Dagblaðið - 30.05.1981, Blaðsíða 16

Dagblaðið - 30.05.1981, Blaðsíða 16
16 DAGBLADIÐ. LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1981. Magnús Karel og Friðrik Páll á eina mann virkinu á jörðinni sem sést frá tunglinu, Kínamúrnum. Snœddur kvöldverður íboðiforstöðumanns Vináttusamtakanna IXian. Þetta kvöld voru 12réttirá borðum. vttt og oreitt um Atnaveiai Eins og kunnugt er af fréttum Dag- blaðsins dvöldu fimm íslendingar í Kína yftr páskana i boði Vináttusam- taka Kínverja við aðrar þjóðir. Þeir voru Arnþór Helgason.formaður Kín- versk-íslenzka menningarfélagsins, Kristján Guðlaugsson, kennari og fyrrverandi formaður KÍM, Kristján Jónsson framkvœmdastjóri, Friðrik Páll Jónsson fréttamaður og Magnús Karel Hannesson, fréttaritari Dag- blaðsins. Ferðuðust þeir ftmmmenn- ingarnir vitt og breitt um landið, eða samtals um sjö þúsund km. Lengst dvöldu þeir í höfuðborginni Beijing og skoðuðu þar meðal annars Kinamúr- inn og gömlu keisarahallirnar. Síðan fóru þeir til Xian en þarjannst fyrir nokkrum árum einn merkasti forn- leifafundur á síðari árum, 6000 manna vopnaður her gerður úr brenndum leir. Þaðan var haldið til Chengdu I Mið-vestur-Kina og ferðinni lauk i Guang-zhou (Canton). Alls staðar var tekið á móti ferðalöngunum með kostum og kynjum og á meðfylgjandi myndum má sjá þá á hinum og þessum stöðum í Kína. MKH Hlustað áfrásögn framkvœmdastjóra baðmuUarverksmiðju I Chengdu. 1 Kína er mikið af gömlum kcisarahöllum og þar hafafundizt margar ketsaragraf ir og eru þœr I flestum tilvikum nokkurs konar neðanjarðarhallir. Kristján Jóns- son, Arnþórog Kristján Guðlaugsson eru hér niðri I einni. Fjölþœtt útgáfa Iceland Review — Lisíaverkabók um Kjarval væntanleg á þessu ári og einnig timaritið Atlantica sem dreift er i þotum Flugleiða. Jafnan koma einnig út nokkrar bækur á ári frá útgáfunni. Haraldur var að lokum inntur eftir því hverjar yrðu helztar í ár: „Auk árbókarinnar sem ég nefndi áðan má geta listaverkabókar um Kjarval. Hún er búin að vera í undir- búningi um nokkurt skeið og ég von- ast til að hún komi út á þessu ári. Það eru Aðalsteinn Ingólfsson og Matt- hías Johannessen sem sjá um texta bókarinnar. — Ýmislegt fleira er í at- hugun en ég held að ekki sé ástæða til að nefna fleiri en þessar tvær bæk- ur.” -At- Haraldur J. Hamar, ritstjóri, á skrif- stofu sinni. DB-mynd: Ragnar Th. Arnþór vigtaður. Eitthvað skolaðistþyngdin áformanninum til I meðjörum þeirra Kinverjanna. Þeirsögðu hann rúm 400 kg. „Það er svo sem engin bylting á blaðinu. Við getum öllu heldur talað um hægfara þróun i efni og útliti,” sagði Haraldur J. Hamar útgefandi og ritstjóri er hann var inntur eftir gangi mála hjá tímaritinu Iceland Review. Fyrsta tölublað þessa árs er nýkomið út, glæsilegt að vanda og troöfullt af efni um ísland og íslend- inga. í leiðara blaösins boöar Haraldur útkomu árbókar um fiskiðnað lands- manna á síðasta ári, Iceland Fisheries Yearbook 1981. „Þetta er tilraun sem ekki hefur verið reynd hér áöur hvorki á ensku né islenzku,” sagði Haraldur. ,,í þessari bók verður dregið saman það helzta sem gerðist i fiskveiðum og fiskiðnaði hér á landi.” Auk Iceland Review gefur Haraldur út mánaðarritið News From Iceland

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.