Dagblaðið - 29.08.1981, Page 11

Dagblaðið - 29.08.1981, Page 11
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1981. Vangefna bamið inni á stofnun og réttur þess til að lifa mannsæmandi lífi Tíu nemendur þroskaþjálfaskólans tóku þátt í gerð þessa erindis þannig að ekki má líta svo á að það sem fram kemur sé álit allra nemenda skólans heldur eru þetta aðeins hugleiðingar þeirra er að gerð þess stóðu. Þegar sest var niður til að ákveða um hvað ætti að fjalla varð fljótlega að samkomulagi að tala um börn sem oftast gleymast, það er að segja van- gefnu börnin á stofnun og réttur þeirra til mannsæmandi lífs. Eins og staðan er i dag eru mál þeirra í megnasta ólestri, en von okkar er að úr því rætist nú á ári fatl- aðra. Að setja barn sitt á stofnun er í flestum tilfellum þung spor fyrir for- eldrana og því mikilvægt að það sé vandlega undirbúið bæði af hálfu stofnunar og foreldra. Gæta þarf þess að foreldrar séu hafðir með í ráðum þegar verið er að undirbúa komu barnsins á stofnunina, á hvaða deild barninu er ætlað að vera (ef deildaskipting er). Barnið ætti að fá það með sér sem það á, svo sem hús- gögn, leikföng og annað, sé hægt að koma því við. Þessu vilja kannski sumir mótmæla á þeirri forsendu að þar með sé verið að reyna að þurrka út öll merki þess að bamið tilheyri fjölskyldunni. En þannig er þetta ekki meint því að bamið er jú að flytja að heiman og stofnunin á að vera heimili þess. Flestir eiga það sameiginlegt að flytjast úr foreldra- húsum og taka þá alla sína persónu- legu muni en eiga þó alltaf athvarf hjá foreldrum sínum þegar þá langar til og þannig ætti það einnig að vera með þessibörn. Samskipti foreldra og starfsfólks Alltof oft brennur við að samskipti foreldra og barns verði Iítil og gagn- kvæmar heimsóknir verði strjálar, rútineraðar og vandræðalegar. Þetta má í mörgum tilfellum rekjatilerfiðra samskipta foreldra og starfsfólks. Þarna rikir oft tortryggni í stað trausts, kuldi í stað samkenndar og lítiliækkandi tilhliðrunarsemi og þakklæti foreldra í stað krafna um að réttur barnsins sé virtur. Þetta hefur oft þá hættu í för með sér að for- eldrar gefa samvinnu upp á bátinn og ýta allri ábyrgð yfir á stofnunina. Þetta er hlutur sem má ekki gerast því þar með upplifir barnið tvöfalda höfnun, fyrst með því að fara á stofnun og síðan með afskiptaleysi foreldra. Einnig getur þetta orðið til þess að foreldrarnir fyllast beiskju og óánægju og starfsfólkinu finnist starf þeirra vanmetið og sniðgangi þannig barnið án þess að gera sér kannski fulla grein fyrir því. Þetta eru hlutir sem alltaf eru að gerast en mætti kannski lagfæra með því að reglu- gerð yrði sett um réttindi og skyldur foreldra. Þær hugmyndir sem komið hafa fram í því sambandi eru þessar: 1. Reglugerð verði samin um rétt og skyldur foreldra: a) Að það ríki algjör samvinna við foreldra í sambandi við ákvarðanatöku og meðferð. b) Að foreldrar fái ráðgjöf um möguleikana á þjálfun strax eftir fæðingu barnsins. c) Að foreldrar hafi rétt til að gagnrýna þjálfunina og sér- fræðiriga. 