Dagblaðið - 24.06.1981, Síða 13
12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ1981.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
jþróttir
Iþróttir
Stórleikir í kvöld
Þrír leikir eru á dagskrá 1. deildar i knattspymu í
kvöid. Á Skipaskaga keppa heimamenn við KR,
Breiðablik og KA leika I Kópavogi og Reykjavíkur-
liðin Fram og Valur glima á Laugardalsvelli. Allir
leikirnir hefjastk ldukkan 20.
Skagamenn hafa nú ekki skorað i fimm leikjum i
röð eða i heiiar 450 minútur. Líkiegt má þó telja að
þeir bæti úr þvi 1 kvöld er þelr mæta KR. KR-ingar
hafa fengið á sig næstflest mörk i deildinni, 10, og.
sldpa nú neðsta sæti deildarinnar. Þeir veröa að fara'
að rifa sig upp ætli þeir sér að sleppa við fall og sigur
i kvöld væri þvi kærkominn. Þetta ætti þvi að geta
orðið baráttuleikur.
Breiðablik og KA hafa aðeins einu sinni áður
mætzt i 1. deild, það var árið 1978 og þá varð jafn-
tefli, 2—2. Bæði liðin eru sldpuð baráttuglöðura
leikmönnum sem gefa sig ekki fyrr en í fuila hnefana
og markatala þeirra er mjög svipuð. Breiðablik
verður að vinna til að halda sig i toppbaráttunni en
KA-menn eru án efa ófúsir til að sjá af báðum stlg-i
unum.
í Reykjavik verður án efa rimma mikil. Fram
vann fyrri leik liðanna i fyrra en Valur hinn siðari,
en í gegnum árin hafa viöureignir Reykjavíkurlið-
anna ávallt verlð spennandi. Staða Vals er þó mun
sterkari nú, einkanlega ef haft er i huga að Fram
tapaði 1—5 fyrir FH um síðustu helgi.
Sá bandaríski
fékk mikla sekt
Bandariski tennisleikarinn John McEnroe var;
dæmdur i 1500 dollara sekt fyrir framkomu sina i;
fyrstu umferðinni á Wimbledon-keppninni á mánu-
dag. Það kom honum reyndar ekki á óvart og hann
bað um að hann yrðl strax sektaður á mánudags-
kvöid. Hann sendl dómara 'leiksins heldur kaldar
kveðjur. ;
Wimbledon-keppnin hélt áfram í gær og þá voru
mest kvennaleikir á dagskrá. Allar þekktustu kon-
urnar komust i 2. umferð. Mesta athygli vakti að hin
14 ára Kathy Rinaldi frá Florida i Bandarikjunum
komst í aðra umferö. Hún sigraði Sue Rollinson,
Suður-Afriku, 6—3, 2—6 og 9—7 svo ekkl mátti;
miklu muna. Hún er yngsta stúlka sem komizt hefur
í 2. umferð. Hins vegar er yngsta stúika, sem leikið
hefur i Wimbledon-keppninni, Mita Klima fráj
Ástraliu. Hún var 13 ára þegar hún keppti þar árið!
1907. i
Nokkrir karlaieikir voru á dagskrá í gær. Mest
kom á óvart að argentinski tennisleikarinn kunni,
Guillermo Vilas, bezti vinur Björns Borg, var sleginnj
út. Hann tapaöl fyrir Mark Edmonson, Ástrallu, íj
hörðum leik, 6—4, 6—1, 1—6, 4—6 og 6—3 svo
sveifiur voru þar miklar. Annar kunnur kappi féll
einnig út. Tom Okker, Hollandi, Tlm Wilkinson,
Bandarikjunum, sigraði hann 7—5, 5—7, 6—4 og
7—6. Keppnin heldur áfram i dag í Wimbledon, út-
borg Lundúna.
Nýtt írskt met
Coghlan ímflu
— og þrír aðrir írar hlupu innan
við fjórar mínúturl
Hiauparinn frægi, Eamon Coghlan, setti nýttj
írlandsmet i miluhlaupi á móti i Cork i gær. Hljóp
vegalengdina á hinum góða tima 3:52.11 min. Hann
átti i hörkukeppnl við landa sinn og miklnn keppi-
naut, Ray Flynn, en tókst að hlaupa frá honum áj
siðustu 80 metrunum. Flynn hljóp á 3:53.83 mín.j
sem einnig er afbragðs árangur. Tvelr aðrir trarj
hiupu miluna Innan við fjórar minútur, eða
„draumamflu”. Frank O’Meara, sem stundar nám íl
Bandarikjunum, varð þriðji á 3:58.83 min. og David!
