Dagblaðið - 24.06.1981, Page 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ1981.
(jBB Erlent Erlent Erlent Erlent
Sadam Hussein um árás Israelsmanna á kjarnorkuverið ílrak:
Arabar þurfa kjamorkib
vopn gegn ísrelsmönnum
— þar sem allir kjamorkusérfræðingar hafa staðfest að ísraelsmenn ráði
yf ir kjarnorkuvopnum
Sadam Hussein, forseti íraks,
sagði i gær að allar þjóðir sem þráðu
frið ættu að hjálpa aröbum til að
koma sér upp kjarnorkuvopnum til
að vega upp á móti þeim kjamorku-
vopnum sem ísraelsmenn réðu yfir.
í fyrstu opinbem yfirlýsingu sinni
vegna árásar ísraelsmanna á kjarn-
orkustöð iraks, skammt fyrir utan
Bagdad, sagði Hussein forseti:,,Allir
kjarnorkusérfræðingar hafa staðfest
að israelsmenn ráði yfir kjarnorku-
vopnum.”
Ísraelsmenn lýstu því yfir að þeir
hefðu ráðizt á Osirak-kjarnorkustöð-
ina í írak vegna þess að irakar hefðu
verið komnir að þvl að framleiða
kjamorkusprengju sem notuð yrði
gegn ríki gyðinga. Irakar, Frakkar og
fjölmargir kjarnorkufræðingar hafa
mótmælt þessum fullyrðingum ísra-
elsmanna.
„Engin þjóð getur komið í veg
fyrir að írak komi sér upp tæknilegri
og visindalegri þekkingu til að þjóna
þjóðarhagsmunum sinum,” sagði
Hussein er hann skoraði á friðelsk-
andi þjóðir að aðstoða araba við að
koma sér upp kjarnorkuvopnum.
Hussein forseti átti i gær viðræður
við Olof Palme, sáttasemjara Sam-
einuðu þjóðanna í deilu íraks og
Írans. Palme, fyrrum forsætisráð-
herra Svíþjóðar, er nú i Bagdad og
gerir þar sina fjórðu tillögu til að
koma á friði milli írans og traks.
Kjamorkusprengja. Arabar futlyrða
að Ísraelsmenn ráði yflr kjaraorku-
vopnum.
Rafsanjani þingforseti og Ayatollah Mohammed Beheshti þingforseti gegna nú störf-
um forseta frans ásamt Rajai forsætisráðherra eftir að Ayatollah Khomeini vék Bani-
Sadr úr embætti forseta írans siðastliðinn mánudag.
Stuðningsmenn Bani-
Sadr forseta leiddir
fyrir aftökusveitir
Iranskir embættismenn telja að
Bani-Sadr, fyrrum forseti irans, sem
sviptur var forsetaembættinu siðastlið-
inn mánudag, sé ennþá i iran.
Saksóknari byltingarstjómarinnar í
Teheran sagði f gær að Bani-Sadr hefði
ennþá verið i iran síðastliðið mánu-
dagskvöld.
„Hann hefur sennilega ekki ennþá
komizt úr landi,” sagði embættis-
maðurinn Assadollah Lajverdi á fundi
með fréttamönnum i Evin-fangelsinu í
Teheran.
Ráðamenn i íran hafa ekki ennþá
sagt álit sitt á fréttum frá Kairó, höfuð-
borg Egyptalands, þess efnis að Bani-
Sadr, sem ekki hefur sézt opinberlega í
fran síðan 11. júní, sé kominn til
Egyptalands og dvelji í Kairó.
A.m.k. 32 menn hafa verið teknir af
lífi af hersveitum byltingarstjómarinn-
ar i Íran vegna þátttöku i mótmælaað-
gerðum til stuðnings Bani-Sadr síðast-
liðinn laugardag.
með Flugleiðum
Ferðir: í sumar, á hverjum föstudegi frá 3/7 til 28/8.
Verð: 2305 krónur, - sérfargjald.
Heimferð: Frá Amsterdam eða Luxemborg.
Skilmálar: Pöntun, bókun í heimferð og greiðsla þarf að fara fram
samtímis. Ef farþegar forfallast fá þeir endurgreitt hálft fargjaldið.
FLUGLEIDIR
Traust fólkhjá góóu félagi
Sértilboð til þeirra sem búa úti á landi:
í tehgslum við ferðina 3. júlí veita Flugleiðir 50% afslátt af fargjöld-
um á innanlandsleiðum til Reykjavíkur.
Kynnið ykkur ferðamöguleika
í Evrópu í sambandi við Amsterdam hjá söluskrifstofum Flugleiða,
umboðsmönnum og ferðaskrifstofum.