2. Að foreldrum beri skylda til að koma baminu í þjálfun við þess hæfi strax og fötlun kemur í ljós. Einnig að foreldrum beri skylda til að fylgjast með uppeldi og þjálfun barns síns á stofnunum. Stofnanasköðuð börn Börn á stofnunum verða því miður flest fyrir því að verða, auk sinnar upphaflegu fötlunar, stofnana- sköðuð, sem kemur mest til vegna þess hve stofnanirnar eru stórar, mik- illar rútínu, skorts á starfsfólki og of- verndunar, sem felur í sér einangrun. Hinar daglegu athafnir, svo sem að fara á fætur, borða og hátta, eru á mörgum stofnunum mjög rútínerað- ar, ekki síst þar sem lágt standandi einstaklingar eiga í hlut, og í mörgu falli gerir þessi rútína ekki mikið meira en halda lífi í börnunum og koma þeim á enn lægri standard en þau vom við innskrift á stofnunina. Þá á ég við til dæmis á morgnana þegar börnin eru klædd, sett á klósett og þeim þvegið, þá er þetta gert í færibandavinnu þannig að fyrsti starfsmaðurinn klæðir barnið úr náttfötunum og setur það á klósett, næsti tekur það og klæðir, þriðji þvær því og sendir það fram og svo koll af kolli. Þetta er ófögur lýsing og virkar ómannúðleg en þetta viðgengst á stofnunum og kannski ekki skrýtið þegar litið er á þá staðreynd að oft eru fjórir til fimm starfsmenn með fjórtán til fimmtán börn, kannski mismikið líkamlega fötluð og með misjafna sjálfshjálpargetu. Ef koma á í veg fyrir mikla varan- lega stofnanasköðun af völdum þess- arar rútínu verður að fjölga starfs- fólki, minnka heimiliseiningar til muna, láta tímatakmörk lönd og leið meðan forþjálfun bamsins stendur yfir og vinna með barninu en ekki fyrir það. Nauðsynlegt er að fjölga karlmönnum í starfi inni á stofnun- um. 1 dag er ástandið þannig að mikill meirihluti starfsmanna eru konur sem gerir það að verkum að börnin alast upp í óraunverulegum og hálfgerðum einkynja heimi. Auka verður reynslu barnsins Gefa verður baminu tækifæri til að læra af upplifun og reynslu, t.d. leyfa því að kynnast matartilbúningi því mörg þekkja aöeins mat þegar búið er að brytja hann á disk. Gefa verður barninu sjálfsákvörðunarrétt, að minnsta kosti að einhvejru leyti, hversu lágt standandi sem þau eru, þó ekki væri nema að fá að vera með i ráðum um fataval og fatakaup. Með því að minnka heimiliseiningar á Kjallarinn Guðrún Halla Jónsdóttir stofnunum gefst barninu tækifæri til að læra að lifa sem einstaklingur og þróa persónuleika sinn samkvæmt því. Meðan ástandið er þannig að svo til eingöngu er boðið upp á 2—4 manna herbergi er tæplega hægt að ímynda sér að viðkomandi einstakl- ingur geti átt nokkurt einkalíf, auk þess sem böðun og klósettferðir eru gerðar að hópsamkomum til að spara tíma. Þetta hefur það í för með sér að börnin fá brenglaða sjálfsmynd og missa virðingu fyrir eigin líkama. Hvernig er til dæmis hægt að ætlast til þess af barni að það skilji að það megi ekki ganga nakið um sameigin- lega setustofu ef sjálfsagt þykir að fjöldi manns horfi á það baðast. Mundum við láta bjóða okkur slíkt? Fólagsmál vangef inna í félagsmálum vangefinna er mörgu ábótavant. Oft er ekki tekið tillit til greindarfars né lifaldurs þegar um val á afþreyingarefni er að ræða. Sem dæmi um það má nefna þær skemmtanir sem vangefnum hefur löngum verið boðið upp á. Dansleikir hafa verið haldnir fyrir fólk á aldrin- um 2ja ára til níræðs á laugardags- eftirmiðdögum en skemmtiefni virðist þó eingöngu vera miðað við börn. Þetta stingur nokkuð í stúf við þær umræður sem nú eru í gangi um normaliseringu og blöndun og fram- kvæmd hennar. Ég held að okkur, þessu „venjulega” fólki, innan gæsa- lappa, þætti það hart ef allar okkar skemmtanir þyrftu að vera í félags- skap barna og gamalmenna, skemmtiatriði miðuð við kímnigáfu