Dagblaðið - 06.03.1981, Side 1
7. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1981 - 55. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI ll.-AÐALSÍMI 27022.
Leitin að Báru VE-141 árangurslaus:
TVEGGJA BRÆÐRA FRA
EYJUM ER ENN SAKNAÐ
—leit \á niðri ínótt og í morgun vegnaslæms veöursá
leitarsvæöinu
Leitin að Báru VE 141, sem
gerður er út frá Sandgerði, hefur enn
engan árangur borið. Keflavíkur-
radió heyrði síðast til bátsins um
fjögurleytið á miðvikudag. Frá
honum barst ekki tilkynning um
kvöldið og þá var strax hafin leit. í
gær leituðu 30 skip og flugvélar
árangurslaust. Skipverjar eru tveir
bræður frá Vestmannaeyjum, Bjarni
Guðmundsson, fæddur 10. ágúst
1938, ókvæntur og Jóel Guðmunds-
son, fæddur 1. júlí 1936, kvæntur og
fjögurra barna faðir.
Ekki var leitað í nótt vegna mjög
slæms veðurs. í Reykjavík mældust
mest 10—11 vindstig í verstu
byljunum og ekki blés minna á leit-
arsvæðinu út af Garðskaga.
m------------........ ■>
Bræðurnir sem saknað er á Báru
VE—141, Bjarni og Jóel Guðmunds-
synir.
„Viðbrógð báta í upphafi leitar
voru til fyrirmyndar,” sagði Hannes
Hafstein hjá Slysavarnafélaginu í
morgun.
„Við vissum að spáð var versn-
andi veðri og höguðum leit í
samræmi við það. En i svo brjáluðu
veðri sem nú er, eru okkur allar
bjargir bannaðar.”
-ARH/-KMU.
Vinnuslysvið
Laugarnestanga:
Bát hvolfdi,
þremur naum-
legabjargað
Þrír menn voru hætt komnir í gær-
kvöldi þegar fimm tonna plastbát, Haf-
liðaað nafni, hvolfdi við OLÍS-stöðina
á• Laugamestanga. Verið var að binda
olíuflutningaskipið Kyndil við bauju
þegar vírar flæktust í Hafliða og
hvolfdu honum. Tveir menn sem voru
við vinnu aftur á köstuðust í sjóinn.
Annar þeirra komst strax á kjöl en hinn
mun hafa fengið lost eða ef til vill högg
við óhappið og missti meðvitund. Sá
þriðji var lokaður inni í stýrishúsi þegar
bátnum hvolfdi en tókst að brjótast út.
Menn af lóðsbátnum Haka sáu hvað
gerzt hafði og komu til hjálpar. Með-
vitundarlausi maðurinn var fyrst tekinn
um borð í Haka og síðan hinir tveir.
Þeir héldu sér á fioti á Hafliða sem
sneri kili upp. Mátti ekki tæpara standa
með björgun þeirra, því Hafliði sökk á
sömu stundu. Á leið til lands gerði há-
seti á Kyndli lífgunartilraunir á meðvit-
undarlausa manninum. Hann var,
ásamt félögum sínum, þegar í stað
fluttur í gjörgæzludeild Borgarspítal-
ans og var þar enn í morgun. -ARH
Lögreglu- og sjúkraliðsmenn voru 1
Sundahöfn 1 gærkvöldi og tóku við
mönnunum þremur þegar lóðsbáturinn
Haki kom þangað. DB-mynd S.
........"
Skíðadagur fjölskyldunnará morgun:
Komum öll á Miklatún
njótum hollrar útiveru
Þótt veðurguðirnir hafi guðað
ótæpilega á glugga í nótt og morg-
un þá verðum við að vona að Kári
hafi ekki náð að feykja öllum snjó i
burtu, því á morgun klukkan tvö
ætlar DB að gangast fyrir Skíða-
degi fjölskyldunnar á Miklatúni.
Lúðrasveit Reykjavikur byrjar að
leika við Kjarvalsstaði klukkan tvö
en fimmtán mínútur yfir tvö flytur
borgarstjórinn í Reykjavík ávarp og
klukkan hálfþrjú spenna menn á sig
skíði og ganga um Miklatún. Leið-
beinendur verða til staðar fyrir þá
sem vilja og heitt kakó og kex
verður reitt fram úr pylsuvagninum
sem verður við Kjarvalsstaði.
Á morgun er upplagt tækifæri
fyrir fjölskyldurnar að bursta rykið
af skíðunum og koma á Skíðadag
fjölskyldunnar og njóta hollrar úti-
veru stutta dagstund.
Við segjum frá Skíðadegi fjöl-
skyldunnar i helgardagbókinni á
bls. 15 og einnig verður nánar sagt
frá skíðadeginum í blaðinu á morg-
un.
- JR
sjáhelgardagbókbls. 15