Dagblaðið - 30.10.1980, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 30.10.1980, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980. ............... ........... 17 \ HUGMYNDIR UPPIUM AÐ LOÐNUFLOTINN VEIDIÞORSK — rætt um vanda loðnuf lotans og loðnuverksmiðjanna á þingi „Það kann að koma til greina að loðnuflotinn fái heimild til að dýfa þorskanetum í sjó. Það er í athugun ásamt fleiri hugsanlegum úrlausnum vegna vanda loðnuflotans,” sagði Steingrímur Hermannsson sjávarút- vegsráðherra á þingi á þriðjudag. Rætt var um fyrirspurn Helga Seljan um dreifingu loðnu og leiðir til að vissir landshlutar yrðu ekki alveg útundan í vinnslu loðnu. Ræddu þrír menn sem setið hafa stól sjávarútvegsráðherra málið, þeir Steingrímur, Matthías Bjarnason og Kjartan Jóhannsson ásamt fyrir- spyrjanda og Halldóri Ásgrímssyni. Steingrimur kvað vandann mikinn, bæði hjá flotanum og verksmiðjum sem lagt hefðu í mikla fjárfestingu vegna loðnumóttöku, en fengju svo lítið sem ekkert til vinnslu. Kvað hann loðnuaflann i heild haft verið 18. október sl. 124 þúsund tonn móti 344 þúsund tonnum á sama tíma í fyrra. Nú ykist vandi flotans og verk- smiðjanna við strangari veiðitak- markanir en upphaflega var ráð fyrir gert, í kjölfar nýrra mælinga ftski- fræðinga á stofninum. Fyrir þann vanda hefði verið ljóst að afkoma 52 loðnuskipa sem veiða máttu 658 þús- und lestir að hámarki til, yrði alveg á mörkum. Auk þess væri vandi verk- .smiðjanna óleystur. Matthías Bjarnason kvað nauðsyn á gerð skýrslu um þróun loðnuveiði- mála. Dýr floti hefði verið útbúinn á grundvelli spádóma fiskifræðinga um að veiða mætti allt að 1,5 milljón tonn árlega. Fjárfest hefði verið i nýj- um tækjum í verksmiðjum. Nauðsyn væri skýrslu um þróun þessara mála hjá okkur, um rannsóknir og veiðar, um tillögur fiskifræðinga frá ári til árs og um þær ákvarðanir sem teknar hefðu verið á grundvelli þeirra. Steingrímur kvað sjálfsagt að láta vinna slíka skýrslu. Halldór Ásgrímsson kvað þá dreif- ingu sem nú hefði orðið á vinnslu loðnuafla byggjast á þvt að verk- smiðjur hefðu gert út veiðiskip til að tryggja sér hlut í vinnslunni. Hins vegar taldi Halldór að ákveðnar ríkis- verksmiðjur hefðu í fyrra fengið of mikinn afla til vinnslu. Takmarka ætti það magn sem verksmiðjum væri heimilt að sanka að sér og geyma til vinnslu meðan aðrar verk- smiðjur stæðu tómar. Við geymsluna versnar hráefnið og skemmist. Sú hefði orðið raunin á i fyrra. - A.St. V iWU>> timmi Óskoðuðum engin miskunn sýnd Lögreglan hefur á undanförnum nú að vera lokið. Ljósaskoðun lýkur nú Hverfisgötu og sýnir runu óskoðaðra dögúm stöðvað fjölmarga bíleigendur um helgina og eftir það verður líklega bíla á leið inn í portið. og fært bíla þeirra til skoðunar, en al- engin miskunn sýnd. Myndin var tekin DB-mynd: GunnarÖrn. mennri bifreiðaskoðun í Reykjavík á úr glugga Lögreglustöðvarinnar við Ósamið við verkalýðsfélagið Rangæing: 32,5% hærra kaupvegna orkuokurs —er ein af kröf um félagsins kröfur sem ekkert hefur verið rælt unt í fullan meðgöngutíma!” sagði Sigurður. „Þar á meðal er krafa vegna raf- orkuokursins sem bitnar á okkar fólki. Við þurfum 32,5% hærra mán- aðarkaup fyrir dagvinnu en til dæmis verkafólk á Reykjavíkursvæðinu vegna orkuokursins og höfum papp- ira frá kjararannsóknarnefnd