Dagblaðið - 19.02.1981, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 19.02.1981, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1981. KS FURUNÁLAFREYÐIBAÐ jafn ómíssandi og sápa um land allt Heildsölubirgðir: KRISTJÁNSSON HF., Símar 12800 og 14878. wS§? FARSTÖÐVA EIGENDUR! • Aukið notagildi italstöðvarinnar CB/FR Á bílinn - í bátinn - á húsið Jafnmikið eða meira langdrægi með styttri stöng Heildsala — smásala Radíó- og sjónvarpsstofan Selfossi - Sími 99-1492 FX-310 BÝÐURUPP Á: • Algebra og 50 visindalegir möguleikar. • Slekkur á sjálfri sér og minn- ið þurrkast ekki út. • Tvær rafhlöður sem endast í 1000 tíma orkunotkun. • Almenn brot og brotabrot. • Aðeins 7 mm þykkt i veski. • 1 árs ábyrgð og viðgerðar- þjónusta. Verð: 487,- B-811 BÝÐUR UPP Á: • Klukkutima, mín., sek. • Mánaðardag, vikudag. • Sjálfvirka dagatalsleiðréttingu um mánaðamót. • Rafhlöðu sem endist i ca 5 ár. • Er högghelt og vatnshelt. • Ljóshnappur til aflestrar í myrkri. • Ryðfrítt stál. • 1 árs ábyrgð og viðgerðarþjón- usta. Verfl: 544,50 CASIO-EINKAUMBODIÐ BANKASTRÆTI8, SÍMI27510. 42 MNGMENN 0G ÞJ0ÐIN ÖLLVIUA VTTA HIÐSANNA sagdi Matthías A. Mathiesen sem mælti fyrir beiðni 10 þingmanna um skyrslu unmálið „Átján alþingismenn, þ.e. rikis- stjórn, stjórn Framkvæmda- stofnunar ríkisins og forstjóri hennar hafa fjallað um togarakaupamálið fyrir Þórshöfn og Raufarhöfn. Nú vilja hinir þingmennirnir 42, svo og þjóðin öll, fá að vita hvernig þetta umdeilda mál hefur hrakizt i kerfinu og þessir aðilar vilja réttar upplýsing- ar um málið,” sagði Matthias Á. Mathiesen á þingi í gær er hann fylgdi úr hlaði beiðni tiu þingmanna um skýrslu forsætisráðherra til Alþingis um togarakaupamálið. í greinargerð beiðninnar segir, að skoðanir séu sk:pfar á forsendum, upphafi og metTerð togaxakaupa- málsins. Fram sé Irornið aðráðherrar segja sitt hvað um samþykk.ir rikis- stjórnarinnar. Ekki 'é sami skilningur á samskiptum ríkisstjornar og stjóinar Framkvæmdastofnunar. Því sé skýrslu um málið óskað, þar sem birtar verði samþvkktir ríkis- stjórnarinnar varðandi málið svo og samþykktir Framkvæmdastofnunar og að auki verði gerð grein fyrir munnlegum skilaboðum milli þessara aðila málið varðandi. „Hér er verið að útdeila fjár- magni skattborgaranna svo milljörð- um skiptir. Þeir eiga rétt á að fá að vita hvernig farið er að því og með það fé,” sagði Matthías. -ASt. „RIKISSTJORNIN ÁKVAÐ KAUPIN” en eftiriiti með framhaldinu var ábótavant, sagði Steingrímur Hermannsson „Það var að sjálfsögðu ríkis- stjórnin sem tók ákvörðunina um togarakaupin 1. ágúst sl. Annað en erlendur togari kom aldrei til greina, þvi frá fyrstu var ljóst að ekki var unnt að smíða togara innanlands til að leysa umræddan vanda,” sagði Steingrímur Hermannsson í svar- ræðu á þingi í gær. Ráðherrann kvað Ijóst að áfátt hefði verið eftirliti með gangi þessa máls. Hér var um að ræða undan- þágutogara sem Fiskveiðasjóður fylgdist ekki með. „Við töldum því að Framkvæmdastofnun myndi fylgjast með málinu,” sagði Steingrímur, „enda hafði hún