Dagblaðið - 24.06.1981, Blaðsíða 2
2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNl 1981.
Tilkynning
um skattskrár i Vestfjarðaumdæmi, sbr. 2. mgr. 98. gr. laga nr.
40/1978.
Skattskrár sveitarfélaga I980 (vegna ársins 1979) liggja frammi 22. júní
tilogmeðö. júlí 1981.
Heildarskrá og skattskrá ísafjarðar liggja frammi á Skattstofunni, Skóla-
götu 10, á venjulegum skrifstofutíma.
Skattskrár annarra sveitarfélaga liggja frammi á vegum hvers umboðs-
manns, eins og hann auglýsir.
ísafirði, 19/6 1981,
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi
Útboð-
gatnagerð
Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í gatnagerð í fjölbýlishúsa-
hverfi í Hvömmum.
Verktími er að hluta til 15. september en verkinu á að vera
aðfullulokið l.maíl982.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjarverkfræðings,
Strandgötu 6, gegn. 300 kr. skilatryggingu.
Tilboð verðá opnuð á sairia stað fimmtudaginn 2. júlí nk.
kl. 1 h
Bæjarverkfræðingur
Smá sýnishorn af bílum
sem eru á staðnum
Það er eitt að vera önd og annað að vera kind, a.m.k. leggur jarðeignadeild ríkisins þessar skepnur ekki að jöfnu.
DB-mynd: Ragnar Th.
ROLLUBUSKAPUR
SKAL ÞAÐ HEITA
Chevrolet Malibu Classic ’78,2ja dyra, sjálf-
skiptur, vökvastýri, aflbremsur, rafmagnsrúöur,
Honda Accord ’80,4ra dyra,
Honda Accord ’78,2ja dyra,
Honda Civic ’77,
Toyota Corolla ’81,
Toyota Cressida ’78,
Citroén GS ’77.
Bjarnl skrifar:
Ég er að leita mér að jörð þar sem
hægt er að koma upp æðarvarpi.
Ég hringdi til jarðeignadeildar
ríkisins af því tilefni, ef þeir hefðu
jörð á leigu.
Aðeins eina jörð til slíks búskapar
taldi viðmælandi minn hugsanlega
lausa hjá jarðeignadeildinni.
Hins vegar fylgdi sú kvöð að þvi
aðeins seldu þeir ábúanda jörðina á
leigu að hann ræktaði hana, hefði
fjár-eðakúabú.
Þannig hugsa ráðandi stjómmála-
öfl í dag: Jarðir skal leigja þeim
einum sem grasið nytja.
Æðardúnn er góð vara og í háu
verði, líka á erlendum markaði vegna
þess að litið er til af honum i
heiminum.
Það eru að vísu uppi raddir um að
fjölga eigi búgreinum.
Mér virðist það meiningarlaust
skvaidur þegar enginn getur tekið
jörð á leigu hjá jarðeignadeild
ríkisins nema nytja gras til heyja og
beitar.
Þetta skýtur nú nokkuð skökku við
þar sem um ofbeit er að ræða auk
þess sem offramleiðsla er á kjöti,
mjólk og smjöri i landinu.
Bílasala Eggerts STss
111 Hitaveita
W Reykjavíkur
Hitaveita Reykjavíkur óskar eftir að ráða
járniðnaðarmann vanan pípusuðu, vinnan
felst í almennu viðhaldi dreifikerfis.
Krafizt er hæfnisvottorðs í pípusuðu, raf-
suðu og logsuðu frá Rannsóknastofnun
iðnaðarins. Uppl. um starfið veitir Örn
Jensson að bækistöð HR Grensásvegi 1.
TILKYNNING
til dísilbifreiðaeigenda
Frá og með 1. júlí nk. fellur niður heimild til þess að miða
ákvörðun þungaskatts (kílómetragjalds) við þann fjölda ek-
inna kílómetra, sem ökuriti skráir, nema því aðeins að
þannig sé frá ökuritanum gengið að hann verði ekki
opnaður án þess að innsigli séu rofin, sbr. reglugerð nr.
264/1981. Af þessum sökum skulu eigendur þeirra bifreiða,
sem búnar eru ökuritum, fyrir 1. júlí nk. snúa sér til ein-
hvers þeirra verkstæða, sem heimild hafa til ísetningar öku-
mæla, og láta innsigla ökuritana á þann hátt sem greinir í
nefndri reglugerð. Að öðrum kosti skulu þeir láta útbúa
bifreiðar sinar ökumælum, sem sérstaklega hafa verið
viðurkenndir af fjármálaráðuneytinu, til skráningar á
þungaskattsskyldum akstri.
Fjármálaráðuneytið,
22. júni 1981.
Tré geta veitt góða vörn gegn
Trjáplöntur gegn
umferöarhávaða
Húsmóðir i Álftamýri hringdi:
— Ég vil beina þeim tilmælum til
borgarráðs og borgaryfirvalda að
þau hlutist til um að það verði settar
upp myndarlegar trjáplöntur á íbúða-
svæðunum við Kringlumýrarbraut-
ina. Hávaðinn frá umferðinni á
Kringlumýrarbrautinni er gífurlegur
og ég er viss um að það væri til mik-
illa bóta ef við fengjum trjábelti hér i
líkingu við það sem er meðfram
Miklubrautinni við Framvöllinn.
Ég vil svo bara minnast á það að
apótekið hér í hverfinu er til hábor-
innar skammar. Það stendur ómálað
ár eftir ár og lóðin umhverfis er
aldrei hirt. Ég held að það sé ekki til
Raddir
lesenda
of mikils mælzt að þeir sem eiga
svona eignir reyni að þrifa til í
kringum sig eins og aðrir íbúar
hverfisins.