allra annarra. Þeir eiga að mínu viti að njóta sannmælis í launum og kjörum og búa við lífeyrissjóð, sem er frambærilegur en ekki sú svika- glenna, sem nú er. Útvíkkun blaða- mannafélagsins mun drepa öllum þessum málum á dreif. Ég vil líka láta á það reyna, hvort við blaðamenn eigum jafn innangengt í önnur stéttarfélög, til dæmis Verzlunarmannafélag Reykja- víkur, eins og félagar í öðrum stéttar- félögum virðast eiga í Blaðamanna- félag íslands og Iæt því á það reyna. Aðild manna að stéttarfélögum er eitthvert viðkvæmasta atriðið í starf- semi launþegasamtakanna í landinu. Ég tel að það sé kominn tími til, að blaðamenn staldri við og hugsi sitt mál. Að öðru leyti er ég helzt á því að stofna ætti starfsmannafélög eins og gefið hafa góða raun i álverinu. Að því hefur verið reynt að vinna hér á Morgunblaðinu og þykist ég hafa verið einna áhugasamastur um það Með því möti verð ég í sama félagi og símastúlkur og allt annað kvenfólk á Morgunblaðinu og vona ég að sá áhugi sé gagnkvæmur. Ég veit ekki betur en að Starfsmannafélag Morgunblaðsins sé í burðarliðnum með góðu samkomulagi allra stéttar- félaganna. Matthías Johannessen. „Við erum þegar farnir að leita eftir fólki í Gíslasögu, þótt kvik- myndatakan sjálf byrji ekki fyrr en í marz. Það er svo margt sem þarf að gera fyrir töku svona viðamikillar myndar og ekki er ráð nema í tíma sé tekið,” sagði Ágúst Guðmundsson kvikmyndagerðarmaður er við for- vitnuðumst um hvað hann gerir þessa dagana. „Við auglýstum eftir karl- mönnum um daginn og það höfðu yfir 40 manns samband við okkur. Okkur vantar fólk í alls kyns atriði, m.a. bardagaatriði. Það verður fjöldinn allur af fólki sem fram kemur i myndinni. Um síðustu helgi töluðum við við fólkið og það las yfir með okkur atriði. Þá höfum við einnig talað við nokkra leikara og höfum þegar fengið i nokkur hlutverk. Mér þykir hins vegar ekki rétt að skýra frá nöfnum strax. Ég á von á því að kvikmynda- takan fari fram á fjórum mánuðum, þó ekki stöðugar upptökur og að Gíslasaga verði frumsýnd í janúar 1982,” sagði Ágúst Guðmundsson. Hann er nú á förum til New York, Los Angeles og Chicago til að vera viðstaddur frumsýningar á myndinni Land og synir. Land og synir ásamt fleiri myndum verða á Norrænni Ágúst Guðmundsson kvikmyndagerOarmoður við störf. Hann er nú á förum til Bandarikjanna þar sem sýningar veröa á Landi og sonum. DB-mynd Ragnar Th. kvikmyndaviku í New York. „Land og synir hefur gengið núna í Noregi undanfarið og fengið mjög góða dóma. Norðmenn hafa lfkt myndinni við sínar eigin kvikmyndir. Þá verður kvikmyndin sýnd i Svíþjóö innan skamms og í þýzka sjón- varpinu.” -ELA. Japanska sjón varpsfóHdö heimsóttí m.a. Heilsuhœli NLFÍ i Hverageröi og rabbaöi viö vistmenn þar. Hár ræöir fráttamaöurinn viö Steingrim Pálsson fyrrum alþingismann og umdæmisstjóra á Brú i Hrútafirði. Myndina tók Bjarnleifur Ijósmyndari DB sem dvelst á Heiisuhæiinu. Erlendar sjónvarpsstöðvar keppast um að gera jræðslumyndir um ísland: Sigurjón Sunda- fyllir Borgarfulltrúar hafa sumir hverjir tekið afstöðu með Sambandinu í byggingaráformum þess. Meðal þeirra er nefndur Sigurjón Péturs- son. Eins og vitað er, greinir menn á um þetta sem fleira. Þessi vísa flýtur á milli manna: Almenningur upp nú rís, er umhverfinu spillir og gengur í eina sæng með SÍS Sigurjón Sundafyllir. Höfundur vísunnar er sagður „Konanvið Sundin”.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.