Dagblaðið - 02.04.1981, Side 15
14
ð
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1981.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1981.
15
Iþróttir
Iþróttir
Eþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
íþróttir
Iþróttir
IR-ingamir halda í vonina
— Sigruðu Tý í 2. deild í Vestmannaeyjum í gærkvöld
ÍR-ingar halda enn í vonina að
komast í 1. dcild handknattleiksins á ný
eftir sigur á Tý í Vestmannaeyjum í
gærkvöld, 21—18. Bjarni Bessason fór
á kostum í ieiknum og tryggði ÍR-liðinu
sigur öðrum fremur. Skoraði tíu mörk
úr litið fleiri tilraunum. Staða efstu liða
í 2. deild er nú sú að KA hefur 18 stig
og hefur Iryggt sér sæti í 1. deild.
Breiðablik er með 17 stig cn HK og ÍR
hafa 16 stig. Þau lið eiga eftir að leika
síðari leik sinn í keppninni — lcikinn að
Varmá. Það liðið sem sigrar í þeim leik
kemst í 1. deild. Verði jafntefli þurfa
liðin og Breiðablik að leika lil úrslita
um sætið i 1. deild.
Sigur ÍR í gær var frekar auðveldur
og sanngjarn. ÍR komst í 4—2 i byrjun.
Týr jafnaði 4—4 og komst síðan yfir
6—4. Þá tóku ÍR-ingar sig saman i and-
litinu á ný. Jöfnuðu og komust yfir.
Staðan í hálfleik 9—8 fyrir ÍR.
í byrjun síðari hálfleiks komst ÍR í
15— 12 en með harðfylgi tókst Týrur-
um að jafna í 15—15. Síðan var iafnt
16— 16 en eftir það skildu leiðir. ÍR-ing-
ar skoruðu jafnt og þétt síðustu 10
mínúturnar meðan lítið sem ekkert
gekk hjá Eyja-liðinu. ÍR komst í 21 —
17 en Týr skoraði síðasta mark leiksins
rétt fyrir leikslok.
Hjá Tý var Sigurlás Þorleifsson
beztur og Ólafur Lárusson skoraði
falleg mörk. Jens Einarsson var ekki
mikið í markinu. Auk Bjarna Bessa-
sonar átti Guðmundur Gunnarsson
mjög góðan leik í markinu hjá ÍR —
einkum í fyrir hálfleikmim. I heild var
leikurinn heldur daufur og ÍR-ingar
verða að bæta sig ef þeir ætla sér að
komast í 1. deild og gera einhverja hluti
þar.
Flest mörk Týs í leiknum skoruðu
Sigurlás 6/3, Magnús 4 og Ólafur
Lárusson 3. Hjá ÍR var Bjarni Bessa-
son atkvæðamestur með 10 mörk.
Mörg þeirra voru mjög falleg og Bjami
sýndi góð tilþrif í leiknum. Sigurður
Svavarsson og Brynjólfur Markússon
skoruðu fjögur mörk hvor. - FÓV
íþróttir
: - ■
\V.
Þær brenna sig á báli
ir
Ferðaþjónusta fatlaðra
ir
Jónas í Nausti
ir
Ný smásaga
mm ' *
Frakkland í
If* landkynningu
ir' ★
5,3 megrunar-
aðferðir
V
>
Karla- og unglingalandsliðið i golfi i „prófínu” ásamt þeim Stefáni H. Stefánssyni t.v. og Kjartani
Pálssyni en þeir standa báðir á myndinni. DB-mynd Einar Ólason.
Landsliðskylfingar
gengust undir próf
— reyndust vel að sér í reglum golfsins
þegaráreyndi
„Þetta gekk Ijómandi vel hjá okkur og strák-
arnir voru greinilega mun betur að sér í golfregl-
unum en okkur grunaði. Þær eru bölvað tað ef
út í það er farið og viða gildrur í þeim,” sagði
Kjartan L. Pálsson, landsliðseinvaldur i golfí, i
samtali við DB.
Golfsambandið gekkst fyrir nokkuð nýstár-
legu próft um síðustu helgi og voru þá landsliðs-
menn og unglingalandsliðsmenn prófaðir i
regium. Golfreglur eru ærið flóknar og oft hafa
komið upp deilumál vegna ágreinings um túlkun
á einstökum atriðum.
Á „prófinu” voru lagðar 23 spurningar fyrir
kylfingana og lakasta útkoman varð 20 rétt svör.
