Dagblaðið - 18.03.1981, Side 2
2
✓
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1981.
Ðna varanlega ástandið er jaf nvægiskerfi:
Bygging þjóðfélagsins verður að
vera samkvæmt lögmálum náttúrunnar
—eyðilegging lífríkisins stafar af því að maðurinn hefur raskað jaf nvægi náttúrunnar með alls
konar eiturefnum, mengun og of nýtingu jarðvegsins
G.J. skrifar:
Markmiðið með þessu bréfi er að
reyna að víkka út sjóndeildarhring
lesandans, út fyrir þröngsýna tilveru
nútímaþjóðfélags, sem markast af
þvi að hinir ýmsu hagsmuna- og
valdahópar rugla mat einstaklingsins
á hvað sé rétt og rangt með ýmiss
konar áróðri fyrir sinum málum.
Eina leiðin til úrbóta er að gera sér
fyllilega grein fyrir hinu raunverulega
vandamáli en það næst aðeins með
því að líta á málið frá algjörlega hlut-
lausum sjónarhóli (þ.e. án tillits til
stéttar eða annarra hagsmuna).
Það grundvallarkerfi sem öll
nútimaþjóðfélög eru byggð upp á,
lu Is; invð ferli hvíta mannsins, þetta
kerli einkennist af útþenslu.
Hagvöxtur sem mæli-
kvarði á f ramfarir
Ríkjandi valdhafar í hverju landi
halda í þá skoðun að hagvöxtur sé
eina raunhæfa leiðin og eini mælL
kvarðinn á framfarir í þjóðfélaginu.
En hagvöxtur kallar á hagvöxt og
hvetur það stjórnvöld til áframhald-
andi útþenslu.
Ég ætla að nefna 3 dæmi um það
sem stuðlar að útþenslu.
1. Með aukinni fólksfjölgun fylgir
að efia þarf atvinnulíf (og er þá
miðað við störf sem samræmast
okkar nútíma mælikvarða hvað
gæði snertir), einnig er miðað við
að útgjöldin á hvern vinnandi
mann minnki ekki (þ.e. útgjöld
sem þarf til daglegra þarfa minnki
ekki) því að ef það gerist þá
minnkar framleiðnin en það er
einmitt hún sem er notuð sem
mælikvarði á hversu blómlegt at-
vinnulifið telst.
2. Einnig orkar það sem útþcnslu-
aukning þegar stefna margra stór-
fyrirtækja (bæði rikisrekinna og
þeirra sem eru í einkaeign) er að
mynda stór eilífðarfyrirtæki (þ.e.
samsteypur). Þetta fer þannig
fram að nauðsyn gerist á rekstrar-
afgangi til að halda fjárfestingu
Þá sem fylgdust mefl þeim ágæta þætti Landnemarnir rekur eflaust minni til þess að indiánarnir ól.uflustútþenslu hvita
mannsins. Bréfritari segir öll nútímaþjóðfélög einkennast af útþenslu og þetta ferli hafi hafizt með hvíta manninum.
áfram og hefur þetta hin
hvetjandi eða örvandi áhrif á hag-
vöxtinn.
3. Enn eitt atriðið sem stuðlar að út-
þenslunni er að til þess að
viðhalda trausti manna á efna-
hagskerfinu og koma þannig í veg
fyrir brask og spákaupmennsku
þarf að auka hagvöxtinn. Ef þetta
ekki tekst þá minnkar
ráðstöfunarfé atvinnuveganna,
þessu fylgir svo aftur minnkandi
hagvöxtur en aukið atvinnuleysi.
Vandinn er að valdamennirnir
munu ekkert raunhæft gera fyrr en
almenningsálitið krefst þess af þeirri
einföldu ástæðu að sá valdamaður
Hálfhúseign
Til sölu er hálf húseign í Norðurbænum í Hafnarfirði, samtals að flat-
armáli um 210 ferm. íbúðarhæð með 4 svefnherbergjum m.a. Eignin er
öll hin vandaðasta að gerð. í kjallara er m.a. ákjósanleg aðstaða til
dægrastyttingar eða setustofa er á auðveldan hátt er hægt að tengja
aðalhæðinni. Eignin getur verið laus til afnota innan skamms tima.
Rúmgóður bílskúr fylgir. Bein sala.
Upplýsingar í síma 22870.
Embýtishús -
raðhús
óskast á leigu á Seltjarnarnesi, í vesturbæ eða
á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Vinsamlegast
hringið í síma 12902.
Verzlunarhúsnæði
Óska eftir að taka á leigu verzlunarhús-
næði, 70—80 ferm, við Laugaveg (á bil-
inu Kjörgarður — Hlemmur). Upplýs-
ingar hjá auglþj. DB í síma 27022 eftir kl.
13 H-565.
sem er á móti þvi, helzt ekki lengi í
embætti.
