Dagblaðið - 13.11.1980, Side 15
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1980.
15
)ttir
Iþróttir
Sþróttir
Iþróttir
Iþróttir
t
Aston Villa hefur náð
f imm stiga forystu
— Sigraði Norwich 3—1 á útivelli í gærkvöld. Gary Shaw
skoraði tvívegis fyrir Villa
Svíar enn án sigurs
ísjötta riðli HM
Gerðu jaf ntef li við ísrael f gær
ísrael og Sviþjóð gerðu markalaust
jafntefli i HM-leik sínum i sjötta riðli
Evrópu i Tel Aviv í gær. Áhorfendur
voru 42.000. Lið ísraels sótti mjög í
leiknum en leikmönnum liðsins tókst
ekki að skora þrátt fyrir góð tækifæri.
Á lokaminútu leiksins skallaði miðherji
ísraels, Haim Bar, knöttinn i sænska
markið eftir hornspyrnu. Dómarinn
hafði flautað — dæmdi aukaspyrnu á
ísrael. Sviar áttu varla tækifæri i fyrri
hálfleik en í þeim siðari fór Ralf
Edström, Standard Liege, tvívegis illa
að ráði sinu.
Bezti maður Svía í leiknum var
markvörðurinn Thomas Wennersson
en hjá Ísrael voru leikmennirnir þrir,
sem leika á Englandi, mjög sterkir í
vörn — þeir Avi Cochen og Moshe
Gariani, Liverpool, og Yaacov Cohen,
Brighton. Staðan i sjötta riðli er nú
þannig:
N-írland 2 110 3—0 3
ísrael 3 0 3 0 1—1 3
Skotland 2 110 1—0 3
Svíþjóð 4 0 2 2 1—5 2
Portúgal 10 10 0—0 1
Fyrri leik ísraels og Svíþjóðar í
riðlinum lauk einnig með jafntefli.
Kristin Magnusdottir og Broddi Kristjánsson.
endingar keppa á
urlandamótinu
í einliðaleik
Kristín Berglind Kristjánsdóttir keppir við
Karin Lindquist Sviþjóð, og Kristín Magnús-
dóttir keppir við Carina Andersen, Svíþjóð.
Báðar sænsku stúlkurnar eru mjög sterkar.
Jóhann Kjartansson keppir við Torbjörn
Petterson Svíþjóð og Broddi Kristjánsson
keppir við Thomas Westerholm Finnlandi.
Hann ætti að eiga möguleika á að sigra í
þeim leik.
í tvíliðaleik
Broddi og Jóhann keppa við R. von
Hertzen og L. H. Nyberg Finnlandi, þarna er
möguleiki á vinningi.
Kristín og Kristín B. keppa við K. Lund-
quist og C. Magnússon frá Sviþjóð.
í tvenndarleik
Broddi og Kristín keppa við M. Olsson og
K. Wilhelmsson Svíþjóð. Jóhann og Kristin
B. keppa við T. Petterson og Kristín C. And-
ersen Svíþjóð.
Með í förinni verða einnig Jóhann Hálf-
dánarson, sem fer á ráöstefnu dómara, Rafn
Viggósson og Magnús Elíasson, farar-
stjórar, sem sitja þing, hvorutveggja haldið í
sambandi við Norðurlandameistaramótið.
Sigurganga gamla Birming-
hamfélagsins Áston Villa heldur áfram
i 1. deildinni ensku. í gærkvöld sigraði
Villa Norwich á útivelli 1—3 og hefur
náð fimm stiga forustu I deildinni.
Hlotið 20 stig í siðustu ellefu
leikjunum. Villa hefur nú 27 stig en
Liverpool og Ipswich kom næst með 22
stig. Ipswich hefur þó aðeins tapað
einu stigi meira en Aston Villa.