Þykir það harla gott því margar spurninganna
voru erfiðar viðureignar. Létu kylfingarnir vel af
þessu sjálfir og ætti þetta að vera gott fordæmi
fyrir sérsambönd og þá ekki sízt körfuknattleiks-
sambandið. Leikmenn í körfunni virðast oft á
tíðum ekki hafa hugmynd um hvað er leyft og
hvað ekki og víst er að dómarar í körfuknattleik
eyða lengri tíma til útskýringa á dómum sínum
við leikmenn í leik en þekkist í öðrum greinum.
Bæði karla- og unglingalandsliðið hafa æft
mjög vel undir stjórn Kjartans L. Pálssonar og
Stefáns H. Stefánssonar, sem hefur yfirumsjón
með unglingunum. M.a. gengust kylfingarnir
undir þrekpróf fyrir skömmu — hið annað í
röðinni — og kom i ljós að framfarir þeirra voru
í sumum tilvikum geysilegar. - SSv.
HALLUR |
SÍMO.MARSON,. !
Þrótturvann
Einn leikur var háður í gærkvöld í
Vcstmannaeyjum í bikarkeppni kvenna
í handknattleik. Þróttur, Reykjavik,
sigraði ÍBV í jöfnum og tvisýnum leik
með eins marlts mun, 16—15. í næstu
umferð leika Þróttar-stúlkurnar við
íslandsmeistara FH. -FÓV.
UverDOol deildabikar-
meistari í fyrsta sinn
„Ég hef ekki séð Liverpooi leika
jafnvel í lengri tíma. Þarna léku meist-
arar eins og meistarar,” sagði Dennis
Law eftir að Englandsmeistarar Liver-
pool höfðu sigrað West Ham 2—1 i
öðrum úrslitaleik liðanna í deilda-
bikarnum. Leikið var á Villa Park i
gærkvöld og áhorfendur fáir enda
leiknum sjónvarpað og útvarpað beint.
Sigur Liverpool var mjög verðskuld-
aður og þetta er i fyrsta skipti sem
Liverpool sigrar í deildabikarnum.
Sigurinn veitir liðinu rétt til að leika í
UEFA-keppninni næsta keppnistíma-
bil. Varla var þó reiknað með að þetta
yrði ár Liverpool í deildabikarnum. 1
fyrsta leik sínum í keppninni tapaði
liðið fyrir Bradford úr fjórðu deild 1—
0. Komst áfram með því að sigra Brad-
ford 4—1 í heimaleiknum.
Liverpool lék án Graeme Souness og
David Johnson í gær. Þeir Jimmy Case
og Ian Rush komu í þeirra stað, auk
þess sem fyrirliðinn, Phil Thompson,
var með á ný. Hann var meðal áhorf-
enda á fyrri leiknum á Wembley en í
gær veitti hann stoltur bikarnum mót-
töku eftir leikinn.
Liverpool byrjaði leikinn með mikl-
um krafti. Dalglish og hinn ungi Rush
sem lék sinn annan leik í aðalliði Liver-
pool, náðu strax vel saman sem mið-
herjar. Case bezti maður liðsins. Phil
Parkes, markvörður West Ham, varði
tvívegis vel frá Dalglish á fyrstu minút-
um. Reyndar hreint frábærlega skalla
Skotans. Þá átti Rush skot í þverslá —
síðan Ray Kennedy — en á niundu
minútu náði Lundúnaliðið sínu fyrsta
upphlaupi og skoraði. Jimmy Néigh-
bour lék upp hægra kantinn. Gaf vel
fyrir á Paul Goodard, sem var alveg
frír innan vítateigs Liverpool, og
Goddard skallaði í mark.
Eftir markið tók Liverpool öll völd á
vellinum á ný og sóknarloturnar buldu
á vörn West Ham. Parkes mjög snjall í
marki en gat ekki komið í veg fyrir að
Dalglish jafnaði á 25. min. Dæmigert
Dalglish-mark. Terry McDermott gaf
knöttinn á Kenny sem „drap” knöttinn
niður með brjóstinu og spyrnti beint í
markið úr þröngri stöðu þegar varnar-
leikmenn West Ham bjuggust við fyrir-
gjöf. Þremur mín.siðar náði Liverpool
forustu. Liðið fékk hornspyrnu sem
Case tók. Spyrnti vel fyrir markið og
risinn Allan Hansen, miðvörður Liver-
pool, stökk hærra en aðrir og skallaði á
markið. Af Billy Bonds, fyrirliða West
Ham, fór knötturinn í markið. Það
BLAÐAMAÐURINN SIGR-
AÐI í ÁLAFOSSHLAUPINU
ÍR-ingurínn Ágúst Ásgeirsson og blaða-
maður á Mbl. sigraði í Álafosshlaupi Aftur-
eldingar sl. laugardag á góðum endaspretti.
Komst fram úr Finnanum Mikko Mámi
undir lokin. Þátttaka var góð I hlaupinu.