Taylor hljóp á 3:59.73 mín. Þetta er í fyrsta slnn,
sem fjórir lrar hlaupa Innan við fjórar minútur i
sama hlauplnu. Eamon Coghlan hefur verið ij
fremstu röð hlaupara á milllvegaiengdum i nokkur
ár. Hann á helmametið innanhúss i miluhiauplJ
Árangur hans i gær er enn athygllsverðari fyrlr þá!
sök að rlgning og hvasst var i Cork meðan hlaupið
fórfram.
Feyenoord lagði
Penarol íMílanó
Feyenoord sigraði Penarol frá Uruguay 1—0 i
fimm liöa mótinu, sem staðið hefur yfir í Milanó að
undanförnu. Elna markið skoraði varamaðurinn
Peters 12 minútum fyrir ieikslok. Um 15.000 áhorf-
endur sáu leikinn, sem þóttl óskemmtllegur.
Uruguay-Iiðið lá lengstum i vörn og fór ekki að
sækja fyrr en eftir mark Peters. En það var of seint i!
rassinn gripið.
Þetta var sjötti leikurinn í mótinu en þátt i
því taka, auk Feyenoord og Penarol, Inter Milan,
AC Milano og Santos frá Brasilíu. Lítið hefur verif
skorað í þessum sex leikjum, eða einungis 11 mörk.
Staðan í mótinu er nú þessi:
Inter Milan
Santos
Feyenoord
Penarola
Milano
2 110 3—2 3
2 1 1 0 3—2 3;
3 111 2-2 3|
3 0 2 1 2—3 2;
2 0 11 1—2 1;
Knötturinn hafnar í markinu hjá ÍBV án þcss að Páll Pálmason komi við nokkrum vörnum. Fast skot Ragnars Gislasonar utan vítateigs en Ragnar sést ekki á myndinni.
DB-mynd S.
Hins vegar fylgjast Vikingarnir Helgi Helgason og Ómar Torfason spenntir með.
14 -W
“mí •
i
pTjP IITÍ
1 f aJ •íí'U :>
ilil T. 1 I wK t 1
IfFOl
„Þórsarar voru sterkari
en við áttum von á”
— sagði Ingi Björn Albertsson, þjálfari FH, eftir 1-0 sigur liðs hans
,,Ég er mjög ánægður með þessi úr-
slit þvi Þórsarar voru sterkari en við
áttum von á. Sigur okkar var ósann-
gjarn en það er gott að hafa með sér
bæði stigin suður,” sagði Ingi Björn
Albertsson, þjálfari FH, eftir að lið
háns hafði unnið 1—0 slgur á Þór á
Akureyri. Eina markið skoraði Magnús
Teitsson i siðari hálfleik, en Þórsarar
hefðu verðskuidað sigur f þessum leik.
Leikur Þórs og FH var mikill bar-
áttuleikur. Heimamenn voru ákveðnari
strax í byrjun, unnu flest skallaeinvígi
og voru grimmari i boltann. Á 10. mín-
útu kom fyrsta marktækifærið.
Guðmundur Skarphéðinsson var
kominn inn í vítateig, en nafna hans
Kjartanssyni í liði FH tókst að bjarga í
horn. Nokkrum minútum síðar skap-
aðist mikil hætta við mark FH eftir
aukaspyrnu Sigurbjörns Viðarssonar,
en Viðar Halldórsson náði þá að senda
knöttinn út af, Hafnfirðingum tU mik-
ils léttis. Um miðjan fyrri hálfleik kom
stungusending inn fyrir vörn FH.
Hreggviður markvörður kom vel út á
móti og náði að slá boltann frá áður en
Guðmundur Skarphéðinsson náði til
knattarins.
FH-ingar áttu aðeins eitt almennilegt
marktækifæri fyrstu 45 mínúturnar.
Helgi Ragnarsson skaut þá hörkuskoti
að marki Þórs en framhjá.
