Dagblaðið - 21.01.1981, Síða 18
18
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1981
' Veðrið
Qert er réfl fyrir •uflvestenátt á
lendinu, rigningu efle slyddu vifleet
hver en eflelege á 8uflur- og Veetur-
lendL
Klukken 8 ver euðeufleueten 2,
rigning og 2 etig, eunnen 3, rignlng og
1 etig á Qufuekálum, euflveeten 4,
heglál og 3 etig á Qehervlte, eufleuð-
eueten 2, ekýjefl og 4 etfg á Akureyri,
euflveeten 4, ekýjefl og -2 etfg á
Reuferhflfn, euflveeten 2, ekýjefl og 4
etfg á Deletenge, eueten 2, elekýjefl
og 1 etfg á Hflfn og eufleufleueten 8,
rignlng og 4 etfg á 8tórhflffle.
I Þórehflfn ver ekýjefl og B etfg,
ekýjefl og —8 etfg í Keupmennehflfn,
ekýjefl og -» etfg f Oelð, láttekýjefl
og —10 etfg í8tokkhóknl, rignlng og
4 etfg I London, þoke og —10 etfg (i
Hemborg, ekýjefl og 1 etlg ( Perie,
Mttekýjefl og 11 etfg ( Medrid, helfl-
eklrt og 10 etfg I Ueeebon og hálf-
'ekýjefl og —2 etfg (New York.
Andlát
Guðmundur Brynjólfsson, sem lézt
fyrir skemmstu, var fæddur 25. maí
1909 að Syðri-Vatnahjáleigu í Austur-
Landeyjum. Foreldrar hans voru hjón-
in Margrét Guðmundsdóttir og Brynj-
ólfur Jónsson. Ungur fluttist Guð-
mundur til Vestmannaeyja þar sem
hann stundaði sjómennsku lengst af
ævi. Eftir að hann kom í land stundaði
hann ýmis störf, m.a. hjá Flugleiðum.
Hann var ókvæntur og barnlaus.
Steingrimur Guðmundsson, sem lézt
14. janúar sl., var fæddur 21. maí 1891
að Gufudal í Barðastrandarsýslu. For-
eldrar hans voru hjónin séra Guð-
mundur Guðmundsson og Rebekka!
Jónsdóttir. Steingrímur fluttist til ísa-
fjarðar árið 1905 og hóf þar prentnám
sem hann lauk. Eftir nokkra vinnu við
prentverk hér heima hélt hann í fram-
haldsnám til Danmerkur og vann í
dönsku Gyldendals prentsmiðjunni í 10
ár. Árið 1930 var hann ráðinn forstjóri
Gutenberg prentsmiöjunnar og var þar
til ársins 1961. Jafnframt var hann
framkvæmdastjóri Ríkisútgáfu náms-
bóka á árunum 1937—1956 og Bókaút-1
gáfu menningarsjóðs 1940—1946.
Steingrímur hóf störf hjá Innkaupa-
stofnun ríkisins árið 1962 og vann þar í
18 ár eða til 89 ára aldurs. Þá hætti
hann störfum. Steingrimur kvæntist
árið 1919 Eggrúnu Arnórsdóttur og
eignuðust þau tvær dætur. Eggrún er
látin fyrir fáum árum.
Magnús Stefánsson, Týsgötu 3, verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni á morg-
unkl. 1.30.
Minningarathöfn um Barða Þórhalls-
son, sem fórst þann 22. nóvember
1980, fer fram frá Kópavogskirkju á
morgun kl. 13.30.
Bálför Helga Jónssonar, Austurbrún 6,1
hefur farið fram í kyrrþey.
m
I
GÆRKVÖLDI
Höfðinglegar gjafir til
Hrafnistu í Reykjavik
Á aðfangadag jóla afhentu félagar úr Lionsklúbbnum
Fjölni, Reykjavlk, sjúkradeild Hrafnistu, Dvalarheim
ilis aldraöra sjómanna, vandaö litsjónvarpstæki.
Á þrettánda dag jóla afhcntu félagar í Kiwanis-
klúbbnum Heklu Reykjavík fullkomna smásjá til
rannsóknarstofu meinatæknis Hrafnistu í Reykjavik.
Stjórnmálasamband við
Saudi-Arabíu og Venezuela
Rlkisstjómir lslands og Saudi-Arabiu hafa tekið upp'
stjórnmálasamband. Ekki hefur verið ákveðið hvenær|
skipzt verður á sendiherrum.
