Dagblaðið - 19.02.1981, Page 11

Dagblaðið - 19.02.1981, Page 11
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1981. ____________________________________________________________________________________II Ríkir jaf nrétti kynja á íslandi? Hlutfallslega flest nei-in hjá alþýðubandalagsmönnum Línurnar eru skýrastar meðal alþýðubandalagsmanna gagnvart spurningunni um, hvort jafnrétti ríki milli kynja á íslandi. Nei, það rikir ekki jafnrétti, segja tæplega 82 af hundraði stuðningsmanna Alþýðu- bandalagsins. Eins og menn muna var talsverður meirihluti landsmanna þeirrar skoðunar, að hér ríkti ekki jafnrétti milli karla og kvenna, samkvæmt nýlegri skoðanakönnun Dagblaðsins. DB spurði þessarar spurningar sam- tímis öðrum spurningum í skoðana- könnun, meðal annars spurningu um, hvaða flokki menn teldu sig standa Í hverju er svo jafnrétti kynjanna fólgið? Þvi að konur gangi inn i „karla.störf', eins og þessi stúlka gerði f.vrir þremur árum eða breyttum hugsunarhætti beggja kynja? Eða einhverju allt öðru? DB-mynd: Bj. Bj. Sr.HalldórGröndal sóknarprestur: næst. Nú höfum við athugað, hvernig stuðningsmenn hinna ýmsu flokka tóku afstöðu til jafnréttisspurning- arinnar. Vegna þess að hér er aðeins um að ræða lítið brol af 600 manna úr- takinu, verður ekki fullyrt, að hlut- föllin hjá stuðningsmönnum hinna ýmsu flokka séu endilega þau, sem út koma, en allavega eru niðurstöðurnar forvitnilegar. Hjá öllum flokkunum segir meirihluti nei, það er að jafnrétti ríki ekki milli kynjanna. Langmestur er meirihluti nei-anna hjá alþýðubanda- lagsfólki. Þar segja 81,7 prósent nei, 16,7 prósent já, en einn maður vildi ekki svara spurningunni um jafnréttið. Meðal stuðningsmanna Framsóknar segja 59 prósent nei, 39,7 prósént segja já og einn maður er óákveðinn. Meðal alþýðuflokksmanna segja 54,3 prósent nei en 45,7 prósent já. Meðal sjálfstæðismanna munar ekki miklu á nei-um og já-um. 49,7 prósent segja nei, 46,3 prósent já, og 4% eru óákveðnir. Loks er sá hópur, sem ekki nefndi neinn stjórnmálaflokkinn. Þar segja 56,1% nei, 31,7% já, 7,6% eru óákveðnir og 4,3 svara ekki spurningunni. -HH. Hann héltáfram: „Einstaklingurinn, allt frá heimilis- föður niður í börn, er óviss um stöðu sína innan fjölskyldunnar. Ég get líkt þessu við skip úti á rúmsjó þar sem áhöfnin er ekki klár á því hver er skipstjórinn. Varðandi hjónabandið trúi ég á orð ritningarinnar: Maður og kona eru eitt. Samband þeirra á að byggjast á elsku og gagnkvæmu trausti hvors til annars. Og ég vil líta á þau sem jafningja sem ræða saman alla hluti og fram- kvæmd þeirra. Þegar vandamál koma upp leita hjónin sameiginlega að far- sælli lausn. Síðan er eiginmaðurinn „primus inter pares”, æðstur meðal jafningja. Út á við kemur hann fram fyrir hönd fjölskyldunnar. Séu árekstrar innan fjölskyldunnar þá tekur hann af skarið. Annars er allt í ólgusjó og enginn veit hvað hann á að gera. Þessi tilhögun er byggð á orði guðs og hans vilja.” Sr. Halldór sagðist verða mikið var við óhamingju á heimilum og margir eiginmenn tjáðu honum áhyggjur sínar eitthvað á þessa lund: „Það er allt ómögulegt heima. Konan er orðin svo mikil rauðsokka og alltaf með óþolandi jafnréttiskjaft- æði.” Að lokum sagði sr. Halldór: „f byrjun hreyfingar koma oft fram mikl- ar öfgar sem síðar jafna sig. Meðan þessar öfgar standa yfir valda þær miklum erfiðleikum á heimilum og það er erfitt að segja til hvers þær munu leiða varðandi fjölskylduna.” -IHH. „Heimilið og fjölskyldan eru í upplausn,” sagði séra Halldór Gröndal þegar DB