Á 32. mínútu náðu Akureyringar að
snúa vöm í sókn. Sigurbjöm sendi
jarðarbolta inn á Guðjón Guðmunds-
son en þrumuskot hans strauk mark-
súluna. Þar skall hurð nærri hælum hjá
FH. Jón Lárusson átti siðasta orðið
fyrir hlé, er örn Guðmundsson gaf
góða sendingu á hann. Jón skaut að
marki en Hreggviður varði meistara-
lega, náði að slá knöttinn yfir slá.
Þórsarar hófu síðari hálfleikinn á
sama hátt og þeir enduðu hinn fyrri,
með mikiUi pressu á mark FH. En það
voru þá Hafnfirðingarnir sem skoruðu
á 55. mínútu. Ólafur Danívalsson tók
þá sprett upp völlinn og sendi knöttinn
á Tómas Pálsson. Tómas renndi knett-
inum laglega inn á Magnús Teitsson og
þótt Magnús væri í þröngu færi tókst
honum að koma knettinum rétta boð-
leið i markið. Eiríkur markmaður
Eiríksson kom engum vörnum við enda
sá hann lítið fyrir varnarmönnunum.
Við markið fóru FH-ingar að láta
meira að sér kveða en Þórsarar drógu
sig örlítið aftar á völlinn og treystu á
skyndisóknir. Á 62. minútu lék Ingi
Björn upp að endamörkum og gaf fyrir
markið á Viðar en Eirikur varði skot
hans i horn.
Þórsarar voru þó ekki dauðir úr
öllum æðum enn. örn Guðmundsson
komst upp að vítateig FH en skot hans
hafnaði í varnarmönnum FH og
Guðmundur Hilmarsson náði að
hreinsa.
Á síðustu mínútum munaði þó ekki
miklu að Ingi Björn bætti við öðru
marki FH. Hann fékk þá knöttinn í
góðu færi og skaut að marki Þórs.
Eiríkur náði að slá knöttinn í þverslá og
þaðan hrökk hann aftur út á völlinn.
Þórsarar léku sinn bezta leik á
keppnistfmabilinu, þótt ekki nægði það
til sigurs. Liðið var jafnt að getu en
beztir voru Þórarinn Jóhannesson, sem
var sterkur i stöðu miðvarðar, og bak-
verðirnir Rúnar Steingrimsson og
Sigurbjörn Viðarsson. Jón Lárusson
ógnaði mjög og Nói Björnsson barðist
vel.
Guðmundur Kjartansson var mjög
góður i vöm FH en þjálfarinn, Ingi
Bjöm, átti einnig ágætan leik. Ólafur
Danlvalsson átti s,pretti inn á milli og
Tómas Pálsson var þokkalegur.
Áhorfendur vom um 700 en leikið
var á grasvellinum.
-G.Sv.
Finnskir lyftmga-
menn keppa á Akureyri
Vinabæjarmót i lyftingum verður i
íþróttaskemmunni á Akureyri í kvöld.
Mætast þar akureyrsklr iyftingamenn
og finnskir, frá borginni Lahti. Þelr
finnsku eru engir aukvisar, hafa innan
sinna raða einn Norðurlandameistara
og einn finnskan meistara. Þá er i för
með þeim Aulis Pillonen en hann er
Fimm lyftingamenn frá hvorum bæ
keppa á mótinu i kvöld en þessa mynd
tók G.Sv. af keppendum og Aulis
Plilonen dómara á Akureyri.
einn virtasti lyftingadómari á Norður-
iöndum. Piilonen dæmdi á Ólympiu-
leikunum i Moskvu og elnnig á siðasta
heimsmeistaramóti.
Keppnin verður með stigafyrirkomu-
lagi, en fimm keppendur keppa fyrir
Akureyri. Það eru þeir Haraldur Ólafs-
son, Freyr Aðalsteinsson, Kristján
Falsson og bræðurnir Garðar og Gylfi
jGíslasynir. Lyftingamenn á Akureyri
voru hinir bjartsýnustu á árangur í
mótinu, kváðu metin mundu fjúka i
kvöld. Vænta þeir þvi góðrar aðsókn-
ar.
-G.Sv.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNl 1981.