Rikisstjórn íslands hefur einnig tekið upp stjórn :
málasamband við Venezuela. Ekki hefur verið|
ákveðið hvenær skipzt verður á sendiherrum. I
Framkvæmda-
stjóri útbreiðslu-
sviðs
— ekki Sjálfstæðis-
flokksins
Misritað var 1 blaðinu í gær að Inga
Jóna Þórðardóttir væri framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins. Hún er
framkvæmdastjóri útbreiðslusviðs
Sjálfstæðisflokksins.
GENGIÐ
^GENGISSKRÁNING Farðamanna
1 NR. 13-20. JANÚAR 1981 gjaktaynr
Vísindasjóður (
auglýsir styrki
Visindasjóður íiefur nú auglýst styrki ársins 1981
lausa til umsóknar og er umsóknarfrestur til I. marz
næstkomandi. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, raun-
visindadeild og hugvísindadeild.
Formaður stjórnar raunvísindadéildar er Eyþór-
Einarsson grasafræðingur. Formaður stjórnar hugvis-
indadeildar er dr. Jóhannes Nordal scðlabankastjóri.
Formaður yfirstjórnar sjóðsins er dr. Ólafur Bjarna-
son prófessor.
Hlutverk Vísindasjóðs er að efla íslenzkar vísinda-
rannsóknir og í þeim tilgangi styrkir hann:
1. Einstaklinga og visindastofnanir vegna tiltekinna
rannsóknarverkefna.
2. Kandidata til vísindalegs sérnáms og þjálfunar.
Kandidat verður að vinna að tilteknum sérfræðilegum
rannsóknum eða afla sér vísindaþjálfunar til þess að
koma til greina viðstyrkveitingu.
3. Rannsóknastofnanir til kaupa á tækjum, ritum eða
til greiðslu á öðrum kostnaði í sambandi við starfsemi
ersjóðurinnstyrkir.
Umsóknareyðublöð. ásamt upplýsingum. fást hjá
deildarriturum, i menntamálaráðuneytinu og hjá
sendiráðum Islands erlendis. Deildarritarar eru:
Sveinn Ingvarsson konrektor Menntaskólanum viö
Hamrahlið, fyrir raunvisindadeild, og Bjarni Vil-j
hjálmsson þjóðskjalavörður. fyrir hugvisindadeild. |
Um breytingu á
stöðumælagjöldum
Myntbreytingin og hækkun stöðumælagjalda hefur
valdið þvi að breytingar verður að gera á þeim I000
stöðumælum sem eru í Reykjavik. Þvi vill umferðar-
deild vekja athygli á eftirtöldum atriðum.
1. Stöðumælagjald er nú I nýkróna fyrir hverjar|
byrjaðar 30 minútur, þar sem mælum hefur verið
breytt. Á þeim stöðumælum eru upplýsingar um hið
nýja gjald og timalengd. Auk þess er miði festur fyrir
ofan myntrauf með áletruninni nýkr. til frekari
glöggvunar fyrir ökumenn.
2. Einungis þarf að greiða í þá stöðumæla sem
breytt hefur verið. Munu stöðumælaverðir ekki hafa
afskipti af bifreiðum viðaðra stöðumæla.
3. Aukaleigugjald er nú 20 nýkrónur.
Auglýsing um framangreind gjöld hefur verið birt i
Lögbirtingablaðinu.
FÍSNAR-félagar
Þorrablótið verður haldið 3I. janúar i Snorrabæ kl.
I9. Þátttaka tilkynnist til Andreu. s. 84853. Sigur-
bjargar, s. 77305 eða Bergþóru. s. 78057 fyrir 25.
janúar.
Kvennadeild TR
aftur af stað
Kvennadeild Taflfélags Reykjavikur hefur starfsemi
sína á ný fimmtudagskvöldið 22. janúar, kl. 2I. Þar
verður kennsla i skáklistinni — bæði fyrir byrjendur
og þær sem lengra eru komnar. Kennari veröur Bragi
Kristjánsson. Kennslan er ókeypis og fer fram i hús-
næöi Taflfélags Reykjavikur, Grensásvegi 46.
Konur tefla á haustmóti TR fyrir nokkrum ámm.