Keppendum skipt i þrjá aldursflokka. í
karlaflokki var vegalengdin 7 km. í kvenna-
og unglingafíokki 3 km og tveir km i barna-
fíokki. Úrslit urðu þessi:
1. Ágúst Ásgeirsson, ÍR, 20:27
2. Mikko Háme, ÍR, 20:30
3. Gunnar P. Jóakimsson, ÍR, 20:40
4. Magnús Haraldsson, FH, 22:38
5. Einar Sigurðsson, UBK, 22:39
6. Óskar Guðmundsson, FH, 23:00
7. Jóhann Sveinsson, UBK, 23:03
8. Gunnar Birgisson, ÍR, 23:04
9. Sigurður Haraldsson, FH, 23:20
10. Gunnar Kristjánsson, Ármanni, 23:44
11. Guðmundur Gislason, Ármanni, 23.45
12. Ómar Ólafsson, ÍR, 24:52
13. Sigurjón Andrésson, ÍR, 25:00
14. Ingvar Garðarsson, HSK, 25:35
15. Jóhann B. Garðarsson, Ármanni, 28:28
Kvennaflokkur
1. Herdís Karlsdóttir, UBK, 13:26
2. Unnur Stefánsdóttir, HSK, 13:34
Stúlknaflokkur
1. Hrönn Guðmundsdóttir, UBK, 13:20
Piltaflokkur
1. Viggó Þ. Þórisson, FH, 12:53
2. Gunnar Kristleifsson, Aftureld., 14:14
3. Kjartan Valdimarsson, Aftureld., 15:18
Stelpnaflokkur
1. Linda B. Ólafsdóttir, FH, 9:40
2. Sigrún G. Markúsdóttir, Aftureld., 9:58
3. Elisabet Jónsdóttir, Aftureldingu, 11:45
4. Karen Rúnarsdóttir, Aftureldingu, 13:50
Strákaflokkur
1. Björn Már Sveinbjörnsson, UBK, 8:58
2. Hreinn Hrafnkelsson, UBK, 9:05
3. Ásmundur Edvardsson, FH, 9:15
4. Ragnar Sigurbergsson, Aftureld., 9:23
5. Björn Pétursson, FH, 9:25
6. Garðar E. Guðjónsson, HSK, 10:11
7. Karl G. Jóhannesson, FH, 10:22
8. Árni Böðvarsson, Aftureldingu, 10:56
9. Magnús Einarsson, FH, 10:57
10. Davíð Þór Valdimarsson, Afture., 11:58
11. Jón Andri Finnsson, Aftureld., 12:31
12. Sævar G. Hallvarðsson, Aftureld., 12:48
13. Guðjón Ingi Viðarsson, Afture., 13:00
14. SigþórÖrn Rúnarsson, Afture., 13:50
Keppt er um farandbikara í hverjum
flokki sem verksmiðjan Álafoss gaf, og í
stúlknaflokki vann Hrönn Guðmundsdóttir
bikarinn í þriðja skipti í röð og þar með til
eignar.
STORSIGUR CELTIC
Glasgow Celtic færíst stöðugt nær skozka
meistaratitlinum í knattspyrnu. í gærkvöld
vann liðið stórsigur á Hearts í úrvalsdeildinni
á Parkhead í Glasgow, 6—0, og sendi þar
með Edinborgaríiðið á ný niður í 1. deild.
Celtic þarf nú aðeins reikningslega séð fjögur
stig úr þeim fímm leikjum, sem það á eftir til
að sigra i úrvalsdeildinni. Hefur 49 stig eftir
31 leik en meistarar Aberdeen frá í fyrra eru
með 41 stig úr 30 leikjum. Önnur lið nokkuð
á eftir.
Celtic náði forustu í gær með marki
George McClusky úr vítaspyrnu. Síðan
skoruðu Provan og McGarvey og staðan var
3—0 í hálfleik. í síðari hálfleiknum skoraði
McClusky strax á fyrstu minútunni. Síðan
bætti McLeod við tveimur mörkum. _
Tveir aðrir leikir voru í úrvalsdeildinni i
gær. Aberdeen vann Partick 3—1 og
Rangers vann Morton 4—0.
- hsím.
reyndist sigurmark leiksins.
West Ham náði sér ekki á strik í fyrri
hálfleiknum ,,og það er ekki hægt að
ásaka leikmenn liðsins fyrir það eins
vel og Liverpool lék,” sagði Dennis
Law. Framverðirnir snjöllu, Trevor
Brooking og Allan Devonshire, sáust
varla.
í síðari hálfleiknum varð mikil breyt-
ing á leik West Ham til hins betra.
