Dagblaðið - 13.11.1980, Síða 4
4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1980.
G.O. bílaréttingar og viðgerðir
Tangarhöfða 7,
sími 84125
Hlífifl lakki bílsins.
Sel og festi
sílsalista
(stállista) á allar
gerðir bifreiða.
Daihatshu
Charmant
árgerö 1979
til sölu. Hvitur, hlifflar-
grind, dráttarkúla, mjög
sparneytinn og göflur
bíll. Uppl. í sima 43565.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 — Simi 15105
LYFTIGETA:
8 tonn—2 metra
5 tonn—3 metra
2 tonn—7 metra
1 tonn—10 metra
SÍMI
52371
í Hafnarfirði
/— Verzlunin Sporíö------------------\
auglýsir
ÓD YRUSÆNGUR VERASETTIN
Tilvalin jólagjöf — golftreyjur, náttföt, náttkjólar,
serkir og náttsloppasett, úlpur á böm og fullorðna —
mokkahúfur fyrir böm — Simba galla- og flauels-
buxur, aðeins kr. 9.500.- — Sparið ykkur sporin og
verzlið í
SPORINU, Grímsbæ.
Sími 82360.
Ingólfsstrati 18. Sölustjóri Benedikt Halldórsson
Svínabú - Svínabú |
Til sölu 40 gyltna bú í nágrenni Reykjavíkur.
Stækkunarmöguleikar. Rúmgott eigið húsnæði,
möguleiki að taka íbúð upp í kaupverð. Teikningar og
nánari uppl. aðeins á skrifstofunni.
Hjaltl Stelnþórsson hdl. Gús(af Mr Tryggvason hdl.
Tilsölu
Chevrolet Suburban dísilárgerð 1975.
Nýupptekin dísilvél, sæti fyrir 12 faiþega. Bíll í sér-
flokki.
Tilsýnisá
Bílasölunni Skeifunni
Símar84848 og35035.
Þetta magasin hafði skreytt glugga sina með xvintýrabrúðum. Með því tókst að laða fólk að o|> ófá börnin stóðu við
gluggann og horfðu á þennan ævintýraheim.
Lítill jólahugur í ráðamönnum ensku þjóðarinnar:
Engin jólaljós á göt
um Lundúnaborgar
— en verzlanir bæta úr með glitrandi jólaútstillingum
Það er líklega liðin tið að íslend-
ingar streymi til Lundúna til að
kaupa jólagjafir, enda dýrtíð mikil
þar. Þrátt fyrir það er nóg að gera i
verzlunum í Oxford Street, einni
aðalverzlunargötu Lundúna, þessa
dagana og greinilegt að fólk var í
jólagjafaleiðangri. Eigendur verzlana
hafa líka gert sér grein fyrir því og
flestir voru búnir að stilla út jóla-
trjám og jólasveinum eða einhverju
öðru sem minnir fólk á að það er
aðeins rúmur mánuður til jóla.
Enska ríkið með járnfrúna That-
cher i fararbroddi er hins vegar á
annarri skoðun. Með vaxandi verð-
bólgu og dýrtíð er allt gert til að spara
og þess vegna er lítill sem enginn jóla-
blær á þessum aðalgötum Lundúna í
ár. Venjulega hafa götur verið
skreyttar með glitrandi ljósum og
jólaskrauti á þessum árstíma og jafn-
vel fyrr. Núna er aðeins ein gata
skreytt í London, Regent Street. Og
svo litið bar á þeirri skreytingu að
margir hafa eflaust vart tekið eftir
henni. Þar sem verzlanirnar minntu
óneitanlega á jólin leit maður ósjálf-
rátt upp með þessum háu húsum til
að reyna að finna eitthvað sem benti
til þess að hin helga hátíð nálgist.
Þegar myrkva tók benti hins vegar
ekkert til þess að Regent Street væri
skreytt þar sem of dýrt þykir að hafa
ljós á þessu annars ómerkilega
skrauti. Þeir sem þrömmuðu milli
verzlana virtust engar áhyggjur hafa
af dýrtíð. f hverri verzlun var yfirfullt
af fólki. í Oxford Street varð vart
þverfótað fyrir fólki, hvítu, svörtu,
gulu og brúnu.
Ekki minnkaði umferð gangandi
eftir lokun verzlana. Þá nutu götusal-
arnir sín, einn söng jólasálma og von-
aðist til að fá smáaura i hattinn sinn í
staðinn, annar sýndi óspart litlar
dúkkur sem skriðu um gangstéttina,
þriðji bauðst til að mála mynd af veg-
farendum og hinn fjórði stóð við
hamborgaravagninn sinn og bauð
heldur illa útlítandi hamborgara. Já,
greinilegt er að jólahugur er kominn í
flesta, nema ef vera skyldi ráðamenn
ensku þjóðarinnar sem ætla sér ekki
að gefa heldur að græða.
- ELA
Eina gatan i London sem ber einhver
merki jólanna er Regent Street. Þar
eru ómerkilegar skreytingar hangandi
milli húsa, en of dýrt þykir að láta loga
Ijós á þeim svo að þær sjást ekki eftir
að myrkva tekur.
Jólaleikföng og jólatré. Merki þess að
jólin eru hátið barnanna.
Þessi verzlun seldi allar geröir af jólatrjám. Vegfarendur virða fyrir sér verð og
gæði og greinilega er sú stutta alvarlega að hugsa um eitt.
Það þarf ekki endilega að vera heima á jólunum. Ferðaskrifstofur kepptust við að
lokka ferðamenn til heitari landa með ódýrum fargjöldum og skemmtilegum
gluggaútstillingum. DB-myndir ELA