Dagblaðið - 18.03.1981, Síða 20
20
DAGBLAÐIÐ.
ÍKUDAGUR 18. MARZ 1981.
Wttllam McQuittan, sam takur vlt
af Kenneth East nú I minuðbtum.
Nýrsendiherra
Bretaáíslandi
skipaður
Eftirmaður Kenneth East sem
sendiherra Breta á Íslandi verður
William (Rodger) McQuillan. Hann
hefur unnið hjá utanríkisþjónustunni
síðan árið 1965. Fyrst í stað vann
hann i Ródesiudeild utanríkis-
ráðuneytisins. Árið 1968 tók hann
síðan við starfi fyrsta ritara við
sendiráð Breta í Lusaka í Zambiu.
Á árunum 1970—74 var Mc-
Quillan fyrsti ritari við sendiráðið í
Santiago i Chile. Þaðan lá leiðin til
Guateinala City, þar sem hann tók
við embætti konsúls og starfsmanna-
stjóra hennar hátignar. Árið 1978
varð hann yfirmaður upplýsinga-
deildar utanríkisráðuneytisins í
London.
William McQuillan er fimmtugur
að aldri. Hann er kvæntur og á þrjú
börn. — Eins og skýrt var frá 1 Dag-
blaðinu lætur Kenneth East af
störfum sendiherra nú i mánuðinum
eftir sex ára dvöl hér á landi.
Jazzvakningmeð tónleika áHótelBorg:
Ungir og gamlir spreyta sig
—Nítján manna hljómsveit Clark Terry er vœntanleg
hingað íaprílbyrjun
Jazztrió Guðmundar Ingólfs-
sonar, Nýja kompaníið og tveir sér-
stakir gestir, Gunnar Ormslev og
Áskell Másson, koma fram hjá
klúbbi jazzáhugafólks, Jazzvakn-
ingu, í kvöld. Tónleikarnir verða
haldnir á Hótel Borg.
Með Guðmundi Ingólfssyni
pianóleikara leika i tríói hans þeir
Gunnar Hrafnsson bassaleikari og
Guðmundur Steingrímsson tromm-
ari. í Nýja kompaníinu eru Jóhann
G. Jóhannsson, sem leikur á píanó,
Sigurður Flosason altósaxófónleik-
ari, Sigurður Valgeirsson, sem leikur
á trommur, Sveinbjörn I. Baldvins-
son á gítar og Tómas Einarsson
leikur á kontrabassa.
Nýja kompaníið er um hálfs árs
gömul hljómsveit. Hún leikur
hefðbundinn og nýrri jazz og auk
þess eigiðefni.
Gestirnir tveir eru vel kunnir af
verkum sínum. Gunnar Ormslev er
einn alreyndasti saxófónleikari
landsins og Áskell Másson tónskáld
er flestum öðrum kunnúgri göldrum
slagverksins.
ÁSGEIfi
TÓMASSON
Clark Terry og
félagar koma við
Næsta verkefnið, sem Jazz-
vakning tekst á við, eru tónleikar
nítján manna hljómsveitar banda-
ríska trompetleikarans Clark Terry.
Hópurinn hefur að undanförnu verið
á hljómleikaferð um Evrópu og er nú
á heimleið. Hljómleikar Clark Terry
og félaga verða þann 3. april.
Tónleikarnir í kvöld eru hinir
fyrstu sem Jazzvakning gengst fyrir á
þessu ári. Hinir síðustu voru milli
jóla og nýárs. Þó hafa Jazz-
vakningarmenn ekki verið alveg
aðgerðalausir í millitíðinni, því að
þeir hafa staðið fyrir skemmtunum í
samvinnu við Samtök alþýðutón-
skálda og -tónlistarmanna, SATT, og
Vísnavini. -ÁT-
Ballettfólk í hanastéli
Sovézka sendiráðið í
Reykjavík bauð á laugar-
daginn íslenzkum ballett-
dönsurum og sovézkum í
hanastél. Margt fleira góðra
gesta var í boðinu, svo sem
þjóðleikhússráðsmenn og
fleiri. Bjarnleifur Bjarnleifs-
son ljósmyndari Dagblaðs-
ins var á staðnum og tók
þessar þrjár myndir.
Hópur úr íslenzka dansfktkknwn ísamt tveknur sovózkum
dönsurum. Frá vlnstri eru QuOrún PHsdóttír, Helga Bemhard, Nanna
Ólafsdóttír, Óimfíe BJamletfsdóttír, Auður BJamadóttír, sovózk
dansmœr, Júrl VJadtmlrov dansmri, Inglbförg Pélsdóttír og BJrgitta
Hekte.
Mamma
skilur við alla
Við höfum frétt að margt sé bráð-
fyndið 1 revíu þeirri sem Þórarinn
Eldjárn og Jón Hjartarson eru að
semja fyrir Leikfélag Reykjavíkur en
þeir hafa varizt allra sagna um efnið.
Það er þó óhætt að slá því föstu að
þeir félagar gera stólpagrín að ýmsu í
þjóðlífi okkar, meðal annars gagn-
merkum fyrirbærum eins og barna-
bókasamkeppni og náttúruvernd.
í barnabókasamkeppninni eru
lagðar fram bækur með hinum stór-
kostlegustu titlum sem eru útúrsnún-
ingar á kunnum barnabókum, sagði
heimildarmaður okkar og bætti við
að fyrir sinn smekk hefði hann látið
verðlaunin renna til bókarinnar
„Mamma skilur við alla” (samanber
sígilda barnabók Stefáns Jónssonar:
Mamma skilur allt).
