Dagblaðið - 24.06.1981, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ1981.
3
Kvíðir þú sjónvarpsleysinu?
Vestri skrifar:
Ofangreinda fyrirsögn má sjá i
dagblöðunum ár hvert áður en sjón-
varpið islenzka fer í frí. Eru þá veg-
farendur gjarnan teknir tali og
spurðir þessarar spurningar.
Venjulega eru þetta almennir, full-
friskir borgarar á förnum vegi eða
við störf sín hingað og þangað. —
Svör þeirra eru nokkuð dæmigerð
um þaö áhugaleysi og það vanmat
sem landsmenn hafa á ísienzka sjón-
varpinu.
Dæmi: „Nei, ég hlakka til.” —
„Nei, því að það er orðiö frekar
lélegt.” — „Nei.hreint ekki, ég les
eða geri eitthvað annað.” — „Ne-
hei, alis ekki, því ég horfi yfirleitt
frekar lítið á sjónvarpið.” — Þessi
svör eru reyndar tekin upp úr einu
dagbiaði sem sýnishorn.
En hafa blöðin farið á elliheimilin,
sjúkrahúsin — og i heimahús þar sem
fólk er sem ekki hefur neina mögu-
leika á að veita sér aðra afþreyingu
en sjónvarpið, þótt hörmulega lélegt
sé?
Það fengjust áreiðanlega önnur
svör en hér að ofan greinir. Gamalt
fólk og annað, sem ekki á heiman-
gengt yfirleitt, er furðu lostið yfir
þeirri svívirðu aö loka sjónvarpinu.
Og nú er lokunin smám saman að
lengjast, nú um viku, næst verður
það áreiöaniega allur ágúst lfka. Og
sennilega verður það svo allt
sumarið.
Sjónvarpið er nú ekki á neinu til-
raunastigi lfkt og fyrstu árin, þótt
sjónvarpsefnið gæti sagt til um
annaö. — Á sínum tima kom sú til-
laga fram einhvers staðar að sjón-
varpið sýndi svo sem eina biómynd á
hverju kvöldi yfir þennan „lokunar-
tíma”, svona rétt til þess að láta fólk
fá eitthvað fyrir afnotagjaldið, og
sýndi að það gleymdi ekki þeim sem
bundnir eru við sinn samastað allt
árið þótt sjónvarpsfólk fari í fri. En
ónei, slíkt kemur þeim í útvarpsráði
ekki til hugar. Þeir fria sig allri
ábyrgð af skyldum viö gamla og
sjúka.
Það voru hinir sjúku sem þó allra
fyrstir urðu sjónvarps aðnjótandi á
íslandi, þegar varnarliðsmenn á
Keflavíkurflugvelli gáfu sjónvarps-
tæki tii afnotá fyrir sjúklinga á
sjúkrahúsum.
Kannski eru þeir i útvarpsráði að
hefna sín á gamalmennum og
WWPWi
oooooooo
OOOOQOOO
00oooooo
oooooooo
oooooooo
OQOOOOOO
oooooooo
oooooooc
OOOOOOOC
oooooooc
OOOOOOOO
oooooooc
OOOOoooc
Flestir eru mjög ánægðir með að sleppa víð sjónvarpið, en hvaö um gamla fólkið?
spyr Vestri.
sjúklingum fyrir þann tima sem
Keflavíkursjónvarpsins naut við á
sjúkrahúsunum, löngu áður en rfkið
tók upp á þvi, illu heilli, að reka sjón-
varp sem er þvi gjörsamlega ofviða
og kastar höndunum til efnisvals og
dagskrárlengdar. Sl. sunnudagskvöld
stóð dagskrá til kl. 22.15 — góð dag-
skrá það! Burt með íslenzka sjón-
varpið að fullu með núverandi fyrir-
komulagi og upp með Keflavikur-
sjónvarpið!
