Dagblaðið - 21.01.1981, Síða 20

Dagblaðið - 21.01.1981, Síða 20
20 1 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1981 Menning Menning Menning Menning I Skáldið, Ijódin, borgin AFMÆLISKVEÐJA tH Tómuar Quðmundssonar Rltnsfnd: Eirlcur Hrsinn Finnbogason, Jóhannss Nordal, Krist|án Karfsson Almanna bókafálagið, 6. Janúar 1981. Bækur eins og þessi heita „Fest- schrift”upp á þýsku, og enginn veit til hvers þær eru nýtilegar. Kannski næst lagi að líta á slika bók sem ein- hvers lags afmælisboð þar sem gestir bera hver af öðrum fram gjafir sínar til afmæiisbarns, efni bókarinnar, hver eftir sínum efnum og ástæðum. Eins og ágæti gestaboðs ræðst af gestunum sem boðið sækja, eins helgast gildi afmælisrits af verðleik- um höfundanna sem til eru kvaddir að semja ritið og hylla með þeim hætti þann sem ritið þiggur. Staða þjóðskólds þessa. Þegar fræðimaður er annars vegar, eins og oftast er um afmælis- rit, má þykja eðlilegt að einbeina efni rits að einhverju tilteknu fræðasviði, hylla fræðimanninn með þvi að efna til og birta markverða umræðu um hans eigin fræði. Og þegar skáld og rithöfundur á í hlut má tneð sama hætti þykja sjálfgert að fjalla í afmælisriti til hans einkum og sér í iagi um skáldskap, bókmenntir. Ég segi fyrir mig: ég las Afmælis- kveðju til Tómasar Guðmundssonar fyrst og fremst af forvitni um sjónar- mið og skoðanir sem þar kynnu að koma fram á hans eigin skáldskap. Einhvern veginn finnst mér, með réttu eða röngu, að Tómas hafi á seinni árum miklu frekar goldið en notið stöðu sinnar sem þjóðskálds og allrar þeirrar opinberu viðurkenn- ingar sem henni fylgir, að minnsta kosti á meðal yngri lesenda. Og fróðlegt held ég að gæti orðið að kynnast því hvernig ljóð hans eru í raun og veru lesin nú á dögum, stöðu þeirra og skáldsins á meðal annarra samtíma-bókmennta. Auðveldlega mætti hugsa sér slikar athuganir á skáldskap hans gerðar í heiðurs- skyni við höfundinn i afmæiisriti eins og þessu. Það má til að mynda imynda sér að til væru kvaddir fulltrúar skálda og rithöfunda að fjalla um Tómas og Ijóð hans og önnur rit og vitna hver um sig um gildi þeirra fyrir sjálfa þá og skáld- skap þeirra. Og yrkja til hans og um hann. Eða að valinn hópur lesenda Tómasar væri fenginn til að fjalla um einstök kvæði hans hvert af öðru. Og þannig mætti vafalaust hugsa sér fleiri aðferðir að þessu sama viðfangsefni: stöðu þjóðskáldsins á meðal lesenda og í bókmenntum sam- tímans. Það kemur nú fyrir lítiö að sýta það sem þessi bók ekki er og ætiar sér ekki að gera. En ég varð sem sé fyrir vonbrigðum af flestu því sem hér í bókinni segir um skáldskap Tómasar Guðmundssonar. Þeir sem fjalla hér um ljóð hans — Eiríkur Hreinn Finn- bogason, Gylfi Þ. Gíslason, Halldór Laxness, Jóhannes Nordal — finnast mér einkum og sér i lagi vera aðJýsa ástúðiegu hugarþeli sem þeir sjálfir bera til skáldsins og ljóða hans. Sem er auðvitað gott og gilt enda ekki að því fundið, en þarf ekki að segja öðrum mönnunf neitt sem máli skipt- ir um viöfangsefnið, ljóðin sjálf. Þeir Gylfi Þ. og Jóhannes tala báðir úr hópi þeirra lesenda sem fyrst kynnt- ust ljóðum Tómasar á ungum aldri sjálfir, lásu Fögru veröld nýútkomna — og numdu þar sinn eigin veruleika nýrri skáldlegri sjón og skilningi, sáu borgina þar sem þeir bjuggu beinlínis verða til í orðum skáldsins og fundu sinn eigin hug og tilfinningar í ljóðum hans. En þessari reynslu hinna fyrstu lesenda Tómasar hefur oft verið lýst áður, enda orðin við- tekin staðreynd um hann í bók- menntasögu. Nákvæmlega hverjir sem verðleikar Tómasarljóða eru fyrir lesendur nú á dögum þá eru þeir áreiðanlega aðrir en þessir. Næst því viðfangsefni finnst mér Aðalsteinn Ingólfsson komast í kvæði, Drög að sáttbandi, sem vel sómir sér fremst í bókinni. Ekki veit ég hvort kvæðið er markverður skáldskapur. En þar eru allténd orðaðar spurningar um lestrarlag og skilning ljóðanna sem ekki koma annarsstaðar fram í þessari bók: Sú borg sem þú ortir um og áttir eina cr einskis manns land lengur, allra síst skálda. . . Var veröldin svona vinsamleg forðum daga? Og ástin svo hrein og tær? Eða var þetta herbragð: að gefa aldrei eftir, reisa veggi i Ijóði gegn flóðbylgjum ytra sem innra? Egill og Tómas Annars er efnið í þessari bók, ljóð, sögur og ritgerðir með ýmsu móti eftir efnum og ástæðum höfund- anna, en fæst ef því snertir beint eða óbeint heiðursgestinn í samkvæminu, Tómas skáld Guðmundsson sjálfan. Víst