Dagblaðið - 21.01.1981, Blaðsíða 27

Dagblaðið - 21.01.1981, Blaðsíða 27
27 Sjónvarp I DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. JANUAR 1981 d Útvarp VEÐURFREGNIR—útvarp alla daga: „Spáin að tínast inn í miðri útsendingu” —segir einn af lesurunum, Halla Guðmundsdóttir „Þetta er á Veðurstofunni. Veðrið kl. 18:” Hve oft höfum við ekki heyrt setningu sem þessa? Allir vita að á þessum orðum hefst aðalveðurfregna- tími útvarpsins kl. 18.45. Við heyrum þá rödd eins rannsóknarmanns við Veðurstofuna en alls eru það um 10 manns sem skiptast á um lesturinn. Fá- ir vita þó nöfnin á þessu fólki. Halla Guðmundsdóttir er ein þeirra sem lesa. Hún var einmitt að búa sig undir lesturinn, þegar DB-menn litu inn á Veðurstofuna sl. mánudag. Halla Guðmundsdóttir að búa sig undir lestur veðurfrcgna. DB-mvnd Bjarnleifur. ,,Ég er búin að vera 1 þessu síðan 1957 svo að ég ætti að vera farin að venjast þessu,” sagði Halla. ,,Ég fæ sjaldan skrekk en þó kemur það fyrir.” Þegar veðurfræðingur hefur skrifað spúna í spábók tekur lesarinn ljósrit af henni og fer að búa sig undir lesturinn. Ekki veitir af, þvi oft er naumur tími til stefnu. „Komið hefur fyrir að við höfum ekki fengið spána í hendur fyrr en á leið inn í útsendingarklefann. . . — og stundum aðeins hluta. Hitt hefur síðan verið að tínast inn í miðri út- sendingu.” Heyrzt hafa raddir um að lesarar Veðurstofunnar mættu vanda sig betur við framburð, a.m.k. sumir þeirra. Hvað segir Halla um það? ,,Við höfum beðið okkar vftrmenn um að sjá okkur fyrir tilsögn til að geta örugglega lesið skýrt og skilmerkilega en það hefur ekkert gerzt i málinu.” Blm. tók eftir því að textinn scm lesa átti var handskrifaður. Átti blm. fullt í fangi meðað lesa sum orðin t.d. eitt sem gat bæði verið lægir eða hægir eða eitthvað álíka. „Þetta á að vera hægari,” sagði Halla. „Stundum getur verið erfitt að lesa skriftina eftir þá,” sagðihún. -KMU. BÓKMENNTAVERÐLAUN NORÐURLANDARÁÐS —útvarpkl. 22,35: Dómnef ndarmenn spjalla um bækumar og höfunda Á dagskrá útvarps i kvöld er þáttur um bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs. Gunnar Stefáns- son ræðir við þá Hjört Pálsson og Njörð P. Njarðvlk um bækurnar, sem lagðar voru fram að þessu sinni. Þó verður ekki rætt um þær íslenzku heldur aðeins um þær átta, sem koma frá hinum Norðurlöndunum. Ætla þeir að spjalla um bækurnar og höfundana. Þeir Hjörtur og Njörður eru full- trúar fslands í dómnefndinni en hún kemur einmitt saman nk. föstudag. Bókmenntaverðlaununum verður siðan úthlutað á næsta Norðurlanda- ráðsþingi. Verður það í 20. skipti sem þeim er úthlutað. Þær fslenzku bækur sem að þessu sinni koma til greina eru ijóðabók Snorra Hjartarsonar, Hauströkkrið undir mér, og Undir kalstjörnu eftir Sigurð A. Magnússon. * -KMU. QUtvarp Miðvikudagur 21. janúar 12.20 Frcttir. I2.45. Veðurfregnir. Tilkynningar. Miðvikudagssyrpa. — Svavar Gests. 15.50 Tilkynningar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Síðdegistónleikar. Daniel Chorzempa og Þýzka einleikara- sveitin leika Orgelkonsert í B-dúr eftir Johann Georg Albrechts- berger; Helmut Winschermann stj. / Filharmóniusveitin i Vin leikur Sinfóníu nr. 2 í B-dúr eftir FranzSchubert; Istvan Kertesz stj. 17.20 Útvarpssaga harnanna: „Hcit- ar hefndir” eftir Eðvarð Ingólfs- son. Höfundur les sögulok (7). 