Dagblaðið - 18.03.1981, Qupperneq 28
Þrefað um Helluprentsmálið ífjóra tíma og hreppsnef ndarf undur boðaður í nótt:
Allt upp í loft á
borgarafundi á Hellu
— tillögur, frávísunartillögur, vantraust á fundarstjóra!
„Þetta er mesti skrípaleikur sem ég
hef tekið þátt i um dagana,” sagði
einn fundarmanna á borgarafundin-
um á Hellu í gærkvöldi, þegar deilt
var um hugmyndir meirihluta hrepps-
nefndar að kaupa hús fyrirtækisins
Helluprents og gera að samkomuhúsi
jOg félagsheimili hreppsins.
17 manns komu í 32 skipti í ræðu-
stól, enda stóð fundurinn í 4 tíma,
eða til kl. 1 í nótt. Og tillögur fóru að
berast upp úr miðnætti til fundar-
stjórans, frávísunartillaga á fyrri til-
lögu, frávísunartillaga á frávísunar-
tillöguna og vantrausttillaga á
fundarstjóra! Einn fundarmanna,
v___
Þrír af fimm hreppsnefndar-
mönnum mæltu með kaupunum á
húsinu fyrir félagsheimUi: Páll
Björnsson oddviti og Árni Hannes-
son, fulltrúar óháðra kjósenda, en
þeir eru báðir í stjóm Helluprents.
Jón Thorarensen fulltrúi sjálfstæðis-
manna og varastjórnarmaður Hellu-
prents er sammála Páli og Árna.
Bjarni Jónsson á Selalæk, fulltrúi
frjálslyndra kjósenda, og Gunnar
Magnússon í Ártúnum, fulltrúi
óháðra kjósenda, eru andvfgir hug-
myndum félaga sinna í hreppsnefnd.
Fram kom á fundinum að hús
Helluprents ætti að kosta 2.1 milljón
króna, en með nauðsynlegum
breytingum myndi verðið fara upp i
4.6 milljónir.
Hreppsnefnd Rangárvallahrepps
kom saman til fundar í nótt að lokn-
um borgarafundinum. Voru rædd
úrslit mála á fundinum, en í morgun
tókst ekki að fá uppgefið hvað þeim
hreppsnefndarmönnum fór á milli.
Jón Þorgilsson sveitarstjóri var
fremur stuttur i spuna þegar blaða-
maður náði sambandi við hann:
,,Ég hef ekkert um málið að segja
og banna þér að geta þess að þú hafir
hringt í mig.”
-ARH.
sem jafnframt situr í stjórn Hellu-
prents, hótaði því að kæra fundar-
stjórn til félagsmálaráðuneytisins.
Fundarstjóri sagði af sér störfum og
tók ekki aftur við stjórninni fyrr en
meirihluti fundarmanna hafði lýst
trausti á hans störf.
Fundurinn samþykkti „eindregna
og afdráttarlausa andstöðu til
framkominnar hugmyndar um að
gera prenthús Helluprents að sam-
komuhúsi og félagsheimili.” Jafn-
framt var skorað á hreppsnefnd að
kanna möguleika á að kaupa Hellu-
prentshúsið til að reka i því iðngarða.
Ekki eru allar ferðir tíl fjir, þótt famar sóu. Það fenguþeiraö reyna fólag-
amir Gunnar Stefán og Pitur tngi. Þeir riðu véihrossi sinu um tún og engi
Laugardaishaiiar og uggðu ekki að sér. Skurðir eru margir á þvi ágæta túnl
en fuiiir af snjó. En varhugaverðir eru þek, enda víða tóm undir. VHhross
þeirra fiiaga stakkst á nefíð ofan i skurð og þeir með. En hressir strákar láta
siíka smámuni ekki á sig fá, eða tefja sig lengi fri útreiðunum. DB-mynd S.
Hús brann ofan af fjölskyldu
Á fimmta límanum i morgun var
tilkynnt um eld í íbúðarhúsi í Eyjum
er Dalir heitir og stendur skammt
ofan við samfellda byggð í kaup-
staðnum. Að Dölum er gamali
timburhús, sem byggð hefur verið
steinbygging við og húsið allt endur-
bætt. Er það ein hæð og kjallari.
Þarna bjó ein fjölskylda, hjón með
tvöbörn.
Slökkvilið kom fljótt á vettvang og
réð niðurlögum eldsins á tæpri
klukkustund. En íbúðarhæðin er
mikið brunnin og tjónið mjög
tilfinnanlegt. Eldsupptök eru talin
vera út frá rafmagni.
Fjölskyldan sem í húsinu bjó hlaut
ekki likamleg meiðsli af eldsvoðan-
um. Til bráðabirgða var fólkinu
komið fyrir i skátabústaðnum sem
jafnframt er farfuglaheimili.
-A.St.
Allt að tveggja milljóna króna kröfur í þrotabú Trésmíði sf. í Keflavík:
Eitt stærsta gjald-
þrotamál Suðurnesja
Byggingafyrirtækið Trésmíði sf. í
Kefiavik hefur verið lýst gjaldþrota.
Kröfulýsingafrestur er auglýstur í
Lögbirtingablaðinu til 27. apríl.
