Dagblaðið - 06.03.1981, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 06.03.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1981. Hvað er á seyðiumhelgina? Messur Gudsþjónustur í Reykjavikurprófastsdæmi sunnu- daginn 8. marz 1981, fyrsta sunnudag f föstu. ÁRBÆJARPRESTAKALL:Barnasamkoma í safn- aðarheimili Árbæjarsóknar kl. 10.30 árd. Guðsþjón- usta I safnaðarheimilinu kl. 2. Altarisganga. Sr. Guð- mundur Þorsteinsson. ÁSPRESTAKALL: Messa Norðurbrún 1 kl. 2. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Barnasamkoma kl 10.30 í Breiðholtsskóla. Messa kl. 2. Sr. Lárus Hall dórsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11. Guðs þjónusta kl. 2. Dr. Esra Pétursson flytur stólræðuna og leiðir umræður í safnaðarheimilinu á eftir. Organ leikari Guðni Þ. Guðmundsson. Miðvikudagur 11 marz: Félagsstarf aldraðra kl. 2 og föstumessa kl 20.30. Sr. Ólafur Skúlason. DIGRANESPRESTAKALL: Barnasamkoma i safn aðarheimilinu við Bjarnhólastig kl. II. Guðsþjónusta i Kópavogskirkju kl. 2. Sr. Þorbergur Kristjánsson. DÓMKIRKJAN: Kl. 11 messa. Sr. Óskar J. Þorláks- son fyrrv. dómprófastur. Kl. 2 föstumessa. Litanian sungin. Þess er vænzt að fermingarbörn og aðstand- endur þeirra komi til messunnar. Sr. Þórir Stephensen. FELLA- OG HÓLAPRESTAKALL: Laugard.: Barnasamkoma í Hólabrekkuskóla kL 2 e.h. Sunnud.: Barnasamkoma í Fellaskóla kl. 11 f.h. Guðsþjónusta í safnaðarheimilinu að Keilufelli 1 kl. 2 e.h. Sr. Hreinn Hjartarson. GRENSÁSKIRKJA: Barnasamkoma kl. II: Guðs- þjónusta kl. 2. Altarisganga. Sr. W. Dennis Pederson lútherskur prestur frá Minneappolis, predikar. Al menn samkoma nk. fimmtudagskvöld kl. 20.30. Sr Halldór S. Gröndal. HALLGRtMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Karl Sigur björnsson.Messa kl. 2. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Kvöldbænir og lestur Passíusálma virka daga nema miðvikudaga kl. 18.15. Þriðjud. 10. marz: Fyrirbæna guðsþjónusta kl. 10.30. Beðiðfyrirsjúkum. Miðvikud. 11. marz: Föstumessa 'kl. 20.30. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Kirkjuskóli barnanna er á laugardögum kl. 14. Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson. Messa kl. 2. Sr. Arngrímur Jónsson. Föstuguðsþjónusta fimmtudaginn 12. marz kl. 20.30. Sr. Arngrimur Jónsson. KÁRSNESPRESTAKALL: Barnasamkoma í Kárs- nesskóla kl. 11. Messa kl. 11 fellur niður. Sr. Árni Pálsson. LANGHOLTSKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11, söngur, sögur, myndir. Guðsþjónusta kl. 2. Organ- leikari Jón Stefánsson. Prestur sr. Sig. Haukur Guð- jónsson. Samkoma á vegum Kvenfélagsins fyrir fatl aða kl. 3. Munið samkomur kórsins um helgina. Sóknarnefndin. LAUGARNESKIRKJA: Barnaguösþjónusta kl. II. Messa kl. 2. Altarisganga. Mánud. 9. marz: Fundur með aðstandendum fermingarbarna kl. 20.30 i fundar- sal kirkjunnar. Þriðjud. 