Framan af i gærkvöld leit ekki út
fyrir sigur Villa í Norwich. Heimaliðið
lék mun betur í fyrri hálfleik. Náði
forustu á 25. mín. þegar Graham
Paddon sendi knöttinn í markið hjá
Jimmy Rimmer. En fleiri urðu ekki
mörk Norwich þrátt fyrir góð færi og í
síðari hálfleiknum fór Villa að koma
meira inn í myndina. Miðherjinn ungi,
Gary Shaw, jafnaði eftir klukkustund-
ar leik og náði síðan forustu fyrir
Birmingham-liðið á 83. mín. Tveimur
mín. síðar gaf hann vel á gamla garpinn
Peter Withe, sem skoraði þriðja mark
liðsins. Árangur Aston Villa á leik-
vellinum hefur verið frábær síðustu
vikurnar en um leið aukast áhyggjur
þeirra, sem með peningamál félagsins
fara. Tekjur leikmanna orðnar mun
meiri vegna bónusa — 500 sterlings-
pund fyrir unninn leik á hvern — en
félagið getur með góðu móti greitt. En
það er önnur saga. Margir leikir voru í
ensku knattspyrnunni í gsér. Úrslit
urðu þessi:
I. deiid
Leeds-Middlesbro 2—1
Norwich-Aston Villa 1—3
Leicester-Everton 0—1
Man. Utd.-Wolves 0—0
Sunderland-Man. City 2—0
Tottenham-C. Palace 4—2
2. deild
Cardiff-Wrexham I—0
Chelsea-Derby 1—3
Watford-Luton 0—1
Pólland
vann Spán
Spánn og Pólland léku vináttuleik i
knattspyrnu i Barcelona i gærkvöld.
Pólland sigraði 2—1. Iwan skoraði
fyrsta mark leiksins fyrir Pólland á 18.
min. Spánverjum tókst loks að jafna á
87. min. þegar Dani skoraði úr vita-
spyrnu. Sú dýrð stóð ekki lengi fyrir 25
þúsund áhorfendur. Á lokamínútu
leiksins skoraði Iwan sigurmark Pól-
verja.
1 Evrópukeppni landsliða, leikmenn
21 árs eða yngri, sigraði Spánn Holland
2—0 í Volendam i Hollandi i gær-
kvöld. Matesanz, 42. min. og Marian
90. min. skoruðu mörk Spánar. Áhorf-
endur 2500.
Úrslit í síðasta leiknum féllu niður í
blaðinu í gær.
3. deild
Chester-Plymouth 1—0
Exeter-Oxford 1 — 1
Reading-Gillingham 0—1
4. deild
Crewe-Tranmere 3—0
Hereford-Bournemouth I—0
Lincoln-Northampton 5—0
Mikil læti voru í innbyrðisviðureign
Yorkshireliðanna Leeds og Middles-
brough. Kevin Hird náði forustu fyrir
Leeds, þegar hann skoraði úr víta-
spyrnu í fyrri hálfleik. Middlesbrough
jafnaði á 46. mín. Júgóslavinn
Jankovic skoraði. Á 71. mín. var bak-
vörðurinn John Craggs hjá Boro
rekinn af velli og skömmu síðar
skoraði Hird sigurmark Leeds úr víta-
spyrnu.
Litli svertinginn Garth Crooks var
óstöðvandi hjá Tottenham — skoraði
þrennu gegn Palace. Fyrsta markið á
30. mín. en annar svertingi, Vince
Hilaire, jafnaði fyrir Palace í 1 — 1. f
síðari hálfleiknum skoraði Crooks
tvivegis og Steve Archibald fjórða
mark liðsins áður en Ian Walsh skoraði
annað mark Palace.
Sunderland vánn öruggan sigur á
Man. City, sem varð fyrir því áfalli að
Dennis Tueart meiddist snemma leiks.
Þar með fór mesti krafturinn úr sókn
Manchesterliðsins. Þeir Kevin Arnott
og hinn 18 ára John Cooke skoruðu
mörk Sunderland. Fyrsta mark Cooke
með Sunderland.
Man. Utd. sótti nær stanzlaus hjá
Úlfunum á Old Trafford en leik-
mönnum liðsins tókst aldrei að koma
knettinum í mark mótherjanna.
