Dagblaðið - 13.11.1980, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. NÖVEMBER 1980.
Nýtt hefti af Sögu upp
á 400 blaðsíður:
Trúmál,
mjölverð,
togveiði-
deilur
— ogmargtannað
merkilegt efni
„í Hjálpræðisherinn hefur eingöngu
gengið fólk úr verkalýðs- og iðnaðar-
mannastétt,” segir Pétur Pétursson i
skemmtilegri ritgerð í nýútkomnu hefti
af Sögu, tímariti Sögufélagsins. Þar
fjallar Pétur um trúarlegar hreyfingar á
íslandi á þessu timabili og leitast við að
tengja þær við félagslegan og pólitísk-
an veruleika þessara ára.
Þetta hefti Sögu er mjög myndarlegt,
nærri 400 blaðsíður, og eftir því læsi-
legt.
Gunnar Karlsson ritar um fjárhag
höfðingja og stórbænda á 13. öld og
veltir fyrir sér hvað menn þurftu að
ráða yfir miklum eignum til að geta
látið taka sig alvarlega sem höfðingja.
Gísli Gunnarsson leiðir rök að því að
leiguliðar á 16. öld hafi stundum greitt
landskuldir sínar i mjöli og sluppu þá
ódýrara, því þeir höfðu til viðmiðunar
sögualdartaxta þegar kornið var miklu
dýrara en það síðar varð! Og Berg-
steinn Jónsson gerir útdrátt úr merki-
legri dagbók Vestur-fslendingsins og
landnemans Jóns Jónssonar frá Mjóa-
dal í Bárðardal.
Þá eru greinar í heftinu um fiskveiði-
deilur við Breta, viðhorf íslendinga til
Skota, ókannaða skjalaböggla um
Skaftárelda, og minnzt er á hugsanleg-
an ástarhug-.Þorvalds Vatnsfirðings
01 Sólveigar Sæmundardóttur.
Enn má telja ítarlegar greinar um tvo
látna fræðimenn, Stein Dofra og Arnór
Sigurjónsson.
Siðast en ekki sízt eru 70 blaðsiður
helgaðar ritfregnum um innlenda sagn-
fræði og sýnir það hversu mikil grósk-
an er á þessum vettvangi.
Ritstjórar Sögu eru Björn Teitsson
og Jón Guðnason, en forseti Sögu-
félagsins er Einar Laxness.
Félagsmenn geta vitjað ritsins i af-
greiðslu Sögufélagsins, Fischersundi,
en auk þess er það til sölu í stærri verzl-
unum í Reykjavík. - IHH
Eskifjörður:
Síldin pækluð
ogfluttíhús
Ekkert var brætt í loðnubræðslunni
á Eskifirði í gær og í fyrradag vegna
þess að ekki fæst svartolía eins og er.
En svartolía er væntanleg í dag, mið-
vikudag, að sögn Þórðar Jónssonar
rekstrarstjóra.
Ljósafoss kom með 1200 tómar
síldartunnur hingað, 400 tunnur á hvert
söltunarplan. Mikið er að gera i síld-
inni þó söltun sé að mestu lokið.
Undanfarið hefur mikið verið að gera
við að pækla sildina, velta tunnum og
flytja þær í hús. Unnið er langt fram á
kvöld og jafnvel um helgar lika. Hver
tunna hlýtur að vera orðin dýr jtegar öll
þau handtök eru lögð saman.
- Regina, Eskifirði.
Eldhúsbfll ók
utan íþotuna
— og skemmdi væng
hennar
Farþegar frá Lundúnum í gær urðu
fyrir óvæntri töf er eldhúsbíll ók utan í
væng Flugleiðaþotunnar Boeing 727
þar sem hún stóð á Heathrow flugvelli.
Skemmdir urðu minni en á horfðist og
tók um hálfa klukkustund að lagfæra
þær.
- ELA
Allur akstur
krefst
varkárni
Ýtum ekkl barnavagni
á undan okkur vlð
aðstæður sem þessar
'N_____Uísr"""
Vissir þú að HUSQVARNA
framieiðir afítað 100 gerðir eidavéia!
Allt frá 3ja hellna eldavélum einum ofni með grilli og geymsluhólfi
að fullkomnustu vélinni, með tveim ofnum, sjálfhreinsandi efri ofn,
gierheliu, rafeindastýrðu klukkuborði. Breiddir 50, 55, 60 og 70 cm.
Hraðsuðuhellur, ofninn hitnar á aðeins 5 mínútum. HUSQVARIMA
ofnarnir em þekktir fyrir að vera sérlega sparneytnir á rafmagn.
Verö frá 252.200.- (nýkr. 2.522.)
til 631.000 (nýkr. 6.310-)
Husqvarna
r
unna’i Sfygúuöan h.f suðurlandsbraut 16 - simi 32500
Husqvarna
sparar orku.
Við kynnum HUSQVARNA
Bíllinn sem allir vilja eiga.
PLYMOUTH VOLARÉ 1980
Erum að fá sendingu af hinum eftirsótta Plymouth Volaré Station
1980 á verði sem enginn annar getur boðið. Sendingin verður á verði
sem er 20% undir verksmiðjuverði. Volaré hefur marg sannað yfir-
burði sína hér á landi og bestu dæmin er m.a. endursöluverð og
endingin — þetta eru bílar sem forðast verkstæði. Reynslan hefur
marg sannað að bílarnir frá Chrysler eru sterkbyggðari en flest allir
aðrir bílar.
Við getum boðið Volaré Station Custom með m.a. sjálfskiptingu,
vökvastýri og 6 cyl. á verði frá ca. kr. 9.800.000 og Volaré Station
Premier með deluxe frágangi, sjálfskiptingu, vökvastýri og 8 cyl. frá
ca. 11.900.000 (miðað við gengi 21.10.‘80.).
Umboðsmenn:
Sniðill hf., Óseyri 8, Akureyri. Sími 22255
Bíiasala Hinriks, Akranesi. Sími 1143
Friðrik Óskarsson, Vestmannaeyjum. Sími 1552
Öskar Jónsson, Neskaupstað. Sími 7676
Baldvin Kristjánsson, Patreksfirði. Símar 1195 og 1295
Armúla 36. Símar 84366 - 84491