er bókin margbreytt og verð- leikar efnisins ýmislegir, en marklítið held ég væri að birta hér smekkdóma um ritsmíðarnar hverja af annarri. En meðal þess sem ég hafði mesta ánægju af var ljóðasmælki Kristjáns Karlssonar, Úr Anecdota pastoralia, og væri sannarlega fengur að fá að sjá meira af því, og ritgerð Þorsteins Gylfasonar, Valdsorðaskak. Þar er reifuð með einkar áhugaverðu móti gagnrýni „siðferðislegrar tvíhyggju” sem svo er nefnd, þeirrar skoðunar að skarpur greinarmunur sé á stað- hæfingum um staðreyndir annars- vegar, staðhæfingum um verðmæti hinsvegar, og þar með margvíslegra viðtekinna hugmynda um „hlutleysi vísindanna” sem svo er nefnt. En að vtsu finnst mér umræðu Þorsteins sleppa þar sem hún ætti að verða skemmtilegust og komið er að áhrif- um þessarar tvíhyggju, trúarinnar á staðreyndir og vísindi í þjóðmálum og pólitík okkár eigin daga. Sér á parti er ritgerð Sveins Skorra Höskuldssonar, Borg hinna björtu Ijósa, sem mér finnst persónulegust ritsmíð í bókinni, fallega stíluð endurminning um fyrstu komu höfundarins til Reykjavíkur, 13 ára sveitastráks á stríðsárunum. Hann var i þá daga miklu frekar samtíðar- maður Egils Skallagrímssonar en Tómasar Guðmundssonar, segir Sveinn Skorri. Og hann víkur ekki nema fáum orðum beinlínis að einu kvæði eftir Tómas í greininni. En sjálft frásagnarefni hans, kynni stráks af bænum eins og hann þá var, basl hans við stafsetningu og mál- fræði, fyrstu órar ástarinnar sem að honum sækja, fer á hinn bóginn fjarska vel i bók sem helguð er reykjavíkurskáldinu, ástaskáldinu og þeim völundi máls sem Tómas Guðmundsson fyrst og síðast er. Um íslenska óperu Og á óvænt kemur að rekast í bók eins og þessari á beinlínis fréttnæm frásagnarefni og skoðanir. Sveinn Einarsson skrifar „dagbókarslitur” um dagleg viðfangsefni á líðandi stund sem hann er að skrifa greinina. Þar er vikið að viðgangi íslenskrar óperu sem verið hefur á dagskrá í vetur: „Eitt blaðanna hringir og spyr hvað hæft sé í þeim orðrómi, að skiptaforstjórar milljarðagjafarinnar sælu hafi haft samband við leikhúsið og boðið milljarð til húsakaupa til þess að efla óperufiutning hússins, svo sem leikhúsið hafi lagt til við ráðuneytin. Ég segi; sem satt er, að við okkur hafi aidrei verið talað stakt orð. . . . Það sem vekur hins vegar furðu er framgangsmáti skiptafor- stjóra, að þeir skuli ekki forvitnast um skoðanir í því húsi, sem í dag er lögum samkvæmt óperuhús íslend- inga, hefur reynslu af óperuflutningi í þrjátíu ár og hefur verið með ákveðnar tillögur til að leysa þann vanda, sem þrengslin i Þjóðleikhús- byggingunni sjálfri valda, þar sem sjónleikahald, listdans og óperuflutn- ingur geta ekki eflst og dafnað utan hvert á annars kostnað — nema til komi annaðhús.” Hér er vikið að máli sem margur leikmaður hefur eflaust velt fyrir sér þegar fréttir bárust í vetur af stofnun óperufélags og fyrirhugaðri stofnun íslenskrar óperu og starfrækslu óperuhúss, og engin ástæða er til að liggi í þagnargildi. Er ekki Þjóðleik- húsið eðiilegur vettvangur slíkrar starfsemi, að minnsta kosti i upphafi hennar, eins og annarra listgreina leiksviðsins. Og ef ekki — hvers vegna ekki? Forvitinn lesandi spyr sjálfan sig að þessu yfir grein Sveins Einarssonar. En svör eru engin þar. Nú er auðvitað ekkert sem bannar að koma ritstjórn við bækur eins og KARLMANNASKOM Sparískór — götuskór — kuldaskór og ýmislegt fíeira. SKÓBÚÐIN LAUGAVEG1100 _ ____ IMýkr. Staðgr. 20" 8.700 8.265 22" 9.450 8.978 26" 11.225 10.660 UX - IU4H ux Finlux ■ *~**^M^*’ BORGARTÚNI 16 g ■ reykjavík sJmi 27099 lll SJÖNVARPSBÚÖIN ^-i Aðatfundur Tuttugasti aðalfundur Stjórnunarfélags íslands verð- ur haldinn að Hótel Loftleiðum, Kristalssal, fimmtu- daginn 22. janúar nk. og hefst kl. 12.15. , Dagskró: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mól. Að loknum aðalfundarstörfum flytur Jón Sigurðsson, forstjóri íslenska jórnblendi- fólagsins, erindi sem hann nefnir Hefur Stjórnunarf ólagiö gert nokkurt gagn? Þátttaka tilkynnist til skrifstofu Stjórnunarfélagsins í síma 82930. Stjórnunarfélag íslands. Jón Sigurðsson foratjAri iil. JSmblandHél. !;öé SÍDUMÚLA 23 105 RÉYKJAVlK SlMI 82930 HEWLETT ihp, PACKARD HEWLETT M PACKARD HEWLETT M PACKARD HEWLETT M PACKARD HEWLETT M PACKARD Einkaumboð á íslandi fyrir vasa- og borðtölvur — Upplýsingar, sala, þjðnusta STALTÆKI, Banka.træti8 s.mi 27510

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.