13
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I)
Víkingar halda sfnu striki,
sigruðu Vestmannaeyinga
„Þetta var sanngjarn sigur en of lftili
eftir gangi leiksins. Tveggja tU þriggja
marka munur hefði gefið réttari mynd
af gangi leikslns. Vikingur fékk mörg
góð marktældfæri og svo munaðl ekki
miklu að Vestmannaeyingar jöfnuðu á
síðustu minútu lelksins,” sagði Þór
Simon Ragnarsson, formaður Knatt-
spyrnudeUdar Vikings, eftir að Vík-
ingur hafði sigrað Vestmannaeylnga
1—0 í 1. deUd Islandsmótsins á Fögru-
völlum f gærkvöld. Vfkingar halda sfnu
striki f deildinni, unnu sinn sjötta sigur
i átta leikjum, og hafa eins og stendur
fjögurra stiga forustu.
Það var ekki rismikil knattspyrna
sem liðin sýndu á FögruvöUum í gær-
kvöld. Víkingur þó áberandi betra liðið
og eflaust hefði iUa farið fyrir Vest-
mannaeyingum ef Valþór Sigþórsson
Mexfltó-strákarnir
sigruðu Brasflíu
Unglingaiandslið Mexfkó vann afar
óvæntan 4—1 sigur á BrasUfu og Spánn
sigraði Bandarfkin 4—0 í Joao Have-
lange keppl unglfngalandsiiða sem nú
fer fram 1 Mexikó.
Brasiliumönnum nægði jafntefU
gegn Mexíkó til að komast í undanúr-
slit keppninnar, en vanmátu andstæð-
inga sína. Sigur Mexíkó var verðskuld-
aður og Uðið sýndi beztu knattspyrnu
keppninnar hingað tU.
í undanúrslitum keppninnar leika
Mexíkó-strákarnir gegn Paraguay og
Spánn gegn Argentínu. Havelange sá
sem keppnin er kennd við er sjálfur for-
seti FIFA.
hefði ekki átt stórleik i vörn IBV. Þá
varði PáU Pálmason þrívegis mjög vel.
Vissi þó reyndar lítið af þvi i eitt skipt-
ið. Varð fyrir knettinum. Vestmanna-
eyingar fengu aðeins eitt umtalsvert
marktækifæri aUan leikinn. Á síðustu
mínútunni. Þá munaði ekki miklu að
Valþóri tækist að jafna en Vestmanna-
eyingar verðskulduðu ekki stig í þess-
um leik. Liðið var beinlinis slakt í
heild.
Víkings-Uðið átti af og tU góða leik-
kafla og marktækifæri þess voru aU-
mörg. En aðeins eitt var nýtt — bak-
vörðurinn Ragnar Gíslason skoraði
með föstu skoti i fyrri hálfleik. Óskar
Tómasson, landsUðsmaður hér á árum
áður, lék með Víkingsliðinu á ný og var
óheppinn að skora ekki. Átti glæsi-
skalla i stöngina innanverða á marki
Vestmannaeyinga. Áhorfendur bók-
staflega sáu mark en á einhvern hátt
hrökk knötturinn út aftur. Þá skoruðu
Víkingar um miðjan siðari hálfleikmn
eftir að hafa sundurleikið vörn Vest-
mannaeyinga en það var dæmt af
vegna rangstöðu.
Framan af fyrri hálfleiknum var
mest miðjuþóf í góða veðrinu í Laugar-
dalnum og það var ekki fyrr en á 20.
min. að fyrsta markskotið sást. Helgi
Helgason átti fast skot framhjá Vík-
ingsmarkinu. Á næstu mín. munaði
sáraUtlu að Víkingur næði forustu.
Ingólfi Sveinssyni tókst á síðustu
stundu að komast fyrir knöttinn þegar
Lárus hafði leikið á Pál markvörð.
Spyrnti frá en Óskar náði knettinum og-
renndi honum til Þórðar Marelssonar,
sem var innan vítateigs. Fast skot hans
lenti i PáU og síðan var bjargað í horn.
Nokkru siðar komst Óskar i gott færi
inn við markteig ÍBV en spyrnti fram-
hjá. Og sfðan kom sigurmarkið.
