Dagblaðið - 24.06.1981, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 24.06.1981, Blaðsíða 24
Opinberri heimsókn forseta Islands í Strandasýslu lýkurídag: „STRANDAMENN ERU MONTNIR AF YKKUR” — sagði Regína Thorarensen um kvenskörungana tvo, Vigdísi Finnbogadóttur og Hjördísi Hákonardóttur Reykjarsúla upp frá Víðinesi á Kjal- arnesi vakti ugg margra i gær- kvöld og töldu menn að kviknað væri í verzlunarhúsnæði Kjörvals. Slökkvibilar voru sendir á staðinn og fór annar alla leið. í Ijós kom að verið var að brenna afgöngum bildekkja, sem notuð eru i sprenglmottur í Vfðlnesi. Eldur- ínn var því hættulaus — en svartur mökkurinn spillti fyrir yndisfögru Jónsmessukvöldi. DB-mynd: S. Biskupskjör: Fyrri úrslit birt 10. júlí Niöurstaða atkvæöagreiðslu vegna biskupskjörs ætti að liggja fyrir 10. júlí. Frestur til að skila kjörgögnum er til 3. júlí og siðan þarf að líða ein vika áður en talning atkvæða fer fram, svo að öl! gögn hafi örugglega skilað sér frá póstþjónustunni. Fari svo aö enginn hljóti hreinan meiri- hluta atkvæða, verður kosið aftur. í sfðari umferð verður kosið um þá þrjá sem efstir voru að atkvæðatölu og ræður þá einfaldur meirihluti þvi hver skuli verða biskup i stað herra Sigurbjörns Einarssonar. Síðari um- ferð biskupskjörs, ef til kemur, tekur fjórar vikur. Endanleg úrslit liggja þá fyrir um miðjan ágústmánuð. Alls taka 148 manns þátt í biskups- kjörinu. Auk prestanna eru það nú- verandi biskup, fulltrúar prófasts- dæmanna, kirkjuráðsmenn, kirkju- þingsmenn, blaðafulltrúi og æsku- lýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar, far- prestur, fangelsisprestur, sendiráðs- presturinn í Kaupmannahöfn, rektor Skálholtsskóla, dósentar og prófess- orar í guðfræðideild Háskólans. Aðeins 4 konur eru í þessum fríða flokkil Þrir préstar eru einkum nefndir í embætti biskups: Séra Arngrímur Jónsson, Reykjavík, séra Ólafur Skúlason, Reykjavík, og séra Pétur Sigurgeirsson á Akureyri. í skoðana- könnun Dagblaðsins meðal almenn- ings í vor kom í Ijós að þeir þrír njóta mests trausts meðal þjóðarinnar. i Séra Pétur og séra Ólafur áttu þó áberandi mestu fylgi að fagna. - ARH Fri Jónasi Haraldssyni, blaðamanni Dagblaðsins, 1 fylgd með forsetanum á Ströndum: ,,Ég var ekki alltof ánægð eftir forsetakosningarnar í fyrra. Ég var Albertsmaður og Vigdís veit það vel,” sagði Regína Thorarensen, fréttaritari DB í Árnesi á Ströndum I gær. ,,En þetta álit mitt hefur breytzt og. nú lýsti ég sérstakri ánægju með þá tvo kvenskörunga, sem heimsækja okkur norður á Strandir, Vigdisi Finnbogadóttur forseta og Hjördísi Hákonardóttur sýslumann. Við Strandamenn erum montnir af ykkur.” Regína, sem lengi bjó á Gjögri á ströndum og er sem kunnugt er fréttaritari á Eskifirði, kom í sína fornu heimahaga í fyrradag. Hún náði því að fagna forsetanum og fylgdarliði hans er frú Vigdís Finn- bogadóttir kom í Árneshrepp, nyrzta byggða hrepp á Ströndum. Veðrið lék við Vigdísi, sólskin og logn, og raunar sýndi sýslan öll for- setanum spariandlitið. Ferðalagið frá Hólmavík var því hrein lystireisa. Það var þvi ekkert blóðrautt sólar- lag í Djúpuvík. Forsetinn gerði þar stuttan stanz, stólar og borð voru í húsum og Suðurlandið, það forn- fræga far, í fjörukambinum, en íbúar eru fáir. Hreppsbúar fögnuðu Vigdísi með samsæti í félagsheimilinu í Árnesi. Til minningar um komuna gáfu þeir forsetanum selskinnsskó og .málaða rekaviðarfjöl. Opinberu heimsókninni lýkur I dag. Forsetinn lagði af stað frá Hólmavík kl. ellefu i morgun og snæðir hádegisverð á Borðeyri kl. eitt. Sýslumaður Strandasýslu kveður forsetann á Holtavörðuheiði kl. 15.30. -KMU Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, rœðir við Regínu Thor- arensen, fréttaritara DB, sem hefur sumarsetu á Ströndum. Á minni myndinni heldur forseti á rekaviðarfjölinni sem íbúar í nyrzta hreppi á Ströndum fœrðu henni að gjöf. DB-myndir: Jónas Haraldsson. Húseigendur varaðir við gylliboðum: „Sérhæfír sig í viðskipt- um við einstæðar konur” — segir lögff ræðingur Húseigendaf élagsins um svartan sauð meðal húsaviðgerðarmanna „Það er fullkomin ástæða og mörg tilefni til að vara húseigendur við að gleypa við gylliboðum og loforðum þeirra