Dagblaðið - 21.01.1981, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 21.01.1981, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1981 2 t GREENPEACE —látum þá ekki komast uppmeðmoðreyk Grímur Karlsson, Klapparstig 13 Njarðvik, hringdi: Fyrir allnokkru var stofnaður félagsskapur til að mótmæla tilraun- um með kjarnorkusprengjur. Þessi félagsskapur nefndi sig Greenpeace. Þegar kjarnorkutilraununum var hætt gat Greenpeace ekki hætt, en þetta er þekkt fyrirbæri í seinni tíö. Greenpeacemenn undu sér þá i að mótmæla veiðiskap og heimsóttu Kanada, er þeir höfðu boriö upp erindið svo að ekki varö um villzt voru viðtökur i samræmi vð það. Greenpeacemönnum var bara stungið í fangelsi. Þvi næst komu þeir aö máli við Spánverja, hittu þá á hafi úti og var þeim sagt að ef þeir ekki hypj- uðu sig yrðu þeir skotnir í kaf. Þeir héldu til spánskrar hafnar. Þar hafnaði Greenpeaceskipiö á botn- inum og er þar ef til vill enn. Greenpeacemenn hafa lýst því yfir að aðgerðir þeirra gegn tslendingum séu vegna hvalveiða Rússa en ekki sækja þeir Rússa heim.Vonandi láta Greenpeacemenn íslendinga i friði við öflun lifsviðurværis hér eftir og viröa það að hér hefur veriö tekið & þeim með silkihönzkum. Grimi Karlssyni finnst að tekið hafi verið heldur mjúklega á Greenpeacemönnum hér á landi. K myndinni er skip þeirra i vörzlu varðskips. Hér er Arthúr Bogason, stundum kallaður Norðurhjaratröllið. ATTU AÐ VERAITIU MANNA HÓPNUM Reynir hringdi: Hvemig er eiginlega staðið að kjöri íþróttamanns ársins? Ég er ekki að finna að þvi að Skúli Óskarsson var kjörinn iþróttamaður ársins, Skúli var mjög vel að sigrinum kominn. Mér skilst að til grundvallar kjöri Skúla hafi verið heimsmet hans, sem hann setti á dögunum, og er það vel skiljanlegt. En það settu fleiri góð met. Haraldur Bogason setti Norður- landamet og Arthúr Bogason setti Evrópumet á sl. ári. En það nægði þeim ekki til að komast í hóp tíu efstu. Þetta eru menn sem slá íslands- met á nær hverju móti og eiga þá viðurkenningu skilið að teljast meðal tíu beztu íþróttamanna fslands. Skemmtum okkur vel — meðGoðgá Fimm fastagestir: Viö fórum fimm saman í Klúbbinn fimmtudagskvöldið 8/1 ’81 eins og við höfum reyndar gert mest allt sl. ár. En viti menn, þegar við komum upp á þriöju hæð tókum við eftir því að ný hljómsveit var komin í stað þeirrar sem áður hafði verið. Þetta var hljómsveitin Goðgá. Eftir að hafa hiustað á um stund komumst við að því að þarna var á ferðinni mjög góð hijómsveit. Pró- grammið var mjög gott nema þeir hefðu mátt vera með fleiri gömul, fjörug lög. Sönginn leystu þau Mjöli Hólm, gítarleikarinn og orgelléikar- inn vel af hendi. Allur hljóðfæra- leikur var pottþéttur, þó voru saxó- fónleikarinn, bassaleikarinn og orgel- jeikarinn með skemmtilegustu tilþrif- in og hljómurinn í Hammond orgel- inu mjög góður. Trommuleikarinn sýndi góða takta og stóð vel fyrir' sinu. Við vonum að við fáum að heyra meira frá þessari ágætu hljómsveit i Klúbbnum á næstunni, þvi við skemmtum okkur mjög vel. Vh íþrótt sem er að gleymast Það er gaman afl renna sér á skautum. 7939-1948 skrifar: Margir fslendingar stunda íþróttir og hafa gaman af að horfa á íþróttir í sjónvarpi, en það er ein grein íþrótta sem vill gleymast bæði hjá forráða- mönnum ÍSf og þeim sem stjórna iþróttaþáttum sjónvarps. Þessi iþrótt er ishokkí en hún er stunduð á Akur- eyri og Reykjavik með miklum erfiö- leikum þar sem veðurguðirnir ráða þvi hvenær og hvort hægt er að stundaþessa íþrótt. Þeir sem stjórna íþróttafélögum og fSf mættu fara að taka á honum stóra sinum og standa við það sem þeir segja. Svo vil ég beina því til Bjarna Felix að hann sýni myndir af íshokkí. 1 Raddir lesenda Hljómsveitin Goflgá. spörum RAFORKU FRYSTIKISTA 1 r "'M spörum RAFORKU 'íÖLL^ L_fi iSSKÁPUR P Gervasoni til Grænhöfðaeyja 8444—2585 hringdl: Ég er ef til vill að bera í bakka- fullan lækinn með því að bæta við þau skrif sem orðið hafa um Patrick Gervasoni. Gervasoni er greinilega ekki sá karlmaður að geta staðið frammi fyrir sínum dómara og tekið út sinn dóm. Eftir 1—2 ár yrði hann laus og búinn að gera upp sakir við sitt samfélag, með skilríki upp á vasann. Margir hafa skrifað í allskonar vælutóni og jafnvel líkt Gervasoni við Krist, sá góði maður þorði að standa frammi fyrir dómara sinum. Þar sem við höfum verið með þróunaraðstoð við Grænhöfðaeyjar, finnst mér að við eigum hönk upp í bakið á þeim. Gætu þeir ekki veitt þessum manni landvist fyrir okkar orð. Með því skilyrði að hann færi í nám þarna suðurfrá hjá okkar mönnum og orðið þar með til gagns, sem nýtur borgari. Það myndi leysa vandamál okkar og Dana, enda yrði þetta algjört undantekningartilfelli.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.