Dagblaðið - 18.03.1981, Síða 15
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1981.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
15
I)
1 .
AFTURELDING AFRAM
—sigraði Ármann 19-18 íbikarkeppni HSÍ ígærkvöld
Afturelding úr Mosfellssveit tryggði,
sér sæti I átta-liða úrslitum bikarkeppni
óhjákvæmilega að mæta. Okkar mönnum
gengur því illa að læra af reynslunni.
Tökum Pólverja sem dæmi. Fyrir 11 ár-
um sigruðu íslendingar þá í HM i Frakk-
landi (í Metz). Síðan hefur landslið okkar
staðið í stað, eða jafnvel farið aftur á bak,
á meðan Pólverjar hafa gengið götuna
fram eftir veg og hafa nú á að skipa einu
sterkasta handknattleiksliði í heiminum í
dag, með réttri uppbyggingu en ekki axar-
sköftum. Efniviðurinn er nægur í
íslenzkum handknattleik en möguleikarnir
til að nýta hann í landsliði eru minni en hjá
öðrum þjóðum, aðallega vegna fjárskorts.
Á meðan svo er getum við hvorki krafizt né
vonazt eftir því að geta skákað hinum betri
þjóðum i alvörukeppni, eins og HM. Ferð
islenzka landsliðsins i B-keppnina var hér á
síðunni nefnd helförin (hefði allt eins getað
verið nefnd óvænt endalok) og þótti
sumum of fast að kveðið. Svo er ekki ef
haldið verður áfram með málefni landsliðs-
ins sem hingað til. Vilji landsmenn eignast
sterkt landslið verður að sjá HSÍ fyrir
nauðsynlegu fjármagni til starfsemi sinnar.
Peningar eru jú afl allra hluta segir
máltækið. Handknattleiksunnendur gætu
því hæglega lagt sitt af mörkum með
frjálsum framlögum og vonandi skila 2
þúsund umslögin sér aftur til HSÍ með ríf-
legum upphæðum svo hægt verði að
byggja upp nýtt og sterkt lið úr rústum B-
keppninnar.
Þótt handknattleiksmenn okkar ynnu
ekki glæsta sigra í Frakklandi þá hefur ís-
land verið oft í fréttum þar í landi, ekki
hvað sízt þjóðhöfðinginn okkar sem flestir
vissu einhver deili á. Vissulega yljaði það’
okkur um hjartaræturnar eins og það kom
illa við, að minnsta kosti mitt þjóðernis-
hjarta, að heyra hvernig þjóðsöng okkar
var misþyrmt fyrir landsleikina. Betra var
að sleppa flutningi hans heldur en að spila
aðeins brot af honum í allra hraðasta takti.
-emm
Stjórn HSÍ hélt fund með landsliðs-
mönnum, forráðamönnum handknatt-
leiksdeilda félaganna og fleiri á Hótel
Loftleiðum á laugardag. Upphaflega
áttu blaðamenn að fá að sitja fundinn
en á siðustu stundu var hætt við það og
þeim meinuð seta á fundínum. Þó
fundurinn stæði f margar klukku-
stundir kom þar ekkert marktækt fram
— bókstaflega ekkert. Niðurstaða eng-
in. Myndin til hliðar var tekin i fundar-
byrjun.
DB-mynd S.
HSÍ í gærkvöld, þegar liðið sigraði
Ármann 19—17 í Laugardalshöll.
Tvisýnn og spennandi leikur en ekki að
sama skapi vel leikinn. Lið
Aftureldingar tryggði sér sigurinn á
lokaminútum leiksins.
Mikið jafnræði var lengstum með
liðunum. í hálfleik var staðan 12—12
og um miðjan siðari hálfleikinn stóð
17—17. Þá kom langur kafli, rúmar tíu
mínútur og ekkert mark var skorað.
Loks fimm mín. fyrir leikslok tókst
Aftureldingu að ná forustu 18—17.
