Dagblaðið - 06.03.1981, Blaðsíða 4
Raddir neytenda
Stórkostlegt að geta
verzlað í stórmörkuðum
Kristin skrifar m.a.:
Mér finnst alveg ófært hvað ég hef
trassað að senda þættinum upplýs-
ingaseðlana upp á síðkastið. Það fór
allt i rugling með sumarfríinu en nú
ætla ég að reyna aö koma reglu á
þetta aftur. Ég sendi með að gamni
mínu desemberseðilinn, sem var
alveg ótrúlega lágur (rúml. 44 þús.
gamlar kr. á mann). Vel má vera að
ég hafi einhvern tíma gleymt að
spyrja bóndann um upphæðina, sem
hann verzlaði fyrir. Ég var nú einnig
búin að birgja mig upp í okt. og nóv.
Þá komu cinnig óvænt útgjöld í des-
ember sem við höfðum ekki reiknað
með.
og fórum þá í Hagkaup. Mikill verð-
munur er á vörum þar og hér. Erfitt er
að gera samanburð á verði, vegna
þess að í verðstöðvuninni hækka
flestar vörur eftir sem áður í hverri
sendingu. Það er erfitt að leggja á
minnið vöruverð í dag.
Einhver segir kannski að það borgi
sig ekki að eltast við stórmarkaöi og
örlítið iægra vöruverð. Það komi
bara fram í auknum bensínkostnaði.
Það borgar sig heldur ekki fyrir utan-
bæjarfólk að koma tii borgarinnar i
sérstaka verzlunarferð, en fyrir getur
komið að hægt sé að verzla í stór-
mörkuðunum, um leið og önnur
erindi eru rekin í höfuðborginni.”
Nýju krónumar eins
og alvömpeningar
Eiga e.tv. sinn þátt í lækkandi kostnaði
við heimilisreksturinn
Ólafur Halldórsson skrifar:
,, Hjálagt sendi ég yður útgjöld fyrir
mat og hreinlætisvörur fyrir janúar
1981, sem reyndist vera 1.646 kr. (548
kr. á mann).
Til fróðleiks yður og mér til furðu
reyndust september útgjöld til matar-
og hreinlætisvara kr. 1.900, okt. kr.
2700, nóv. kr. 2.250. Fyrri helmingur-
febrúar bendir til svipaðrar útkomu
og janúar. Þetta virðist mér mjög
eftirtektarvert, hver sem skýringin er.
Persónulega finnst mér ég hafi al-
vöru peninga í vasa síðan um áramót,
en hafði ógeð og skömm á gömlu
myntinni. Þetta gæti verið ein ástæð-
an fyrir lækkuninni.
Að lokum sendi ég DB 12/2 með
ri nMAHnmum
ósk um betri útreikninga við næstu
könnun.”
Við þökkum úrklippuna og biðj-
umst aftur velvirðingar á röngum út-
reikningum, sem við höfum nú þegar
leiðrétt hér á siðunni. Ekki kunnum
við skýringu á lækkandi útgjöldum
hjá bréfritara en varla getur um ann-
að verið að ræða en aukinn sparnað
og ráðdeildarsemi.
- A.Bj.
Columnea
Crassifolia
Páfagauksnef
Páfagauksnefið er upprunnið úr hita-
beltissvæðum Suður-Ameríku. Af-
brigðið „crassifolia” varð til við
kynblöndun í ræktun. Blóm páfa-
gauksnefsins eru sérstaklega falleg í
rauðum eða appelsínugulum lit.
Blómgunin fer fram á vorin.
Páfagauksnefið er hengiplanta, sem
þarf mikla umönnun, til þess að
dafna vel. Ef greinar plötunnar vaxa
ekki eðlilega áfram eftir blómgun, er
ólíklegt að hún blómstri aftur. Er þá
ráð að breyta staðsetningu
plötunnar. Staðsetja á páfagauks-
nefið á björtum stað, en vernda
verður það gegn sterku sólarljósi.
Úðið blöð plötunnar með vatni dag-
lega, en gætið þess aö úða ekki
meöan sól skín á hana. Plantan þolir
ekki mikinn áburð og gefið henni því
áburðarupplausn i hófi. Vökvið
plötuna litið á veturna. Gamlar
plöntur sem orðnar eru gisnar, má
klippa niður til aðörvanýjargreinar í
að myndast. Skiptið um mold á páfa-
gauksnefinu snemma vors. Páfa-
gauksnefi er fjölgað með græðling-
um, sem stungiö er í vikurblandaða
mold. Græðlingarnir eru alltaf teknir
eftir blómgun. Með því að setja fímm
græðlinga i pott fæst jöfn og falleg
planta.
-JSB/VG.
Bezt er að staösetja
plöntuna á björtum
stað, en í skjóli frá
sterku sólarljósi.
Moldin má gjarnan
þorna nokkuð á milli
vökvana.
Áburðarupplausn gef-
in i hófi.
Staðsetjið plöntuna
ekki á mjög heitum
stað. Venjulegur
stofuhiti hæfir vel.