Verðmætasóun á
kostnað framtíðarinnar
Afleiðingin af þessu öllu er meðal
annars verðmætasóun á kostnað
framtíðarinnar (þ.e. framtíðin geldur
fyrir þessa sóun) og ef þetta er látið
ganga svona áfram þá endar það
örugglega með: hungursneyð, far-
sóttum, kreppu eða styrjöld.
Spurningin er-aðeins hvenær?
Helzt hefur verið haldið uppi að
styrjöld gæti orðið banabiti
siðmenningarinnar (og yrði það óhjá-
kvæmilega kjarnorkustyrjöld), en
það ber að vara sig á þessari full-
yrðingu vegna þess að hún vekur upp
andvaraleysi hjá fólki af þeirri á-
stæðu að það hefur enga trú á að til
kjarnorkustyrjaldar dragi, þvi finnst
það ástand sem myndi skapast svo
fjarlægt og óraunverulegt. Kreppa er
til dæmis jafnlíklegur, ef ekki
líklegri, kostur en styrjöld þar sem til
hennar kemur hvort eða er ef núver-
andi sóun auðlinda heldur óbreytt á-
fram, að maður tali nú ekki um ef
hún ykist. Allir þekkja dæmið um
olíuna en það verður tiltölulega
auðleyst vandamál miðað við þau
sem eiga eftir að fylgja í kjölfarið,
svo sem eyðsla jáms og ekki sizt sú
eyðilegging sem hefur átt sér stað á
lífrikinu.
Með áframhaldandi notkun
málma, munu flestir verða uppurnir
á fyrstu áratugum næstu aldar og
ekkert gerviefni kemur algjörlega í
þeirra stað.
Jafnvægi náttúrunnar
hefur verið raskað
Eyðilegging lifríkisins stafar af því
að maðurinn hefur raskað jafnvægi
náttúrunnar með alls konar eitur-
efnum, mengun og ofnýtingu
jarðvegsins. Við getum tekið sem
dæmi notkun áburðar og skordýra-
eiturs, notkun þessara efna eykst
stöðugt, einungis til að halda sömu
framleiðni.
Til þess að úrbætur geti átt sér
stað, verðum við meðal annars að
gera okkur grein fyrir og sætta
okkur við eftirfarandi atriði:
1. Allt á sér endi og óendanleg út-
þensla getur ekki átt sér stað, sér-
staklega þar sem umhverfið þenst
ekki út um leið.
2. Eina varanlega ástandið er jafn-
vægiskerfi og er það jafnframt
lögmál náttúrunnar og byggist
meðal annars á nýtni og hófsemi í
eyðslu verðmæta.
3. Engin verðmætasköpun á sér
stað í orðsins fyllstu merkingu, eins
og svo margir virðast halda,
aðeins er um að ræða tilflutning
efnis frá einum stað til annars.
Við erum öll samsek
Ég trúi þvi ekki að menn ætli sér
að sitja aðgerðalausir þar til öll
ósköpin dynja yfir, sem yrði í formi
styrjaldar, kreppu eða einhvers
annars. Því að ef við erum ekki
varkár og hrunið kemur snöggt yfir
mannkynið, þá er eins víst að öll
tækifæri til betrumbóta gangi okkur
nú úr greipum, í stað breyttra lífs-
venja ella. Nú kann einhver að segja
sem svo að ég geri of mikið úr
hlutunum, að langt sé i það að á-
standið verði eins alvarlegt og ég lýsi,
en hvað er aukið atvinnuleysi,
aukið vopnakapphlaup, aukin
spenna á milli stórveldanna, stórfelld
aukning á eyðileggingu náttúrunnar,
annað en merki um að þessi þróun sé
þegar hafin og hvað er það við
þjóðfélag sem réttlætir allt þetta? Við
verðum einnig að athuga að það að
vera neytandi stuðlar að því að þessi
þróun haldi áfram þannig að enginn
er saklaus.
Þeim sem æskja þess að fræðast
meira um þessi mál ráðlegg ég að lesa
bókina Heimur á helvegi, í þýðingu
Bjarna Helgasonar, gefin út af
Almenna bókafélaginu.
Sjónvarp: Vaka
Gerningar! Hvað er nú það?
— sjónvarpið á ekki að kosta upptöku á svona vitleysisgangi
Vinnufélagar hringdu:
Við erum hérna nokkrir vinnu-
félagar, alveg stórhneykslaðir á því
sem við sáum í Vöku 11. marz sl.
Þessi þáttur átti að fjalla um nýlist.
Eina skýringin sem sjónvarpsáhorf-
endur fengu var sú að þarna færu
fram gerningar, hvað sem það nú er.
Við álitum að sjónvarpið eigi ekki
að kosta upptöku á svona villeysis-
gangi, allra sizt á meðan verið er að
tala um fjárskort.
Raddir
lesenda
GÍSLI SVAN
EINARSSON
V Hérer verið að framkvæma gerning
1R
DB-m.vnd Einar Ólason.