Lundúnaliðið hafði í fullu tré við
Liverpool og undir lokin sótti það nær
stanzlaust. Þegar sjö mínútur voru til
leiksloka kom Stuart Pearson i stað
Geoff Pike og á allt var hætt í sókn-
inni. Billy Bonds getur nagað sig í
handarbökin að jafna ekki þremur
mín. fyrir leikslok. West Ham fékk þá
aukaspyrnu rétt utan vítateigs.
Knötturinn var gefinn inn í teiginn á
Bonds, sem var alveg frír en skallaði
yfir. „Þarna átti Bonds að gera betur,”
sagði Law og merkilegt að hann skyldi
fá að skalla á markið alveg óvaldaður.
Liverpoolleikmennirnir allir með hug-
ann við David Cioss, sem var rétt hjá
fyrirliða sínum. En fleiri tækifæri fékk
West Ham ekki og leikmenn Liverpool
stóðu uppi í lokin sem sigurvegarar.
Verðskuldaður sigur og mikill fögn-
uður Liverpool-leikmannanna eftir
leikinn. Þeir höfðu leikið vel — fáir þó
betur en Ian Rush. Meðal áhorfenda
voru menn frá Bayern Munchen. Fyrri
leikur Liverpool og Bayern í Evrópu-
bikarnum verður 8. april.
Liðin i gær voru þannig skipuð.
Liverpool. Clemence, Neal, Allan
Kennedy, Hansen, Thompson, Ray
Kennedy, Lee, McDermott, Case, Dal-
glish og Rush. West Ham. Parkes,
Lampard, Martin, Bonds, Stewart,
Devonshire, Brooking, Pike (Pearson),
Neighbour, Goddard og Cross. Alvin
Martin var talinn leikfær rétt áður en
leikurinn hófst. -hsím.
Evrópumeistararnir
sigruðu Albani 2-0
Tvö mörk Bernd Schiister tryggðu
Vestur-Þýzkalandi sigur í HM-leiknum
við Albani í Tirana í gær í 1. riðli
Evrópu. Annar leikur vcstur-þýzku
Evrópumeistaranna i riðlinum og
annar sigurleikurinn. Austurríki er í
efsta sæli með sex stig eftir þrjá leiki.
Hinn 23ja ára SchOster, sem sló í
gegn í Evrópukeppninni á Ítalíu siðast-
liðið sumar og nú leikur með Barce-
lona; skoraði fyrra mark sitt á sjöundu
mín. í gær. Hið síðara á 70. mín. Fyrra
markið með þrumufleyg af 20 metra
færi eftir að Karl-Heinz Rummenigge
hafði leikið á bakvörðinn Djafa og
síðan gefið fyrir. Síðara mark Schuster
var einnig skorað með hörkuskoti utan
vítateigs og með því fóru allar vonir
Albana um að ná jafntefli. Tíu mínút-
um áður hafði Ilir Pernaska komizt
einn frir að þýzka markinu en spyrnti
knettinum beint á Toni Schumacher,
markvörð Þjóðverja. Eftir síðara mark
Schiister náði vestur-þýzka liðið
algjörum yfirburðum i leiknum án þess
þó að skora fleiri mörk. Áhorfendur
voru 30 þúsund. Staðan í riðlinum er
nú þannig:
Austurríki 3
V-Þýzkaland 2
Búlgaría 3
Albanía 5
Finnland 3
0 0 8—0 6
0 0 5—1 4
0 1 5—4 4
1 0 4 3—10 2
0 0 3 0—6 0
KOTA&EIA
og kostir hennarsem meqnjmrfedi.s
COTTAGE CHEEs^j
NEYSLUTILLÖGUR:
Morgunverður:
Borðið hana óblandaða beint úr
dósinni.
Hádegisverður:
Setjið kúf af KOTASÆLU ofan á
hrökkbrauðsneið eða annað gróft brauð
og þar ofan á t.d. tómatsneið, papriku-
sneið, blaðlauk, graslauk, karsa eða
steinselju og kryddið t.a.m. með svörtum
pipar.
Kvöldverður:
Saxið niður ferskt grænmeti og
notið KOTASÆLU í stað salatsósu. Ef
þið viljið meira bragð, getið þið bætt við
sítrónusafa og kryddi.
Athugið að:
1. í 100 g af KOTASÆLU eru aðeins
110 he (440 kj).
2. í KOTASÆLU eru öll helstu
næringarefni mjólkurinnar.
3. KOTASÆLA er mjög rík af
próteini og vítamínum.
4. KOTASÆLA er óvenju saðsöm
miðað við aðrar fitulitlar fæðutegundir.
5. Notkunarmöguleikar KOTA-
SÆLU eru nær óteljandi.
9.107
KOTASCIA
fitulítil og fneistandi