Dagblaðið - 24.06.1981, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ1981.
5
Nýtt mál Björns á Löngumýri til dómstóla:
„DÓMSTÓLAR SKERIÚR UM HVAÐ
ER TRIPPIOG HVAÐ GRAÐHESTUR”
BÚNAÐARBANKINIM -
SELJAHVERFI
Búnaöarbanki íslands leitar að húsnæði til leigu
til bráðabirgða fyrir nýtt útibú bankans í Selja-
hverfi í Reykjavík, Seljaútibú.
Leigutími 1—3 ár eða eftir framkvæmdahraða
við fyrirhugaðan miðbæjarkjarna í Seljahverfi
þar sem útibúinu er ætlaður framtíðarstaður.
®bi)naðarbanki
vy ISLANDS Skipulagsdeild
: Austurstræti 5, simi 25600.
Tvö útlend blöð um Island:
Fallegt land
og fólkið sér-
lega hugrakkt
Á fjörur okkar rak nýlega tvö
blöð, ætluð ferðamönnum úti í
hinum stóra heimi. Annað blaðið er
eingöngu helgað íslandi og hitt birtir
grein um ísland. Og af því að okkur
finnst allt svo merkilegt, sem skrifað
er um okkur, blöðuðum við nokkuð í
þessum ritum.
Blaðið, sem eingöngu er helgað fs-
landi, heitir Conference and Incent-
ive PLANNER. Það er gefið út af
Starker og sonum í London og rit-
stjóri þess er Caroline Cooke. í
blaðið rita bæði útlendingar og fs-
lendingar. Sem dæmi um síðarnefnda
hópinn má nefna Kjartan Lárusson,
Skúla Þorvaldsson (hótelstjóra á
Holti) og Emil Guðmundsson (hótel-
stjóra á Loftleiðum).
Eins og sést bezt af nafni blaðsins
er það einkum skrifaö fyrir ráö-
stefnufólk.ísland er fyrst og fremst
kynnt sem ráðstefnuland. En einnig
er fjallað um náttúru landsins, sögu
þess og fegurð. Og fólkið. Það fær
ekki slaka dóma. Það á að vera ein-
staklegahugað og er Vestmannaeyja-
gosið og öll viðbrögð í því nefnt sem
dæmi. Sagt er að þjóðin sé sjálfstæð
og eigi auðvelt með að laga sig að
nýjum aðstæðum. Hún sé kannski
seintekin en þegar útlendingar kynn-
ist henni sé tekið á móti þeim opnum
örmum. Miklaður er áhugi hennar á
eigin sögu og sagt að menn séu eins
heima f henni og því sem gerist nú á
dögum.
Hitt blaðið heitir Travel Holiday
og er gefið út af Travel Magazine
fyrirtækinu í New York. 1 því blaði er
fimm síðna grein með myndum frá
íslandi. Þar lýsir Dave Houser ferð
sinni og félaga sins hringinn í
kringum landiö og ferð á Snæfells-
nes. Houser er afskaplega hrifinn og
segir að þau orð sem venjulega séu
notuð til að lýsa fegurð nægi hvergi
nærri til að lýsa íslenzkri fegurö.
Landiö sé paradis náttúruskoðcnda
þar sem það sé óspillt og landslag
fjölbreytilegt. Svolítið finnst höfundi
dýrt sumt sem hann rekst á og nefnir
sem dæmi verðið á mat á grillstöðum
við þjóðveginn og á bílaleigubílum.
En fegurð landsins, gæði hestanna
og ævintýri þau sem bíði fólks séu
háa verðsins virði.
-DS.
Ráðherrarnir
og Albert
mættu ekki
Ráðherrarnir og Albert
Guðmundsson mættu ekki á þing-
flokksfundi sjálfstæðismanna í gær,
að sögn Ólafs G. Einarssonar for-
manns þingflokksins.
Ólafur sagði að þeir hefðu allir
verið boðaðir. Skilaboð hefðu borizt
frá Pálma Jónssyni landbúnaðar-
ráðherra sem kvaðst ekki geta mætt.
Ekki hefði heyrzt frá hinum.
Ólafur sagði að þaö væri ekki nýtt
að stjórnarliðar mættu ekki á þing-
flokksfundum. „Þeir hafa ekki
troðiö okkur um tær á þingflokks-
fundum í vetur,” sagði hann. Eggert
Haukdal mætti á fundinum í gær.
Mikið var rætt um efnahagsmálin
á fundinum. Þá voru vinnubrögð í
læknadeilunni gagnrýnd. Sitthvað
fleira var á döfinni. -HH.
„engin lög á íslandi eru svo vitlaus að þau telji þetta tvennt eitt og hið sama”
„Svo vitlaus lög eru ekki til á íslandi
að trippi teljist laus graðhestur, þó full-
orðinn graðhestur reki það út úr hesta-
girðingu og tekur þá ekki tillit til þó
hann reki trippið á land nágranna eig-
andans,” sagði Björn Pálsson á Ytri-
Löngumýri i Húnavatnssýslu er DB
ræddi við hann um hið nýja graðfola-
mál sem tengist honum. Annað mál
hans, svipaðs eðlis frá 1979, er enn
ódæmt í Hæstarétti, en þangað barst
það 1. júní 1979.
„Auðvitað höfða ég mál út af þess-
ari nýju rekistefnu því hér er hvorki um
graðhest né lausagönguhross að ræða.
Dómstólar verða aö skera úr um það
hvað er trippi og hvað er graðhestur,”
sagði Björn Pálsson.
„Annars er það alveg furðulegt hvað
þessi svokölluðu hestamannafélög eru
að stússast i. Ég held að þeir, sem kalla
sig hestamenn, séu jafnvel allra manna
heimskastir um hesta. Annars vegar eru
þetta yfirleitt menn, sem hafa lítið að
gera, og hins vegar strákbjálfar sem
þykir fínt að standa í einhverjum svona
félagsskap,” sagði Björn.
Björn Pálsson bætti við: „Það er nú
þannig komið að formaður hesta-
mannafélagsins hér heimtar bara að
þetta trippi, sem hann kallar graðhest,
sé selt á uppboði. Það þyrfti nú að siða
svona kjána.”
Björn sagðist hafa haldið að það
trippi, sem hér um ræddi, væri merar-
trippi. Það hefði gengið i hestagirðingu
með móður sinni fram til þess að full-
orðni stóðhesturinn rak það út úr girð-
ingunni yfir á lóð nágranna Björns,
Kristjáns í Stóradal.
„Kristján rak trippið í hús og vildi
ekki afhenda mér nema ég léti gelda
það fyrst. Auðvitað eru trippi gelt
tveggja vetra. En dýralæknir var hér
ekki við og dýrt að taka hann annars
staðar frá. Mig vantar líka graðfola. Ég
held að ég leysi þetta trippi út og láti
það vaxa í fola og graðhest. Það eru
allir vitlausir í þetta hjá mér,” sagði
Björn.
„En þeir sem nú hafa spýtt þessu
máli suður í blöðin og ætla nú að láta
ókynþroska trippi á uppboð sem grað-
fola, þeir auðvitað borga allan kostn-
aðinn fyrir rest.Ég fer í máli við þá og
þá kemur auðvitað það rétta í ljós,”
sagði Björn.
Ekki náðist I Kristján I Stóra-
dal þar sem hann var að heiman í ferða-
lagi.
-A.St.