Dagblaðið - 29.08.1981, Side 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1981.
rr— JÓN L. ÁRNAS0N ■ - n!
SKRIFAR UM SKÁK ^ im
Mikhails Botvinnik hafi veriö all-
náin, en það er önnur saga.
Hinn langi umhugsunartími bréf-
skákmanna gerir það stundum að
verkum að þeir hitta á stórfenglegar
leiðir þegar öðrum virðast öll sund
lokuð. Leiðir sem minna meira á
skákþraut, eða tafllok, heldur en teflt
tafl. Lítum á eitt nýlegt dæmi. Skák-
in er kannski ekki sérlega vel tefld
framan af en drottningarfórn svarts í
lokin bætir allt upp.
Hvítt: Popovich (Sovétrikin)
Svart: Abram (Bandarikin)
4. Heimsbikarkeppnin 1979-’80
Nimzoindversk vörn.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. a3
Bxc3+ 5. bxc3 c5 6. e3 0-0 7. Bd3
Rc6 8. Re2 b6 9. e4 Re8 10. e5 d6 11.
Dc2 h612.0-0 f5
Að sögn Abram gat svartur einnig
lagt út í eftirfarandi afbrigði: 12. —
dxe5 13. Be4 exd4 14. Bxc6 d3 15.
Da4 dxe2 16. Hel Hb8 17. Bf4 Rd6
18. Dxa7 Bb7 o.s.frv. og svartur
stendur betur. Allt tóm vitleysa þvi
hvítur leikur 15. Dd2! og vinnur því
d-peðið er leppur.
13. exf6 frhl. Dxf6? 14. Be4?
Hvítur gat skotið inn 14. Bh7 +
Kh8 og leikið þá fyrst 15. Be4 Bb7 16.
Rf4 með hættulegri sókn. Betra var
13. —Rxf6.
14. — Bb7 15. Rf4 Rc7 16. Bh7 +
Kh8
Þvingað því 16. — Kf7 er svarað
með 17. Rh5! ásamt 18. Dg6 +
o.s.frv.
17. Rg6+ Kxh7 18. Rxf8+ Kg8 19.
Rg6 cxd4
Svartur hefur peð upp í skiptamun
og alls ekki slæma möguleika. Hvít-
reitabiskup hvíts var stórveldi og
fyllilega hróks virði.
20. Bd2 Ba6 21. Hfdl Bxc4 22. cxd4
b5 23. Be3 Rd5 24. g3?
Hræðileg meðferð á kóngsstöð-
unni! Rétt er 24. De4! og staöan er
tvísýn.
24. — Df3 25. Hel Rxe3 26. Hxe3
Rxd4! 27. Re7 +
Ef hvítur hefði haft hugboð um
framhaldið hefði hann reynt 27.
Hxf3 Rxc2 28. Hbl en svarta staðan
ersterk.
27, —Kh8 28. Rg6 +
Ekkja Chaplins
sögð í giftingar-
hugleiðingum
Lundúnablaðið Daily Mail spáir því
að ekkja Chaplins, Oona, muni bráðum
gifta sig að nýju. Sá tilvonandi er talinn
vera amerískur kvikmyndahandrita-
höfundur, Walter Bemstein. Þau hafa
undanfarið verið á skemmtisiglingu um
Miðjarðarhafið.
Oona er dóttir ameríska leikrita-
skáldsins Eugene O’Neill. Hann varð
trylltur af bræði þegar dóttir hans
ákvað að giftast manni sem var á aldur
við hann sjálfan. En hún lét það ekkert
á sig fá og þau Chaplin eignuðust átta
börn. Barnabörnin eru orðin tólf.
Hjónaband Oonu og Chaplins var
talið hamingjusamt og entist í 35 ár,
eða þangað til Chaplin dó. En ná-
kvæmlega hvernig Oonu leið í því fáum
við þó aldrei að vita því hún hefur
færzt undan að rita endurminningar
sínar. Jackie Onassis, sem vinnur fyrir
bandarískt útgáfufyrirtæki, reyndi
fyrir skemmstu að telja henni hughvarf
en fékk þvert nei. Charlie og Oona
Chaplin virtust ánægð saman, meðan
hann lifði.
Eitursnákurinn
Maðurinn, sem var sofandi þegar
snákurinn beit hann, var nefnilega eitur-
lyfjaneytandi. Honum varð ekkert
Hann var óheppinn, eitursnákurinn sem meint af — en eitursnákurinn stein-
beit manninn i Faizabad í Indlandi. drapst.
semdó
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 — Stmi 15105
Er þetta ekki jafntefli með 28. —
Kg8 29. Re7 + Kh8 o.s.frv.? Svarti
kóngurinn má ekki stiga á f-linuna
vegna Hxf3 með skák.
28. — Kh71! 29. Rf8+ Kg8 30.
Dh7+ Kf8 31. Hxf3+ Rxf3+ 32.
