Dagblaðið - 18.03.1981, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1981.
(I
.9
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
i
Richard Dreyfuss
leikur Einstein
—íkvikmynd sem Disney-fyrirtœkið gerir um œvi
vísindamannsim
Rlchard Dreyfuss fagnar óskarnum
sem hann fékk fyrir leik sinn i The
Goodbye Girl.
Richard Dreyfuss hefur gert samn-
ing við Disneyfyrirtækið um að leika
Albert Einstein í kvikmynd sem fjalla á
um ævi vísindamannsins. Einstein, sem
lézt árið 1955, er án efa mesti vísinda-
maður á þessari öld og sumir telja hann
þann mesta frá upphafi. Þekktastur er
hann fyrir afstæðiskenningu sína.
Richard Dreyfuss varð fyrst verulega
þekktur fyrir leik sinn í American
Graffity. í kjölfarið kom Close En-
counters of the Third Kind og fyrir leik
sinn í The Goodbye Girl fékk hann
óskarsverðlaun sem bezti leikari ársins
1978.
Leiður ávani Diönu Spenœr:
Hún nagar
neglumar
Albert Elnstein (1879—1955).
Diana Spencer, kærastan hans
Kalla, hefur vist aðeins einn galla —
hún nagar neglurnar.
Þegar trúlofunin var tilkynnt
reyndi hún allt til þess að fela þetta
leyndarmál fyrir sjónvarpsvélum og
ljósmyndurum. En hún næstum því
gleymdi sér þegar hún var beðin að
sýna ljósmyndurum trúlofunarhring-
inn. Hún rétti fram höndina en
skyndilega beygöi hún fingurna og
faldi þannig neglurnar.
Náinn vinur hennar segir að hún
hafi nagað neglurnar eins lengi og
hann muni eftir. „Hún nagar þær
Diana faldi neglurnar þegar hún
sýndi fréttamönnum trúlofunar-
hringinn.
þegar hún er taugaóstyrk eins og
margir aðrir gera,” segir hann.
Hljómsveitin Police, Stewart Copeland, Sting og Andy Summers.
George Harrison
gerir kvikmynd
—söngvari Police íaðalhlutverkinu
Tríóið Police er í þann veg-
inn að missa aðalsöngvara
sinn, Sting, í kvikmyndabrans-
ann. Sting verður aðalstjarnan
í kvikmynd sem George Harri-
son ætlar að gera og nefnist
While My Guitar Gently
Weeps. Kvikmyndatökur
hefjast þó ekki fyrr en Police
hefur lokið tónleikaför sem
búið er að skipuleggja seinna á
árinu.
Stjáni blái
slærígegn
— þráttfyrirlélega
dóma hjá kvikmynda-
gagnrýnendum
Þrátt fyrir að kvikmyndin
um Stjána bláa hafi fengið
Ballettflokkur
líkir eftir
íþróttagreinum
Það eru víst engar ýkjur þegar sagt ingamenn, glímumenn, lyftingamenn
er að Bandaríkjamenn geti fundið og fimleikamenn og setur á svið grein
upp á öllu. Nú eru þeir farnir að sem kalla mætti ballettsport.
blanda saman ballett og íþróttum. Á myndinni sem fylgir sjáum við
Að vísu má segja að þessar tvær tvo meðlimi ballettfiokksins reyna
greinar blandist í isdansi og jafnvel körfuskot' gegn Julius Erving, eða
fimleikum. Dr. J eins og hann er oftast nefndur,
Ballettflokkur einn í Bandaríkjun- en hann er einn frægasti körfuknatt-
um hefur fengið til liðs við sig skylm- leiksmaðurinn í Bandaríkjunum.
Ekki tókst listdönsurunum að skora hjá Dr. J.
Robin Williams i hlutverki Stjána bláa.
mjög lélega dóma hjá gagnrýn-
endum vestanhafs hefur hún
engu að síður slegið í gegn.
Fyrsta mánuðinn sem hún var
sýnd komu inn 32 milljónir
doilara í tekjur af henni og
stefnir myndin í flokk bezt
sóttu mynda frá upphafi. Að
vísu er stór hluti áhorfenda
börn sem fá aðgöngumiða á
hálfvirði.
diet pepsi
MINNA EN EIN
KALÓRÍA í FLÖSKU
Sanitas
interRent
car rental
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri: Tryggvabf114 - S 21715, 23515
Reykjavík: Skeifan 9 - S 31615. 86915
^esta úrvalið, besta þjónustan
Við útvegum yður afslátt
á bílaleigubílum erlendis
i/M
MED S
!IIBfei4WIUWaHI»
SKÓLAVÖRDUSTÍG 41 - SÍMI 20235.