Dagblaðið - 28.03.1981, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. MARZ 1981.
13
JIMMY CARHR KOMINN HQM
— hress og af slappaður nýtur hann lífsins
Rúmlega tveir mánuðir eru nú liðnir
síðan Jimmy Carter lét af embætti for-
seta Bandarikjanna. Lítið hefur frétzt
af honum á þessu tímabili en hann
hefur að undanförnu dvalið ásamt fjöl-
skyldu sinni í heimabæ sinum, Plains í
Georgíu.
„Ég get varla lýst því hve vel mér
líður að vera kominn heim á ný,” segir
Carter. „Þetta er eini staðurinn sem
mig hefur langað til að búa á og hér hef
ég í hyggju að dvelja það sem eftir er —
hér, þar sem fólkið mitt er.”
Hann hefur elzt á þeim fjórum árum
sem hann eyddi í Hvíta húsinu. Sá
stutti tími sem liðinn er frá því hann
gegndi valdamesta embætti veraldar
hefur þegar haft áhrif til bóta.
Áhyggjuhrukkurnar á andlitinu virðast
hafa vikið fyrir hressilegu andliti
hnetubónda.
En hann hefur ekki breytt þeim hátt-
um sem hann tileinkaði sér fyrir mörg-
um árum. Hann fer á fætur kl. hálfsjö
og byrjar daginn á skokki. Og hann
kemur tímanlega heim til að kveðja
Amy, sem orðin er 13 ára, áður en hún
fer í skólann.
Carter er með skrifstofu í tveggja
hæða timburhúsi. Við það stendur bíll
frá leyniþjónustunni en lífverðir fylgja
Carter. Carter telur daginn sem Ronald
Reagan tók við forestaembættinu bezta
dag lífs sins.
„Ég man þegar við sátum um borð í
flugvél á Andrews-herflugvellinum við
Washington og önnur flugvél tók á loft
á undan okkur. Um borð í henni var
Cyrus Vance, maður í minni stjórn, á
leið til að leysa gísladeiluna. Það var
ekki fyrr en eftir flugtak sem ég í raun
áttaði mig á því að ég væri ekki lengur
forseti.”
Bílnúmer á
420 þúsund
í Birmingham í Bretiandi er til
sölu Ford Cortina-bifreið fyrir
420 þúsund nýkrónur vegna þess
að hún hefur bílnúmerið JG1.
Á sama stað er einnig til sölu
Ford Fiesta árgerð ’76 fyrir 105
þúsund krónur. Sá bíll hefur bil-
númerið JGI1.
Gift Í97 ár
Brasilísk hjón, sem gift hafa
verið í 97 ár, segja að það sé ekk-
ert leyndarmál hvernig standi á
þessari löngu hjónabandsham-
ingju.
„Það hefur alltaf verið ég sem
hef átt síðasta orðið,” segir
eiginmaðurinn, Liberato Araujo.
„En inni á heimilinu hefur María
fengið að ráða.”
Hjónin eru sammála um að
ástæðurnar fyrir langlifi þeirra
séu langar, erfiðar vinnustundir,
engir megrunarkúrar, mikið af
heimatilbúnum sigarettum sem
gerðar séu úr svörtu tóbaki og
kaffi.
Þegar tveir mánuðir eru liðnir siðan Carter lét af forsetaembættinu, nýtur hann,
hress og afslappaður, lífsins í faðmi fjölskyldunnar í heimabæ sínum, Plains í
Georgiu.
Kodak filmur -
þegar faka á góðar
myndir .JS2
FAGREYNSLA
1980
Kodacolorll
C135-36
C110-20
Kodacolorll
C126-20
Gæðin eru í gulu Kodak pökkunum.
HANS PETERSEN HF
BANKASTRÆTI AUSTURVER GLÆSIBÆR
S: 20313 S: 36161 S: 82590
Umboðsmenn um allt land
auson
PLATÍNULAUS
TRANSISTORKVEIKJA
KVDII I HVERFISGÖTU 84.
PYnlLL SMI 29080.
Á„AUTO '81
//
sjáið þið 150 bíla af öllum gerðum,
stærðum og verðum.
f//
A„AUTO '8V
sjáið þið allt sem viðkemur bílum, m.a.
verkfæri, dekk, aukahluti o. fl. o. fl.
Á„AUTO '81
//
sjáið þið Rolls Royce í fyrsta sinn á
íslandi.
Á„AUTO '81"
sjáið þið Lamborghini Countach LP
400S, 12 cyl. sportbíl með 375 hestafla
vél sem nær 315 km hraða.
„A„Auto '81"
sjáið þið skemmtiatriði í sérflokki.
A„AUTO '81"
fáið þið vandaða sýningarskrá ókeypis.
Á„AUTO '81"
fáið þið kannski lukkuvinning, því dregið
verður á klukkustundarfresti um veglega
vinninga og gildir hver aðgöngumiði
jafnframt sem lukkumiði.
Fróðleg og skemmtileg
sýning fyrir
alla fjölskylduna
Opnunartími
Laugardaga kl. 13—22
Sunnudaga kl. 10—22
Virka daga kl. 16—22