Kg2Bd5!
Stórkostleg staða! Svartur á aðeins
tvo létta menn upp í drottningu en
engu að siður vinningsstöðu.
Hótunin er 33. — Rg5+ sem vinnur
drottninguna og hún er hvergi óhult
fyrir riddaraskákum. Ef 33. Dh8 +
Kf7 34. Dxa8 Bxa8 hefur svartur létt-
unnið tafl.
33. Kfl Be4!
— Og hvítur gafst upp. 34. Dxe4
er svarað með 34. — Rd2+ og
drottningin fellur.
Islendingar hafa ekki látið sitt eftir
liggja á bréfskáksviðinu og tekið þátt
í ýmsum alþjóðlegum mótum. Nú í
maí lauk t.a.m. landskeppni íslend-
inga og Finna sem hófst 1978. Teflt
var á 25 borðum, tvöföld umferð, og
sigruðu íslendingar með 31 vinningi á
móti 19 vinningum Finnanna. Jón
Kristinsson, fyrrum íslandsmeistari í
skák, tefldi á 1. borði en liðsstjóri var
Þórhallur B. Ólafsson.
Hér kemur eitt bréfskákafrek
Islendings. Skákin er tefld á Evrópu-
móti, „Master Class”, og er aðeins
14 leikir — liklega gerast bréfskákir
ekki öllu styttri!
Hvftt: Mario Fiorito (Holland)
Svart: Einar Karlsson
Frönsk vörn.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 c5
5. a3 Bxc3 6. bxc3 Dc7 7. Dg4 f6I?
Þessi leikur hefur enn ekki ratað
inn í allar bækur um Frönsku vörn-
ina en enskir skákmeistarar með
Keene í broddi fylkingar hafa sýnt
fram á ágæti hans.
8. Bb5 + Kf8!
í alfræðibyrjanabókinni er aðeins
gefið 8. — Rc6 9. Rf3 og hvitur
stendur betur. Textaleikurinn er
endurbót Englendinga. 1 bók um
Franska vörn telur Moles að svartur
standi betur!
9. a4?
í fyrrnefndri bók er gefið 9. Dh5
Bd7! 10. Bxd7 Rxd7 11. exf6 Rxf6
með góðu tafli á svart. Skásti
kosturinn er líklega 9. Rf3.
9. — cxd4 10. Ba3+ Kf7 11. Rf3
Dxc3+ 12. Ke2 Dxc2+ 13. Kfl Rc6
14. Rxd4?
' Beint í gapastokkinn en 14. Hcl
Rh6 15. Df4 Df5 leiðir einnig til taps
þvi hvítur hefur enga sókn fyrir liðs-
muninn.
14. —Dc3!
Lítill en eitraður leikur. Hvitur
gafst upp enda stórfellt liðstap fyrir-
sjáanlegt.
é
FÓLK
Nýjasta tízkan
alls engin föt?
í veðri.
Stríplingar eru einnig algengir á
svæðunum í kringum ólympiuleikvang-
inn til mikillar hrellingar fyrir þá sem
telja að framfylgja beri lögum sem
banna að fólk sé nakið á opinberum
stöðum.
Lögreglan í Múnchen er hins vegar
mjög hikandi. Hún hefur ekki þorað að
leggja til atlögu við stríplingana og
hefur í bili engar áætlanir um slíkt.
Rætt hefur verið um að koma á fót
sérstakri nektarnýlendu í borginni til að
losna við stríplingana úr almennings-
görðunum. Engar ákvarðanir hafa þó
verið teknar um slíkt.
Slik sjón er algeng i almenningsgörðum Miinchen
„Ekki líður á löngu þar til fólkið fer
að mæta nakið í óperuna,” sagði
vestur-þýzkt vikublað í umfjöllun um
nýja tízku sem virðist vera að ryðja sér
til rúms í MUnchen. Sú tízka felst i því
að vera alls ekkert í fötum.
Sjálfsagt er fullyrðing blaðsins
nokkuð ýkt en hinu er ekki að neita að
það geríst æ algengara að stríplingar
sjáist á ferli í MUnchen. Á sólskins-
dögum spígsporar fólk t.d. í hundraða-
tali í Englische Garten Park sem er einn
helzti almenningsgarður MUnchen. Þar
liggur fólk í sólinni eða gengur um alls-
nakið og virðist litlar áhyggjur hafa.
Algengt er að strípUngarnir í garðinum
gangi þaðan í næstu búðir til að verzla
án þess að vera með nokkra spjör utan
um sig.
Á meöan deUa menn um réttmæti
þess að stríplast á almannafæri. Forseti
borgarstjórnarinnar hefur kvartað
undan því að þeir nöktu valdi öðrum
borgurum óþægindum. Segir hann að
dæmi séu um að nakið fólk hafi krafið
fólk í fötum um að afkæðast þegar það
síðarnefnda hefði verið í nálægð þess
fyrrnefnda.