Dagblaðið - 30.05.1981, Side 7
7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1981.
Bandarfskur sendimaður frá utanrfkisráðuneytinu kom i vikunni til viðræðna við forráðamenn Cargolux vegna kaupanna á
Herculesvélinni. Samkvæmt heimildum DB kom hann á þessari einkaþotu.
Herculesflugvélin sem Cargolux keypti frá Kanada. Vélin var sfðan gerð upp og
seld Green Line Aviation sem seldi vélina til Lfbfu.
Sendimaður frá bandaríska utan-
ríkisráðuneytinu kom til Luxemborg-
ar í vikunni til viðræðna við forráða-
menn Cargolux. Einar Ólafsson for-
stjóri Cargolux sagði í gær að félagið
hefði staðið í bréfaskriftum við
bandaríska sendiráðið vegna kaupa á
Hercules-flutningaflugvél. Sendi-
maður hefði komið frá „State
Department” og teldi hann að
Bandaríkjamenn yrðu að gefa út-
flutningsleyfi á vél sem smíðuð væri í
Bandarikjunum, jafnvel þótt hún
væri seld af þriðja aðila.
Samkvæmt upplýsingum DB og
frásögn í vikublaði fyrir flugvélaiðn-
að, „Speednews”, keypti Cargolux
tvær Herculesvélar, L-100-20 frá fé-
lagi í Canada, Pacific Western Air-
Hreyflar og skrúfur af Hercules f flugskýli Cargolux i Luxemborg. Talsvert af
varahlutum fylgdi Herculesvéiinni til Lfbiu.
menn hafa stutt múhameðstrúar-
menn með vopnum og liðssafnaði.
Síðari vélin, merkt UAA, United
African Airlines, hélt frá Luxemborg
fyrr í vikunni. Einar Neitaði því að
Boeingvélarnar hefðu verið á vegum
Cargolux. Vélin sem fór í vikunni
hefði verið keypt af Air Lingus en
Cargolux hefði aðeins séð um að
mála hana.
Heimildir DB greina að þessi við-
skipti hafi vakið talsverða athygli og
hafi blaðið Herald Tribune meðal
annars skrifað um sölu Cargolux á
vélum til Líbiu. Einar Ólafsson
sagðist í gær ekki kannast við þessi
skrif Herald Tribune.
,,Ég veit ekki hvað Bandarikja-
mönnum koma þessi viðskipti við,”
sagði Einar í gær. „Samkvæmt þessu
mætti Cargolux ekki kaupa flugvél af
Flugleiðum nema fá leyfi Bandaríkja-
manna fyrst vegna þess að vélin er
smíðuð i Bandaríkjunum.” -JH.
—vegna flug-
vélakaupa og
sölu til Líbíu
Cargolux undir smá-
sjá Bandaríkjamanna
Viðskipti Cargolux og félags í
Luxemborg við Líbíumenn eru undir
smásjá bandarískra stjórnvalda.
Cargolux keypti notaða Hercules-
flutningaflugvél frá Kanada. Vélin
var gerð upp og síðan seld Green Line
Aviation sem hefur aðsetur í Luxem-
borg. Green Line Aviation seldi vél-
ina síðan til Líbíu.
lines. Einar Ólafsson neitaði því í gær
að vélarnar væru tvær. Aðeins önnur
hefði verið keypt. Frásögn „Speed-
news” um flugvélakaupin er frá 27.
febrúar sl.
Þá greindu heimildir Dagblaðsins
einnig að Cargolux hefði keypt tvær
Boeing 707 þotur og gert þær upp.
Þær vélar hefðu síðan verið seldar til
Líbíu og væru m.a. notaðar til liðs-
flutninga til nágrannaríkisins Chad.
Þar hefur sem kunnugt geisað borg-
arastríð undanfarin ár milli múham-
eðstrúarmanna og kristinna. Líbíu-
F.v. Sigrún Guðmundsdóttir, Jóhannes Pálsson og Katrin Hall.
Þrír ungir
dansarar hljóta
viðurkenningar
Að lokinni sýningu Listdansskóla
Þjóðleikhússins á miðvikudagskvöldið
voru í fyrsta sinn veittar viðurkenning-
ar úr nýstofnuðum Listdanssjóði Þjóð-
leikhússins.
í fjarveru Sveins Einarssonar skýrði
Haraldur Ólafsson lektor, formaður
Þjóðleikhússráðs, frá tildrögum þessa
sjóðs sem efla á listdans í landinu með
því að gefa ungum dönsurum tækifæri
til að ferðast og læra af dansi í öðrum
löndum.
í þetta sinn var ákveðið að veita
þrjár viðurkenningar, að upphæð 2500
krónur hver, og hlutu þær þrír nem-
endur úr fjórða flokki listdansskólans:
Jóhannes Pálsson.Katrín Hall og Sig-
rún Guðmundsdóttir.
-AI.
Opnum í dag í nýju húsnæði að Sig-
túni 3 Reykjavík.
KENNSLA HEFST AÐ NÝJU í NÆSTU VIKU.
INNRITUN í SÍMA 26088
OPIÐ Mánudaga kl. 13.00—18.00 og 20.00—22.00
Þriðjudaga kl. 13.00—18.00 og 20.00—22.00
Miðvikudaga kl. 13.00—18.00
Fimmtudaga kl. 13.00—18.00 og 20.00—22.00
Föstudaga kl. 13.00—17.00
Laugardaga kl. 13.00—15.30