10. marz: Bænaguðsþjónusta á föstu kl. 18. Kirkjukvöld kl. 20.30. Biskup lslands, herra Sigurbjörn Einarsson, flytur ræðu. Kirkjukórar Ássafnaðar og Laugarnessafnaðar syngja saman nokkur lög. Sóknarprestur. NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 10.30. Guðsþjón- usta kl. 2. Sr. Frank M. Halldórsson. Kirkjukaffi. Föstuguðsþjónusta fimmtudagskvöld kl. 20.30. SELJASÓKN: Barnaguðsþjónusta að Seljabraut 54 kl. 10.30 árd. Barnaguðsþjónusta i Ölduselsskóla kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta að Seljabraut 54 kl. 2 e.h. Sóknarprestur. FRtKIRKJAN í REYKJAVÍK: Hátíðarmessa kl. 2 i tilefni af 75 ára afmæli Kvenfélagsins. Konur aöstoða við guðsþjónustuna. Frú Auður Guðjónsdóttir predikar. Organleikari Sigurður tsólfsson. Sr. Kristján Róbertsson þjónar fyrir altari. FRlKIRKJAN 1 HAFNARFIRÐI: Kl. 10.30 barna tíminn. Kl. 14 guðsþjónusta í-Skálholtskirkju. Ferðir verða frá Fríkirkjunni um hádegisbilið á sunnudag. Þátttakendur vinsamlegast skrái sig hjá Jóni Mýrdal i síma 53805. Safnaðarstjórn. NÝJA POSTULAKIRKJAN, Háaleitisbraut 58: Messa sunnudag kl. 11 og 17. KIRKJA ÓHÁÐA SAFNAÐARINS: Messa sunnu dagkl. 14. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Kirkjuskóli barn anna kl. 10.30 laugardag. Messa sunnudag kl. 14. Alt- arisganga. Kirkjustarf Alþjóðlegur bænadagur kvenna Guðsþjónusta í Dómkirkjunni í kvöld kl. 20.30. Allir velkomnir. Helgi- og bænastundir í Haf narfirði á föstu 1 kvöld, föstudaginn 6. marz, kl. 20.30 verður haldin helgi- og bænastund í kapellu St. Jósefssystra í Hafn- arfirði. Verður svo á hverju föstudagskvöldi fram að páskum. Helgistundirnar verða í umsjá presta kaþólska safnaðarins og Þjóðkirkjusafnaðarins í Hafn-1 arfirði og er liður í einingarviðleitni kirkjunnar á kristniboðsári. Á föstu er kristnum mönnum ætlað að íhuga bar- áttu Jesú Krists við öfl myrkurs og dauða. Við getum Kvikmyndasýningar um helgina: Myndavíxl hjá Fjalakettinum — kvikmyndin Kvöldstund hjá hennar hátign náði ekki til íandsins Félagar í Fjalakettinum, kvik- myndaklúbbi framhaldsskólanna, verða ekki þeirrar ánægju aðnjót- andi að eiga Kvöidstund hjá hennar hátign um þessa helgi. Kvikmynd Amnesty International með þessu nafni náði ekki til landsins í tæka tið, svo að myndin Begging The Ring, sem átti að vera á dagskránni að viku liðinni, færist fram. í sýningarskrá Fjalakattarins segir svo um myndina Begging The Ring: „Begging The Ring” gerist árið 1916 í einangruðu sveitarfélagi í North-Cornwall. Hún fjallar um ungan glímukappa, Jack Bryant. Jack er að halda upp á átján ára afmæii sitt og er það að tvennu leyti merkur dagur. Hann getur nú i fyrsta sinn tekið þátt i glímukeppninni „Allar þyngdir”. Faðir hans, sem er fyrrverandi, hefur lengi þjálfað hann fyrir hana. En um leið á Jack að skrá sig í herinn. Myndin sýnir þann þrýsting sem fólk verður fyrir og eyðandi áhrif hans á fjölskyldubönd og hefðbundna tryggð. Jack er þröngvað til að skoða stöðu sína sem einstaklingur.” Aukamynd með Begging The Ring verður Bréfberinn, Special Delivery. Þær verða sýndar á morgun og á sunnudaginn. -ÁT- þar leitað huggunar og styrks, fundið tihþess að hann er enn að verki, falið honum erfiðleika og þrautir i trausti þess að upprisan og sigurinn séu hans. I>ess er vænzt að einhver finni hjá sér hvöt til að njóta þessara stuttu en góðu stunda I kapellu systr- anna því þar ríkir mildur blær friðar og blessunar. IJstasötn Sýningar Figst Kjarvalsverk eru til sýnis að Kjarvalsslöðum. LISTASAFN ALÞVÐU, Grensásvegi 16: Sýning á verkum I eigu safnsins. Opið 16—20 virka daga. 14— :20 um helgar. GALLERl LANGBRÓK, Amtmannsstfg 1: Graffk. .textfll, keramík o. fl. Opið 12— 18 alla virka daga. ÁSGRtMSSAFN, Bergstaðastræti 74: Ný sýning á verkum Ásgrlms. Opið þriðjud.. fimmtud. & laugardagkl. 