Dagblaðið - 30.05.1981, Blaðsíða 4
4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1981.
DB á ne ytendamarkaði
HRÆRD EGG MEÐ RÆKJUM
Uppskrift dagsins er að fljótlegum
og þægilegum rétti sem upplagt er að
búa til þegar veðrið er gott og menn
vilja ekki eyða of miklum tíma í eld-
húsinu. Rækjurnar sem í hann þarf
má eiga í frysti, egg eiga flestir, svo
og mjólk, smjör, brauð, salt og
pipar og einhvers staðar kann að
leynast þó ekki sé nema þurrkuð
steinselja.
6egg
1 bolli skelflettar rækjur
2msk smjör
1 bolll mjólk
salt, plpar og paprika
brauðsneiðar, sem ef vill má skera
kringlóttar, ristaðar og smurðar.
Skerið rækjurnar í bita nema
geymið 6 heilar til skrauts ef þið
viljið. Bræðið smjörið, bætið mjólk-
inni í, salti og pipar. Hellið rækjun-
um saman við og hitið i gegn. Þeytið
eggin saman þó án þess að gera þau
alltof loftmikil. Hellið þeim saman
viö mjólkurblönduna og sjóðiö við
mjög vægan hita og hrærið stöðugt í
Hérniilisbókhald vikuna:
Mat- og drykkjarvörur, hreinlætisvörur ogþ.h.:
Sunnud Mánud Þridjud Miðvikud FLmmtud Föstud Laugard
Samt Sarnt Samt Samt Samt Samt SamL
Öimur útgjbld:
Sunnud Mánud Þriðjud Miðvikud Fimmtud Föstud Laugard
*
BamL Samt SamL SamL Samt SamL SamL.
á meðan.Bezt er að nota til þess tré-
sleif. Gæta verður þess sérlega vel að
ekkert brenni við. Þegar þetta er
orðið að mjúkum og jöfnum graut
bætiö þá við steinseljunni, Kryddið
meira ef þarf. Þetta er siðan látið á
ristað brauðið og skreytt með af-
gangsrækjunum og jafnvel meiru af
steinselju. Borðist strax.
Rækjurnar i þennan rétt kosta 15
krónur. Verð hans í heild er þvi um
30 krónur eða 5 krónur á mann.
Reyndar er þetta ekki mjög seðjandi
réttur ef honum er deilt á sex eins og
uppskriftin gerir ráð fyrir. En með
góðum kaffisopa ætti það að duga
sem síðdegisréttur í sólinni.
-DS.
Aukin sala
viðauknar
niðurgreiðslur
Heildarsala á kindakjöti í ágúst-
mánuði í fyrra var 1100 tonn. Þar af
seldust 876 tonn af dilkakjöti. Þetta
kemur fram í nýjasta fréttabréfi land-
búnaðarins. Þar er rætt um þá miklu
sölu sem verður á landbúnaðarvörum
þegar niðurgreiðslur eru auknar
skyndilega. Þaö gerðist einmitt í
ágúst i fyrra. Þá var dilkakjötið allt i
einu mjög ódýrt og seldist fljótlega
upp í verzlunum, að minnsta kosti í
Reykjavík. Höfðu margir á orði að
svona væri þaö með loforð stjórn-
valda, þegar til ætti að taka væri
kjötið sem ætlað var alþýðunni ekki
til. En i fréttabréfinu kemur fram að
nóg var til af kjötinu en hins vegar
hafðist ekki undan að flytja kjötið'
suður. Meðalsala i ágúst eru 734 tonn
af dilkakjöti en i fyrra var sem sagt
farið vel upp fyrir það mark. Reynd-
ar var þaö ekki nýtt íslandsmet þvi
það síðasta er frá árinu 1977 , 949
tonn 1 ágúst. -DS.
Verðlaunahafi marzmánaðar:
„Metnaður að hafa
töluna ekki of háa”
—segir reykvískur verðlaunahaf i
• ,,Jú, mér finnst dýrt að lifa. Og
maturinn er allra dýrastur af því sem
maður getur ekki verið án,” sagði
Björn St. Lárusson verölaunahafi j
Neytendasíðunnar fyrir marzmánuð.
Björn valdi að verja verölaunaupp-;
hæðinni í stól sem hann fann í Skeif-
unni í Kópavogi. Verðlaunaféð, 1700
krónui, var reyndar ekki nægilegt'
fyrir stólnum þvi hann kostaði 2750
krónur. En Björn borgaði afganginn.
Björn býr með aldraöri móður
sinni, Guðrúnu Björnsdóttur, i
Reykjavík. Guðrún er ekkja Lárusar
heitins frá Miklabæ og Björn er því
bróðir séra Ragnars Fjalars sóknar-
prests í Hallgrimssókn. Björn vinnur
í málningarverksmiðjunni Hörpu.
„Ég hugsaði þennan stól einnig
handa móður minni. Þetta er þægi-
legur stóll fyrirhanaþar sem hún er
dálftiö fötluð,” sagði Björn.
Móðir hans sér að mestu um bók-
haldiö fyrir hann en Björn sér um
innkaupin.
,,Ég kaupi inn eftir hendinni. Við
getum ekkert geymt af mat og því er
ekki um annað aö ræða. Ég held
saman strimlunum úr búöinni og svo
færir móðir min upphæðina inn.
Við reynum að spara eftir mætti og
erum með lítið umfram föst útgjöid.
. .'V ,->1
Björn I stólnum góða fyrir framan Skeifuna í Kópavogi.
DB-mynd Bj.Bj.
Við borðum aðeins eina heita máltið
á dag, á kvöldin. Það er min aðalmál-
tíð yfir daginn. Ef eitthvað er, þá,
sparar maður heldur með því að
halda bókhaldiö. Það verður metn-
aður hjá manni að láta töluna ekki
verðaof háa.”
Björn er spurður að því hvort
honum gangi verr að halda á pening-
um eftir myntbreytinguna.
,,Já, ég held það. Mér finnst
ennþá að ein króna sé svo litil eining
og að til dæmis 35 krónur séu ekki
neitt neitt. En mér fundust 3500
gamlar krónur þó töluvert. Þetta
verður til þess að ég skoða hug minn
minna þegar ég kaupi eitthvað.
Ég hef ekki séö að þaö dragi neitt
úr verðbólgunni og hef satt að segja
ekki trú á því að svo fari,” sagði
Björn.
-DS.
Upps
Kritt