Dagblaðið - 15.01.1981, Qupperneq 14
14
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1981.
I
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1981.
15
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Sþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
DANIR KOMAISTAD BELGA
íslenzka landsliðið i handknattleik,
sem heldur I keppnisferð í mánudaginn
mun nokkuð óvænt leika við Dani f
ferðinni í stað Belga sem gengu úr
skaftinu á siðustu stundu. Verða þvi
leiknir tveir leikir við V-Þjóðverja og
einn við Dani f ferðinni.
Fyrri lelkurinn við Þjóðverjana
verður f Hamborg þann 20. en sá siðari
i Lúbeck þann 22. Leikurinn við Dani
verður svo leikinn 23. Landsliðið er
væntanlegt heim annan sunnudag.
BREZKUR NALFARITIL ÍA
Þjálfaraleit Akurnesinga hefur að
likindum tekið enda, þvi þeir eru
komnir f samband við mann að nafni
Ken Oliver og var hann áður þjálfari
hjá Waisall i ensku 3. deildinni. Oliver
fékk hins vegar reisupassann fyrir
RIBENDAHLSKORAÐI11
Claes Ribendahl, stórskytta Lugi,
skoraði 11 mörk gegn Hellas i sænsku
1. deildinni um sl. helgi. Lugi sigraði
24-20 og hefur tekið geysilegan kipp að’
undanförnu eftir slaka byrjun. Er i 4.
sæti — fjórum stigum á eftir efsta
liðlnu Warta. Ystad og Heim koma i 2.
og 3. sæti.
nokkru en Walsall er f neðri hluta 3.
deildar. Var það George Kirby, sem
benti Skagamönnum á Oliver og eru
allar likur á að hann taki þjálfun
Skagamanna að sér.
Upphaflega stóð til að fá þjálfara frá
V-Þýzkalandi en þar sem leitin gekk illa
var frá þvi horfið. Sömu sögu er að
segja um Breiðabliksmenn og þeir hafa
nú Breta i sigtinu.
Ekki verður langt stopp hjá lands-
liðsmönnunum, þvi Frakkar koma
hingað fyrir mánaðamótin og leika 3
landsleiki. -SSv.
Gunnar
ístað Ola
Hilmar Björnsson valdi i gær-
kvöld þá Gunnar Einarsson,
markvörð úr Haukum, og Jó-
hannes Stefánsson, Ifnumann úr
KR, í landsliðshópinn sem held-
ur til V-Þýzkalands á mánudag.
Gunnar kemur i stað Óla Ben
sem ekki getur farið vegna
meiðsla. -SSv.
Lárus Karl Ingason hefur hér sloppið framhjá þeim Kristjáni Arasyni og Gunnari Einarssyni f leiknum i gær og skorar af harðfylgi. DB-mynd S.
HAUKAR FJARLÆGJ-
AST FALLDRAUGINN
—umu mikilvægan sigur á FH ígær, 24-23, ífjörugum leik
Haukar linuðu verstu fallþrautirnar
með sanngjörnum en um leið naumum
sigri á FH, 24-23, i geysilega fjörugum
en ekki að sama skapi vel leiknum leik i
gærkvöld. Haukar höfðu leikinn i
hendi sér lengst af en undir lokin mun-
aði minnstu að FH tækist að jafna. FH
skoraði þrjú siðustu mörkin og greini-
lega var tekið að fara um marga áhang-
endur Hauka á áhorfendapöllunum.
Sigur vannst þó og falldraugurinn er nú
fjær en áður. Haukar eru þó ekki úr
allri fallhættu ennþá. Meira að segja
gæti hæglega farið svo að aukakeppni
þyrfti á milli Fram, KR og Hauka um
hvert liðanna fylgir Fylki f 2. deildina.
FH-ingar léku fyrri hálfleikinn væg-
ast sagt hræðilega illa. Var engu líkara
en leikmenn leggðu sig alla fram um
að gera sem flestar vitleysur og mátti
vart á milli sjá hver þeirra stóð sig bezt í
því. Misheppnaðar sendingar voru
óteljandi og ráðleysið með ólíkindum.
