Dagblaðið - 05.03.1981, Síða 8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981.
i
i
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Sovczkir hermenn 1 Afganistan ásamt
foringjum úr afganska stjórnarhern-
um.
.
Stöðugt liðhlaup úr afganska stjórnarhernum:
ÞRETTÁN OG FJÓRTÁN ÁRA
GAMLIR DRENGIR VORU
MED VALDITEKNIR í HERINN
Rússarnir hafa nýlega byggt,” sagði
Rustum.
„Þar var okkur haldið í tæpan
mánuð meðan fleiri mönnum var
safnað saman. Okkur var ekki leyft
að fara út og við fengum vatn og
brauð annan hvern dag. Þegar þeir
höfðu alls náð í 46 menn fluttu þeir
okkur með þyrlu til Kunduz (höfuð-
borg Takhar héraðs). Þar vorum við í
fangelsi i tvo daga ásamt mönnum,
sem fluttir höfðu verið frá öðrum
héruðum landsins. Fangelsið var
troðfullt.
Við vorum í sjötíu manna hóp, sem
sendur var til herbúða innan borgar-
innar og þaðan til annarra búða fyrir
utan borgina,” sagði Rustum og
'hann hélt áfram frásögn sinni:
„Maður gætti okkar á næturnar í
hermannaskála og hermennirnir tóku
allt af okkur, líka fötin. Við fengum
einkennisbúninga og stígvél en hvor-
ugt passaöi á okkur.
í tuttugu daga var okkur kennt,
hvernig við ættum að standa og
vandir við vopnaburð. Rússneskur
maður kom á hverjum degi, fylgdist
með okkur og talaði við liðsforingj-
ana. Á 21. degi fengum við byssur,
sem engin skot voru í. Okkur var sagt
að nú ætti að kenna okkur að beita
byssunum gegn Pakistönum og
Dakóítum (ræningjar og glæpamenn;
hugtak, sem Kabúlstjórnin notar yfir
u ppreisnarmennina). ’ ’
Ehsan sagði að á þessu tímabili
hefðu um þrettán menn úr þessum
sjötíu manna hópi strokið.
Drengjunum tveimur tókst síðan
sjálfum að flýja kvöld eitt í janúar,
rétt áður en næturvörðurinn kom.
Þeir fleygðu einkennisbúningunum
og gengu alla nóttina þar til þeir
komu til þorps eins. Þar fengu þeir
mat og föt og þeim var fylgt yfir fjöll-
in til Baluchistanhéraðs í Pakistan.
Þeim verður fylgt þaðan af skæru-
liðum heim til foreldra sinna þegar
vora tekur og snjórinn er horfinn af
norðurleiðinni inn í Afganistan.
(Reuter).
Tveir drengir, þrettán og fjórtán
ára gamlir, skruppu að heiman í
októbermánuði síðastliðnum. Þeir
áttu heima i Takharhéraðinu og ætl-
uðu að verzla fyrir fjölskyldur sínar á
föstudagsmarkaðinum í bænum
Rostaq.
Um miðjan dag var markaðurinn
umkringdur af sövézkum og afgönsk-
um stjórnarhersveitum og drengirnir
voru kúgaðir til að ganga í stjórnar-
herinn, að því er þeir hafa tjáð frétta-
manni Reuters.
Einum mánuði síðar voru þeir í
bækistöð afganska hersins við
Kandahar flugvöll í Suður-
Afganistan rúmlega þúsund kíló-
metra frá heimilum sínum. Þar voru
þeir klæddir allt of stórum einkennis-
búningum afganska hersins og
sovézkir hernaðarráðgjafar fylgdust
vandlega með þeim.
Enginn þeirra grennslaðist fyrir um
aldur piltanna. Þegar þeir flúðu voru
þeir hins vegar meðhöndlaðir sem
börn af afgönskum borgurum, sem
hjálpuðu þeim að flýja til Pakistan.
Þar eru skæruliðar, sem ætla að
komadrengjunum í samband við for-
eldra sina á nýjan leik.
Drengirnir, Mohammad Rustum
og Mohammad Ehsan sem eru ný-
komnir í mútur, urðu fórnarlömb ör-
væntingarfullrar tilraunar hinnar
Sovétstuddu Kabul stjórnar til að
styrkja stjórnarherinn, sem orðinn er
anzi fámennur.
Aldursmörkin í hernum eiga að
vera 20 ár og voru þau á síðastliðnu
ári lækkuð úr 22 árum til þess að
reyna að fylla í þau skörð, sem komið
hafa í raðir stjórnarhermanna.
í afganska hernum voru 80 þúsund
hermenn árið 1978 þegar fyrsta
Sovétstudda stjórnin komst til valda í
Kabúl. Síðan hefur hann stöðugt
verið að týna tölunni. Ástæður þess
eru margar; hreinsanir hafa farið
fram innan hersins, liðhlaup hefur
verið gífurlegt og hið óvinsæla stríð
við uppreisnarmenn gegn stjórninni.
Nú er svo komið, að í afganska
stjórnarhernum eru ekki nema um 30
þúsund hermenn ef marka má upp-
lýsingar vestrænna stjórnarerind-
reka. Það hefur því verið gripið til
þess ráðs að taka menn með valdi í
herinn og virðist þá ekki vera spurt
um aldur.
Sagan af Rustum og Ehsan er ekk-
ert einsdæmi. 1 flóttamannabúðun-
Afgönsk flóttabörn i tjaldi i Aza Khel flóttamannabúðunum i Peshawar f Pakistan.
um kringum Peshawar í Pakistan við
landamæri Afganistan eru margir
unglingar, sem orðið hafa fyrir svip-
aðri reynslu og þeir Rustum og
Ehsan.
Aðferðir sovézku og afgönsku
stjórnarhersveitanna eru gjarnan
þær, að umkringja markaði þar sem
mikill fjöldi fólks er saman kominn
og velja úr fjöldanum alla þá menn,
sem þykja til greina koma í herinn.
Þeir eru síðan fluttir í nálægan
geymslustað og þaðan er flogið með
þá til herdeilda í fjarlægum lands-
hlutum.
Rustum og Ehsan, sem eru af hin-
um persneskmælandi Tajikættbálki,
sögðu fréttamanni Reuters með
aðstoð túlks að foreldrar þeirra
hefðu sent þá á markaðinn i Rostaq
af ótta við, að ef eldri bræður þeirra
yrðu sendir þá yrðu þeir teknir og
þvingaðir í herinn.
„Rússneskar og afganskar her-
sveitir umkringdu markaðinn og tóku
okkur ásamt um tuttugu mönnum
öðrum og fluttu okkur í neðanjarðar-
birgi á flugvellinum i Rostaq, sem
Afganskir uppreisnarmenn.