kröf- unni til stuðnins. Samningar okkar eru því algerlega ófrágengnir og mér þykir með óllk- indum hve margir vcrkalýðsforingjar voru fljótir tneð pennann fyrir sunn- an á dögunum.” - ARH ,,Við eigum von á kalli sáttasemj- ara á hverri stundu til viðræðna. Þrátt fyrir að verkfalli hafi verið af- lýst á okkar félagssvæði er ósamið við okkur enn. Við berum enga ábyrgð á samningum sem undirrit- aðir voru í Reykjavik,” sagði Sigurður Óskarsson, framkvæmda- stjóri verkalýðsfélagsins Rangæings, igær. Rangæingur semur nteðal annars fyrir fjölda verkafólks við Hraun- eyjafoss, en forysta félagsins féllst á að aflýsa verkfalli þar í dag með þvi skilyrði að samningaviðræður hæfust þegar í stað. „Við höfunt lagt fram sjálfstæðar Skiptafundur íþrotabúi byggingafélagsins Sigurmóta hf. fór fram f gær: ÍBÚÐAKAUPENDUR FA AFSÖL —en verða að greiða gatnagerðargjöld sem þeir töldu sig hafa greitt Skiptafundur var haldinn í gær í þrotabúi byggingafélagsins Sigur- móta hf. í Garðakaupstað hjá bæjar- fógetanum í Hafnarfirði. Tekin var endanleg afstaða til kröfugerðar kaupsamningshafa um útgáfu afsala fyrir byggingarframkvæmdum. Jafn- framt var gerð grein fyrir stöðu þrotabúsins. Fyrir rúmu ári var kveðinn upp úr- skurður um greiðslustöðvun Sigur- móta hf. á meðan könnun fór fram á fjárhagsstöðu fyrirtækisins. Sigur- mót höfðu þá byggt 70 af 100 íbúð- um, sem félagið áætlaði að byggja í Garðakaupstað, nánar tiltekið í Lyngmóum. Fyrsti skiptafundur i máli þessu fór fram 6. marz sl. þar sem gerð var grein fyrirstöðu fyrirtækisins. Lýstar kröfur námu þá um 350 milljónum króna og voru meðal kröfuhafa kaupendur 30 íbúða sem ekki hafði verið kominn nema grunnur að er greiðslustöðvun var ákveðin. Fyrr á þessu ári var bifreið fyrir- tækisins seld fyrir um 1100 þúsund. Þá var krani fyrirtækisins seldur á uppboði fyrir 11 milljónir. Eignir fyrirtækisins í peningum eru um 7 milljónir og liggur því ljóst fyrir að það hrekkur hvergi til. Á skiptafundinum i gær var ákveðið að gefa út afsöl til þeirra kaupenda sem ekki hafa fengi þau, en það munu vera um 25 manns. Þá á þrotabúið eina íbúð sem seld verður á uppboöi í desember. Áætlað er að lokið verði við að skipta í janúar. Frá skiptafundinum hjá fógetaembættinu 1 Hafnarfirði 1 gær: Skiptaráðandi og lögmenn ráðgast um þrotabú Sigurmóta hf. DB-mynd: Sig. Þorri. Eigendur íbúðanna við Lyngmóa 1, 3, 5 og 7 töldu sig hafa greitt gatnagerðargjöld til Sigurmóta, en fyrirtækið skilaði hins vegar aldrei þeim peningum til Garðakaupstaðar. Garðabær taldi sig því eiga lögveð fyrir gatnagerðargjöldum. Sigurmót höfðu aldrei gert lóðarsamninga við Garðakaupstað um 4 hús við Lyngmóa. Garðakaupstaður hélt fast við sína kröfu um greiðslu á gatnagerðar- gjöldum og gerði þvi fólkið samning við bæinn I stað þess að láta reyna á það hjá dómara hvort krafan stæðist, en þá átti fólkið á hættu að allt yrði seltáuppboði. Margir þessara íbúðaeigenda hafa farið illa út úr máli þessu, meðal ann- ars þurft að greiða mörg hundruð þúsund og allt upp í tvær milljónir til að ganga frá íbúðum sínum sem Sigurmót átti að gera. Ákveðið var á fundinum að ibúarnir gætu fengið af- söl sín í næstu viku. Skiptaráðandi i máli þessu er Benedikt Blöndal hrl. -ELA

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.