Dagblaðið - 15.01.1981, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1981.
Bréfritara finnst forsvarsmenn Alusuisse taka sér langan tfma til að leggja fram gðgn sem sanna sakleysi þeirra. Myndin er af álverinu I Straumsvfk.
„ ALUSUISSE VEFUR RÍKIS-
STJÓRNINNIUM FINGUR SÉR”
—hef ur málið veríð þaggað niður?
Ari T. Guðmundsson skrifar:
Hvað varð um stórsprengjuna sem
Hjörleifur og kó sprengdi fyrir jólin?
Milljarða fjársvik auðhringsins í
Straumsvík voru talin harla líkleg.
Ekki hefur heyrzt stuna né hósti
um málið síðan. Og þó spöruðu
stjórnarblöðin ekki stríðsfyrirsagn-
irnar. Ótrúlegt er að vinnan við efna-
hagsráðstafanir stjórnarinnar hafi ýtt
málinu til hliðar. Upphæðir í spiinu
eru hærri en svo.
Mig langar því að vekja athygli á
mjög svo líklegri skýringu á þögninni
núna.
Forsvarsmenn Alusuisse tilkynntu
íslenzku ríkisstjórninni að fyrirtækið
myndi leggja fram gögn sem sönnuðu
sakleysi þess I febrúar. Alusuisse
tekur sér borginmannlega þann tíma
sem það telur sér henta án þess að
rikisstjómin mótmæli eða krefjist
styttri biðtíma. Frestur Alusuisse
dugir til þess að ganga frá öllum laus-
um endum, búa til „hreint” bókhald
og kippa í þræðina í Ástralíu. Það
hlýtur að vera einsdæmi hvernig
Hjörleifur og samstarfsmenn hans
láta vaða ofan í sig. Gaman þætti
mér að sjá rök rikisstjórnarinnar
fyrir því að veita Alusuisse tilkynntan
frest. Auðvitað hefði ríkisstjórnin átt
að skammta Alusuisse frestinn að
viðlagðri uppsögn álsamningsins.
Vera má að ríkisstjórnin láti undan
þrýstingi og krefji Alusuisse skýringa
fyrr en í febrúar, ef menn taka hðnd-
um saman. Hvernig væri nú ef allir
baráttumenn um skynsamlega stór-
iðjustefnu hefja baráttu fyrir því að
Alusuisse leggi öll gðgn á borðið
undir eins? í leiðinni mætti móta
stefnu í stóriðjumálum almennt og
ráða í hverju endurskoðun álsamn-
ingsins ætti að vera fólgin.
Smáauglýsingar
mBiABsms
Þverholti tl sími 2 7022
13-'
r "......... ~ 1
Spurning
dagsins
■--------1
Hefurðu lesifl eitthvafl
af nýútkomnum bók-
um?
Sólvdg Baldsndóttir Mari: Ég er búin
að lesa eina, Ég lifi, eftir Martin Gray.
Annars er ég alltaf að lesa listasögu svo
það kemst ekki annað að.
Gunnar EBaaaoa nal: Já, ég er búinn
aö lesa tvær, bók Snjólaugar Braga-
dóttur og bók Sven Hassels Herréttur.
Ég ætla að reyna að komast yfir Vítis-
veiruna eftir Alistair MacLean.
Vigdb Erieadarióttir aeari: Nei, litið.
Mig langar helzt til að lesa nýju bókina
hans Halldórs Laxness, Grikklands-
árið.
Sveinbjöm Gaðaiaadfioa Iftgreglu-
maflur: ÉR er búinn að lesa Ég lifi eftir
Martin Gray. Það eru margar bækur
sem ég á eftir að lesa.
Arna Elaanrióttk acari: Ég er búin að
lesa eina, Pelastikk eftir Guðlaug Ara-
son.
Slgurjón Magnánoa lifeyrbþegl: Ég er
alltaf að lesa. Núna siðast las ég Fjalla-
kúnstnerinn Stefán frá Möðrudal og
hafði mikið gaman af.
i
1