Dagblaðið - 06.03.1981, Side 8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR6. MARZ 1981.
fl
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Yf irmaður bandaríska herráösins vill aögeröir gegn Kúbu
9
9
Þvingum Kúbu til aó
hætta vopnasendingum
—segir David Jones, yf irmaöur herráðsins sem viöurkennir hættu á
hemaðarlegri íhlutun Bandaríkjanna ÍEI Salvador
Yfirmaður bandariska herráðsins,
David Jones hershöföingi, sagöi í
gær að Bandaríkin yrðu að þvinga
Kúbu til aö láta af vopnasendingum
til skæruliða kommúnista i E1 Salva-
dor. Hann vildi ekki ræöa með hvaða
hætti Bandaríkjamenn ættu aö
stöðva þessar vopnasendingar.
„Ég mun ekki ræða hvort gripa
eigi til hernaðaraðgerða eða ekki,”
sagöihannáfundi i Chicago i gær.
„En ég vil taka skýrt fram að i
nánustu framtiö verðum við að sjá til
þess, aö Kúbumenn séu ekki á ferii i
bakgarðiokkar.”
Fjögurra stjörnu hershöfðinginn
viðurkenndi, að viss hætta væri á að
til hernaðarlegrar ihlutunar Banda-
ríkjanna kæmi í E1 Salvador. „En ég
held að sú hætta sé mjög litil," sagði
hann.
David Jones sagðist telja að nú
væri kjörið tækifæri til að hjáipa E!
Salvador um leið og endi yrði
bundinn á áhrif Sovétrikjanna og
Kúbu í rómönsku Ameriku.
Fyrr i þessari viku tilkynnti
Reagan-stjómin að hún hygðist
senda tuttugu bandariska hemaðar-
ráðgjafa til El Saivador til viðbótar
þeim sem fyrir eru í landinu. Einnig
var tilkynnt um 25 milljón doliara
hernaðaraðstoð Bandarikjanna.
David Jones bar til baka fréttir
um aö þegar væru um 200 banda-
rískir hemaðarráðgjafar i E1 Salva-
dor.
,,Við höfum hóp tæknimenntaðra
ráðgjafa þarna,” sagði hann. „Þess
þarfnast þjóðin til að leysa sín eigin
vandamál fremur en beinnar
hernaðarlegrar ihlutunar Banda-
ríkjanna.”
David Jones, sem flutti ræðu sína
einum degi eftir að Reagan fór fram á
32,6 milljaröa dollara útgjalda-
aukningu til hermála, hvatti til þess
að eflingu bandaríska hersins yrði
hraðaö til þess að mæta hinni
sovézku ógnun.
Hann sagði að Sovétmenn ættu
við margháttuð vandamál að striða
bæöi heima fyrir og erlendis og það
yki hættuna á hemaðarbrölti þeirra.
Flugvélaræningjar
haldagíslumí
Kabúlog
Los Angeles
Þrír flugvélaræningjar halda enn
116 farþegum i gislingu á Kabúl-flug-
velli. Þeir hafa sett fram ýmsar
þólitískar kröfur sem stjórnvöld hafa
til athugunar. Fiugvélaræningjarnir
hafa lýst því yfir að þeir beri ábyrgð á
sprengingu sem varð í Karachi í síðasta
mánuði í sambandi við heimsókn páfa
þangað.
í Los Angeles hefur vopnaður
tekið flugfreyju sem gísl um borð i
flugvél þar og hefur hótað að sprengja
hana upp ef ekki verði gengið að
kröfum hans um þriggja milljón
dollara lausnargjald.
Kosningar boðað-
ar í El Salvador
Ríkisstjórn E1 Salvador hefur hafið
undirbúning að almennum kosningum í
landinu sem boðaðar eru árið 1982.
Myndað hefur verið kosningaráð sem á
að skrá stjórnmálaflokka og útbúa
kosningaskrár. Jose Napoleon Duarte
hefur ekki ákveðið endanlega hvenær.
árs 1982 kosningarnar fara fram en
hefur heitið því, að fyllsta heiðarleika
verði gætt við framkvæmd þeirra.
STÆRSTIMAÐUR
HEIMS LÁTINN
Stærsti maður heims, Don A.
Koehler, lézt á heimili sínu, í Lake
Villa, USA, í síðustu viku.
