Dagblaðið - 18.03.1981, Side 17
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1981,
17
vegna frjálslegri.” Það er einkenni á
DB-myndir: Einar Ólason.
„Úg lærði aldrei tréskurð,” segir Sigurjón, „ég held að myndir mínar séu þess
mörgum verka hans að það er eins og efnið sé að brjótast út úr forminu.
N
Þú ert eins og nýkominn af
Vatnajökli
„Ég var svo heppinn þegar ég var
barn,” segir hann glottandi, „að
móðir min lét mig alltaf í friði svo ég
gat leikið mér hvernig sem mér datt í
hug.”
Svo rekur hann glaða æsku sína á
Eyrarbakka þar sem fjaran var eins
og stórkostlegur sandkassi. Við
þyrftum að gefa út aukablað til að
segja frá því öllu saman. Við þyrftum
annað aukablað undir sögurnar frá
Hafnarárunum, ekki sist af hinum
óborganlega Otto Gelsted sem var
ráðgjafi hjá þrem dönskum bókafor-
lögum og mikill vinur íslendinga.
Hann hafði þann ágæta sið að
þegar hann fékk útborgað kaup
greiddi hann fyrst alla reikninga en
fór síðan með afganginn af kaupinu á
ýmis veitingahús í borginni og bað
þjónana að geyma það ef ske kynni
að hann liti inn seinna!
Honum fannst Sigurjón stundum
nokkuð óheflaður á danskan mæli-
kvarða og áminnti hann þá jafnan
með þessum orðum: „Þú ert eins og
nýkominn ofan af Vatnajökli.”
Á stríðsárunum komu þeir Sigur-
jón og Gelsted eitt sinn upp í spor-
vagn þar sem þrír þýskir liðsforingjar
sátu fyrir. „Ég vorkenni ykkur, ég
vorkenni ykkur (Mitleid! Mitleid!),”
sagði þá Gelsted hátt á þýsku..Þeir
gláptu eins og bjánar, herraþjóðin,
og spurðu hvers vegna. „Das wollen
Sie spáter verstehen können (Þið
skiljið það seinna),” sagði Gelsted og
rataðist réttámunn.
Kötturinn er vaknaður
Birgitta, kona Sigurjóns, er dönsk
og alin upp á Fjóni en hefur nú búið í
25 ár samfleytt á fslandi. Börn þeirra
fjögur eru flogin úr hreiðrinu og
leggja flest stund á tónlist. Hún hefur
því meiri tima en áður til að sinna
hugðarefnum sínum og hefur nýlokið
BA-prófi við háskólann i dönsku og
íslensku. Þegar okkur ber að garði er
hún að kenna og ekki heima. Sigur-
jón hristir höfuðið yfir þessu og
segist vera alveg hættur að ráða við
hana. Loks birtist hún þó með eitt-
hvert góðgæti matarkyns eins og
Dana sæmir, graflax og fleira.
Og hún segir dálítið mjög merki-
legt um verk eiginmanns síns: „Sjáðu
hvernig það er eins og efnið sé að
brjótast um, eins og það sé að reyna
að sprengja af sér formið sem mynd-
höggvarinn hefur gefið því, útlin-
urnar verða eins og klemma sem
þröngvar efninu saman. Þannig
myndast spenna milli efnisins sem
hann vinnur i og formsins sem hann
lokar það inni í — næstum eins og
þegar blómknúppur býst til að
springa út. Þessi spenna gefur verk-
inu líf.”
En Sigurjón hnussar yfir tilraunum
okkar til að skilgreina og útskýra
galdurinn við myndir hans!
„Æ, hann segir aldrei neitt nema
skemmtilegheit,” stynur Birgitta.
Skelmissvipur kemur á andlit
Sigurjóns. „Kötturinn er vaknaður,”
tilkynnir hann og drekkir gáfulegum
rökræðum okkar í nýju söguflóði af
kötéum, draumum, ástamálum sínum
innan við fermingaraldur, Forn-
Egyptum, nýlist, draugum og fólki
sem misst hefur eftirtektargáfuna og
þar með dómgreindina á umhverfi
sitt.
- IHH
Nýjasta listaverkið, kross úr rekaviði, gerður í tilefni af „krossinum” sem DB
sæmdi Sigurjón fyrír myndlist á árinu 1980. Þverspýtan er gjöf frá Aðalsteini
Ingólfssyni, sem fann hana í fjörunni fyrir framan heimili sitt á Seltjarnarnesi,
en margir aðrir gauka rekavið að Sigurjóni, auk þess sem sjórinn færir honum
beint.
1X2 1X2 1X2
28. leikvika — leikir 14. marz 1981.
Vinningsröð: XX1-221-121-101
t. VINNINGUR: 11 róttir - kr. 85.710.-
nr. 37427 (4/10)
2. VINNINGUR: 10 róttir - kr. 2.295.-
172 14933+ 30054(2/10) 35564 38821+ 44957
7182 15282+ 34419 37741 44855
Kærufrestur er til 6. apríl kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skrif-
legar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og aðalskrifstofunni
Reykjavik. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til
greina.
Handhafar nafnlausra seðla verða að framvísa stofni eða senda
stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna
ifyrir lok kærufrests.
GETRAUNIR - íþróttamiðstöðin - REYKJAVÍK
Kreditkorthafar
velkomnir
®[^(©^M®©TrfoXÐ)DRí]
Laugalæk 2, Reykjavík,
Sími 86511
EUROCARD
VIDEO
Video — Tœki — Filmur
Leiga — Sala
Kvikmyndamarkaðurinn — Simi 15480.
Skólavörðustig 19 (Klapparstigsmegin).
KVIKMYNDIR
Iðnaðarhúsnæði
300—400 ferm með verzlunaraðstöðu óskast
til leigu í Múlahverfi eða Kópavogi.
Vinsamlegast hringið í auglþj. DB eftir kl. 13 í
síma 27022.
H—909.
Ný byrjendanámskeið hefjast 23. marz.
Kennari: Viðar Guðjohnsen.
Innritun og upplýsingar í síma 83295
alla virka daga frá kl. 13-22.
JÚDÓDEILD ÁRMANNS
Ármúla 32.