Dagblaðið - 24.06.1981, Qupperneq 23
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ1981.
(i
Utvarp
23
Sjónvarp
i
SÁRSAUKI—sjónvarp kl. 20,45:
Deyfilyf líkamans sterkarí en morfín
— nálastunguaðf erðin getur losað um þau
Þetta er kanadlsk heimildamynd
um sársaukaskyn og hvað rannsóknir
á því fyrirbrigði hafa leitt í ljós.
Fjallað verður um hversu mismun-
andi sársaukaskyn getur veríð og
hvaða þátta kann að gæta 1 því sam-
bandi. Alkunna er hve menn bregðast
mismunandi við sársauka en m.a. er
athygiisvert að samanburður á sam-
svarandi slysum á hermönnum og
óbreyttum borgurum leiddi i ljós ólík
viðbrögð. Hermennirnir særðust á
vígstöðvum og 2 af 3 þeirra afþökk-
uðu deyfilyf; sögðu þau óþörf. Þeir
reyndust fegnir að sleppa lifandi, auk
þess sem slys þeirra gátu haft heim-
sendingu í för með sér eða alla vega
hvíld frá bardaga.
Hins vegar reyndust 4 af 5
óbreyttra, er særðust á vinnustað,
finna mikið til og þurfa á deyfiiyfjum
að halda. Fyrir þá gat fjarvera frá
vinnu komið sér mjög illa og þeir
höfðu enga viðmiðun sem gat gert
slysiðhagstætt.
Einnig verður fjallað um deyfilyf
er likaminn framleiðir sjálfur, endor-
fin, sem eru áhrifameiri en morfin,
þegar þau fá að njóta sin aö fullu. I
því sambandi hefur komið í ljós að
neyzla deyfilyfja hefur i för með sér
að Iíkaminn hættir, eða dregur úr,
endorfin-framleiðslu og allt
sársaukaskyn er mun næmara lengi á
eftir fyrir bragðið.
Nálastunguaðferðin reynist m.a.
einmitt geta losað um endorfin
líkamans þannig að þau koma að
fullu gagni sem deyfilyf við meiri-
háttar aðgerðir. Verður fjaUað um þá
aðferð og ýmsar óhefðbundnar leiðir
til þesss að deyfa sársauka.
Þýðandi er Kristmann Eiðsson.
-FG.
0
Ætfll á eggjastokk fjarlægt án þess að
tU komi önnur deyflng en nála-
stunguaðferðln kinverska.
IÐNAÐARM AL—útvarp í fyrramálið kl. 11,00:
Útf lutningsmiðstöð iðnaðar-
ins tíu ára um þessar mundir
—fjallað verður um tilurð stof nunarinnar og tilgang
Sveinn Hannesson og Sigmar Árna-
son ræða viö Úlf Sigurmundsson um
Útflutningsmiðstöð iðnaðarins.
Tilefnið er tvíþætt. Annars vegar er
Útfiutningsmiðstöðin 10 ára um þessar
mundir og hins vegar var áðalfundur
hennar haldinn mjög nýlega.
Þeir félagar, Sveinn og Sigmar,
spyrja Úlf Sigurmundsson, fram-
kvæmdastjóra Útflutningsmiðstöðvar-
innar, meðal annars að því hvort hann
telji menn hafa verið raunsæja fyrir tíu
árum, varðandi möguleika íslenzks
iðnaðar á erlendum markaði. Út-
flutningsmiðstöðin á nefnilega tilurð
sína að rekja til friverzlunarsamninga
sem gerðir voru við EFTA og EBE.
Útflutningsmiðstöð iðnaðarins er að
Hallveigarstíg 1 í Reykjavik og er hálf-
opinber stofnun. Hún er þvi rekin að
hálfu fyrir framlag frá rikinu og að
hálfu af þrem aðilum: Félagi íslenzkra
iðnrekenda, Landssambandi iðnaðar-
manna og Sambandi íslenzkra sam-
Úlfur Sigurmundsson, framkvæmdastjóri Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins.
vinnufélaga. hún starfar og það kemur i ljós í fyrra-
Mörgum ætti að leika forvitni á að málið.
vita hvað þessi stofnun gerir og hvernig -FG.
Útvarp
Miflvikudagur
24. júní
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar.
Miðvlkudagssyrpa. — Svavar
Gests.
15.10 Miðdegissagan: „Læknirsegir
fri” eftlr Hans Killian. Þýðandi:
Freysteinn Gunnarsson. Jóhanna
G. Möller les (7).
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Siðdegistónletkar. Sinfóniu-
hljómsveitin í Malmð leikur
„Midsommarvaka”, sænska rap-
sódiu nr. 1 op. 19 eftir Hugo Alf-
vén; Fritz Busch stj. / Sinfóníu-
hljómsveit sænska útvarpsins
leikur Sinfóníu nr. 2, „Suður-
ferð”, eftir Wilhelm Peterson-
Berger; Stig Westerberg stj.
17.20 Sagan: „Hús handa okkur
öllum” eftlr Thöger Blrkeland.
Sigurður Helgason les þýðingu
sína(3).
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvðldsins.