Eining kl. 12.00
■Kaup Sala
Sala
1 Bandarfkjadollar 6,230 8,248 6472
1 Steríingspund 16424 15,067 16474
1 Kanadadollar 5,232 6,247 6,772
1 Dflnek króna 1,0099 1,0128 1,1141
1 Norek króna 1,1896 1,1831 14124
1 Sænakkróna 1,4067 1,4098 14508
1 Hnnsktmark 1,6067 1,6103 1,7713
1 Franekur franki 14432 14471 1,4818
1 Belg. franki 0,1930 0,1936 04130
1 Svbsn. franki 3,4160 3,4249 3,7674
1 HoUanzk florína 2,8666 24647 3,1612
1 V.-Þýzkt mark | 3,1067 3,1147 3,4262
1 ftötak llra 0JKM64 040666 040722
1 Aueturr. Sch. 0,4386 0,4399 0,4839
1 Portug. Escudo 0,1163 0,1167 0,1284
1 Spánskur peseti 0,0772 0,0774 04867
1 Japansktyen 0,03093 0,03102 043412
1 frsktpund 11483 114»6 12,766 . r
SDR laératök dréttatréulndi) 8/1 74117 74346
* Breyting frá siflustu skráningu.
Sknsvari vegna getngisskráningar 22190.
Maðurinn með regnhlífarnar
og Gervasoni
Fréttatlmi útvarps í gærkvöldi fór;
■meira og minna í að lýsa forsetaskipU
úm i Bandaríkjunum. Kúrekinni
Ronald Reagan tók við af Jimmy!
Carter. Siðan endurtók sama sagan
sig i fréttatíma sjónvarps, Reagan
eggjaöi landsmenn sina til dáða og
lofaði endurreisn efnahagslífsins, vel
get ég unnt þeim þess. Síðan lýsir
Reagan þvl fjálglega að bandamenn
Bandaríkjamanna, sem eru viða,
þurfi ekki að óttast að verða skildir
eftir ‘ á köldum klaka, það verður
sennilega ekki mörgum harðstjórum
kollvarpað i stjórnartiö Reagans.
í fréttatima sjónvarps í gær sá ég í
fyrsta skipti á skjánum hinn nýráðna
fréttamann sjónvarps, Ólaf Sigurðs-
son, sem áður var fréttamaður út-
varps. Gat ég ekki betur séð en að)
með honum hafi sjónvarpinu bætzt
drjúg búbót.
Svo var Ómar Ragnarsson með
snjalla frétt að vanda. Veðurfréttir er
ég mikið til hættur að horfa á, nema
þegar Trausti er með þær.
Ég rétt náði i endann á lokaþætti
myndaflokksins um lífið á jörðinni.
Sögumaður minnti okkur á að þó
þessi síðasti þáttur hefði að mestu
leyti fjallaö um hinn vitiboma mann
þá væri ekki með því veriö að gefa í
skyn að maðurinn, homo sapiens,
væri hápunktur sköpunarsögunnar,
þar rataðist honum ábyggilega satt á
munn, eins og oft áöur.
Óvænt endalok-flokkurinn er efni
sem ég missi ógjarnan af. Þátturinn í
gær bar nafniö Regnhlifamaðurinn.
Fjallaöi hann um gamlan mann sem
fór á stjá þegar rigndi, stal regnhlíf-
um úr regnhlifageymslu veitingahúsa
og seldi þær ungum konum. Hafði ég
hina beztu skemmtun af þessum
þætti og fannst John Mills alveg frá-
bær í hlutverki hins alúðlega gamla
manns.
Seinast á dagskránni var umræðu-
þáttur um Gervasoni. Það er lyginni
líkast að þessi franski piltur skyldi
geta sett alla íslendinga á annan end-
ann og sannarlega þess viröi að taka
allt það mál til rækilegrar umfjöllun-
ar. Stjórnandinn (Vilborg Harðar-
dóttir) rakti viðtökur Islendinga við
erlendu flóttafólki aftur á miðjan
fjórða áratuginn og hafði stutt viðtöl
við tvo gyðinga sem komu hingað
fyrir strið, Ungverja sem kom 1958
og loks vietnamska stúlku sem kom
hingað i fyrra. Þetta var bráðfróðlegt
og leiddi hugann að því hvort ekki
mætti með tiltölulega litlum kostnaði
bjóða sjónvarpsáhorfendum upp á
fleiri yfirlit um okkar eigið þjóðfélag
af sögulegum toga.
Bækur eins og Ófriður í aðsigi
Þórs Whiteheads eða íslenskir sjávar-
hættir Lúðvíks Kristjánssonar virðast
kjörin viðfangsefni.