bað hann að segja álit sitt á niðurstöðum skoðanakönnunar blaðsins um jafnrétti. , ,Getur það verið að jafnréttisbaráttan skapi meiri erfiðleika en hún leysir?” Séra Halldór Gröndal: „Eiginmaöurinn er æðstur meðal jafningja. Út á við kemur hann frani fyrir hönd fjöl- skyldunnar... þessi tilhögun er byggð á orði guðs og hans vilja.” DB-mynd: Hörður. Geturveriðað jafnréttisbaráttan skapi meiri erfið- leika en hún leysir? Soffía Guðmundsdóttir, tónlistarkennari og bæjarfuHtni: / könnuninni skiptust menn þannig eftir flokkum í afstöðu til spurningarinnar um, hvort jafnrétti ríkti milli kynja: Sjálfstæðismenn: Já 69 eða 46,3% Nei 74 eða 49,7% Óákveðnir 6 eða 4% Framsóknarmenn: Já 31 eða 39,7% Nei 46 eða 59,0% Óákveðnir 1 eða 1,3% Alþýðubanda- lagsmenn: Já Nei Óákveðnir Vill ekki svara 10 eða 16,7% 49 eða 81,7% 0 1 eða 1,7% Alþýðuflokksmenn: Já 16 eða 45,7% Nei 19 eða 54,3% Óákveðnir 0 Þeir, sem voru óákveðnir um flokk, vildu ekkisvara spurningunni um flokk eða voru bókfœrðir sem „aðrir” í flokka- könnuninni: Já 88 eða 31,7% Nei 156 eða 56,1% Óákveðnir 22 eða 7,9% Vilja ekki svara 12 eða 4,3% ÞEGAR KONA ER BÆfM HÆF OG RÐÐUBÚN T1L STARFA ÞÁ ER EINS OG KARLVELDWU KROSSBREGDi „Ríkir jafnrétti kynja á íslandi? Ég svara því neitandi og það sem verra er, það er langt í land að svo verði,” sagði Soffía Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins á Akureyri, þegar hún var spurð um álit sitt á niður- stöðum skoöanakönnunar DB um jafn- rétti. „Má ég nefna mál eins og at- vinnumöguleika, atvinnuöryggi og skipan í launaflokka. Það gengur seint og illa að tosa áfram til sómasamlegra launa þeim stóru hópum, sem vinna hefðbundin kvennastörf, t.d. sjúkra- liðum, konum við fiskvinnslu og kennslustörf á grunnskólastigi. Ekki hafa hjúkrunarfræðingar verið ofhaldnir í launum. Sú kjarabarátta, sem fóstrur standa í þessa stundina talar skýru máli um það hvar konur standa þegar karlar taka til við að meta störf þeirra til launa. Það væri fróðlegt að sjá hvað gerðist, ef karlmenn tækju að fiykkjast í þessi störf. Á síðari tímum hefur farið fjölgandi þeim konum sem leggja í langskólanám og hafa fyrir eigin hæfni og dugnað brotist gegnum karlamúrinn. En mér sýnist að þeim reiði mis- jafnlega af þegar um forfrömun í starfi er að ræða og það kemur til kasta karlmanna að láta þær njóta sannmælis. Um félagslega þátttöku kvenna, t.d. á vettvangi stéttarfélaga og innan verkalýðsbaráttunnar að ógleymdu sviði stjórnmálanna hefur margt verið rætt og ritað. Á þessum sviðum má heita að konur séu fjarstaddar. Oft heyrist að þær fáist ekki til starfa, hvernig sem gengið sé á eftir þeim. Þetta er röng staðhæfing. Þegar er fram kominn álitlegur hópur kvenna, sem bæði vlll beita sér og hefur sýnt óumdeilanlega hæfni. Fróðlegt væri að hyggja að því, hvernig einmitt þessum konum reiðir af i karlmannasamfélaginu óg nær að bollalpggja þar um, heldur en að hver hafi eftir öðrum að konur fáist ekki til starfa. Þegar það liggur fyrir að kona er bæði hæf og reiðubúin til starfa, þá er eins og karlveldinu krossbregði og ótal ljón eru á veginum. Körlum virðist vera það beizkur biti í hálsi að konur séu þeim jafnhæfar, að ekki sé talað um hafi þærforskot. Fari ég með staðlausa stafi þá vænti ég að mér verði mótmælt,” sagði Soffía Guömundsdóttir að lokum. -IHH. Soffla Guðmundsdóttir; „Kjarabarátta fóstra talar skýru máli um það hvar konur standa þegar karlar taka til við að meta störf þeirra til launa.” DB-mynd: Fax.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.