Dagblaðið - 18.03.1981, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1981.
i
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
„Sannleikur-
inn” um
Presley
Kvikmynd hefur verið gerð um ævi
rokkstjörnunnar Elvis Presley og ef
marka má kvikmyndina hafa fimm síð-
ustu ár lífs hans ekki verið neinn dans á
rósum. í myndinni er það tímabil í lífi
hans látið einkennast af kynsvalli,
eiturlyfjaneyzlu, taugaveiklun, gráti
o.s.frv.
Linda Thompson, sem bjó með
Presley síðustu fjögur ár ævi hans mun
hafa veitt nauðsynlegar upplýsingar við
gerð myndarinnar og aðstoðað þannig
við gerð handritsins. „Hann kvað upp
dauðadóm yfir sjálfum sér með stöðugt
aukinni fíkniefnaneyzlu og töfluáti,”
sagði hún.
Hundrað þúsund pólskir timburverkamenn hóta verkfalli:
Stjómvöld kvarta undan nær
daglegum verkföllum
— samkomulag Einingar og pólskra stjórnvalda um þriggja mánaða vinnuf rið
hefur ekki megnað að stöðva verkföllin í landinu
Hundrað þúsund verkamenn i
timburiðnaði i Póllandi hafa hótað
verkfalli í næstu viku og þar með
komið fram með enn eina ógnunina
við samkomulag Einingar og stjórn-
valda um þriggja mánaða vinnufrið í
landinu.
Verkamennirnir hóta einnar
klukkustundar verkfalli á mánudag
og allsherjarverkfalli á miðvikudag.
Þessi yfirlýsing var gefin út í
Wrocklaw i gær um svipað leyti og
talsmenn verkamanna í iðnaðar-
borginni Radom komust að sam-
komulagi við stjórnvöld um að af-
stýra áður boðuðu verkfalli þar.
Yfirvöld bera sig illa út af því að
samkomulag þeirra við Einingu um
þriggja mánaða vinnufrið í landinu sé
ekki virt og standi þau nú nær dag-
lega frammi fyrir nýjum verkfalls-
hótunum. Þau lýstu því jafnframt
yfir að ekkert hefði miðað í sam-
komulagsátt við herskáa bændur,
sem tekið hafa höfuðstöðvar
kommúnistaflokksins í Bydgoszez í
sínar hendur og krefjast þess að
sjálfstæð verkalýðsfélög bænda verði
viðurkennd.
Verkamenn í timburiðnaðinum
segja að þeir boði til verkfalls nú
vegna þess að skógræktar- og timbur-
málaráðherra landsins hafi ekki
staðið við samkomulag sem undir-
ritað hafi verið 18. desember síðast-
liðinn. Ekki var skýrt frekar hvað
við væri átt.
Verkamönnum í Radom tókst
með verkfallshótunum sínum að
knýja fram afsagnir þriggja af æðstu
embættismönnum héraðsins vegna
hlutdeildar þeirra í að bæla niður
mótmæli verkamanna fyrir fimm
árum.
Landsráð Einingar á fundi undir forsæti Lech Walesa. Svo virðist sem sam-
komulag Einingar og stjórnvalda um þriggja mánaða vinnufrið í landinu hafi
ekki megnað að afstýra verkföllum og hafa stjórnvöld látið I Ijós-áhyggjur
sinar vegna þess og bent á að þjóðarframleiðsla Pólverja hafi minnkað um tiu
prósent á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs.
El Salvador:
Skotárás á banda-
ríska sendiráðið
Bandariska sendiráðið í San
Salvador varð fyrir skotárás í gær og er
það i annað skipti á skömmum tíma
sem þaðgerist.
Tveir menn skutu um tíu skotum á
sendiráðið úr bifreið sem keyrði á
nokkrum hraða framhjá. Enginn
maður slasaðist i árásinni að sögn
blaðafulltrúa sendiráðsins.
Ekki er vitað hvaða hópur hefur
staðið að baki árásinni, sem var gerð
aðeins fjörutíu mínútum eftir að blaða-
mannafundur var haldinn í húsinu.
Fimmburar við
góða heilsu
Fimmburar fæddust í Rochester-
sjúkrahúsinu i New York í gær.
Fimmburarnir sem fæddust rúmum
mánuði fyrir tímann eru sagðir við
góða heilsu.
Póíiand að verða
andsemítísk þjóð
—segir Simon Peres, leiðtpgi
st jórnarandstöðunnar í ísrael
Shimon Peres, leiðtogi stjórnarand-
stöðunnar í ísrael, sagði í gær að
Pólland væri að verða andsemítísk'
þjóð.
Peres, sem sjálfur er fæddur , í
pólska héraðinu Novogrodek, sem
núna er hluti Sovétríkjanna, sagði á
fundi með gyðingaleiðtogum i London
í gær, að ,,hin hræðilega hefð” and-
semítisma væri nú að ryðja sér til rúms
á nýjan leik í Póllandi eins og annars
staðar í Evrópu.
Á fundi þjóðernissinna i Varsjá í
síðustu viku var hvatt til árvekni
gagnvart hættunni á því að ,,ný
kynslóð Zíonista” kæmist til valda i
Póllandi, að því er Peres sagði.
Áskríftarsími
Eldhúsbókarinnar
24666
ELDHÚSBÓKIN
I ri N jimolu 14