13.30—16. GÁLLERl KIRKJUMUNIR, Kirkjustræti 10: Sigrún Jónsdóttir. batlk, kirkjumunir o. fl. Opið 9—18 virka daga, 9—16 um helgar. GÁLLERt LÆKJARTORG, Hafnarstræti 22: Jóhann G. Jóhannsson. málverk. Islenzkar hljómplötur og Ijóðabækur. utsala. Opið á venjul. verzlunartima. KJARVALSSTAÐIR: Kjarvalssalur: Úr fórum Grethe og Ragnars Ásgeirssonar. Myndir eftir Kjar- val. Gunnlaug Scheving. Höskuld Björnsson. Ásgrim Jónsson, Guðmund Einarsson frá Miðdal o. fl. Vestursalur: Finnur P. Fróðason og Emil Þór Sigurðsson. Ijósmyndir. Opið 14—22 alla daga. DJÚPIÐ, Hafnarstræti (Hornið): Karl Júliusson — Finngálkn og flygildi, skúlptúr. Opið 11—23.30 alla daga. GALLERt SUÐURGATA 7: Engin sýning um helgina. NORRÆNA HÚSIÐ: Kjallari Gunnar R. Bjamason. málverk. pastel. teikningar. Lýkur 8 niais Opið 14— 22 alla daga. LISTMUNAHÚSIÐ: Lækjargötu 2: Engin sýnig um helgina.- Sýning Karls Júllussonar er óvenjulcg fvrir marga hluta sakir, ekki sfst fyrir hugkvæmni listamannisns. Hana er að finna I Djúpinu. Um þessa helgi er engin ástæða til aö láta sér leiðast heldur drifa sig út og niður á Miklatún því á morgun, laugardag, gengst DB fyrir Skíðadegi fjölskyldunnar á Miklatúni við Kjar- valsstaði. Þar er ætlunin að kynna fyrir fólki ágæti skíðagöngu og jafn- framt að sýna fram á að ekki þurfi að leita langt yfir skammt til að komast á skíði. Skíðaganga er heppileg fyrir þá sem njóta vilja útiveru að vetrarlagi, svo framarlega að snjór sé nægur. Miðað við margar aðrar greinar iþrótta þarf heldur ekki að kosta miklu til þess að koma sér upp á- gætum búnaði til að iðka skíðagöngu. Skíðadagur fjölskyldunnar hefst með því að Lúðrasveit Reykjavíkur blæs til leiks við Kjarvalsstaði klukkan tvö. Á eftir leik lúðrasveit- arinnar klukkan 14.15 flytur borgar- stjórinn í Reykjavík, Egill Skúli Ingibergsson, ávarp og um klukkan 14.30 hefst skíðadagurinn af alvöru. Þá verða til taks leiðbeinendur úr Skíðafélagi Reykjavíkur. Þeir munu veita fólki kennslu I undirstöðuat- riðum skiðagöngunnar og ganga með fólki á merktum brautum á Mikla- túni. Fyrir gesti og gangandi verður veitt heitt kakó og kex úr pylsuvagninum, sem verður við Kjar- valsstaði þegar skíðagangan hefst. Fjölskyldan sameinist í skíðagöngunni Skíðaganga er mjög heppileg fyrir unga, sem aldna, og hér er upplagt tækifæri fyrir alla fjölskylduna að drífa sig niður á Miklatún og ganga saman. Útbúnaður til skíðagöngu er einfaldur og allir geta gengið á skíðum, jafnvel þótt skiðin séu komin til ára sinna og séu ekki sérstök gönguskíði. Margir eiga niðri í geymslu gömul skíði og skó sem geta hentað ágætlega til að prófa að hreyfa sig á skíðum. Fólk þarf að athuga að klæða sig vel, en vera þó léttklætt, þannig að fötin hindri ekki hreyfingarnar. Nú er bara að drífa sig út á morgun, koma niður á Miklatún og sýna það að borgarbúar kunni enn að hreyfa sig og komast að raun um að að viða er hægt að stunda útiveru innan borgarlandsins. -JR. Þegar snjórinn er fyrir hendi eru næg tækifæri til að iðka skiðagöngu innan borg- arinnar eins og þessi mynd frá Miklatúni sýnir. DB-mynd: Sigurður Þorri.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.