Verðskynið á
bak og burt
Ein vongóð skrifar:
Sendi hér með fyrsta seðilinn frá
mínu heimili. Ég hef oft ætlað að
vera með, en gefizt upp vegna marg-
endurtekins ruglings á verði. Ég var
hreinlega búin að missa allt verðskyn,
varð að reyna að gera eitthvað. End-
irinn varð sá að taka þátt í heimilis-
bókhaldinu með ykkur. Ég vona að
mér takist þetta.
Ég finn heilmikinn mun strax, en
hef einnig komið auga á hvað fólk á
við þegar sagt er, að það borgi sig
ekki að vinna úti upp á innkaupin.”
Velkomin í hópinn, „vongóð”. Þú
getur ekki verið þekkt fyrir annað en
að halda þetta út. Hvað áttu við með
þessu, að ,,það borgi sig ekki að
vinna úti upp á innkaupin”?
Þess má geta að „vongóð” var
með rúml. 440 kr. í meðaltal á mann
og var þar þó nokkuð undir meðal-
lagi sömu fjölskyldustærðar. Hún
getur þvi vel við unað.
- A.Bj.
Hvað fær ríkið f sinn hlut:
37,3% af skíðum
innkaupsverðskiða er 32.6% af endanlegu útsöluverði þeirra. Ríkið tekur
i sinn hlut nærri 40% af útsöluverði skiða eða 37.3%. Að öðru lcyti er skipt
inginsem hérsegir:
Innkaupsverð .....................................................32.6%
Flutningsgj., uppsk.. vátr., bankak. o.fl......................... 5.6%
Aðflutningsgj.ogsöluskattur.................................. . 37.3%
Álagning i heilds. og smás........................................24.5%
100%
Nærri 30% af skíðaskóm
Innkaupsverð á skíðaskóm er 38,56% af endanlegu útsöluverði skónna.
Rikið tekur í sinn hlut 29.7% af útsöluverðinu. Annars skiptist verðið á
þennan hátt:
Innkaupsverð.................................................... 38.56%
Flutningsgj.. uppsk.. vátr. o.fl............................... 7.39%
Aðflutningsgj. ogsöluskattur..................................... 29.7%
Álagning í heilds. ogsmás....................................... 24,35%
100%
Það virðast vera álög á þvottavél-
inni að bila á tveggja ára fresti. Svo
uppgötvaðist að bóndinn þurfti á
gleraugum að halda í hvelli. Til þess
að koma þessu heim og saman þurfti
að skera niður annars Staðar.
Nú er janúarmánuður bara þeim
mun hærri (646 nýkr. á mann). Þar
munar mest um afmæli, heldur
stærra en venjulega og gengið hafði á
birgðirnar í frystihólfinu.
Stórkostlegir
stórmarkaðir
Mér finnst alveg stórkostlegt fyrir
þá sem í höfuðborginni búa að geta
verzlað í stórmörkuðunum á talsvert
lægra verði heldur en t.d. ég get gert
með því að fara út í næstu búð. Við
hjónin áttum leið suður i desember
Kristín er búsett í kaupstað,
þangað er um það bil tveggja tima
akstur frá höfuðborginni. Við þökk-í
um henni ágætt bréf.
Við tókum einnig eftir því að á
meðan gengi krónunnar átti að vera
fast, eins og það er kallað, hækkuðu
samt vörusendingar. Afgreiðslu-
stúlka i einum af stórmörkuðunum
hafði orð á því við undirritaða að
hún hefði ekki tekið eftir því að
nokkur breyting hefði orðið á sifelld-
um hækkunum á vöruverði þótt
„gengið væri fast og alger verðstöðv-
un rikti.”
Nú er gengið hins vegar orðið „sig-
andi” aftur og skýringar á sihækk-
andi vöruverði á ný orðnar: „Þvi
miður, þetta er ný sending.”
- A.Bj.
BYRJAR BÚREIKNINGSHALD
MEÐ NÝJU KRÓNUNNI
„Kæra, ómissandi neytendasíða!
Þetta er i fyrsta skipti sem ég sendi
þér upplýsingaseðil, en ég byrjaði nú
að nýju i janúar með nýju krónunni
að halda heimilisbókhald eftir nokk-
urt hlé. Ætla ég að halda því áfram,
a.m.k. út árið.
Liðurinn „annað” er nokkuð hár,
en í honum er t.d. húsaleiga, hiti, raf-
magn og sími samtals kr. 4.227,45 og
afborgun af húsgögnum kr. 1.350.
Kveðja, S.E.”
Þessi bréfritari er búsettur í kaup-
stað á Austurlandi. Hann var með
rúml. 360 kr. á mann að meðaltali í
mat og hreinlætisvörur í janúar. Við
bjóðum bréfritara velkominn í hóp
þeirra skynsömu sem halda búreikn-
inga með okkur. Við bendum á að
það er aldrei of seint að byrja á reikn-
ingshaldinu.
- A.Bj.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1981.
DB á ne vtendamarkaði