Dagblaðið - 12.02.1981, Blaðsíða 10
10
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1981.
TILBOÐ ÓSKAST
1 bifhjólið Kawaski 650 árg. 1979, skemnit eftir bruna. Hjólið verður til
sýnis dagana 12. og 13. febrúar hjá Bifhjólaþjónustunni, Höfðatúni 2.
Tilboðum sé skilað á skrifstofu vora að Síðumúla 39 fyrir kl. 17 mánud.
16. febrúar.
Almennar Tryggingar.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
NjáEsgötu 49 - Sími 15105
interRent
car rental
FILMU'
LEIGA
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri: Tryggvabr 14-S ?1 715, 23515
Reykjavík: Skeifan 9 - S 31615, 86915
Mesta úrvalið, besta þjónustan
Við útvegum yður afslátt
á bílaleigubílum erlendis
1= ¥
KVIKMYNDA
FILMUR OG VELAR S.F.
SKÓLAVQRDUSTÍG 41 - SÍMI 20235.
Tjáningarfrelsi
er ein meginforsenda þess
aö frelsi geti viðhaldist
í samfélagi
irjálst,
TRESMIÐAVELAR
Eftirtaldar trésmíðavélar eru til sölu og sýnis vegna
breytinga:
Kantlímingavél HOLZHER árg. '74.
Spónskurðarvél, SCHEER FM 10—3100
automatic, árg. '75.
Spónlímingavél, ERWIN HAAG árg. '71.
Tvíblaðasög, m/hallandi blöðum TEGLE
árg. '74.
SOGBLÁSARI fyrir poka.
Ált
Á.GUÐMUNDSS0N
Húsgagnaverksmiðia,
Skemmuvegj 4, KópavogL Skni 73100.
BMW 728 árg.1978 Renault 20 TL árg. 1978
BMW 525 árg.1974 Renault 20 TL árg. 1977
BMW 520 árg.1978 Renault 12TL árg. 1971
BMW 320 árg. 1979 Renault 5 GTL árg. 1980
BMW 320 árg.1978 Renault 5 TL árg.1975
BMW 318 autom. árg.1979 Renault 4 TL árg. 1979
BMW 316 árg. 1980 Renault 4 VAN F6 árg.1977
BMW 320 árg.1980 Renault 4 VAN F6 árg. 1978
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633
Frumfliitningur
áFidelíó
hérálandi:
Fantalega
erfitt
en fallegt
verk
Sinfóníuhljómsveit íslands og söng-
sveitin Fílharmónia ætla á tónleikum
sínum í kvöld að syngja og leika
óperuna Fidelio eftir Ludvig Beet-
hoven. Til liös viö sig hefur söng-
sveitin fengið fjóra einsöngvara frá
Þýzkalandi, þáu Asdrid Schirmer,
Ludovinco Spiess, Bent Norup og
Manfrid Schenk. Eru þetta allt
frægir söngvarar jafnt i heimalandi
sínu sem utan. Auk þeirra syngja ein-
söng íslendingarnir Elin Sigurvins-
dóttir, Kristinn Hailsson og Sigurður
Björnsson.
Fidelio er eina óperan sem Beet-
hoven samdi. Hún er mjög erfið i
flutningi fyrir söngvarana því hún
er skrifuð eins og mannsraddirnar
séu hljóðfæri sem hægt er að þenja
til hins ýtrasta. Enda varð Beethoven
að endurskrifa hana tvisvar áður en
hægt var að ráðast í hana.
Óperan var frumflutt áriö 1805 en
naut þá litilla vinsælda. Siðan hefur
hún þótt eitt af stórverkum tónbók-
menntanna.
Stjórnandi sinfóníunnar í kvöld
veður Jean-Pierre Jacquillat. En með
Fílharmóníunni syngja auk einsöngv-
aranna vaskir sveinar úr Karlakór
Reykjavíkur.
Fidelio segir frá hjónunum
Leonóru og Florestan. Fiórestan er
aðalsmaður sem mikillar hylii nýtur
hjá kónginum. Hann á sér svarinn
óvin sem er Don Pizarró fangelsis-
stjóri. Florestan grunar hann um að
halda föngum í svelti og hyggst koma
upp um hann. Þegar Florestan svo
hverfur grunar Leonóru að ekki sé
allt með felldu. Hún heldur af staðað
leita hans og dulbýr sig sem sveininn
Fidelio. Tekst henni að komast i
vinnu hjá Don Pizarró og með hjálp
góðra manna að frelsa bæði
Florestan og hina fangana.
Upphaflega hét óperan Leónóra og
voru samdir við hana þrír forleikir
undir þvi nafni. Seinna var nafninu
breytt og óperan kölluö Fidelio og
einn forleikur saminn. í þeirri útgáfu
var óperan flutt fyrst árið 1914. Hér
á landi hefur óperan aldrei verið flutt
í heiid sinni.
Óperan verður endurflutt á laugar-
daginn klukkan tvö. Miðaverð er 90
krónur og er hægt aö fá miða að
minnsta kosti á eina sýningu i Bóka-
verzlunum Blöndals og Eymunds-
sonar.
-DS.