17.40 Tónhornið. Sverrir Gauti Diego stjórnar þættinum. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.35 Á vctlvangi. 20.00 Úr skólallfinu. Umsjón: Kristján E. Guðmundsson. Fjallað um samband foreldra við skóla. Rætt við skóiastjóra, for- eldra ognentendur. 20.35 Áfangar. Utnsjónarmenn: Ásmundur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson. 21.15 Nútimatónlisl. Þorkcll Sigur- björnsson kynnir. 21.45 Úlvarpssagan: „Min liljan frið” eftir Ragnheiði Jónsdóttur. Sigrún Guðjónsdóttir les (6). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Bókmenntaverðlaun Norður- landaráðs 1981. Gunnar Stefáns- son talar við Islenzku dóitt- nefndarntennina Hjörl Pálsson og Njörð P. Njarðvik um bækurnar, sem fram voru lagðar að þessu sinni. 23.00 Frá tónlistarhátiðlnni í Ludwigshurg í júni i l'yrra. Brahms-kvartettinn leikur Píanó- kvartett op. 25 i g-moll ettir Johannes Brahms. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. Fimmtudagur 22. janúar 7.00 Veðurfregnir. Frétiir. 7.10 Bæn. 7.15 Leikfimi. 7.25 Morgunpósturinn. 8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). Dagskrá. Morgun- orð: Hulda Jensdóttir talar. Tón- leikar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: Pélur Bjarnason les þýðingu sína á „Pésa rófulausa” eftir Ciösia Knutsson (4). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Íslenzk tónlisl. Egill Jónsson og Guðmundur Jónsson leika Klarínettusónötu eftir Jón Þórarinsson / Kristján Þ. Stephensen, Sigurður I. Snorrason og Stefán Þ. Stephensen leika Trió, fyrir óbó, klarinettu og horn eftir Jón Nordal. 10.45 Iðnaðarmál. Umsjón: Sigmar Ármannsson og Sveinn Hannes- son. 11.00 Tónlistarrabb Atia Heimis Sveinssonar. Endurtekinn þáttur frá 17. þ.m. um rússneska tónlist. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til- kynningar. 12.20 F'réttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Fimmtudagssyrpa. — Páll Þor- steinsson og Þorgeir Ástvaldsson. Miðvikudagur 21. janúar I8.00 Herramenn. Herra Kjaftask- ur. Þýðandi Þrándur Thoroddsen. Lesari Guðni Kolbeinsson. I8.I0 Börn i mannkynssögunni. Joseph Viala. Þýðandi Ólöf Pétursdóttir. 18.30 Vctrargaman. Skiðastökk og skiðahestur. Þýðandi Eirikur Har- aldsson. 18.55 Hlc. I9.45 F'réltaágrip á táknmáli. 20.00 F'rétllr og veður. 20.25 Auglýslngarngdagskrá. 20.35 Nýjasta tækni og visindi. Um- sjónarntaður Sigurður H. Richter. 21.05 Vændisborg. tjykur mynda- flokkur. Þriðji þáttur. Efni annars þáttar: Fitz undirbýr brúðkaup sitt. Pat Bannister, vinur hans, hjálpar honum. Sr. O’Connor gerist aðstoðarprestursr. Giffleys, sem er fljótur að sjá viö honunt. Pat geymir peninga hjá vændis- konunni Lily. Hún er haldin kyn- sjúkdómi og notar peningana til að fá læknishjálp. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. 21.55 Nokkur lög með Hauki. Haukur Morthens flytur nokkur lög ásamt hljómsveit. Sigurdór Sigurdórsson kynnir lögin og ræöir við Hauk. Stjórn upptöku Rúnar Gunnarsson. Áður á dag- skrá 29. nóvember 1980. 