Komst tveimur mörkum yfir 19—17,
Evrópuleikir
Ellefu Evrópuleikir í knattspyrnu
verða háðir i kvöld — allir nema leikur
Real Madrid og Spartak Moskvu, sem
verður á morgun. í Evrópubikarnum
leika CSKA, Sofia-Liverpool, Ostrava-
Baycrn Munchen, Rauða stjarnan-
Milano. t UEFA-keppninni leikur
Standard f Köln, Lokeren á heimavelli
við AZ ’67. Þá á Ipswich heimaleik við
St. Etienne. •
Hannesfer
til Ástralíu
„Okkur þykir þetta vera það mikill
viðburður að full ástæða sé til að sækja
þennan fund,” sagði Hannes Þ.
Sigurðsson, varaforseti ÍSÍ, sem heldur
til Ástralíu innan skamms til að sitja
stofnfund Alþjóðasambands íþrótta-
sambanda. Þetta mál hefur verið í
deiglunni um nokkurt skeið og
Evrópuþjóðirnar vildu sýna að þær
væru reiðubúnar tii samstarfs við hinar
þjóðir heimsins með því að halda stofn-
fundinn í Melbourne. -SSv..
FH vann
íslandsmeistarar FH í kvenna-hand-
knattleiknum sigruðu Ármann 24—15 í
bikarkeppni HSÍ í Laugardalshöll í
gærkvöld.
þegar þrjár mín. voru til leiksloka.
Kappinn gamalreyndi, Björn
Jóhannesson, minnkaði muninn í 19—
18, þegar um 40 sekúndur voru til leiks-
loka. Mikil læti lokasekúndurnar.
Leikið maður á mann. Ármenningar
náðu tvivegis knettinum og Björn
reyndi langskot, þar sem Emíl
Karlsson, markvörður Aftureldingar,
hafði farið úr markinu til að gæta
fremstu manna Ármanns. En lánið var
ekki með Birni. Hann kastaði
knettinum yfir Emil en líka markið í
báðum tilfellum. Mosfellingar stóðu
því uppi sem sigurvegarar í lokin.
-hsím.
Þetta er sigurlið Grunnskóla Njarðvikur f skólakeppni KKÍ fyrír
stúlkur á aldrínum 12—15 ára. Báru dömurnar úr Njarðvik sigur-
orð af stöllum sinum úr Flensborg i Hafnarfirði, Grunnskólanum i Borgarnesi
og á Sauðárkróki.
Á myndinni eru i aftarí röð frá vinstrí: Marínó Einarsson, Berglind Bjarna-
dóttir, Sigurdís Gunnarsdóttir, Vigdfs Þórísdóttir fyrirliði, Guðbjörg L. Jóns-
dóttir, Margrét Örlygsdóttir og Guðmundur Sigurðsson. Fremri röð f.v.:
Linda Magnúsdóttir, Kolbrún Garðarsdóttir, Hulda Lárusdóttir, Laufey
Einarsdóttir og Ragnhildur Ingólfsdóttir. DB-mynd S.
Norwich lag-
aði stöðuna
— Sigraði Middlesbrough í 1. deild í gær
Norwich City náði í tvö dýrmæt stig
gegn Middlesbrough á heimavelli f gær
í 1. deildinni ensku. Sigraði 2—0 og
komst upp fyrir Leicester. Er aðeins
einu stigi á eftir Brighton, sem er f
fjórða neðsta sætinu. Gamli, enski
landsliðsgarpurinn Joe Royle skoraði
bæði mörk Norwich i fyrri hálfleik. Þá
hafði Norwich yfirburði. í siðari hálf-
leiknum snerist dæmið við. Middles-
brough sótti mjög en lánsmaðurínn frá
QPR, Chris Wood, varði allt sem á
mark Norwich kom. Stóð sig frá-
bærlega vel.