Hugsjónamál:
bætt tannhirða
sauðfjár
Náttúruverndarmenn fara mjög
halloka í revíunni fyrir yfirgangi
landeyðingarmanna sem hafa með
sér félag til að berjast fyrir upp-
blæstri. Gott ef það heitir ekki sanda-
vinafélagið.
Þessir uppblástursmenn tala mikið
um hvað mannlífið á íslandi hljóti að
hafa verið erfitt á landnámsöld þegar
allt undirlendi var skógi vaxið og þvi
hvergi þolanlegt að vera nema helzt í
fjörugrjótinu. Þeir unna mjög kind-
inni, sem sólgin er í ungar trjá-
plöntur, og berjast fyrir sérstöku
heilsuprógrammi til að bæta tann-
hirðu sauðfjár.
Eitthvað annarlegt
Enn hefur revíunni ekki verið valið
nafn en kvisazt hefur að leikhússtjór-
arnir séu að bræða með sér að kalla
hana „Annarleg sjónarmið” eða
„Annarlegar skoðanir”. Enda má
búast við að það sé nokkuð gott sölu-
nafn, útvarpshlustendur muni
hrökkva upp af dvalanum þegar
þulurinn tilkynnir: „Annarleg
sjónarmið í Iðnó í kvöld. Uppselt.”
Gullkorn úr
Lögbirtingi
Hinn 12. febrúar 1981 sóttu Chi-
Chen Ho (Mr. Ho), 2nd Fl., No. 3,
Lane 160, Sec 1, San Ming Rd„
Taichung City, Taiwan og Tai-Her
Yang (Mr. Yang), 5-1, Tai-pin Street,
Kuang-Hwa Li, Si-Hu Jenn, Chiang-
Hwa Hsien, Taiwan um einkaleyfi
hér á landi á sjónvarpstæki, í óhultri
fjarlægð, tengt sérhönnuðu aðvör-
unar- og öryggiskerfi gegn innbrot-
um.
Umsóknin, nr. 2613, er til sýnis í
ráðuneytinu.
Gunnlaugur
vildiekki
sérframbQð
krataíHI
I dálki þessum sl. laugardag var frá
því sagt að Gunnlaugur Stefánsson
guðfræðinemi og fv. þingmaður
hefði afneitað umbótasinnum í
háskólanum. Þessum tíðindum
afneitar Gunnlaugur og segir þetta
illa rangt. Hann hafi hins vegar ekki
viljað að Jafnaðarmannafélag
stúdenta byði fram sérstaklega að
illa grunduðu máli eins og hugmyndir
voru uppi um í janúar og febrúar.
Gunnlaugur hélt síðan til sjós og á
meðan kom fram miðjuframboð
umbótasinna i háskólanum. „Það
var ekkert rætt við mig um það og
kom aldrei til þess að ég tæki
opinbera afstöðu til þess,” sagði
Gunnlaugur.
Skemmtanirfyrir
vangefna í Þrótt-
heimumfjölsóttar
„Við hjá Æskulýðsráði höfum í
vetur gengizt fyrir skemmtunum fyrir
vangefna á þriggja vikna fresti 1 sam-
vinnu við Styrktarfélag vangefinna.
— Skemmtunum sem hafa tekizt ein-
staklega vel,” sagði Skúli Björnsson
forstöðumaður félagsmiðstöðvar-
innar Þróttheima. Ein slik skemmtun
var einmitt haldin síðastliðinn
laugardag. Hana sóttu um tvö
hundruð manns.
„Aðsóknin í vetur hefur verið
mjög góð,” sagði Skúli. „Krakkamir
bíða eftir hverri skemmtun með mik-
illi eftirvæntingu. Þau koma af öllum
heimilum fyrir vangefna á Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Meira að segja
hefur komið hópur frá Sólheimum í
Grímsnesi. Hann hefur þó ekki
komizt á síðustu skemmtanirnar
vegna slæmrar færðar.”
Skúli Björnsson sagði að á
skemmtununum í Þróttheimum væri
boðið upp á bíó, dans og skemmti-
atriði. Hann sagði að mikill áhugi væri
hjá krökkum, sem eru í starFi hjá
Æskulýðsráði, að koma og sýna æfð
skemmtiatriði, sem búið hafi verið að
undirbúa fyrir þeirra eigin skemmti-
kvöld. „Eitt er víst að þakklátari
áhorfendur fá þau varla,” sagði
Skúli. „Þessir krakkar taka öllu sem
gert er fyrir þau með miklum þökk-
um. — Það er kannski klaufalegt að
tala um krakka i þessu tilfelli, því að
sumir sem koma hingað á skemmtan-
irnar eru komnir á sextugsaldurinn.
En öll eru þau krakkar á sinn hátt.”
-ÁT-
inn i laugardaglnn. Alls voru um tvti hundruð manns á skemmtunlnnl
þann daglnn. DB-mynd: Þorrl.
Om Quðmundsson filagl I Islenzka dansfíokknum rætilr vlð sovizkan
starfsbróður slnn.
Skærasta stjema sovézka balletthópslns ver in efa Júri Vladimlrov.
Gagnrýnendur voru reyndar i þvl eð henn vmri komlnn af littasta
skelðl, en eigl ati sfður þóttí henn standa slg vel. Hir er hann ásamt
fararstjóra hópslns. DB-myndir: Bjarnlerfur.