Á vegum fjármálaráðuneytisins og iðnaðarráfluneytis
hefur á undanförnum mánuðum vcriö unnið að
endurskoðun á auglýsingu nr. 284/1978 um niðurfcll-
ingu cða endurgreiðslu tolls og/eða sötugjalds af ýms-
um aöföngum til samkcppnisiðnaðar. Endurskoðun
þessari er nú lokíð og hefur ný auglýsing nr. 8/1981
veriö birt og tók hún gildi 2. janúar sl.
Við endurskoðun á aðflutningsgjöldum var m.a.
höfð samvinna við Félag jslenzkra iönrekenda og’
Landssamband iðnaðarmanna. Var hafður til hlið-
sjónar listi yfir þá vöruflokka sem fytirsvarsmenn
þessara samtaka töldu nauösynlegt að teknir yrðu inn
i fyrmefnda auglýsingu. Fullyrða má aö þær breyt-
ingar. sem gerðar hafa verið á eldri auglýsingu. séu til
verulegra hagsbóta fyrir iðnaðinn. Áætlað er að út-
gjöld fyrirtækja I samkeppnisiönaði fækki um 15
milljónir nýkróna á árinu 1981 vegna þessarar ráðstöf-
unar. eða scm svarar til 1500 milljónum gamalla
króna. og var gert ráð fyrir tekjurýrnun rikíssjóðs sem
þessu nemur við gerð fjárlaga 1981.
Helztu brcytingar, sem felast f hinni nýju auglýsingu
eru:
al Tekin eru upp tollskrárnúmer yfir fjölmarga nýja
vöruflokka. auk þess sem gildissviö auglýsingarinnar
hefur veriö rýmkað að ýmsu leyti.
bl 1 stað þess aö gera eingöngu ráö fyrir niðurfell-
ingu gjalda af ýmsum varahlutum viö tollafgreiöslu cr
nú jafnframl gert ráð fyrir þvl að iðnfyrirtæki geti sótt
um endurgreiðslu gjalda af varahlutum. sem þau hafa I
keypt af innlendum birgðum.
c) Felld eru niður aðflutningsgjöld vegna viðgerða
erlendis sem fram fara á ábyrgðartima véla og tækja
sem ivilnana geta notiö samkvæmt ákvæðum auglýs-
ingarinnar.
Alþýðubandalagið
Kópavogi —
Opinn fundur
Alþýöubandalagiö í Kópavogi boðar til fundar um
efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar. bráðabirgða
lögin og fleira i Þinghól Kópavogi í kvöld kl. 20.30.
Framsögumaður Ólafur Ragnar Grímsson. for
maður þingflokks Alþýðubandalagsins.
Allir velkomnir.
Lœða í óskilum
Ung, alsvört læöa er i óskilum á Vitastig 17. Þar hefur
hún verið i u.þ.b. viku. Eigandinn er vinsamlegast
beðinn að vitja hennar sem fyrst eöa hringja i sima
14496.
Niðurfelling eða endur-
greiðsla aðflutningsgjalda
og/eða sölugjalds
Salomon Mosdal Sumarliðason, sem
lézt 6. janúar sl. var fæddur 24. júní
1895 að Kotum i önundarfírði. For-
eldrar hans voru hjónin Jóhanna
Eiríksdóttir og Sumarliði Jónsson.j
Salomon hóf snemma störf til sjós og
eftir að mótorbátarnir komu til sög-
unnar var hann lengst af á þeim. Hann
kvæntist árið 1924 Ingibjörgu Jörunds-
dóttur og áttu þau 5 börn. Þau bjuggu
fyrst i önundarfírði en fluttust þaðan
til Isafjarðar og síðar til Reykjavíkur
þar sem þau bjuggu frá árinu 1945.
Sigurgrimur Jónsson bóndi, Holti,
verður jarðsunginn frá Stokkseyrar-
kirkju á laugardaginn kl. 14.00. Ferð
verður frá Umferðarmiðstöðinni kl.
12.00.
Jón Laxdal, Blönduhlíð Hörðudal,
Dalasýslu, lézt 19. janúar. Jarðarförin
fer fram á föstudag kl. 14 frá Snóks-
dalskirkju. Bílferð verður frá Um-
ferðarmiðstöðinni kl. 8 á föstudags-
morgun.
Stjórnmátafundir
. TilkynBtifigar