Úlfarnir skoruðu ekki heldur og tíunda
jafntefli United var staðreynd. í
Leicester skoraði Peter Eastoe fyrir
Everton eftir 30 mín. og það var eina
mark liðsins. Fyrsti sigur Liverpool-
liðsins í sjö leikjum. í 2. deild tapaði
Chelsea á heimavelli fyrir Derby
County — fyrsta tap Lundúnaliðsins í
II leikjum. í 4. deild komst Lincoln
City í efsta sætið — Hereford úr botn-
sætinu og eftirlét það Halifax George
Kirby.
Staðan í 1. V. Villa deildinni. 17 12 3 2 -hsim. 32—14 27
Liverpool 16 7 8 1 33—16 22
Ipswich 15 8 6 1 24—10 22
Nottm. Ford. 17 8 5 4 26—16 21
Arsenal 17 8 5 4 26—17 21
Man. Utd. 17 5 10 2 21 — 11 20
Everton 17 8 4 5 28—19 20
WBA 16 7 6 3 19—13 20
Birmingham 16 6 6 4 22—18 18
Tottenham 16 6 6 4 28—31 18
Sunderland 17 6 5 6 23—20 17
Southampton 17 6 4 7 31—27 16
Middlesbro 17 6 3 8 25—28 15
Stoke 16 4 7 5 18—25 15
Coventry 17 6 3 8 19—27 15
Wolves 16 5 4 7 15—21 14
Leeds 17 5 3 9 13—29 13
Norwich 17 4 4 9 20—33 12
Man. City 17 3 5 9 18—31 11
Brighton 17 3 4 10 18—31 10
JohnTrollope
stjóri Swindon
John Trollope, bakvörðurinn kunni,
sem leikið hefur áratugi með Swindon
Town, var i gær ráðinn sem fram-
kvæmdastjóri liðsins. Kemur í stað
Danny Williams — en staða Swindon
er mjög Ijót I 3. deild. Trollope var i
fréttunum fyrir nokkrum vikum, þegar
hann lék sinn 765. deildaleik með
Swindon. Bætti þar með met Jimmy
Dickinson, Portsmouth, þess kunna
enska landsliðsmanns hér á árum áður.
Siðan hefur Trollope enn leikið fimm
leiki með Swindon svo met hans er
komið i 770 deildaleiki.
Litli landsliðsmaðurinn leikni í
knattspyrnunni, Karl Þórðarson, hefur
gert góða hluti með La Louviere i 2.
deildinni belgísku siðustu vikurnar.
Skorað talsvert af mörkum og meðal
annars sigurmark La Louviere Harel-
beke siðastliðinn laugardag. La Louvi-
ere hefur nú lyft sér af botninum í
deildinni og er reyndar ekki nema sex
stigum á eftir efstu liðunum. Myndin að
ofan er tekin i haust, þegar La Louvi-
ere lék við Tongeren. Karl er á miðri
myndinni.
Leicester 17 4 2 11 12—27 10
C. Palace 17 4 I 12 19—34 9
Trausti kemur
heimídag
Trausti Haraldsson, landsliðsbak-
vörðurinn kunni í Fram, sem siðustu
daga hefur æft með Hertha Berlin, er
væntanlegur heim i dag. Ekkert varð af
samnlngi hjá honum við Berlinarliðið
— og Trausti vildi ekki að svo komnu
máli leita fyrir sér víðar í Vestur-Þýzka-
landi. Peninga- og klæðlitill og afréð
því að halda heim. Umboðsmaöur hans
í Þýzkalandi, Willy Reinke, er með 2—
3 félög í takinu, sem áhuga hafa á að fá
Trausta til liðs við síg. Hann mun ef til
vill athuga þau mál síðar.
Brian Clough
áþing?
Miklar likur eru á að Brian Clough,
framkvæmdastjóri Nottingham Forest
og fyrrum miðherji enska landsliðsins i
knattspyrnu, verði i framboði fyrir
Verkamannaflokkinn i næstu þing-
kosningum á Bretlandseyjum, eða cftir
þrjú ár.
í viðtali við fréttamenn BBC,
brezka útvarpsins, í gær sagðist Clough
vera aö ihuga málið. Lagt hefði verið að
honum af kunnum mönnum í Verka-
mannaflokknum að bjóða sig fram.
Hins vegar var ekki getið um hvar
Clough yrði i framboði ef til kemur.