Dagblaðið - 18.03.1981, Side 10
10
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1981.
Herdís Þorvaldsdóttir með leikurum Leikfélags Sandgerðis.
DB-mynd Magnús Gislason.
Næstum orðin
úti á leið á
fyrstu æfingu
— Herdís Þorvaldsdóttir leikstýrir Svef nlausa
brúðgumanum hjá Miðnesingum
,,Ég var næstum því orðin úti á Mið-
nesheiðinni á leið minni á fyrstu æfing-
una hjá Leikfélagi Sandgerðis,” sagði
Herdís Þorvaldsdóttir sem leikstýrir
Svefnlausa brúðgumanum hjá þeim
Miðnesingum. „Skafrenningurinn
hindraði allt útsýni svo ég varð að
stöðva bifreiðina og láta fyrirberast þar
til áætlunarbíllinn kom. Ég fylgdi
honum svo eftir til Sandgerðis, sá alltaf
rauðu afturljósin,” sagði Herdís sem
lét erfiðleikana ekkert aftra sér frá því
að halda áfram með Svefnlausa brúð-
gumann en hann hyggjast Sand-
gerðingar frumsýna á fimmtudags-
kvöldið. „Mér hefur likað alveg sér-
staklega vel, leikfólkið í Sandgerði
verður að leggja mikið aukaálag á sig
til að létta skammdegisdrunganum af
samborgurum sínum og leikverkið, sem
er bland af ærsla- og gamanleik, er ein-
mitt tilvalið verk til slíkra hluta.” emm
Stofnfundur Félags smábátaeigenda í Kópavogi 10. marz sl. Bátaeigendur í
bænum telja aðstæður sinar með bátana mun lakari en gerist i Hafnarfirði. Og í
Reykjavík er lika verið að bæta aðstöðu smábátaeigenda.
DB-mynd Sig. Þorri.
Kópavogur:
Smábátaeigendurn-
ir illa staddir
— og stofnuðu hagsmunasamtök
„Okkur telst til að Kópavogsbúar
eigi 40—50 báta og menn eru eiginlega
með þá í höndunum. Bryggjuaðstaðan
er slæm, sumir taka bátana í land eftir
hverja ferð, aðrir notast við legufæri.
Við vonumst til að bæjaryfirvöld hafi
skilning á vandamálinu og bæti
aðstöðuna fyrir okkur. Ástandið er
betra beggja vegna við okkur: í Hafn-
arfirði er aðstaðan góð og í Reykjavik
er verið að bæta hana. ”
Eðvarð Árnason stjórnarmaður ný-
stofnaðs Félags smábátaeigenda í
Eskifjörður:
Kópavogi hafði þetta að segja í samtali
við blaðið. Félagið var stofnað 10.
marz og er opið þeim sem áhuga hafa á
smábátum í Kópavogi, auk smábáta-
eigendanna sjálfra. Félagið er stofnað
til þess að stuðla að bættri aðstöðu
fyrir báta, jafnt hafnaraðstöðu sem
öðru sem varðar öryggismál. Kjörin
var 5 manna stjórn og formaður
hennar er Friðrik Pétursson Borgar-
holtsbraut 20, sími 41838. Áhugafólk
og þeir sem vilja ganga til liðs við
félagsskapinn hafi samband við
Friðrik. -ARH
Fjölmennt á skíða-
landinu við Oddsskarð
— í blíðskaparveðri og sól um helgina
Um helgina voru hundruð manna,
bæði ungir og gamlir, á skíðum uppi
við Oddsskarð í blíðskaparveðri og sól.
Sl. hiánudag kom Hólmanes inn með
I80tonnafþorski.
Háifoss var hér sl. sunnudag og tók
1400 tunnur af saltsíld frá söltunar-
stöðvunum Friðþjófi og Sæbergi. Síld
þessi fer á Rússlandsmarkað.
- Regína, Eskifirði.
Stund f strandi
—staldrað við á Skógasandi hjá Kristni í Björgun og
mönnum hans sem eru að gera Sigurbáru VE sjóklára
á nýjan leik og ætla sér að koma henni á f lot á næstunni
Það er ekki hægt að segja að
Maríuhliðið, gamla lendingin þeirra
Sólheimamanna, hafi tekið vel á
móti Sigurbárunni þegar hún tók
land þar á dögunum. Sigurbáran
liggur nú á Skógasandi skammt
vestan ósa Jökulsár á Sólheimasandi
og ber glögg merki eftir óblíð faðm-
lög við Merkjastein sem er stór klöpp
sem stendur upp úr fjöruborðinu
vestan við ós Jökulsár.