• «55$
7 i ’ ^ IICTT
Bæjarútgerð Hafnaiijarðar hefur gert út fjðldann allan af togurum og hafa þeir
jafnan verið skirðir eftir mánuðunum, apríl, maf, júni, júli og ágúst. Hér er Júni GK
345 eitt af skipum Bæjarútgerðarinnar.
Bæjarútgerð
Hafnarfjarðar
fímmtíu ára
ídag
— varstofnuö tilað koma í veg fyrir
algertatvinnuleysiafvöldum
kreppunnar
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar á
fimmtugsafmæli í dag, 12. febrúar.
Bæjarútgerðin var stofnuð vegna
mikils atvinnuleysis á þeim tíma og var
vinnunni í landi skipt á milli manna,
þannig að allir bæru eitthvaðúr býtum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar keypti
Edinborgarstöðina, sem svo var kölluð
undir rekstur sinn og togarann Maí.
Rekstur fyrirtækisins var mjög erfiður
fyrstu árin en eftir styrjaldarárin gjör-
breyttist hagur þess. Á tíu ára afmæl-
inu var hagur fyrirtækisins mjög góður
og gaf það þá fé til ýmissa menningar-
og atvinnumála.
Árið 1934 keypti fyrirtækið togarann
Júní, sem í desember ’48 strandaði við
Vestfirði. Fyrsta nýsköpunartogarann
keypti fyrirtækið 1947. Hlaut hann
nafnið Júlí. í ársbyrjun 1959 varð
Bæjarútgerðin fyrir því áfalli að Júlí
fórst með allri áhöfn í ofsaveðri á
Nýfundnalandsmiðum. Árið eftir
keypti Bæjarútgerðin nýjan togara sem
hlaut nafnið Maí.
Sitt eigið frystihús eignaðist fyrir-
tækið 1957, en þá hafði smíði þess
staðið yfir í tvö ár. Árið 1977 voru
síðan gerðar gagngerðar breytingar á
því frystihúsi. Núna starfa hjá Bæjar-
útgerð Hafnarfjarðar 260 manns fyrir
utan sjómenn sem eru 60—70 talsins.
Fyrsti framkvæmdastjóri Bæjarút-
gerðarinnar var Ásgeir G. Stefánsson.
Gegndi hann því starfí til ársins 1954.
Núverandi framkvæmdastjóri er Björn
Ólafsson.
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar hefur
alla tíð verið einn helzti burðarásinn í
atvinnulífi Hafnarfjarðar og vinnulaun
sem fyrirtækið greiðir skipta sköpum
um afkomu bæjarbúa og bæjarfélagið í
heild.
-ELA.
Geir Hallgrímsson á þingi ígær:
„34% launaskerðing í
tíð síðustu v-stjóma”
—á sama tima nemur grunnkaupshækkun f ólks aðeins 13%
„Síðan Alþýðubandalag, Fram-
sóknarflokkur og Alþýðuflokkur
mynduðu ríkisstjórn 1. sept. 1978
eftir kosningarnar sem háðar voru
undir kjörorði þeirra „Samningana í
gildi” hafa aðeins tvívegis orðið
kauphækkanir hér á landi. Gunnlaun
hækkuðu um 3% 1979 og 10% sl.
haust. Hins vegar fór fram 8% kjara-
skerðing í des. 1978. Launaskerðing
samkvæmt Ólafslögum er 16.6% og
1. marz nk. verður almenn kjara-
skerðing um 9.3%. Eða með öðrum
orðum skerðing launa ( valdatíð
stjórnanna er tæp 34% meðan hækk-
un grunnlauna i landinu er aðeins
13%.”
Þannig komst Geir Hallgrímsson
að orði í umræðum er hann hóf
vegna dráttar á fískverðsákvörÖun,
en fljótt snerust í almennar eldhús-
dagsumræður.
„Þegar á þessar launaskerðingar er
litið má spyrja: Hver er nú afstaða
Guðmundar jaka varðandi ummæli
hans „Kosningar eru kjarabarátta”
og „Samningana í gildi” og hver er
afstaða Svavars Gestssonar sem
kvað” Alþýðubandalagið aðeins
ganga til stjórnarsamvinnu til að
tryggja að launaskeröing yrði ekki
framkvæmd í landinu.”
Geir undraðist orð Steingrims
Hermannssonar í fyrri viku um að
ekki stæði á ríkisstjórninni að fisk-
verð væri ókomið. Hann kvaðbráða-
birgðalögin um verðstöðvun, fast
gengi og um hávaxtastefnu vera
snöru um háls ríkisstjórnarinnar.
Steingrimur Hermannsson kvað
fiskverð myndu ákveðið fyrir næstu
helgi. Væri þegar búið að ræða í
ríkisstjórninni aðgerðir sem koma
yrðu í kjölfar fiskverðsákvörðunar.
Þá kvað ráðherrann það skoðun sína
að olíuverð ætti að-vera óbreytt og
tilfærsla yrði á útflutningsgjaldi fisk-
tegunda.
Matthías Bjarnason benti á að eng-
in lög giltu nú um olíuverð. Þau
hefðu runnið út um áramótin. Ræddi
hann síðan um eðli og tilgang verð-
jöfnunarsjóðs og varaði við skerð-
ingu einstakra deilda hans.
Til máls tóku einnig Karl Steinar
Guðnason og Kjartan Jóhannsson,
sem báðir töldu drátt á fiskverði
óviðunandi.
-A.St.