Það voru aðeins þeir Þorgils Óttar og
Pálmi, sem héldu haus í fyrri hálfleikn-
um. Hraðinn var geysilega mikill og
mun meiri en liðin réðu við. Knötturinn
gekk þvi hratt marka á milli og mörkin
hlóðust upp. Um miðjan hálfleikinn
var staðan 7-6 Haukum í vil en á
skömmum tima breyttu þeir henni í 12-
7. Sá munur hélzt út hálfleikinn og
staðan var 17-12 er blásið var til hlés.
Það fór eins og marga grunaði er
síðari hálfleikurinn hófst. Dæmið
snerist algerlega við. Haukar léku eins
og börn en FH-ingar tóku sig sáman í
andlitinu. Söxuðu ótt og títt á forskotið
og eftir 10 mínútna leik var staðan
orðin 18-17 Haukum í vil. Aldrei tókst
þó FH að jafna þótt tækifærin létu
ekki á sér standa. Spennan varð mikil
undir lokin er FH-ingar börðust í kapp-
hlaupi við tímann en tókst ekki að
jafna metin. Varla hefði verið sann-
gjarnt ef þeir hefðu náð öðru stiginu.
Leikur Haukanna var ákaflega
sveiflukenndur í gærkvöld. Fyrri hálf-
leikurinn góður en sá siðari dapur —
sérstaklega fyrstu 20 min. hans.
Espanolsigraði
„stóra bróður á Spáni
Mikill hasarleikur varð á milli spænsku 1. deildar-
liðanna Espanol og Barcelona, sem bæði eru frá
stórborginni Barcelona. Espanol sigraði 1-0 og er nú
aðeins þremur stigum á eftir ,,stóra bróður”. Atle-
tico Madrid náði aðeins jöfnu, 2-2, gegn Las Palmas
en heldur engu að sfður 5 stiga forskoti. Úrslitin á
Spáni um sl. helgi urðu þessi:
Otasuna — Real Sociedad 0-3
Real Betis — Valencia 1-1
Sevilla — Zaragoza 0-0
Sporting Gijon — Hercules 3-1
Atl. Bilbao — Real Madrid 1-1
Alemria — Valladolid 1-1
Murcia — Salamanca 1-1
Staða efstu liða:
Atletico Madrid 19 12 6 1 34-18 30
Valencia 19 11 3 5 36-23 25
Real Sociedad 19 10 4 5 30-18 24
Barcelona 19 11 1 7 32-24 23
Real Madrid 19 9 4 6 34-18 22
Crijuff ekki til Chelsea
Ekkert verður úr því að Johann Crijuff leiki með
Chelsea. Það varð endanlega Ijóst i gærkvöid er
Chelsea lék vináttuleik við hollenzka 1. deildarliðið
DZ ’79. Lundúnaliðið sigraði 4-2 en á meðal leik-
manna DZ ’79 var Crijuff.
Em frestað hjá Hammers
Enn varð að fresta leik West Ham og Wrexham í
bikarnum og er nú áætlað að leikurinn fari fram nk.
mánudag ef guð lofar. Þessar frestanir koma sér af-
ar illa fyrir West Ham, sem stendur f 'ströngu á toppi
2. deildar, i 8-liða úrslitum Evrópukeppni bikarhafa
svo og í undanúrslitum deildabikarsins.
Einn leikur fór fram i 3. deild i gærkvöld. Exeter
sigraði Portsmouth 2-0.
Couthinotil
LAAztecs
Claudio Couthino, sem var stjóri Brasilfumanna á
HM 1978 í Argentinu en hætti störfum fyrir nokkru
hefur nú ráðið sig til bandariska iiðsins Los Angeles
Aztecs. Tekur hann við af Rinus Michels, sem var
landsliðsþjálfari Hollendinga um langt árabU, m.a. í
HM-keppnunum 1974 og 1978. Michels er nú hjá
Köln.
Möguleikar City IrUir
—Ray Kemedy tryggði U verpool sigur á Maine Road í gærkvöld
Mark Ray Kennedy á 81. minútu
dugði til að tryggja Liverpool mikil-
vægan sigur á Manchester City á Maine
Road i fyrri leik liðanna i undanúrslit-
um enska deildabikarsins i gærkvöld.
Terry McDermott tók þá aukaspyrnu
rétt utan vítateigs og sendi hárná-
kvæma sendingu til Kennedy, sem var
alls ekki gætt af vamarmönnum City.