22.30 Dagskrárlok. ....mjög hol! ámlnning f.vrir fólk sem gcngur með stóriðjudrauma I magan- um,” segir Sigurður H. Richter. NÝJASTA TÆKNI0G VÍSINDI —sjónvarp kl. 20,35: Flúormengun f rá álverum —ásamt vatnalíff ræði og frönsku fæðingunni Þrjár brezkar myndir verða á dag- skrá Nýjustu tækni og vísinda í kvöld. Sú fyrsta fjallar um mengunarvandamálið sem hvarvetna blasir við heiminum í dag. Er sumt af því sem þar kemur fram holl áminning fyrir þá sem ganga með stóriðjudrauma í maganum að sögn Sigurðar H. Richter umsjónarmanns þáttarins í kvöld. M.a. verður fjallað um álver og flúormengun frá þeim og um sellulósaverksmiðjur en mikil vatns- og sjávarmengun fylgir slíkum verk- smiðjum oft. Ættu þeir sem áhuga hafa á þvi að reisa pappírsverksmiðju hérlendis að fylgjast vel með þeim hluta. Minnzt verður einnig á geisla- virk úrgangsefni. Næsta mynd er um vatnaliffræði. Verður fylgzt með manni nokkrum sem vinnur að því að kvikmynda líf- riki í lítilli tjörn og er i myndinni fjallað sérstaklega um þá tækni sem hann notar við að kvikmynda og Ijós- mynda smádýr í vatninu. Loks verður fræðslumynd um hina svokölluðu „frönsku fæðingu” sem hefur átt vaxandi fylgi að fagna. -KMU. 20. leikvika — leikir 17. jan. 1981 Vinningsröfl: 22X-X21-200-11X 1. vinningur: 10 réttir — kr. 650,— 3043 + 25590(4/9) 30568(2/10.6/9) 3877(1/9) 25834 (4/10.8/9) 30877 (4/9) 38223(2/10.6/9) 3888(2/9) 27352(2/10,6/9) + 30878(4/9) 40115(2/10.10/9) 5855 27452(4/9) 30898(4/9) 40588 (210. 10 9) 8932 (3/9) 27456(4/9) 31604(2/10.6/9) 42115(6 9) 11531 2746()(4'9) 32391 (4 9) 40644(6 9) 43185(6 9) 13202 27464(4/9) 33104(2/10.6/9) 43202(2 10.10 9) 13838(1/9) + 27534(2/10.6/9) 34415(4/9) 40692(3/10.12/9) 43343(6/9) 15284 + 27778(4/9) + 34574(2/10.6/9) 43502 (6 9) 15914(4/9) + 27797(4/9) 35560(4/9) 41338(6/9) 44366 (6/9) + 16420 + 28232 (4/9) 35561 (4/9) 41380(6/9) 44436(6/9) 16510 28241 (4/9) 35205(2/10.6/9) + 44523(2 10.10 9) 17609(2/9) + 29018(2/10.6/9) 36002(4/9) 41477(2 10.10/9) 44717(6 9) 17999 29088(2/10,6/9) 36818(2/10.69) + 44802(6 9) 19861 29136(4/9) 37787 (4 9) 41827(6 9) 45589 (2 10. 21816 29315(2/10.6/9) 38005 (4/9) 42018(6 9) + 109) + 22361 29820 (4/9) 38355(4/9) 42025 (2 10.10 9) + 45597(6 9) + 22750 + 30546(2/10.6/9) 38403(4/9) + 42113(6/9)+ 45599(6 9) + 45601 (6 9) + 45602(6/9) + _ , - -• 2. vinningur: 9 réttir — kr. 23,— Alls komu l'ram 1241 röð nuð 9 réttum. Vinninuar fvrlr scðla. scm voru aðiins nuð 9 rétta. verða sendlr á næstunni. bátttakandi, sem lelur sin hala liaft 9 rétta i 20. Iciktiku. en heíur ekki fenKÍð ávisunina 31. janúar. vinsamlegast hafl sanihand við (íetraunir I síma 84590 daulcua kl. 10—171 v ikunni þar á eftlr. Kærufrestur er til 9. febrúar kl. 12 á hádeui. Kærur skulu vera skriltejar. KæruevðublOð fásl hjá uniboðsmönnum ou á aðalskrifstofunni. Vinninusupphæðir ueta lækkað.ef kærur verða teknar til urcina. ilandhafar nafnlausra seðla ( + ) verða að framvisa stoíni eða senda stofninn ou íullar upplvs- inuar um nafn ou hcimilisfanu tll Getrauna fvrir lok kærufrests. QETRAUNIR - Íþróttamiðstöðinni - REYKJAVÍK spörum RAFORKU spörum RAFORKU a — ÍSSKÁPUR

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.