Skiptafundur verður boðaður að
frestinum útrunnum. Hér er um að
ræða eitt stærsta — ef ekki stærsta —
gjaldþrotamál á Suðurnesjum. Talað
er um að kröfur 1 þrotabúið nemi allt
að 2 milljónum króna (200 millj.
gkr.), án þess að sú tala hafi fengizt
staðfest. Ótaldar eru þá fasteignir
sem eigendur fyrirtækisins höfðu
veðsett fyrir skammtímaskuldum og
töpuðu vegná þess.
Fyrirtækið umrædda missti fót-
anna á hálu svelli fjármálanna með
því að bjóða í stórframkvæmdir gegn
greiðslu langt undir áætluðu kostn-
aðarverði. Þannig bauð Trésmíði sf. í
byggingu dælustöðvar og varma-
orkuvers II í Svartsengi á vegum
Hitaveitu Suðurnesja. Einnig var
boðið í byggingu heimilis aldraðra í
Keflavík. í öllum tilfellum var boðið
lægra en kostnaðaráætlanir gerðu
ráð fyrir. Fór fljótlega að halla
undan fæti og fyrirtækið gat ekki
staðið í skilum við undirverktaka,
svo sem múrara, rafvirkja, málara
o.fi. eða greitt reikninga fyrir út-
teknu byggingarefni í verzlunum.
Heimildir DB segja að eigendur Tré-
smíði sf. hafi lýst fyrirtækið gjald-
þrota strax og fyrsta krafa undirverk-
takanna kom. Hún hljóðaði upp á 28
milijónir gkróna. Fleiri kröfur fylgdu
í kjölfarið og nema nú alls u.þ.b. 2
milljónum nýkróna sem fyrr segir.
-ARH.
Irfálst, óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ1981.
Niðurskurðursjón-
varpsdagskrár sam-
þykktur í útvarpsráði:
Sparnaðarog
aðhalds gætt
— íöllum rekstri
sjónvarpsins
Á fundi útvarpsráðs í gærdag var
samþykkt með þremur atkvæðum gegn
engu niðurskurður á dagskrá sjónvarps
svo og að aðhalds verði gætt í rekstri
stofnunarinnar. í því skyni verður
sumarleyfislokun sjónvarpsins viku
Iengur en hún hefur verið. Eftir-
miðdagsdagskrá á sunnudögum verður
einungis yfir þrjá mánuði að vetrinum
og þá endursýndar bíómyndir í stað nýs
efnis.
Þá var ákveðið að stytta kvölddag-
skrána alla virka daga þannig að
sjónvarp hætti eigi síðar en kl. 22.30,
en um helgar kl. 23.30. Þá verður
vetrardagskrá, sem venjulega er mun
veigameiri en sumardagskrá, miðuð við
tímabilið 15. október til 1. maí.
Útvarpsráð lýsti einnig þeim vilja
sínum á fundinum að dregið verði úr
yfirvinnu almennt og aðhalds gætt í
öllum rekstri. Þeir sem greiddu
tillögunni atkvæði voru Vilhjálmur
Hjálmarsson, Markús Á. Einarsson og
Jón Múli Árnason. Ellert Schram,
Eiður Guðnason, Erna Ragnarsdóttir
og Markús örn Antonsson sátu hjá, en
skiluðu sérbókunum. -ELA.
Framtíðarbyggingar
fyrir þingið:
Hússemfyrireru
flutteðarifin
Forsetar Alþingis og Benedikt
Gröndal (A) flytja tillögu um fram-
tíðarhúsakost Alþingis. „í tilefni af
hundrað ára afmæli aíþingishússins
ályktar Alþingi, að heimkynni þingsins
skuli áfram vera í sama húsi, svo og í
byggingum í næsta nágrenni þess,”
segir í tillögunni. Efnt skuli til
samkeppni íslenzkra húsameistara um
viðbótarbyggingu fyrir starfsemi
þingsins á svæði, sem takmarkist af
Templarasundi, Kirkjustræti, Tjarnar-
götu og Tjörninni.
„Gert er ráð fyrir, að ýmist megi
fiytja eða rífa þau hús, sem á þessu
svæði standa nú. Alþingi á þegar flest
þessi hús og lóðirnar, nema
Oddfellowhúsið. Það er rammgerð
steinbygging, sem girðir fyrir þann
kost, að nýbygging fyrir Alþingi snúi út
að Tjörninni. Niðurrif þess á síðara
stigi gæti þó haft megináhrif á
skipulagshugmyndir,” segja flutnings-
menn.
„Samkeppnin og úrvinnsla gagna úr
henni er tálin munu taka 3—5 ár.
Kemur því varla til byggingar-
framkvæmda fyrir Alþingi fyrr en
1985—1990.” -HH.
Slapp meðskrekk-
inn frá árekstri
Drengur varð fyrir bíl á Borgarholts-
braut í Kópavogi. Hugðist hann hlaupa
yfir götu rétt vestan gangbrautar og
umferðarljósa. Drengurinn slapp
betur frá slysinu en við mátti búast.
Fékk heimfararleyfi fijótlega eftir að
skoðun lauk í slysadeild.
-A.St.