Við fórum í heimsókn til Kristins
Guðbrandssonar og manna hans á
Skógasandi, þar sem þeir vinna að
þvi að gera Sigurbáru sjóklára á nýj-
an leik, en Björgun hf. keypti skipið
á dögunum af Tryggingamiðstöð-
inni. Kristinn er þarna við fimmta
mann frá Björgun en til viðbótar eru
þar við vinnu þrír heimamenn.
Þegar við renndum niður í fjöruna
um kaffileytið á mánudaginn voru
þeir björgunarmenn í óðaönn að
strengja víra en digrir stálvírar liggja
úr skipinu í land. Úr stefni skipsins
eru strengdir vírar i stóra og mikla
fimmskorna blökk en vírar úr henni
voru síðan festir í stóra jarðýtu.
Þegar jarðýtan togaði í margfaldaðist
aflið þannig að togkrafturinn i skipið
varð langt á annað hundrað tonn.
„Við vildum gjarna ná skipinu
ofar í fjöruna,” sagði Kristinn þegar
hann klifraði ásamt mönnum sínum í
Kristinn Guðbrandsson I Björgun
stjórnaði liði sinu á Skógasandi.
„Sigurbáran verður tilbúin i slaginn
aftur í haust,” sagði hann. „Þetta er
upplagt skip handa þeim á Djúpa-
vogi,” bætti hann síðan við.
Óskar Kristinsson útvegsbóndi úr Eyjum og áður skipstjóri og eigandi Sigur-
bárunnar sem er í baksýn: „Þeir mættu kíkja betur á skerin hérna fyrir utan og
setja þau í sjókortin,” sagði Óskar, „en honum Kristni verður engin skota-
skuld úr að kippa skipinu á flot, hann er ekki þekktur fyrir að gefast upp.”
land, „það er að koma háflóð og það
er hugsanlegt að öldurnar ýti aðeins
við skipinu og með því að hafa vírana
strekkta gæti það þokazt eitthvað
upp i fjöruna.”
Þegar ýtan var búin að strekkja á
vírunum og sumir manna Kristins
höfðu fengið fótabað við umstangið
við vírana sagði Kristinn þeim að fara
heim I hjólhýsið, sem er bækistöð
þeirra I fjörunni, og fá sér kaffi. Það
væri hvort eð er ekkert hægt að gera
fyrr en um kvöldmatinn þegar farið
væri að falla út aftur.
Allt gengið vel
fram að þessu
Við stöldruðum við í fjörukambin-
um með Kristni og spurðum hann
hvernig verkið gengi.
„Þetta hefur gengið vel fram að
þessu,” sagði Kristinn, „við höfum
fengið ágætt veður nema rétt fyrsta
daginn. Við kláruðum í gær (sunnu-
dag) að þétta stjórnborðshliðina, og
núna förum við að vinda okkur í að
halla því yfir svo við komumst að
bakborðshliðinni en þar eru mestu
skemmdirnar.”
Kristinn sagði að búið væri að
koma annarri ljósavélinni í lag og nú
yrði farið að huga að því að koma
hinni ljósavélinni og aðalvélinni í
gang. Einnig þyrfti að lagfæra raf-
lagnir, en sjór komst í rofabox sem
brann yfir, en sennilega yrði hægt að
millitengja rafmagnið í töflu sem
notuð er þegar rafmagn er fengið úr
landi i höfnum og á þann hátt koma
rafmagni á skipið.
Við spurðum Kristin hvort hann
væri búinn að gera upp við sig
hvernig hann ætlaði að ná skipinu á
flot. Hann sagðist fyrst ætla að gera
það sjóklárt en hann ætti sjálfur skip
sem hægt yrði að nota til að kippa í
það, bæði Perlu og Sandey, en það
kæmi betur í Ijós seinna hvað yrði.
Kristinn sagðist halda að skipið
væri i kringum tvö hundruð tonn að
þyngd svo dálítið afl þarf til að
hreyfa það til. Siðan þeir tóku til við
björgun skipsins hefur það færzt
undan sjógangi um 50 metra til
vesturs og á meðan við stöldruðum
við seig skipið aðeins á stjórnborðs-
hliðina undan bárunni.
Þegar við stóðum þarna í rign-
ingarsuddanum ásamt Kristni kom
þar að lítill pallbill með V-númeri.
Þarna var kominn Óskar Kristinsson
skipstjóri og útvegsbóndi úr Eyjum