hvítvoðunga og reyndar skemmtana- haldið allt með sniði hefðbundins barnaballs. Hvað áhugamál hins vangefna varðar er víða pottur brotinn. Tilboðin eru fá og oftast eru það aðeins þeir getumestu sem hafa möguleika á að nýta sér þau. Segja má að svo til eingöngu íþróttaf'élögin stuðli að auknum félagsþroska van- gefinna barna og unglinga. Virkja þarf áhugalausa og lágt standandi einstaklinga til þátttöku í félagsstarf- semi með því að auka á félagsleg tilboð utan sem innan stofnunar. Samkvæmt kenningum normalis- eringar eiga þessir einstaklingar ský- lausan rétt á að nýta sér þau tilboð sem eru fyrir hendi i samfélaginu hverju sinni, s.s. námskeið í handa- vinnu, leikrænni tjáningu, dans- kennslu og ýmiss konar æskulýðs- starfsemi. Einnig er möguleiki að nýta sér þær ferðir sem boðið er upp á á vegum ferðafélaganna. Þó ber að gæta þess að fái einhver vistmaður tækifæri til þátttöku í félagsstarfsemi þarf það ekki endilega að þýða að allir vistmenn stofnunarinnar nýti sér sama tilboð, heldur gefa hverjum ein- staklingi tækifæri til að sinna því áhugamáli sem hugur hans hneigist að. Líkamlega fatlaðir oft útundan Þess ber sérstaklega að geta að þegar vistmanni stendur til boða þátt- taka í tómstundastarfi verða þeir sem einnig eru líkamlega fatlaðir oft að gjalda fötlunar sinnar með því að vera hafðir útundan. Stafar þetta fyrst og fremst af ófullnægjandi hjálpartækjabúnaði. í lokin vil ég minna fólk á að van- gefnir hafa sömu Ianganir, þrár og tilfinningar og við. Hjálp þeim til handa ætti ekki að vera af góð- mennsku og gæsku heldur vegna þess að þeir eiga fullan rétt á henni. Guðrún Halla Jónsdóttir þroskaþjálfanemi ^ „Alltof oft brennur viö aö samskipti for- eldra og barns verði lítil og gagnkvæmar heimsóknir verði strjálar, rútíneraðar og vand- ræðalegar. Þetta má í mörgum tilfellum rekja til erfiðra samskipta foreldra og starfsfólks.” frá N-Ameriku. Minnkun heima- veiða á laxi í N-Ameríku vegna veiða við Grænland telja þeir að nemi á bilinu 690—920 tonn á ári. Norð- menn hafa miklar áhyggjur af veiðum Færeyinga enda nemur norskur lax líkast til um þriðjungi af afla Færeyinga, eins og kemur fram héráeftir. Gjörsamlega vonlaust er að gera sér grein fyrir því hvaða áhrif lax- veiðar Færeyinga i sjó hafa á laxa- gengd hér á landi, því fyrir hendi eru engin gögn til að draga nokkrar ályktanir þar um. 2—3 íslensk merki hafa þó fundist í löxum veiddum í Noregshafi og við Færeyjar. Þessi fá- tæklegu gögn sýna, að íslenskan lax er að finna á þessu hafsvæði, en í hvað miklu magni hann er á veiðislóð Færeyinga og í afla færeyskra lax- veiðibáta veit enginn með neinni vissu. Fullyrðingar um, að íslenskur lax sé hverfandi hluti í afla Færey- inga eru augljós vitleysa. Eina sem hægt er að fullyrða um er, að við höfum engin íslensk gögn eða rann-. sóknir til þess að sanna neitt eða af- sanna í þessu máli. Gagnaleysi okkar í þessu máli er grátleg staðreynd, þegar ýmsar líkur virðast nú benda til þess, að stór- auknar laxveiðar Færeyinga síðustu 2 ár hafa valdið okkur stórum búsifj- um. Lftill fjöldi merktra laxa Eins og fram kemur í Morgun- blaðinu í grein Jakobs Hafstein þann 27.8. sl. var 1751 lax merktur við Færeyjar 1969—1976. 