Dagblaðið - 30.05.1981, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 30.05.1981, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 30. MAI 1981. 5 Hafnarfjarðarvegur breikkar Hafnar eru vegaframkvæmdir við Hafnarfjarðarveg þar sem vegur- inn mjókkaði neðan við Arnarneshæðina. Hafnarfjarðarvegur verður því fljótlega fjórar akreinar í stað tveggja við Silfurtúnið. Nýi vegurinn mun liggja samhliða þeim gamla og ná að gatnamótum Vífilsstaðavegar. Það er Vegagerð ríkisins sem sér um lagningu nýja vegarins en fjárveiting var veitt eftir að vegaáætlun birtist. - ELA Ballett GRUNNUR TIL AÐ BYGGJA Á Nemendasýning Listdansskólans Listdansskóli Þjóðleikhússins Nemendaaýning Dansahöfundur og stjórnandi: Ingibjörg Bjömsdóttir Tónlist: Johann Strauss, Michael Pretorius, Gustav Mahler Sýningar í Þjóðleikhúsinu 27. og 28. maí Um þetta leyti árs útskrifa lista- skólar sem aðrir skólar nemendur sína og halda þá sýningar á því sem þeir hafa aðhafst á skólaárinu. Venjulegast er ekki ástæða til að fjalla opinberlega um þessar sýningar því þeim er ekki ætlað að segja eitthvað nýtt og skemmtilegt um lífið og til- veruna heldur eiga þær fyrst og fremst að gleðja nemendurna sjálfa og skyldfólk þeirra og veita almenn- ingi innsýn í starfsemi skólanna. En vegna sérstöðu listdans á ís- landi er gaman að geta um nemenda- sýningu Listdansskóla Þjóðleikhúss- ins sem var að mörgu leyti afar gleði- legur viðburður, ekki endilega í sjálfum sér, heldur vegna þeirra fýrir- Blaðsölustúlkurnar, fyrstl flokkur dansar. heita sem hann gaf um framtíðina. Fyrir tilstilli stjórnanda skólans og dansahöfundarins, Ingibjargar Björnsdóttur, sem er augljóslega eng- in undirmálsmanneskja, virðumst við í kjölfarið fylgdi klassískur dans frá ýmsum hliðum og mátti finna góð dansaraefni i öllum eldri flokkunum þannig að ekki ætti að væsa um ís- lenska dansflokkinn í framtíðinni. nú eiga grunn til að byggja á til frun- búðar í listdansi. Dansa sína samdi Ingibjörg svo kænlega að reyndi á þolrifin í öllum flokkum. Yngstu dömurnar fengu sambland af leikaraskap og hefð- bundinni tækni og spjöruðu sig vel. Það sem á skorti í tækninni var bætt upp í fjöri. Verði þá ekki búið að taka hann út af fjárhagsáætlun. Sérstaklega var ánægjulegt að sjá þokka og dramatisk tilþrif elstu stúlknanna og sömuleiðis það öryggi sem piltarnir tveir, Jóhannes Pálsson og Haukur Clausen, sýndu í tvidöns- um. -AI. DB-myndir: Bj.Bj. Tvidans, elstu nemendurnir sýna listir sinar. Krakkar skemmta krökkum — kókog léttlögá línuna í göngugöt- unni kl. 3 í dag Hornaflokkur Kópavogs undir ör- uggri handleiðslu Björns Guðjóns- sonar þeytir lúðra sína og ber bumbur á Lækjartorginu í Reykjavík kl. 3 í dag. Coca Cola verður veitt ókeypis á línuna öllum krökkum á öllum aldri. Veðurútlitið er gott, tiltölulega hlýtt og ekki skýjað nema með köflum. Nú er ekkert annað að gera en vonast eftir því að veðrið verði ekki lakara en spáin gerir ráð fyrir. Þá rignir ekki ofan í lúðrana hjá Kópavogslúðrasveitinni og bærilegt að svala sér á gosdrykk í göngugöt- unni. - BS HVER Á ÞESSA MYND? Þtui mynd er ein af k fjórða (U| lil- Rtykjavlk. A galUðri mynd m* iji ikyggna (ilidci). icm einn leienda Dag- hluta af liliUi, rauðri (lugvél blaðiini. Oddur Sigurðaion jarðfraeð- Þótt Oddur hafi ekki fengið ilnar ingur, fékk I mbgripum úr framkóliun i myndir. þá viD hann gja/nan koma Danmórku. Myndirnar voru ómerklar þeuum i hendur ríllra eigenda cnda að öflru Ityti en þvl að á meðíylgjandi eru trúlega lengdar þeim Ijúfar minn- mifla itóð ..Omerkt", Reykjavlk. ingar þcuara ungu hjóna. Myndanna Nokkrar þciiara mynda eru úr veizlu, má vitja á rititjórn Dagblaðiini. Siðu- likait lil brúðkaupiveUlu. en fleitar múla 12. ilmi 27022. hinna eru teknar úr litUIi Ougvíl yfir -ÓV. Myndirnar komnar í réttar hendur Það er ekki að spyrja að áhrifa- mætti DB — við lýstum í gær eftir eiganda þessarar myndar og fjöl- margra annarra sem einn lesenda DB fékk í misgripum frá Danmörku. Það var ekki liðin löng stund frá því að blaðið kom út þegar Jóhannes Harðarson nokkur birtist á ritstjórn og sagðist þekkja þetta fólk mætavel. Þetta væru þau Agnes Arthúrsdóttir og Ólafur Arason tæknifræðingur, búsett í Mosfellssveit. Lofaði Jó- hannes að koma myndunum í hendur réttra aðila. Eldur í rusli íBergstaða- stræti Eldur kom upp i rusli á baklóð Bergstaðastrætis 55 rétt fyrir kl. 13 í gærdag. Slökkviliðið kom strax á vettvang og tókst að slökkva eldinn á örskammri stundu. Eryar skemmdir urðu á húsinu en reykur komst inn um glugga. Liklegt er að kveikt hafi verið í ruslinu. -ELA/DB-mynd S.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.