Koehler varð 55 ára. Hann var 2,49
metraráhæð.
Koehler hafði verið forseti félags-
REUTER
samtaka sem nefnast „Hinir risa-
vöxnu”. Hann hafði starfaö í 25 ár hjá
fyrirtæki sem sölumaöur vökvahemla.
Don A. Koehler hefur í heimsmeta-
bók Guiness verið talinn stærsti maður
heims. Hann var fremur grannur. Þrátt
fyrir það vó hann 136 kíló.
Hann gat notað venjuleg húsgögn,
en rúm hans var sérsmíðað, tveir og
hálfur metri að lengd.
Stærsta vandamál hans varðandi
fatnað voru sokkar þar til verksmiðja í
Pennsylvaniu fór að framleiða sérstaka
sokkafyrirhann.
Hírósíma-flugmaður
hittir fómarlamb
Óvenjulegur fundur átti sér stað i Paris fyrir skömmu. Þá hittust i beinni sjónvarpsút-
sendingu bandariski flugmaöurinn Paul Tibbets og japönsk nunna að nafni Nobuko.
Tibbets var flugstjóri vélar sem varpaði kjarnorkusprengju á Hirósima i lok síðari
heimsstyrjaldarinnar með þcim afleiðingum, að mikill hluti borgarbúa lét lifið. Systir
Nobuko var 1 hópi þeirra sem lifðu af kjarnorkuárásina. Fundur þeirra i franska sjón-
varpinu átti sér stað á sama tima og Jóhannes Páll páfi annar heimsótti Ilírósima og
Nagasaki, borgirnar sem kjarnorkusprengjunum var varpað á.
Áhrif kvenna á stjórnmálasviöinu virðist aukast hægt en bitandi á Norðurlöndum. Á myndinni stinga saman nefjum'tveir
þekktustu stjórnmálamcnn Norðurlanda úr hópi kvenna, félagsmálaráðherra Danmerkur, Ritt Bjerregaard, til vinstri og
hinn nýi forsætisráðherra Noregs, Gro Harlem Brundtland, til hægri. Báðar hafa þær verið mjög i sviðsljósinu að undan-
förnu. Bjerregaard hefur átt i opinberum deilum við ýmsa af flokksbræðrum sinum um stefnu jafnaðarmannaflokksins
danska og Gro Harlem Brundtland hefur verið hundelt af blaðamönnum hvar sem hún kemur, enda er hún fyrsti kvenmaður-
inn á Norðurlöndum sem gegnir embætti forsætisráðherra.
Hefnd vegna áf engisskömmtunar á Grænlandi?
Grænlenzk ráðherra-
frú kjálkabrotin
eftir líkamsárás
Elisa Olsen, eiginkona félagsmála-
ráðherrans í heimastjórn Grænlands,
Moses Olsen, hlaut töluverð meiðsl er
á hana var ráðizt að næturlagi i
Godtháb, Nuuk.
Elisa Olsen dvelst nú á sjúkrahúsi
í Godtháb, kjálkabrotin á tveimur
stöðum og brotin á ökkla.
Hún fannst illa til reika í
tröppugangi við biokk. Hún hafði
verið á veitingahúsi með kunningjum
sinum, og var undir áfengisáhrifum
er árásin átti sér staö. Kunningjar
fylgdu henni áleiðis heim, en svo
skildu leiðir.
Elisa tjáði lögreglunni fyrst að
þrír grímuklæddir menn hefðu ráðizt
á sig en hvarf svo frá þeim fram-
burði. Siðar sagði hún að mennirnir
hefðu verið þrír en ekki grímuklædd-
ir.
Lögreglan í Godtháb vinnur enn
að rannsókn þessa dularfulla máls.
Elisa Olsen fannst í öðrum bæjar-
hluta en hún á heima í.
Moses Olsen var staddur f Kanada
er atburður þessi gerðist. Hann kom
strax heim er hann frétti af árásinni.
Ekki er loku fyrir það skotið að
árásin á Elisu Olsen, kunni aö eiga
rætur sínar að rekja til reiði vegna
áfengisskömmtunar, sem ríkir í
landinu. Það var félagsmálaráðherr-
ann, sem stjórnaði þeim aðgerðum.
Elisa Olsen, eiginkona félagsmála-
ráðherrans I heimastjórn Grænlands.