Hann þurfti litið að hafa fyrir að senda
knöttinn í netiö hjá City. Liverpool er
þvi næsta öruggt f úrslit keppninnar, en
liðin mætast á ný eftir 3 vikur.
City hóf leikinn i gær af geysilegum
krafti ákaft hvatt af 40.000 áhorf-
endum. Strax á 3. mínútu sendi Kevin
Reeves knöttinn í netið hjá Ray Clem-
ence en markið var dæmt af vegna
brots. City var sterkari aðilinn fyrstu
25 mínútur leiksins en síðan tók Liver-
pool smám saman völdin. T.d. komst
David Fairclough, sem kom í stað
David Johnson í gær og lék sinn fyrsta
leik með aðalliðinu í 3 mánuði, í gegn-
um vörn City á 29. mínútu en Joe
Corrigan varði vel frá honum.
Graeme Souness átti skot í stöng í
upphafi síðari hálfleiks og sókn Liver-
pool þyngdist stöðugt. Sóknarmönnum
City gekk afleitlega að finna leið í gegn-
um vörn Liverpool þar sem Phil
Thompson stjórnaði aðgerðum. Hann
lék nú með á ný eftir að hafa misst 11
leiki úr vegna meiðsla. Markið kom
síðan eins og fyrr sagði á 81. mínútu.
Rétt á eftir komst Sammy Lee í dauða-
færi en brenndi af.
Liverpool hefur því pálmann í hönd-
unum og það styrkir stöðuna enn frek-
ar að City hefur ekki unnið á Anfield í
25 ár. Vann síðast 1956. Liverpool
hefur nú leikið 85 leiki í röð án taps á
Anfield í öllum mótum. Þeir Bobby
McDonald, Tommy Hutchison og
Gerry Gow gátu ekki leikið með City í
gær þar sem þeir höfðu leikið með
öðrum liðum í keppninni fyrr í vetur.
Liðin. City: Corrigan, Power,
Caton, Reed, Henry, Ranson, Tueart,
Bennett, Boyer, McKenzie, Reeves.
Liverpool: Clemence, Neal, Thomp-
son. Irvine, A. Kennedy, Souness, R.
Kennedy, Lee, Dalglish, Fairclough,
McDermott. -SSv.
Gunnar Einarsson var maðurinn á bak
við sigur Haukanna. Varði mjög vel
þrátt fyrir slaka byrjun. Ámi Sverrlsson
lék einnig mjög vel og sóknarleikur
Árna H. og Harðar var góður þó svo
Árni væri dálítið bráður. Þá var Stefán
góður þann tíma, sem hann lék með.
FH-ingar eru að koma upp með mjög
ungt og skemmtilegt lið. Sá þeirra sem
mest kom á óvart í gær var tvímæla-
laust Pálmi Jónsson, sem til þessa
hefur skapað sér nafn sem hættulegur
miðherji í knattspyrnu. Hann er engu
að síður stórefnilegur í handboltanum
— hættulegur í horninu. Þorgils Óttar
Mathiesen og Sveinn Bragason voru
einnig atkvæðamiklir. Þorgils Óttar
geysilega sterkur á linunni en Svein
vantar meiri yfirvegun. Kristján Ara-
son lék með að nýju eftir ferðalag með
skólafélögum sinum og komst vel frá
leiknum þó hann skoraði ekki utan af
velli. -
Mörkin: Haukar: Hörður Harðarson
6/2, Árni Hermannsson 4, Árni
Sverrisson 4, Stefán Jónsson 3, Júlíus
Pálsson 3, Lárus Karl Ingason 2, Viðar
/2
Ragnhildur
erennþábezt!
Ragnhildur Sigurðardóttir UMSB
sýndi og sannaði i gærkvöld að hún er
langbezt i kvennaflokki i borðtennis
hérlendis. Fyrri hluti punktamóts Vik-
ings fór þá fram og sigraði Ragnhildur
örugglega. Önnur i meistaraflokki
kvenna varð Guðrún Einarsdóttir,
Erninum og þriðja Ásta Urbancic,
Erninum.
í meistaraflokki karla sigraði Bjarni
Kristjánsson, UMFK. Hann sigraði
Gunnar Finnbjörnsson, Erninum, sem
varð í 2. sæti 13-21, 21-16 og 21-10.