Southampton vann auðveldan sigur
á Everton, 3—0. Kevin Keegan, sem
átti mjög góðan leik, skoraði strax á
10. mín. Hann átti sendingu á Graham
Baker, sem skoraði annað markið á 63
mín. Fimm mín. fyrir leikslok skoraði
Steve Williams þriðja mark
Dýrlinganna. Enski lands-
liðseinvaldurinn Ron Greenwood var
meðal áhorfenda. Þá vann Birming-
ham Úlfana 1—0. Varnarmaðurinn
Kevan Bróadhurst skoraði eina mark
leiksins.
Úrslit urðu þessi:
1. deild
Birmingham-Wolves 1—0
Norwich-Middlesbro 2—0
Southampton-Everton 3—0
2. deild
Swansea-Bristol City 0—0
3. deild
Carlisle-Swindon 2—1
Charlton-Millwall 0—0
Fulham-Chester 0—I
Hull-Colchester 0—1
Plymouth-Huddersfield 0—0
4. deild
Dariington-Wimbledon 4—1
Við sigurinn komst Southampton i
þriðja sæti í 1. deild. Hefur 42 stig eftir
34 leiki. Nottingham Forest og WBA
hafa 41 stig eftir 33 leiki og Liverpool
40stig eftir 32 leiki. -hsim.
„Borgum ekki
f erðir og
uppihald”
— sagði Guðmundur
Þórarinsson
„Það er útilokað að við getum tekið
við bandarisku lyftingamönngnum á
þeim kjörum sem þeir vilja,” sagði
Guðmundur Þórarinsson, formaður
Lyftingasambandsins, við DB í gær.
„Þessir karlar vilja að við borgum fyrir
þá ferðir og uppihald en það kemur
ekki til greina af okkar hálfu. Við
munum tjá þeim hver okkar afstaða í
þessu máli er. Hins vegar erum við
reiðubúnir til að koma á móti fyrir þá
ef þeir vilja koma,” sagði Guðmundur
ennfremur. -SSv.
Fallbaráttan íHafnarfirði f kvöld:
Sigur Hauka nær tryggir
þeim 1. deildarsæti áfram
Haukar mæta KR-ingum í þriðja
leiknum i fallbaráttu 1. deildarinnar og
ef marka má úrslitin i þeim tveimur
leikjum, sem þegar er lokið, má búast
við hnifjöfnum og hörkuspennandi
leik. í fyrsta leiknum i Laugardalshöll
sigruðu Haukar Fram 23—22 og siðan
gerðu Fram og KR jafntefli á föstudag.
Það verður erfiður róður fyrir KR-
ingana að ná sigri í Firðinum í kvöld.
Haukar unnu t.d. báða leikina gegn KR
í vetur og eru alltaf erfiðir heim að
sækja. KR hefur nú fengið Alfreð
Gíslason til Iiðs við sig á ný eftir slæm
meiðsli og síðan leikbann en hann náði
sér ekki á strik gegn Fram á föstudag. í
toppformi er hann leikmaður, sem
skorar 8—10 mörk í leik, svo það
munar um minna.
Það veltur mikið á því hvernig
markvarzlan verður í kvöld. Haukamir
hafa ekki getað kvartað yfir henni í
vetur en hjá KR hefur hún verið
gloppóttari. Hins vegar hefur hún verið
mun jafnbetri eftir að Brynjar Kvaran
hóf að leika með liðinu.
Vinni Haukar leikinn í kvöld er
staða liðsins mjög góð, en sigri KR er
keppnin á milli liðanna þriggja í einum
allsherjarhnút. Það er i raun útilokað
að ætla að spá fyrir um úrslit leiksins í
kvöld. Bæði liðin eru óútreiknanleg og
'sveiflur miklar og tíðar í leikjum
þeirra. Spennuna hefur hins vegar ekki
vantað og varla verður breyting þar á í
kvöld. Leikurinn hefst kl. 20. -SSv.