lofað allri aðstoð við Iausn þessa togara- máls fyrir Þórshöfn og Raufarhöfn og mælt með togarakaupum.” -A.St. RÍKISSTJÓRNIN BER ALLA ÁBYRGD Á SUKKINU — sögðu stjórnarmenn Framkvæmdastofnunará þingi Ólafur G. Einarsson og Kjartan Jóhannsson hófu í gær umræður utan dagskrár á Alþingi um togara- kaup stjórnvalda til handa Þórshafnar- og Raufarhafnarbúum. Beindi Ólafur mörgum spurningum málið varðandi að ráðherrum er sátu í neðri deild en Kjartan fjallaði um málið og óskaði svara um ótal þætti þess í efri deild. Varð þetta tilefni til 25 umræðna um málið, 10 i efri deild og 15 í neðri deild. Þingmenn sem í stjórn Fram- kvæmdastofnunar sitja skýrðu sína afstöðu til málsins þar og báru blak af sinni stofnun varðandi frumkvæði í málinu. Gengu þeir Matthías Bjarnason og Ólafur G. Einarsson harðast fram í þessu efni og sagði Matthías að þegar ríkisstjórnin hafi tekið ákvörðun um heimild til togarakaupanna 1. ágúst sl. og gefið undanþágu um innflutning gamals, erlends togara í þessum efnum, hafi ekki legið annað fyrir í málinu frá Framkvæmda- stofnun en meðmæli með þvi að tog- ari gæti leyst vanda umrædds land- svæðis í atvinnumálum. 6. október gefur fjármála- ráðuneytið út heimild til ríkisá- byrgðar til kaupa á togara í Noregi fyrir Þórshöfn og Raufarhöfn, þó með þeim skilyrðum að nægar ríkisá- byrgðirséu fyrir ábyrgðunum. Það hafi síðan ekki Verið fyrr en 14. okt., að gerðri samþykkt ríkis- stjórnar og útgefinni ábyrgð fjár- málaráðherra að Framkvæmda- stofnunin samþykkir málin fyrir sitt leyti. Kvað Matthías nauðsyn á öðrum fundi í Framkvæmdastofnun if ekki fengjust óyggjandi svör um að tog- arinn kæmi með 2,8 milljóna ábyrgð Byggðasjóðs. -A.St. Fé sem ísl. iðnaður átti að fá notað til togarakaupanna — Ragnar Arnalds tillögumaður að þeirri lausn hinna umdeildu togarakaupa „Þórshöfn og Raufarhöfn þurftu togara. Þetta skip er að vísu orðið heldur dýrt, en ekki verður til baka snúið,” sagði Ragnar Arnalds fjár- málaráðherra í umræðunum á þingi í gær. „Það var heimild í lögum til að veita 80% ábyrgð ríkissjóðs fyrir þessum kaupum. Eðlilegt var og að rikissjóður tæki ábyrgð á hluta af þeim 20% sem Byggðasjóði er ætlað að ábyrgjast til þessara skipakaupa, ekki sízt vegna óvenju þungrar byrði Byggðasjóðs af togarakaupum og togarasmíði á þessu ári,” sagði Ragnar. Síðan sagði Ragnar að af þeim 1500milljónagkr. upphæðsem ríkis- sjóður hefði tekið af sér að ábyrgjast Byggðasjóði til endurlána aðallega til íslenzks skipaiðnaðar, hefði hann talið eðlilegt að hluti þess fjár rynni til skipakaupanna handa Þórshöfn og Raufarhöfn. Hann hefði því sett hugmynd um þá lausn málsins fram. Taldi hann það þó ekki þýða að ríkis- sjóður bæri ábyrgð á 90% af kaup- verði norska togarans, heldur 80% og að auki ábyrgð á hluta af á- byrgðarhluta Byggðasjóðs. Létu ýmsir þingmenn í ljós undrun yfir ráðstöfun á því fé, sem fara á til íslenzks skipasmíðaiðnaðar, til kaupa á erlendum togara. Sá liður mála er þóennlítt rædduráAlþingi. -A.St.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.