Snjöll aukaspyrna
Víkingur fékk aukaspymu ó41. mín.
nokkru fyrir utan hUðarlinu vítateigs-
ins. Vestmannaeyingar bjuggust við
fyrirgjöf en Gunnlaugur Kristfmnsson,
sem tók spyrnuna, renndi knettinum
aftur til Ragnars Gíslasonar bakvarðar
sem kom á fuUri ferð, og negldi knött-
inn í netið með skoti rétt utan vitateigs,
sem vöm og markvörður ÍBV réðu ekki
við. Allt opið og Páll sá knöttinn allt of
seint tU að geta bjargað.
Framan af síðari hálfleiknum fengu
Víkingar guUin tækifæri tU að gera út
um leikinn. Óskar skallaði í stöng eftir
glæsigjöf Lámsar frá vinstri kanti og
'síðan kom Hörður Sigurðsson í stað
Óskars. Ekki munaði miklu að hann
skoraði strax. Páll sló knöttinn af tám
Lárusar en beint til Harðar, sem
spyrnti framhjá opnu marki ÍBV.
Skömmu síðár sendi Hörður knöttinn i
markið hjá Páli eftir að Lárus og
Þórður höfðu leikið á vörn ÍBV. Var
dæmdur rangstæður. Á 79. mín. átti
Hörður hörkuskot á mark ÍBV alveg út
við stöng en Páll varði glæsUega í horn.
Eftir hornspyrnuna spyrnti Heimir
Karlsson yfir ÍBV-markið innan víta-
teigs frír. Á 83. mín. lék Lárus laglega á
tvo varnarmenn og spyrnti á markið
innan vítateigs. Knötturinn rétt sleikti
þverslána ofanverða.
Lokamínúturnar voru Vestmannaey-
ingar meira með knöttinn og á 89. mín.
fengu þeir aukaspyrnu utan vítateigs.
Ómar Jóhannsson lyfti knettinum yfir
varnarmenn Víkings til Valþórs, sem
brunaði inn í teiginn. Mark lá i loftinu,
knötturinn kominn framhjá Diðrik
Ólafssyni markverði, en á síðustu
stundu tókst varnarmanni að spyrna
frá nánast á marklinunni. Þetta var
raunverulega eina marktækifæri ÍBV,
þegar undan er skilinn skalli Hlyns
Stefánssonar sem fór framhjá marki
Víkings.
Vörn Víkings var yfirleitt sterk í
leiknum, það svo að litið reyndi á Dið-
rik markvörð. Jóhannes Bárðarson var
ofjarl Sigurlásar Þorleifssonar og sama
er að segja um Magnús Þorvaldsson
gagnvart Kára Þorleifssyni. Helgi
Helgason mjög traustur leikmaður.
Lárus Guðmundsson gerði á stundum
skemmtilega hluti í sókninni en tókst
ekki að skora að jiessu sinni. Þá voru
Þórður og Ragnar sterkir, endurkoma
Gunnlaugs og Óskars hefur styrkt Vík-
ingsliðið. Lið ÍBV olli miklum von-
brigðum. Sáralítið spil og framlínu-
mennirnir sáust varla. Valþór algjör
yfirburðamaður og sá eini sem reyndi
að ná upp samspili. Dómari Vilhjálmur
Þón-Vilhjálmsson. -hsim.
Meistaramót Islands
í fjölþrautum í julí
Meistaramót ísiands i fjölþrautum
fer fram & Laugardalsvellinum heigina
20.—21. júli og hefst keppni kl. 14
báða dagana. Hjá körlunum verður
keppt i tugþraut en i sjöþraut hjá kon-
unum.
Skráningargjald er kr. 15 og verður
það að greiðast áður en keppni hefst.
Þeir sem hug hafa á að verða með í
mótinu eru beðnir að snúa sér tii Sig-
fúsar Jónssonar sem fyrst.
Samhliða fjölþrautunum verður
keppt í nokkrum greinum hjá körlum.
100 m hlaupi, langstökki, kúluvarpi og
400 metra hlaupi á laugardeginum og á
sunnudeginum verður keppt í 110 m
grindahlaupi, spjótkasti og 1500 metra
hlaupi.
Gabriel
höggdeyfar
íslandsmót 1. deild á
Laugardalsvelli — aðalleikvelli
BIKAR- OG ÍSLAIMDSMEISTARAR1980
FRAM - VALUR
í kvöld kl. 20.
Valinn verður maður leiksins
PÉTUR ORMSLEV
var valinn maður síðasta
heimaleiks.