manna sem auglýsa að þeir taki að sér alla skapaða hluti I sam- bandi við viðhald húsa, girðingu lóða, lagningu stétta og allt sem nöfnum tjáir að nefna,” sagði Sigurður Helgi Guðjónsson, lög- fræðingur Húseigendafélags Reykja- víkur í samtali við DB. „f ýmsum tilfellum er hér um að ræða óvandaða menn sem hvekkt hafa fólk I viðskiptum,” sagði Sigurður Helgi. Lögfræðingurinn kvaðst hafa staðið að kærunni fyrir hönd húseig- enda sem látið höfðu glepjast af gylli- boðum viðgerðarmanna húseigna. Taldi hann þá í fæstum tilfellum, í auglýsingum eða viðskiptum, gefa upp rétt nöfn heldur jafnvel auglýsa og reka það sem þeir teldu fyrirtæki undir einu nafni eitt tímabil og undir öðru nafni annað timabil. Sigurður Haukur nefndi okkur dæmi um mann sem hann kvaðst hafa kært til yfirvalda á sl. ári. Sá hefði í október rekið „fyrirtæki” undir nafninu Húseignaþjónustan. Áður hafði „fyrirtæki” er sami maður rak verið auglýst undir nafninu Húseigendaþjónustan. Tekið skal fram að enn auglýsir „Húseignaþjónustan” margs kyns þjónustu við húseigendur. DB hefur ekki tekizt að ná tali af neinum ráða- manni í fyrirtækinu, en svarað er í uppgefna sima og skilaboð tekin. Erla Jónsdóttir, deildarstjóri hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins, kvaðst hafa haft afskipti af kærum vegna umræddra mála. Halldór Þorbjörns- son yfirsakadómari 1 Reykjavík sagði að bæði hefðu verið felldir og á næstu dögum yrðu kveðnir upp nýir dómar i sambandi við meint svik í málum sem hér hefur verið um rætt. Lögfræðingur húseigendafélagsins tjáði DB að kæran sem hann lagði fram I október sl. og nú væri lfklega að koma til dóms stæði I sambandi við að einstæð kona hefði snúið sér til fyrrnefnds fyrirtækis og beöið um að sumarbústaðarland hennar yrði girt. Viðmælandi hennar taldi sllkt auðvelt mál. Litlu síðar fékk konan einstæða reikning fyrir 80 tíma vinnu en girðingin var litlu betri en hún hafði verið er konan taldi að upp á hana þyrfti að lappa. Þegar lögfræðingurinn komst I málið lofaði verktaki að endurgreiða rúmlega helming hins himinháa reiknings sem hann hafði sent fyrir „viðgerð” á girðingunni og fengiö greiddan. Sú endurgreiðsla hefur aldrei borizt og „verktakinn” er á laganna máli ekki talinn borgunar- maður fyrir neinu. Taldi lögfræðing- urinn að sá verktaki sem hann kærði „sérhæfði sig”, ef svo mætti segja, I viðskiptum við ekkjur og einstæðar konur sem eignir ættu. - A.St. frjálst, úháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1981. „Sölumenn- irnir” ákærðir Rikissaksóknari hefur höfðað opin- bert mál á hendur þeim Edvald Löv- dahl og Sigurði Erni Ingólfssyni fyrir stórfelld fjársvik og skjalafals. Þeir voru báðir margoft í fréttum í fyrra- sumar og kallaðir „sölumennirnir”. Svikin skiptu tugmilljónum króna og munu um eitt hundrað manns hafa tengzt málinu. Eins og DB rakti rækilega á slnum tíma ferðuðust þeir félagar um landið og seldu og dreifðu ýmsum vörum, einkum leikföngum, en einnig keyptu j>eir og seldu aflóga sildarverksmiðju I Djúpuvík á Ströndum. Út úr þcssum viðskiptum öllum fengust víxlar sem einkum voru notaðir I bílaviðskiptum. Báðir hafa mennirnir verið I farbanni síðan rannsókn málsins Iauk en áður voru þeir I gæzluvarðhaldi. í tengslum við þetta mál hefur verið höfðað mál á hendur tveimur öðrum mönnum, kaupmanni í Borgarfirði og heildsala í Reykjavik sem flutti inn vörurnar er þeir Edvald og Sigurður örn dreifðu. -ÓV IVIKU HVERRI ÍDAG ER SPURNINGIN: í hvaða dálki, á hvaða blaðsíðu er þessi smáauglýsing I blaðinu í dag? Silver Cross kerruvagn, dökkblár og rauður, til sölu. Selst ódýrt. Uppl. í síma 75844. Hver er auglýsingasimi Dagblaðs- SJÁ NÁNAR Á BAKSÍÐU BLAÐSINS Á MORGUN. Vinningur vikunnar: Tíu gíra reiðhjól frá FáHcanum hf. Vinningur / þessari viku er 10 gíra DBS eða Raleigh reiðhjóI frú Fúlkanum, Suðurlandsbraut 8 í Reykjavík. I dag er birt ó þessum stað i blaðinu spurning, tengd smó-' auglýsingum hlaðsins, og nafn heppins óskrifanda dregið út og birt I smáauglýsingadálkum á morgun. Fylgizt vel með, áskrif endur, fyrir ncestu helgi verður einn ykkar glæsilegu rciðhjóli rikari. hressir betur.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.