Reyndar léku allir við alla. Stefán
Konráðsson, Víkingi, sem verið hefur í
nokkrum sérflokki í vetur varð að láta
sér nægja þriðja sætið að þessu sinni.
í 1. flokki kvenna sigraði Erna
Sigurðardóttir, UMSB og önnur varð
Hafdís Ásgeirsdóttir, KR. -SSv.
ÍSogUMFN
leika íkvöld
í kvöld kl. 20 mætast ÍS og Njarðvík
i Úrvalsdeildinni í körfuknattleik.
Sigur 1 kvöld myndi tryggja ÍS sæti í
deildinni en liklegra er þó að sigur
Njarðvíkinga verði niðurstaðan. Þeir
eru langefstir i deildinni og stefna hrað-
byri að íslandsmeistaratitlinum i fyrsta
sinn.
Símonarson 1, Sigurgeir Marteinsson 1.
FH: Kristján Arason 5/5, Pálmi Jóns-
son 4, Gunnar Einarsson 4, Þorgils
Óttar Mathiesen 3, Sveinn Bragason 3,
Guðmundur Magnússon 2, Valgarður
Valgarðsson 1, Hans Guðmundsson 1.
Dómarar voru þeir Gunnar Kjartans-
son og Ólafur Steingrímsson. Þremur
úr Haukum, Árna H., Júlíusi og Herði
visað út af, en tveimur, Gunnari og
Guðmundi, úr FH. Haukar fengu 2 víti
— nýttu bæði. FH fékk 5 — nýtti öll.
Staðan
í 1. deildinni
— FyHdr og Valur mætast
íkvöld
Staðan í 1. deildinni i handknattleik
er nú þannig eftir sigur Hauka á FH,
24-23, ígærkvöld.
Vikingur 13 12 1 0 273—219 25
Þróttur
Valur
FH
Haukar
KR
Fram
Fylkir
13
12
13
13
12
12
12
0 4 289—268 18
1 5 274—222 13
2 6 283—290 12
1 7 258—274 11
3 6 244—268 9
1 8 254—277 7
1 9 228—285 5
Næsti leikur er í kvöld kl. 20 og
mætast þá Fylkir og Valur. Fylkir
verður að sigra i kvöld svo og i siðasta
leik sinum gegn KR til að eiga mögu-
leika á að sleppa við fall. Jafntefli
þýðir að Árbæjarliðið er endanlega
fallið.
Stórleikur
Einarsdugði
KR-ingumekki
Stórleikur Einars Bollasonar kom
ekki i veg fyrir að Keflvikingar tryggðu
sér sæti i 8-liða úrslitum bikarkeppni
KKÍ. Þó svo Einar færi á kostum og
skoraði 31 stig tókst ÍBK að sigra 82-
74.
Ungu strákarnir í ÍBK byrjuðu mun
betur og komust í 17-6. KR tókst þó að
minnka muninn i 35-42 fyrir hlé en
Keflvíkingar náðu strax yfirburðafor-
ystu í síðari hálfleiknum er þeir komust
í 62-43. KR tókst að saxa verulega á
forskotið og vakti þá þáttur Carstens
Kristinssonar verulega athygli. Skoraði
hann 8 stig á skömmum tíma en hafði
ekki komið inn á áður. Þátttöku B-liðs
KR er þá lokið að þessu sinni en liðið er
sizt lakara en flest 1. deildarfélögin.
Stigahæstu menn. ÍBK: Axel
Nikulásson 28, Björn V. Skúlason 17,
Terry Read 16, Jón Kr. Gíslason 12.
KR: Einar Bollason 31, Gunnar
Jóakimsson 17, Kristinn Stefánsson 8,
Carsten Kristinsson 8.
-SSv./emm.
VIKINGUR
LUGI
sunnudaginn 18. janúar kl. 20.00.
Tryggið ykkur miða í forsölu, nú seljast allir
miðar upp.
Forsala þriðjudag — föstudag
kl. 16.00-18.00
á eftirtöldum stöðum:
Karnabær, hljómtækjadeild, Laugavegi 66
Samvinnuferðir, Austurstræti,
Fálkinn, Háaleitisbraut 68.