4,7% af sam- tals um 5% endurheimtum frá þessum merkingum skilaði sér í heimaveiði ýmissa landa, þar af þriðjungur í Noregi, um 38% í Skot- landi, 15% á írlandi og minna í Sví- þjóð, Englandi og Sovétríkjunum. Fjöldi merktra laxa var það lítill, að miðað við stærð stofna þessara landa og smæð íslenska laxastofnsins hefði tilviljun ein getað látið merki reka á fjörur íslenskra laxveiðimanna. Á þessum árum var afli Færeyinga mestur 40 tonn, en hin árin innan við 30 tonn og veiðisvæðið var eingöngu i grennd við eyjarnar og mest veitt á vorin. Þessar merkingar gefa enga vísbendingu um það, hvort íslenskur lax er i afla Færeyinga í dag. Veiðar. í öllu Noregshafi voru á árunum 1969 og 1970 yfir 900 tonn, en á árabilinu 1971 —1979 minnkuðu þessar veiðar úr rúmum 300 tonnum í rúm 200 tonn. Færeysku veiðarnar árið 1980ogsérstaklega 1981 takaþví öllu fram, bæði fyrri veiðum Færey- inga og heUdarveiðum í Noregshafi. Auk þess verður að líta til þess að veiðisvæði Færeyinganna og veiði- tími hefur breyst. Færeyingar veiða nú laxinn frá því seint á haustin og fram á sumar. Veiðisvæðið er nú ekki bara í grennd við Færeyjar, heldur öll fær- eyska lögsagan upp að íslensku lög- sögunni og norður með henni eins langt og Færeyingar mega fara. Það er ekki ósennUegt, að við þessa stækkun veiðisvæðis Færeyinga hafi hlutdeild íslensks lax í veiðunum stór- aukist. Eins og ég gat um áðan höfum við engin gögn til þess að átta okkur á veiðum Færeyinga. Það fer þó ekki hjá því, að ljótur grunur læðist að manni, þegar stóraukin veiði Færeyinga tvö síðustu ár og stórkostleg aukning á veiðisvæði þeirra í áttina að íslensku fiskveiði- lögsögunni fer saman við mikla minnkun laxagengdar á Norður- og Norðausturlandi, þaðan sem líklegast er, að laxinn Ieiti austur fyrir Iand. Skipuleg leit að göngum íslenskir sjómenn, sem fylgst hafa með veiðum Færeyinga, segja frá því að þeir leiti skipulega að göngum á stóru hafsvæði. Eftir að ganga hefur fundist þyrpast bátarnir síðan á gönguna og veiða úr henni meðan eitthvað fæst. Því miður eru laxa- göngur frá Norður- og Norðaustur- landi ekki merktar, svo að ekki er vitað hvort þeir hafi ekki e.t.v. hitt á einhverja slíka göngu fyrir norð- austan eða austan land. Mikið fé hefur verið lagt i laxarækt og hafbeitartilraunir undanfarin ár og mikil áform eru uppi um hafbeit frá ýmsum stöðum á íslandi á næstu árum. Alltof miklir hagsmunir eru í húfi til að unandi sé við það, að við vitum ekki vissu okkar um göngur íslenska laxins í sjó umhverfis landið og sömuleiðis hvaða áhrif veiðar Færeyinga í Noregshafi og Græn- lendinga við V-Grænland hafa á endurheimtur hér á landi. Dæmin um áhrif veiða við V- Grænland á endurheimtur á írlandi og í N-Ameríku sýna, að þessar veiðar geta haft stórkostleg áhrif á endurheimtur. Ef laxveiðar í sjó rýra endurheimtur í hafbeit á íslandi um þau prósent, sem skipta sköpum fyrir afkomu hennar, er það of alvarlegt mál til að láta það afskiptalaust. Til að tryggja framtíð hafbeitar á íslandi, verðum við að gera á næstu árum stórátak í þvi að rannsaka göngu laxins í sjó með stórauknum merkingum, bæði gönguseiða og á laxi veiddum í sjó umhverfis landið, og jafnframt að setja veiðar Færey- inga undir smásjá. Eyjólfur Friðgeirsson fiskifræðingur A „Fullyrðingar um, aö íslenskur lax sé hverfandi hluti í afla Færeyinga eru augljós vitleysa. Eina sem hægt er aö fullyrða um er, að við höfum engin íslensk gögn eða rannsóknir til að sanna neitt eða afsanna í þessu máli.”

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.