Óþarfa
hæverska
Guðni Baldursson skrifar:
Mér hnykkti við þegar ég las í dag-
skrárkynningu Dagblaðsins á föstu-
daginn að sýna ætti um kvöldið
mynd um kynvillinga í lögreglunni í
San Francisco. Þar sem ég vissi ekki
hver Wicker var, en hann er þekktur
brezkur sjónvarpsmaður (þessi kurt-
eislegi, sköllótti), einsetti ég mér að
horfa á þáttinn, ákveðinn að skrifa
lesendabréf út af myndinni.
Nú vitum við, sem sáum myndina,
að ekki er ástæða til þess að kvarta yfir
henni en mér fmnst að það eigi að Á
láta heyra i sér einnig fyrir það sem
vel er gert. Mér þótti vel til fundið að
kalla þessar lögreglukerlingar kyn-
villinga og þótti gaman að sjá hvernig
hægt var að nota þær til þess að fást
við litvillinga (í öllum tónalitunum)
og þjóðvillinga (sem ráða ekki við
einföldustu ensku, i San Francisco!)
þegar þeir voru ýmist að stinga
seðlum að eða nappa seðlum frá
kynvillingunum. Þýðandinn var
óþarflega hæverskur að sleppa að
þýöa svar kynvillingsins i framsæti
lögreglubílsins, þegar Wicker spurði
hvemig brugðizt væri við henni í
lögreglustarfinu: They ask if I’m a
dvke or something. Dagurinn, 19.
júni, var hnyttilega valinn.
IWhÍcKErTkALIFORNÍU—sjónvarp í kvöld kl. 21,15:
I dvke (fr -d/'(^n hermapRrodite) 1. the manmsh, swaggerlng, cigarJ
•“""Jjuffing lesbian 2. (pe/) any gay woman "You'd turn queer
too, if your mother was a dyke. ’ _
SAN FRANCISCO
|— konumar standa sfe ekkort sífturw toteiwijjnjjL
Hjól hvarf
frá
Kjalamesi
Um helgina hvarf svart karlmanns-
reiðhjól frá Sætúni á Kjalarnesi og
eru þeir sem geta gefið upplýsingar
um það hvar hjólið er niðurkomið
beðnir um að hafa samband við Dag-
blaðið i sima 27022.
Hjólið er af gerðinni Gimondi,
fimm gira karlmannsreiðhjól, með 24
tommu gjörð. Drengurinn sem á
hjólið hafði aurað saman fyrir því
með ærinni fyrirhöfn og er tjónið því
tilfinnanlegt ef hjólið kemur ekki í
leitirnar.
NYR
SYNINGARSALUR
NOTAÐIR
BILAR
Seljum í dag:
SAAB 96 71,2ja dyra, Ijósbrúnn
SAAB 96 72,2ja dyra, Ijósbrúnn
SAAB 99 73,2ja dyra, gulbrúnn, ekinn 66 þús. km
SAAB 99 74,4ra dyra, dökkblár, ekinn 141 þús. km,
SAAB 99 77,2ja dyra, Ijósblár, ekinn 68 þús. km
SAAB 99 78,2ja dyra, rauður, ekinn 68 þús. km
SAAB 900 79,3ja dyra, brúnn, ekinn 28 þús. km
SAAB 900 EMS 79,3ja dyra, Ijósblár, ekinn 33 þús. km
SAAB 99,1980,4ra dyra, sjálfskiptur, dökkrauður, ekinn aðeins 2700 km.
TOGCUR HR
SAAB UMBOÐIÐ
BILDSHÖFÐA 16.
SIMI 81530
Spurning
dagsins
Notar þú
strsstisvagna?
Roger Lutley llffræðlngur: Já, ég nota
þá stundum.
Slgurflur Ingvarason liffræðlngur: Það
kemur fyrir en samt hefur það minnk-
að mikið þar sem ég er nýbúinn að fá
mér bíl.
Kolbrún Kristinsdóttlr rannsóknar-
maður: Nei, aldrei.
Sigurður Magnússon Uffræðingur: Já
heilmikið. Yfirleitt á hverjum degi.
Björg Einarsdóttir, vlnnur á Keldum:
Já, þaðgeriég.
Jóhann Engilbertsson: Já, en ekki
mjögmikið.