Fylgdust með kennslu
skylduæfinga f Vín
Fyrir nokkru komu tvær fimleika-
stúlkur úr Björk, Rannveig Guðmunds-
dóttir og Hlín Árnadóttir, ásamt þjálf-
ara sínum, Ágústu Guðmundsdóttur og
Margréti Bjarnadóttur, formanni
fimleikafélagsins Gerplu, frá Vínar-
borg, þar sem þær fylgdust með sýni-
kennslu Alþjóðafimleikasambandsins í
skylduæfingum kvenna. Talsverðar
breytingar voru gerðar á þeim eftir OL
í Moskvu 1980 og því nauðsynlegt að
fylgjast með breytingunum. Að undan-
iförnu hafa þær haldið námskeið hér
heima til að kenna þessar nýju skyldu-
æfingar og er nú þegar farið að æfa
eftir þeim. Fimleikaíþróttin hefur verið
i örum vexti hér á íslandi undanfarin ár
undir dugmikilli forystu Ástbjargar
Gunnarsdóttur, formanns Fimleika-
sambandsins. -SSv.
ST0ÐVAR „SP0INN” PETUR?
— landsliðið í körfunni mætir pressuliði f Njarðvíkunum f kvöld
í kvöld kl. 20 verður meiri háttar
leikur i körfunni er landsliðið og lið i-
þróttafréttamanna mætast I Njarð-
vikunum. Landsliðið er nú á kafi í
undirbúningi fyrir ferðina til Sviss, þar
sem liðið tekur þátt i C-keppninni sem
er haldin þar að hluta til. Liðið fær þar
verðuga mótherja og álagið verður
mikið þvi leiknir verða 5 leikir á jafn-
mörgum dögum.
Landsliðsþjálfarinn, Einar Bolla-
son, tilkynnti lið sitt í gær og er það
skipað eftirtöldum leikmönnum:
Jón Sigurðsson, KR,
Kristinn Jörundsson, ÍR
Ríkharður Hrafnkelsson, Val
Pétur Guðmundsson, Val
Jónas Jóhannesson, UMFN
Gísli Gíslason, ÍS
ÁgústLíndal, KR
Torfi Magnússon, Val
Gunnar Þorvarðarson, UMFN
Kristján Ágústson, Val
Valur Ingimundarson, UMFN
Símon Ólafsson, Fram
íþróttamenn fengu leyfi til að nota
þá fjóra leikmenn, sem ekki eru með
landsliðinu í kvöld, en lið jveirra er
annars þannig skipað:
Axel Nikulásson, ÍBK
Viðar Þorkelsson, Fram
Jón Jörundsson, ÍR
Þorvaldur Geirsson, Fram
Andy Fleming, ÍR
Dakarsta Webster, Skallagr.
Guðsteinn Ingimarsson, UMFN
Garðar Jóhannsson, KR
Jón Steingrímsson, Val
Jón V. Matthíasson, UMFN
Gunnar Jónsson, Skallagr.
Pálmar Sigurðsson, Haukum
Baráttan var hörð um að komast í
pressuliðið og margir ágætir
körfuknattleiksmenn komust ekki þar
í. Það verður vafalítið gaman að sjá
viðureign þeirra Péturs Guðmundssnar
og Dakarsa Webster, sem reyna mun
að hafa hemil á honum. Það verður
vandasamt verk því Pétur hefur leikið
afar vel að undanförnu og til alls
líklegur. Lið íþróttafréttamanna verður
undir stjórn þeirra Steins W.
Sveinssonar og Kristins Stefánssonar
iog ef að líkum lætur drepur ekki þögn
Imenn á þeim bænum.
Það stefnir því allt í að það verði
hörkuleikur á fjölum Ljónagryfjunnar
syðra í kvöld. Pressuliðið leggur að
vanda allan sinn metnað í að sigra og
svo er bara að bíða og sjá-