Dagblaðið - 08.01.1981, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1981.
3
VAR GERVA-
Hvernig gengur þór að
venjast nýju krónunni?
SONISELDUR?
O.J. skrífar:
Hver var það sem borgaði þessum
Júdasarbörnum í Paris fyrir að
eyðileggja málstað P. Gervasonis sem
pólitísks flóttamanns á íslandi?
Svarið er einfalt. Allir þeir sem
hagnast mest af að hafa herinn áfram
á íslandi, Bandaríkin og Nato. Ein
spurning enn. Fyrir hvað var Patrick
seldur á uppboði hjá islenzkum
valdsmönnum?
Ég mundi alls ekki furða mig á því
þótt næst yrði það frelsarinn okkar
sjdfur sem verður krossfestur hér á
landi friðarins og kærleikans að
norðan. A.m.k. hefur Steinn Steinarr
séð þetta nógu skýrt fyrir sér í sínum
51. passíusálmi.
FYRIR HVAÐ
Haukur Jóhannesson: Það gengur vel.
Mér finnst orðið sú gamla ósköp úrelt
og leiðinleg. Það er engin hætta á að
fólk klári sig ekki með þessa nýju
krónu.
„LÁTUM VONLEYS-
ISHJAL OG ÚRTÖL-
UR EKKIVILLA UM
FYRIR OKKUR”
Guðbjörg Jónsdóttir hríngdi:
Mig langar að segja frá þvi að ég
er búin að hengja upp á vegg hjá mér
áramótaávarp Vigdísar Finnboga-
dóttur, forseta ísiands. Finnst mér að
allir ættu að gera það. Ég klippti það
út úr blaðinu, rammaði það inn og
hengdi upp á vegg.
Mér fmnst boðskapur Vigdísar
eiga svo mikið erindi til mín og
reyndar til allrar islenzku
þjóðarinnar.
í ávarpi sínu sagði Vigdis m.a.:
„Þegar litið er um öxl virðist svo sem
verstu ár íslenzkrar þjóðar hafi verið
þegar hún lét vonleysi ná tökum á
sér. Við búum í landi, sem einatt
hefur verið okkur erfitt. Það er oft
ekki á færi okkar að afstýra margs
konar vanda, sem að okkur steðjar.
En við getum brugðizt við vandan-
um. Okkur er gefið vit. Okkur er
gefinn styrkur. Hagsýni er okkur í
blóð borin. Allt þetta og miklu fleira
býr í okkur, aðeins ef við viljum nýta
það, en látum vonleysishjal og
úrtölur ekki villa um fyrir okkur.”
Mál Patrick Gervasonis hefur oröiö mönnum æriö ihugunarefni aó undanförnu.
Jóhannes Hrlgason: Ég get nú litið sagt
um það.ég er varla farinn .ið nota nýju
krónuna. Ég er að vísu búinn að skipta
öllum gömlu krónunum yfir í nýjar.
Þetta kemur með hægðinni.
Siguriinn Sváfnisdóltir: Það gengur
bara vel. Maður verður bara að passa
sig á að hugsa sig vel um áður, þá
gengur allt vel.
Mörgum finnst að Vigdisi Finnboga-
dóttur forseta hafi tekizt mjög vel
upp í áramótaávarpi sinu til isienzku
þjóðarínnar.
Hringlö«s|rT,f
■iii kl. 13 ogl
milliM
eðas
E/nu sinni
áári...
opnum við lagerinn hjá okkur
og höldum verksmiðjuútsö/u
Þar seljum við gallaðar vörur og ýmsa afganga á hlægilegu verði
Við bjóðum viðskiptavini okkar frá liðnum
árum velkomna aftur og lofum þeim ekki síðri
kaupum en í fyrra.
Þið hin ættuð líka að kíkja inn þó ekki
væri nema til að sjá hvernig
raunveruleg verksmiðjuútsala á að vera.
Opið fimmtudag,
föstudag og iaugardagki. 10—19
Siguriaug Þorkelsdóttir: Ég vinn við af-
greiðslu, mér finnst fólk dálitið hrætt
við að verzla. Það er eins og fólk haldi
að sér höndum. Annars gengur mér
sjálfri ágætlega að venjast nýju krón-
* *
F.rla Alexandersdóttir: Ég hef Iitið sem
ekkert notað nýja gjaldmiðilinn. Ég hef
ekki haft tlma til þess. Annars lízt mér
ágætlega á nýju krónuna.
VERKSMIÐJU
ÚTSALAN
Grensásvegi 22
(á bak við gamla Litavershúsið)
Hilmar Guðlaugsson: Mér gengur
ágætlega að nota nýju krónuna. Þessi
gjaldmiðilsbreyting ætti varla að valda
miklum erfiðleikum.
Spurning
dagsins