19.00 Fréttlr. Tilkynningar.
19.35 Ávettvangi.
20.00 Sumarvaka. a. Kórsöngur.
Samkór Árskógsstrandar syngur
undir stjórn Guðmundar Þor-
steinssonar; Kári Gestsson leikur
með á pianó. b. „Sklp heiðríkj-
unnar”. Arnar Jónsson les kafia
úr „Kirkjunni á fjallinu” eftir
Gunnar Gunnarsson i þýðingu
Halldórs Laxness. c. Laufþytur.
Helga Þ. Stephensen les vor- og
sumarljóð eftir Sigriði Einars frá
Munaðarnesi. d. Þegar landið fær
mál. Torfi Þorsteinsson bóndi i
Haga i Hornafirði segir frá
bændaför Austur-Skaftfellinga
um Vesturland og Vestfirði fyrir
fjórum árum; Óskar Ingimarsson
les frásöguna.
21.30 Útvarpssagan: „Ræstinga-
sveitin” eftlr Inger Alfvén. Jakob
S. Jónsson les þýðingu sina (13).
22.00 Sinfóniuhljómsvelt Lundúna
lelkur ungverska dansa eftir
Johannes Brahms; Willi Boskov-
sky stj.
22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dag-
skrá morgundagsins. Orð kvölds-
Ins.
22.35 lþróttaþáttur Hermanns
Gunnarssonar. 22.55 Kvöldtón-
leikar. a. „Töfraskyttan”, for-
leikur eftir Carl Maria von Weber.
FUharmóniusveitin í Los Angeies
leikur; Zubin Metha stj. b.
„Slavneskur mars ” op. 31 eftir
Pjotr Tsjaíkovský. Leonard
Bernstein stj. c. Divertimento nr.
3 í C-dúr eftir Joseph Haydn.
Blásarasveitin i Lundúnum leikur;
Jack Brymer stj. d. „Nætur í
görðum Spánar” eftir Manuel de
Falla. Artur Rubinstein leikur á
píanó með Sinfóniuhljómsveitinni
í St. Louis; Vladimir Golschmann
stj.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Fimmtudagur
25. júnf
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.15 Leikflml.
7.25 Tónleikar. Þulur velur og
kynnir.
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð.
Gisli Friðgeirsson talar.
8.15 Veöurfregnir. Forustugr. dag-
bl. (útdr.). Tónleikar.
9.00 Fréttir.
Miflvikudagur
24. júnf
19.45 Fréttaágrip á táknmáll.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýslngar og dagskrá.
20.40 Tommiog Jenni.
20.45 Sársauld. Kanadísk heimilda-
mynd um sársaukaskyn. Meðal
annars er fjallað um nálarstungu-
aöferðina og nýjar leiðir til að
deyfa sársauka, sem áður var
ólæknandi. Þýðandi Jón O. Ed-
wald.
21.25 Dallas. Sjöundi þáttur. Þýð-
andi Kristraann Eiðsson.
22.15 Dagskrárlok.
I sjöunda þætti Dallas gerist ýmislegt sem ekki er J.R. að skapi.
DALLAS—sjónvarp kl. 21,25:
Lucy kemur foreldr-
um sínum saman
—ekki eru allir hrif nir af því
Bobby rekst á bróður sinn, Gary,
sem er faðir Lucy, á hóteli í Las Vegas
og tekur hann með sér heim.
Ewingarnir höfðu tekið Lucy frá
móður sinni og flæmt konuna á brott
úr fylkinu með hótunum um allt hið
versta kæmi hún nokkurn timann
aftur. Síðan hefur hún reynt að fylgjast
með dóttur sinni og vinnur á matsölu-
stað í grenndinni.
Þegar Lucy kom úr skóla varð hún
þess vör að þar fyrir utan var stundum
kona sem henni þótti verða heidur star-
sýnt á sig. Við nánari athugun reyndist
þetta vera móðir hennar og varð Lucy
endurfundunum fegin.
Lucy ákveður að koma foreldrum
sínum saman. Hún segir föður slnum
ekkert en fer með hann á vinnustað
móður sinnar. Úr þvi verður að Gary
hríngir heim og boðar komu þeirra.
Móðir hans tekur fregnunum vel en
öðru máli gegnir um Jock og ekki sizt
J.R., þótt hann láti ekki á því bera við
þessa mágkonu sina sem hann telur
fjölskyldunni til lftils sóma.
Nú þarf að finna starf handa Gary.
Hann hafði ætið haft mikinn áhuga á
búskapnum og hefur enn. Hins vegar
vill J. R. ekki hleypa honum i neitt það
er að búgarðinum lýtur og leggur hart
að Gary að taka við rekstri fyrirtækis
nokkurs sem J. R. segist telja mjög
arðvænlegt.
Þýðandi Dallas er Kristmann Eiös-
son.
-FG.
Önnumst kaup og sölu allra almennra
veðskuldabréfa og ennfremur vöruvíxla.
Getum ávallt bætt við kaupendum á við-
skiptaskrá okkar.
Góð þjónusta. — Reynið viðskiptin.
Venlliréfa -
iUsirkniliiriiia
Nýja húsinu
v/Lækjartorg.
12222